Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur. Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði húinu í hinu víðfræga atriði í áramótaskaupinu hér um árið. Matthildur er lögfræðingur að mennt og he...
Jul 20, 2022•1 hr 20 min•Season 1Ep. 65
Á dögunum fékk ég til mín í spjall handboltamanninn knáa Bjarka Má Elísson og hans betri helming Unni Ósk Steinþórsdóttur. Bjarki hefur verið atvinnumaður í handbolta frá árinu 2013 en hann hefur spilað með þremur mismunandi liðum í Þýskalandi og getið að sér einstaklega gott orð í horninu en var hann einmitt áberandi á síðasta stórmóti landsliðsins fyrir frábæra frammistöðu. Unnur er menntuð í sálfræði og fötlunarfræði og hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur á þeim stöðum þar sem þau hafa búið...
Jul 13, 2022•1 hr 16 min•Season 64Ep. 1
Í þætti dagsins fékk ég til mín hjón sem flestir Íslendingar ættu að kannast við enda Íslendingar Eurovision aðdáendur með meiru en þetta eru að sjálfsögðu Gagnamagnshjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir. Daði og Árný eru búsett í Berlín en hafa þau átt heima þar undanfarin 8 ár og er enginn heimferðarhugur í þeim en kunna þau einstaklega vel við sig í Berlín þar sem þau hafa komið sér vel fyrir ásamt börnunum sínum tveimur. Þar er Daði með sitt eigið stúdíó þar sem músík töfra...
Jul 06, 2022•1 hr 24 min•Season 1Ep. 63
Fegurðardrottingin og athafnakonan Arna Ýr Jónsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helming, Vigni Þór Bollasyni kírópraktor í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall. Arna ýr var krýnd Ungfrú Ísland árið 2015 og tók í kjölfarið þátt fyrir Íslands hönd í hinum ýmsu fegurðarsamkeppnum úti í heimi ásamt því að hreppa titilinn Miss Universe Iceland árið 2017. Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar en hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum rekur í dag fyrirtækið taubleyjur.is og stundar ás...
Jun 29, 2022•1 hr 30 min•Season 1Ep. 62
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt og forvitnilegt spjall við kynfræðinginn Sigríði Dögg Arnarsdóttur, eða Siggu Dögg eins og hún er alltaf kölluð, og hennar betri helming Sævar Eyjólfsson. Sigga Dögg hefur verið áberandi í samfélaginu undanfarin ár og má segja að hún sé þekktasti og umtalaðisti kynfræðingur landsins en hún hefur algjöra ástríðu fyrir því að fræða fólk á öllum aldri um kynlíf og kynhegðun og er hún einmitt nú ásamt Sævari að reka fyrirtæki sem sérhæfir sig í kynfræðslu fyrir...
Jun 22, 2022•2 hr 7 min•Season 1Ep. 61
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur og Júlí Heiðar Halldórsson. Dísu og Júlí er margt til listanna lagt en eru þau bæði útskrifaðir leikarar og hafa tekist á við hin ýmsu verkefni í leiklistarheiminum ásamt því að þau eru bæði mjög áberandi í tónlistarsenunni. Dísa hefur undanfarið verið með annan fótinn á Akureyri þar sem hún hefur tekið þátt í uppfærslum leikrita undanfarin 4 ár hjá leikfélagi Akureyrar ásamt því að slá í gegn með Reykjavík...
Jun 15, 2022•1 hr 30 min•Season 1Ep. 60
Í þættinum í dag fékk ég til mín söngkonuna Regínu Ósk Óskarsdóttur og hennar betri helming Sigursvein Þór Árnason ,sem er þó alltaf kallaður Svenni og áttum við ótrúlega létt og skemmtilegt spjall. Þau eru bæði búin að láta mikið af sér kveða í tónlistarlífinu undanfarin ár, en er Regína söngkona af guðs náð ásamt því að vera skólastýra í Söngskóla Maríu Bjarkar, á meðan Svenni semur poppsmelli, syngur og smíðar. Regína og Svenni eru búin að vera saman í 15 ár og eiga saman 2 börn en átti Regín...
