Betri helmingurinn með Ása - podcast cover

Betri helmingurinn með Ása

Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#35 - Gói & Inga

Í þessum þætti fékk ég til mín virkilega góða gesti þau Guðjón Davíð Karlsson, eða Góa eins og hann er alltaf kallaður, og eiginkonu hans Ingibjörgu Ýr Óskarsdóttur. Gói er í dag fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið en hefur hann í gegnum tíðina leikið í fjölda verka á fjölum leikhúsanna, í sjónvarpi og kvikmyndum, samið handrit og leikstýrt bæði í leikhúsi og sjónvarpi. Inga er ljósmóðir og segir frá því í þættinum að eftir að hún varð vitni að fyrstu fæðingunni í hjúkrunarfræðináminu hafi ekki...

Dec 15, 20211 hr 44 minSeason 1Ep. 35

#34 - Sverrir Bergmann & Kristín Eva

Tónlistarmanninn Sverri Bergmann þarf vart að kynna fyrir fólki en hann hefur á undanförnum árum og áratugum sungið sig heldur betur inn í hug og hjörtu landsmanna. Hann kíkti í heimsókn til mín í stúdíóið á dögunum ásamt kærustu sinni, barnsmóður og betri helming, Kristínu Evu Geirsdóttur og áttum við virkilega skemmtilegt spjall. Nú er jólavertíð hjá flestum tónlistarmönnum og er Sverrir þar engin undantekning en það er nóg að gera hjá honum þessa dagana bæði í skemmtanabransanum ásamt því að ...

Dec 08, 20211 hr 19 minSeason 1Ep. 34

#33 - Ása Ninna & Árni Bragi

Ása Ninna Pétursdóttir fatahönnuður og fjölmiðlakona kom í skemmtilegt spjall ásamt kærasta sínum og betri helming, Árna Braga Hjaltasyni. Ása Ninna hefur undanfarin ár haldið utan um miðilinn Makamál á Vísi.is þar sem hún kafar ofan í allt sem tengist ástinni, tilhugalífinu og stefnumótamenningu Íslendinga. Í haust fór hún síðan af stað með mannlífs- og stefnumótaþáttinn Fyrsta Blikið og sló hann vægast sagt í gegn og er undirbúningur nú þegar hafinn að næstu þáttaröð. Árni Bragi er verkefnastj...

Dec 01, 20211 hr 23 minSeason 1Ep. 33

#32 - Elísabet Metta & Ágúst Freyr

Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, eða Metta og Áki eins og þau eru gjarnan kölluð, eru eigendur og stofnendur Acaí skálar-staðarins Maikai, sem slegið hefur heldur betur í gegn undanfarin misseri. Metta og Áki kynntust árið 2016, rétt áður en Metta fór í 6 vikna ferðalag til Balí, þar sem hún kynntist alvöru Acaí skálum og varð strax heilluð. Það var þó ekki fyrr en rúmu ári síðar sem hugmyndin fór að þróast hjá þeim að færa Íslendingum almennilega Acaí skál en þau segja...

Nov 24, 20211 hr 27 minSeason 1Ep. 32

#31 - Hermann Hreiðars & Alexandra Fanney

Það er óhætt að segja að Hermann Hreiðarsson sé sannkölluð fótbolta goðsögn en hann spilaði með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í 15 ár frá árunum 1996- 2011 og hefur hann spilað flesta leiki í ensku úrvalsdeildinni af öllum Íslendingum þar sem hann gerði garðinn frægann meðal annars í Crystal Palace, Charlton og Portsmouth. Undanfarin ár hefur hann snúið sér að þjálfun og er hann um þessar mundir að undirbúa flutninga til Vestmannaeyja ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann hefur tekið við li...

Nov 17, 20211 hr 29 minSeason 1Ep. 31

#30 - Birkir Már & Stebba

Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Birki Már Sævarsson og eiginkonu hans og hans betri helming, Stefaníu Sigurðardóttur eða Stebbu eins og hún er gjarnan kölluð. Birkir Már hefur gegnt lykilhlutverki í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta um árabil en var hann til að mynda fastamaður í byrjunarliði landsliðsins bæði á evrópumótinu í Frakklandi árið 2016 og heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018. Birkir Már hafði verið í atvinnumennsku í átta ár bæði Noregi og Svíþjóð áður en han...

