#50 - Einar & Milla - podcast episode cover

#50 - Einar & Milla

Mar 30, 20221 hr 19 minSeason 1Ep. 50
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Fjölmiðlamaðurinn Einar Þorsteinsson hefur verið áberandi á skjám landsmanna um árabil, bæði sem fréttamaður en einnig sem einn af stjórnendum Kastljóss en hefur hann nú sagt skilið við sjónvarpið í bili og freistar gæfunnar í borgarpólitíkinni. Það var einmitt á RÚV sem hann kynntist sínum betri helming, Millu Ósk Magnúsdóttur, en var hún einnig að vinna á fréttastofunni á þeim tíma.
Milla fór einnig út í pólitík, þó aðeins á undan Einari og er hún í dag aðstoðarkona Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra en þar áður starfaði hún í menntamálaráðuneytinu við hlið Lilju Alfreðsdóttur.
Það er óhætt að segja að það sé nóg um að vera hjá þeim hjónum en ásamt því að vera nýflutt & Einar í miðri kosningabaráttu eiga þau von á sínu fyrsta barni saman. Í þættinum fórum við um víðan völl og ræddum við meðal annars árin þeirra á RÚV, draumabrúðkaupið á Spáni sem breyttist í sveitabrúðkaup á Varmalandi sem breyttist í lítið brúðkaup í Hallgrímskirkju, bónorðið, kraftaverkið að verða ólétt ásamt því að þau sögðu mér margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð, þar á meðal skemmtilegan misskilning Einars í kirkjunni þegar Milla sýndi söngvaranum óvænta athygli.

Aha.ishttps://aha.is

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android