Jun 08, 2022•1 hr 23 min•Season 1Ep. 59
Fjölmiðlakonan Þórhildur Þorkelsdóttir og hennar betri helmingur Hjalti Harðarson mættu til mín í ansi skemmtilegt spjall nú á dögunum. Þórhildur hefur starfað í fjölmiðlum undanfarin 10 ár en skipti nýlega um starfsvetfang og tók við stöðu kynningarstjóra BHM. Hún talar þó um það í þættinum að erfitt sé að slíta sig alfarið frá fjölmiðlunum og til að sinna áfram þessum gríðarlega fjölmiðlaáhuga ákváð hún ásamt vinkonu sinni og fjölmiðlakonu Nadine Guðrúnu Yaghi að fara af stað með podcastið Eft...
Jun 01, 2022•1 hr 19 min•Season 1Ep. 58
Í þessum 57. þætti átti ég frábært & forvitnilegt spjall við hjónin Þórhildi Magnúsdóttur og Kjartan Loga Ágústsson. Þórhildur heldur úti Instagram-reikningnum vinsæla Sundur & Saman þar sem hún fjallar til dæmis um sambönd og samskipti í samböndum en hún heldur einnig námskeið og hjálpar fólki að bæta sambandið, saman & í sitthvoru lagi. Kjartan starfar í dag sem læknir og er hann í sérnámi í röntgenlækningum. Þórhildur & Kjartan hafa vakið athygli á undanförnum misserum en eru ...
May 25, 2022•1 hr 32 min•Season 1Ep. 57
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listahjónin Eddu Björgu Eyjólfsdóttur og Stefán Magnússon. Eddu ættu flestir að kannast við en hefur hún verið verið áberandi bæði á fjölum leikhúsana sem og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og má sem dæmi nefna sketsaþættina geysivinsælu Stelpurnar, Svínasúpunu og fór hún nú síðast á kostum í Allra síðustu veiðiferðinni. Stefán eða Stebbi eins og hann er alltaf kallaður er gítarleikari að guðs náð og hefur hann undanfarið haldið tónleika fyrir la...
May 18, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 56
Í þessum þætti átti ég virkilega áhugavert og skemmtilegt spjall við tónlistarkonuna Steinunni Camillu Stones og hennar betri helming byggingarverkfræðinginn Erling Örn Hafsteinsson. Eins og frægt er orðið gerðu Steinunn og vinkonur hennar allt vitlaust hér á árum áður í stúlknasveitinni Nylon, en hún sagði einmitt frá því í þættinum að þetta hafi einungis byrjað sem drauma sumarvinna sem vatt heldur betur uppá sig en áður en stelpurnar vissu af voru þær komnar í hóp eftirsóttustu tónlistarmanna...
May 11, 2022•2 hr 9 min•Season 1Ep. 55
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóra og hans betri helming, Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur. Það eru fáir íslendingar sem geta státað sig af því að hafa verið leikhússtjóri þriggja stórra leikhúsa landsins og í ofanálag útvarpsstjóri og hvað þá að hafa tekið við sínu fyrsta leikhúsi aðeins 31 árs gamall, en eins og Magnús segir sjálfur kviknaði leiklistarbakterían snemma en hann stofnaði sitt fyrsta leikhús 9 ára gamall og var strax þá farinn að ...
May 04, 2022•1 hr 19 min•Season 1Ep. 54
Í þessum 53 þætti, fékk ég til mín í stórskemmtilegt spjall leikkonuna Lindu Ásgeirsdóttur og hennar betri helming Sigurð Gunnar Gissurarson. Linda hefur verið fastagestur á skjám landsmanna í yfir 19 ár en hana ættu flestir að kannast við sem Skoppu úr hinum geysivinsælu barnaþáttum Skoppu og Skrítlu. Þær vinkonur hafa í gegnum tíðina brallað ansi margt saman en auk sjónvarpsþátta má nefna leikrit, framkomur á allskonar hátíðum og hafa þær undanfarið einnig verið með námskeið fyrir börn allt fr...