Nov 10, 20211 hr 8 minSeason 1Ep. 30

#29 - Elísabet Gunnars & Gunnar Steinn

Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti þau Gunnar Stein Jónsson landsliðsmann í handbolta og Elísabetu Gunnarsdóttur bloggara, áhrifavald og stofnanda og eiganda bloggsíðunnar vinsælu, Trendnet.is. Elísabet og Gunnar hafa verið saman frá því þau voru unglingar en segja þau frá þeirra fyrstu kynnum í sjötta bekk, þegar þau urðu síðan sessunautar í 8. 9. og 10. bekk og að ensku kennarinn þeirra hafi þá margoft þurft að sussa á þau þar sem þau gátu ekki hætt að spjalla saman en það var einmit...

Nov 03, 20211 hr 13 minSeason 1Ep. 29

#28 - Hjálmar & Ljósa

Það er óhætt að segja að Hjálmar Örn Jóhannsson sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins en hann skaust hratt upp stjörnuhiminn á Snapchat fyrir nokkrum árum þar sem hann sló í gegn sem hinir ýmsu karakterar. Hvítvínskonan er sennilega einn af hans allra vinsælustu karakterum og má segja að hún sé orðin aðal-heiðursgestur í samkvæmum á Íslandi í dag, þá einna helst hjá hvítvínskonum landsins. Hjálmar er annar þáttastjórnanda eins vinsælasta hlaðvarps landsins Hæhæ og kemur hann einnig regluleg...

Oct 27, 20211 hr 13 minSeason 1Ep. 28

#27 - Elma Lísa & Reynir Lyngdal

Þau Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir eru sannkölluð listahjón en þau hafa bæði getið sér gott orð í leiklistarheiminum, Elma Lísa sem leikkona og Reynir sem leikstjóri- og kvikmyndagerðarmaður. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en Reynir er meðal annars að leikstýra áramótaskaupinu þriðja árið í röð og er Elma Lísa flugfreyja hjá Icelandair á milli þess sem hún leikur á sviði eða í kvikmyndum og þáttum en í sumar kom til að mynda út kvikmyndin Saumaklúbburinn sem sló rækilega...

Oct 20, 20211 hr 24 minSeason 1Ep. 27

#26 - Björgvin Páll & Karen

Í þessum þætti átti ég einlægt og stórskemmtilegt spjall við Björgvin Pál Gústavsson, landsliðsmarkvörð í handbolta, og eiginkonu hans og betri helming Kareni Einarsdóttur. Björgvin Páll er einn reynslumesti leikmaður landsliðsins í dag en hann á að baki yfir 230 landsleiki og hefur farið á 13 stórmót síðan á ólympíuleikunum í Peking árið 2008 þar sem landsliðið hreppti silvurverðlaunin eftirminnilegu. Björvin Páll er með marga bolta á lofti en í dag spilar hann með Val ásamt því að hafa snúið s...

Oct 13, 20211 hr 16 minSeason 1Ep. 26

#25 - Sylvía & Emil

Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt spjall við Sylvíu Briem Friðjónsdóttur og hennar betri helming, Emil Þór Jóhannsson. Sylvía er Dale Carnige þjálfari, markþjálfi, fyrirlesari og athafnakona með meiru ásamt því að vera annar umsjónarmaður Normsins sem hefur verið eitt vinsælasta hlaðvarp landsins síðan það hóf göngu sína árið 2018. Emil hefur starfað í flugbransanum undanfarin ár og var hann starfsmaður WOW air þegar hann þurfti að hugsa dæmið upp á nýtt á sínum tíma þegar það góða fy...

Oct 06, 20211 hr 5 minSeason 1Ep. 25

#24 - Herra Hnetusmjör & Sara

Í þessum þætti fékk ég til mín frábæra gesti en Herra Hnetusmjör og hans betri helmingur, Sara Linneth, kíktu til mín í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall. Herra hnetusmjör ættu flestir að kannast við en hann er einn vinsælasti tónlistarmaður og rappari Íslands og hefur í rauninni verið það síðan hann vakti fyrst athygli árið 2014. Hann hefur einnig látið til sín taka í íslensku athafnalífi og opnaði hann skemmtistaðinn 203 í Austurstræti í febrúar 2020 og nú síðast versluna Vörina sem opnað...

Sep 29, 20211 hr 8 minSeason 1Ep. 24

#23 - Rakel Orra & Ranni

Í þessum þætti átti ég skemmtilegt spjall við Rakel Orradóttur og hennar betri helming, Rannver Sigurjónsson. Rakel er samskiptastjóri hjá Swipe Media og áhrifavaldur ásamt því að vera annar umsjónarmaður hlapvarpsins “Ástríðukastið” sem fjallar um samskipti í samböndum, kynlíf og allt þar á milli en það má heldur betur segja þessi málefni séu Rakel afar hugleikin en hún er einmitt ný sest skólabekk þar sem hún stefnir á að verða sambandsráðgjafi í náinni framtíð. Rannver eða Ranni, eins og hann...

Sep 22, 20211 hr 19 minSeason 1Ep. 23

#22 - Bjarni Ben & Þóra

Í þessum þætti fékk ég til mín engann annan en fjármálaráðherra Íslands, Bjarna Benediktsson og hans betri helming og eiginkonu til 26 ára, Þóru Margréti Baldvinsdóttur. Bjarni var í lögmennsku áður en hann sneri sér að pólitík en hann hefur verið alþingismaður síðan 2003 og hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2009. Þóra er mikill fagurkeri og hefur hún í gegnum tíðina hjálpað fjöldanum öllum af Íslendingum að fegra í kringum sig en hún hefur starfað sem hönnunarráðgjafi ásamt þv...

Sep 15, 20211 hr 15 minSeason 1Ep. 22

#21 - Þorgerður Katrín & Kristján

Það var mér sannur heiður að fá kjarnakonuna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur til mín í einlægt og ótrúlega gott spjall ásamt eiginmanni hennar, Kristjáni Arasyni. Þorgerður er eins og flestir vita alþingismaður en hún hefur verið á alþingi síðan 1999. Í dag er hún formaður Viðreisnar og hefur gegnt því veigamikla hlutverki síðan 2017. Kristján er fyrrum handbolta legend með meiru en hann fór út í atvinnumennsku á sínum tíma ásamt því að vera lykilmaður í íslenska landsliðinu og árið 1989 var hann...

Sep 08, 20211 hr 18 minSeason 1Ep. 21

#20 - Felix & Baldur

Í þætti dagsins fékk ég til mín góða gesti en þeir Felix Bergsson og eiginmaður hans, Baldur Þórhallsson kíktu til mín í einlægt og virkilega skemmtilegt spjall. Felix ætti að vera flestum kunnugur en hann er leikari, söngvari, útvarpsmaður, eurovision spekingur og svo lengi mætti telja ásamt því að hafa á sínum tíma talað inn á allar vinsælustu Disney myndir allra tíma. Baldur er stjórnmálafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands ásamt því að reka ferðaþjónustufyrirtækið “Hellarnir við Hellu”...

Sep 01, 20211 hr 28 minSeason 1Ep. 20

#19 - Arna Petra & Tómas

Það er óhætt að segja Arna Petra Sverrisdóttir sé einn vinsælasti vídjó-bloggari landsins en hún heldur úti vinsælli Youtube-rás ásamt því að vera bloggari á Trendnet þar sem hún deilir öllu milli himins og jarðar allt frá tískupælingum til fæðingar frumburðarins. Arna Petra var búsett í Svíþjóð ásamt Tómasi Inga Gunnarssyni, kærasta sínum og betri helmingi, sem var í flugnámi í sænskum flugskóla þegar hún byrjaði vídjó-blogg ævintýrið mikla á Youtube fyrir rúmum tveimur árum. Síðan þá hefur mið...