Apr 27, 2022•1 hr 38 min•Season 1Ep. 53
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Margréti Láru Viðarsdóttur, eina okkar allra bestu fótboltakonu fyrr og síðar og eiginmann hennar og betri helming, Einar Örn Guðmundsson sjúkraþjálfara og fyrrum handboltamann. Margrét Lára var eins og flestir vita lykilmaður í íslenska landsliðinu í fótbolta um árabil og á heldur betur glæstan feril að baki sem við fórum yfir í þættinum en starfar hún í dag sem sálfræðingur ásamt því að birtast reglulega á skjám landsmanna til dæmis í knattspyr...
Apr 13, 2022•1 hr 33 min•Season 1Ep. 52
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helming Sonju Jónsdóttur. Sigurður, eða Siggi eins og hann er alltaf kallaður, hefur gert garðinn frægan á fjölum leikhúsanna sem og í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og fer hann einmitt á kostum þessa dagana í myndinni “Allra síðasta veiðiferðin”. Sonja er nýkomin heim frá San Fransisco þar sem hún hefur verið að læra vefhönnun undanfarin ár og festu þau nýlega kaup á sinni fyrstu íbúð saman. Siggi & Sonja ky...
Apr 06, 2022•1 hr 10 min•Season 1Ep. 51
Fjölmiðlamaðurinn Einar Þorsteinsson hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem fréttamaður en einnig sem einn af stjórnendum Kastljóss en hefur hann nú sagt skilið við sjónvarpið í bili og freistar gæfunnar í borgarpólitíkinni. Það var einmitt á RÚV sem hann kynntist sínum betri helming, Millu Ósk Magnúsdóttur, en var hún einnig að vinna á fréttastofunni á þeim tíma. Milla fór einnig út í pólitík, þó aðeins á undan Einari og er hún í dag aðstoðarkona Willum Þórs Þórssonar heilb...
Mar 30, 2022•1 hr 19 min•Season 1Ep. 50
Í þessum þætti átti ég einlægt og virkilega gott spjall við eina af okkar ástsælustu leikkonum síðustu áratuga og núverandi Borgarleikhússtjóra, Brynhildi Guðjónsdóttur, og hennar betri helming, sviðsmyndahönnuðinn Heimi Sverrisson. Það er óhætt að segja að Brynhildur og Heimir hafi kynnst á aðeins öðruvísi hátt en gengur og gerist en segja þau skemmtilega frá því í þættinum og eins og Brynhildur orðar sjálf einstaklega vel - þá keypti Heimir svo sannarlega ekki köttinn í sekknum. Brynhildur og ...
Mar 23, 2022•1 hr 34 min•Season 1Ep. 49
Í þessum þætti átti ég alveg hreint stórskemmtilegt spjall við stórskemmtilegt fólk sem höfðu frá miklu áhugaverðu og skemmtilegu að segja, þau Sólmund Hólm, eða Sóla eins og hann er oftast kallaður og unnustu hans, Viktoríu Hermannsdóttur. Þau Sóli og Viktoría sitja ekki auðum höndum og hafa undanfarin ár getið sér gott orð hvort á sínu sviði en Sóli er grínisti, eftirherma og vinsæll skemmtikraftur og er um þessar mundir með vetrarsýninguna sína í gangi í Bæjarbíói, Loksins Eftirhermur, á meða...