Aug 25, 20211 hr 13 minSeason 1Ep. 19

#18 - Þuríður Blær & Guðmundur Felixsson

Í þessum þætti átti ég stórskemmtilegt spjall við listaparið Þuríði Blæ Jóhannsdóttur og Guðmund Felixsson. Blær og Gummi eiga sér töluvert öðruvísi baksögu en mörg önnur pör en þau höfðu verið góðir vinir síðan í grunnskóla áður en þau byrjuðu loksins saman árið 2015 og segja þau einmitt skemmtilega frá því í þættinum þegar Gummi skutlaði Blæ á stefnumót við annan dreng og hjálpaði henni að “banga” eins og hann orðaði það. Blær hefur verið fastráðin leikkona hjá Borgarleikhúsinu undanfarin sex ...

Aug 18, 20211 hr 27 minSeason 1Ep. 18

#17 - Beggi Ólafs & Hildur Sif

Bergsveinn Ólafsson eða Beggi Ólafs, eins og hann er gjarnan kallaður, er fyrirlesari og rithöfundur með MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði ásamt því að halda úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, 24/7. Að auki Beggi mikill íþróttamaður og spilaði hann knattspyrnu af kappi þangað til snemma á síðasta ári þegar hann lagði skónna á hilluna en þá var hann fyrirliði Fjölnis og átti að baki eina 166 leiki með félaginu. Beggi og hans betri helmingur, Hildur Sif Hauksdóttir, hafa v...

Aug 11, 20211 hr 17 minSeason 1Ep. 17

#16 - Fanney Ingvars & Teitur Páll

Fegurðardrottningin, áhrifavaldurinn og flugfreyjan Fanney Ingvarsdóttir kíkti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi, Teiti Páli Reynissyni. Eins og margir vita hreppti Fanney titilinn “Ungfrú Ísland” árið 2010 sem opnaði fyrir hana ýmsar dyr og varð hún fljótlega í kjölfarið afar áberandi á samfélagsmiðlum þar sem hún leyfir fólki að skyggnast inní líf sitt sem móðir, fagurkeri og tískumógúll með meiru. Fanney hefur einnig starfað sem flugfreyja um árabil en hefur nú sagt skil...

Aug 03, 20211 hr 22 minSeason 1Ep. 16

#15 - Sóttkví special x Júlíana Sara & Andri

Það hlaut að koma að því að undirritaður þyrfti að taka þátt í sóttkví gleði allra landsmanna og er þáttur dagsins litaður af því og var tekinn upp strangheiðarlega heima í stofu ásamt einu manneskjunni sem ég má vera nálægt þessa dagana sem er að sjálfsögðu minn betri helmingur. Við Sara tókum lauflétt spjall með gott möns á kantinum og stikluðum á stóru um okkar sambandstíð og fórum til dæmis yfir það hvernig það er að koma inn í samband þar sem börn eru í spilinu. Síðar í þættinum átti ég síð...

Jul 28, 20211 hr 15 minSeason 1Ep. 15

#14 - Sirrý Arnardóttir & Kristján Franklín

Sirrý Arnardóttir og Kristján Franklín Magnúss eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni og þó ég segi sjálfur frá þá var þetta alveg með eindæmum gott spjall sem kemur skemmtilega á óvart. Sirrý & Kristján hafa verið saman í 37 ár, hvorki meira né minna, og eins og þið getið rétt ýmindað ykkur þá eiga þau fjöldan allann af sögum í pokahorninu og hafa þau hjón einstakt lag á því að segja skemmtilega frá. Margir muna eflaust eftir Sirrý sem spjallþáttadrottningunni úr sjónvarpsþættinum vinsæla...