Mar 16, 2022•2 hr 10 min•Season 1Ep. 48
Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall við listahjónin Arnar Dan Kristjánsson og Sigríði Soffíu Hafliðadóttur, eða Siggu Soffíu eins og hún er yfirleitt kölluð. Arnar útskrifaðist frá Leiklistadeild LHÍ árið 2013 og hefur leikið í hinum ýmsu verkum á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Honum er margt til lista lagt en ásamt því að vera leikari stofnaði hann á sínum tíma veitingastaðinn Reykjavík Chips ásamt æskuvinunum og nú síðast bjó hann til og framl...
Mar 09, 2022•1 hr 25 min•Season 1Ep. 47
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við ofur-parið Línu Birgittu Sigurðardóttur og Guðmund Birki Pálmason, eða Gumma Kíró eins og hann er gjarnan kallaður. Lína og Gummi hafa verið áberandi undanfarin ár bæði saman og í sitthvoru lagi en Lína er meðal annars athafnakona með meiru, áhrifavaldur og rekur sitt eigið fyrirtæki, Define the Line, þar sem hún selur íþróttafatnað og kósýföt sem hafa slegið rækilega í gegn. Gummi er afar vinsæll kírópraktor og er eigandi Kírópraktorstöðvar Reyk...
Mar 02, 2022•1 hr 19 min•Season 1Ep. 46
Í þessum þætti átti ég einlægt og virkilega gott spjall við einn af okkar ástsælustu leikurum, Sigga Sigurjóns, og hans betri helming til hvorki meira né minna en 45 ára, Lísu Harðardóttur. Siggi og Lísa eru Hafnfirðingar í húð og hár en hafa þau bæði búið þar frá blautu barnsbeini og búa þau þar enn þann dag í dag. Þá hefur Lísa einmitt tekið stóran þátt í uppeldi Hafnfirðinga þar sem hún hefur starfað sem leikskólakennari á sama leikskólanum í heil 25 ár. Leiðir þeirra lágu saman í Hjálparsvei...
Feb 23, 2022•1 hr 13 min•Season 1Ep. 45
Í þessum þætti átti ég virkilega gott spjall við söngvarann og tónlistarmanninn Hreim Örn Heimisson og hans betri helming, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur. Hreimur hefur lengi verið einn ástsælasti tónlistarmaður landsins en hóf hann ferilinn með hljómsveitinni Landi og sonum árið 1997 en þegar fyrsti slagarinn þeirra "Vöðvastæltur" kom út fóru hjólin heldur betur að snúast hjá þeim og urðu þeir fljótt ein vinsælasta hljómsveit landsins. Í dag, 25 árum síðar, er Hreimur enn í fullu fjöri í músíkin...
Feb 16, 2022•1 hr 26 min•Season 1Ep. 44
Í þessum þætti átti ég virkilega áhugavert, fróðlegt & skemmtilegt spjall við Inga Torfa Sverrisson og hans betri helming, Lindu Rakel Jónsdóttur. Ingi Torfi og Linda reka saman fyrirtækið ITS macros sem hefur hjálpað þúsunudum íslendinga að taka til í mataræðinu og bæta heilsuna á undanförum árum með macros hugmyndafræðinni sem þau kenna á námskeiðum sínum. Fyrirtækið hefur heldur betur sprungið út hjá þeim síðan það hóf göngu sína en var það til að byrja með einungis lítið gæluverkefni Ing...
Feb 09, 2022•1 hr 38 min•Season 1Ep. 43
Leikararnir Ebba Katrín Finnsdóttir og unnusti hennar Oddur Júlíusson eiga það sameiginlegt að hafa bæði útskrifast af leiklistadeild LHÍ og skotist hratt upp á stjörnuhimininn í kjölfarið á því. Oddur útskrifaðist árið 2013 og hefur síðan þá verið fastráðinn í Þjóðleikhúsinu samhliða því að hann hefur komið fram í þáttum og kvikmyndum á meðan Ebba útskrifaðist árið 2018. Hún tók þá eitt leikár Borgarleikhúsinu áður en hún færði sig yfir í Þjóðleikhúsið veturinn 2019 og hefur hún verið síðan þá ...
Feb 02, 2022•1 hr 22 min•Season 1Ep. 42
Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall við leikaraparið Arnmund Ernst og Elleni Margréti Bæhrenz. Arnmundur útskrifaðist frá leikarabraut LHÍ árið 2013 og hefur síðan þá leikið í hinum ýmsu verkum á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum hérlendis á sama tíma og hann er einnig farinn að láta ljós sitt skína á erlendri grundu. Ellen er margt til lista lagt en hún útskrifaðist af leikarabraut LHÍ síðasta vor en hún hefur verið dansari alla tíð og starfaði til...
Jan 26, 2022•1 hr 22 min•Season 1Ep. 41
Edda Sif Pálsdóttir hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem íþróttafréttakona en einnig sem þáttastjórnandi í hinum geysivinsæla þætti Landanum á Rúv en hún segir frá þvi í þættinum að það hafi í raun aldrei komið annað til greina hjá henni en að starfa í fjölmiðlum þar sem hún hafi svo gott sem alist upp innan veggja þeirra. Það er einmitt þar sem hún kynntist sínum betri helmingi, Vilhjálmi Siggeirssyni, en hann hefur starfað í sem pródúsent á íþróttadeildinni á Rúv í rúm 1...
Jan 19, 2022•1 hr 12 min•Season 1Ep. 40
Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við Dagnýju Brynjarsdóttur, landsliðskonu í fótbolta og eiginmann hennar og betri helming, Ómar Pál Sigurbjartsson. Dagný hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu í fótbolta síðan 2010 og á heldur betur glæstan feril að baki sem við fórum yfir í þættinum en í dag er hún búsett í London ásamt Ómari og Brynjari Atla syni þeirra þar sem hún spilar með West ham United. Ómar er rafvirki og rafiðnfræðingur að mennt og starfar hjá verkfræðistofunni Efl...
Jan 12, 2022•1 hr 9 min•Season 1Ep. 39
Það er seint hægt að segja um listamanninn Snæbjörn Ragnarsson að hann sitji auðum höndum en hann er ekki einungis meðlimur þungarokks- hljómsveitarinnar Skálmaldar og Ljótu hálvitanna heldur starfar hann einnig á auglýsingastofu og heldur úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Snæbjörn Talar við Fólk. Snæbjörn kynntist sínum betri helmingi, Agnesi Grímsdóttur, á fjölum leikhúsanna en hún var þá einungis 15 ára gömul og Snæbjörn þrettán árum eldri svo það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar að ...
Jan 05, 2022•1 hr 23 min•Season 1Ep. 38
Síðustu viðmælendur þessa árs eru ekki af verri endanum en það eru þau Ágústa Johnson líkamsræktarfrömuður með meiru og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra. Ágústa og Guðlaugur hafa verið gift í 20 ár, eiga fjögur börn og þrjú barnabörn. Þau höfðu vitað af hvort öðru í nokkur ár áður en þau fóru að stinga saman nefjum en Guðlaugur var að æfa í líkamsræktarstöðinni hjá henni og hafði náð svo góðum árangri að Ágústa náði að plata hann í það verkefni að vera fyrirsæta fyrir karlatíma stöðvari...
Dec 29, 2021•1 hr 16 min•Season 1Ep. 37
Björn Stefánsson eða Bjössi í mínus eins og hann er oft kallaður og hans betri helmingur, Íris Dögg Einarsdóttir, eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni og áttum við ótrúlega áhugavert og einlægt spjall um sambandið, lífið, tilveruna & allt þar á milli. Þeim er báðum margt til lista lagt en Bjössi er leikari, þungarokkari og trommari á meðan Íris er ljósmyndari og hefur getið sér gríðarlega gott orð á þeim vettvangi. Bjössi og Íris hafa verið saman í 20 ár og eiga saman þrjú börn og sögðu ...
Dec 22, 2021•1 hr 9 min•Season 1Ep. 36