Jul 21, 20211 hr 37 minSeason 1Ep. 14

#13 - Eyfi & Sandra

Einn ástsælasti tónlistarmaður okkar íslendinga Eyjólfur Kristjánsson, eða Eyfi eins og þjóðin þekkir hann, kom til mín í einlægt og áhugavert spjall ásamt sínum betri helmingi, Söndru Lárusdóttur. Eyfi og Sandra hafa verið saman í 23 ár en þau kynntust á dansleik á því herrans ári 1998. Eyfi segist hafa verið ansi hræddur við skuldbindingar á þeim tíma en segir Söndru hafa náð að heilla sig upp úr skónum í rauðum kjól og hafa þau verið saman í blíðu og stríðu allar götur síðan. Eyfi á farsælan ...

Jul 14, 20211 hr 19 minSeason 1Ep. 13

#12 - Þorsteinn Bachmann & Gagga Jónsdóttir

Það var mér sannur heiður að fá listahjónin Þorstein Bachmann og Göggu Jónsdóttur til mín í spjall en þau eru miklir snillingar bæði tvö. Þorsteinn er einn fremsti leikari þjóðarinnar en hann hefur leikið hvert stórhlutverkið á fætur öðru í gegnum tíðina, nú síðast í Netflix seríunni Kötlu sem kom út á dögunum og hefur slegið rækilega í gegn. Gagga er ekki síður hæfileikarík en hún hefur getið sér gott orð bakvið myndavélina bæði sem kvikmyndaframleiðandi og nú undanfarið sem handritshöfundur og...

Jul 07, 20211 hr 37 minSeason 1Ep. 12

#11 - Nilli & Sóley

Hver man ekki eftir því þegar Níels Thibaud Girerd eða Nilli, birtist eins og þruma úr heiðskýru lofti á sjónarsvið landsmanna örlagaríkt kvöld fyrir rúmum 11 árum síðan en vakti hann þá mikla athygli þegar hann náðist á upptöku Monitor TV í skrautlegu samtali við tónlistarmanninn Berndsen þar sem hann endaði á því að rappa fyrir alþjóð. Upp því áhugaverða augnarbliki hófst í raun ferill Nilla þar sem hann fékk í kjölfarið sinn eigin sjónvarpsþátt á Mbl.is ásamt því að vera í fleiri þáttum, til ...

Jun 30, 20211 hr 29 minSeason 1Ep. 11

#10 - Tobba Marínós & Kalli

Þorbjörg Marínósdóttir eða Tobba Marínós, eins og hún er gjarnan kölluð, kom í skemmtilegt spjall ásamt eiginmanni sínum Karli Sigurðssyni. Tobba er með eindæmum fjölhæf en hún hefur í gegnum tíðina verið áberandi á hinum ýmsu sviðum svo sem í fjölmiðlum, sem rithöfundur og undanfarið hefur hún látið til sín taka í matvælabransanum en árið 2019 hóf hún framleiðslu á handgerðu granóla sem hefur slegið rækilega í gegn. Kalli, eiginmaður Tobbu, er ekki síður afkastamikill en hann ætti að vera mörgu...

Jun 23, 20211 hr 26 minSeason 1Ep. 10

#09 - Tinna & Ingó

Tinna Björk Kristinsdóttir og Ingólfur Grétarsson eru líklega með fyndnari pörum landsins. Þau eiga það sameiginlegt að hafa skotist hratt upp á stjörnuhimininn á samfélagsmiðlum fyrir nokkrum árum, einfaldlega með því að vera fyndin og sniðug með húmorinn að vopni. Síðan þá hafa þau vaxið gríðarlega á þeim vettvangi, þau hafa tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum og halda í dag úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins undanfarinna ára “Þarf alltaf að vera grín?”. Það var ótrúlega gaman að setjast nið...

Jun 16, 20211 hr 51 minSeason 1Ep. 9

#08 - Ingileif & María

Ingileif Friðrikdsóttir og María Rut Kristinsdóttir eru sannkallaðar kjarnakonur sem búa yfir þeim eiginleika að segja alveg einstaklega skemmtilegar sögur og hafa þær lent í allskonar ævintýrum á tíma sínum saman. Ingileif og María hafa verið saman síðan 2013 en þær giftu sig eftirminnilega á Flateyri árið 2018 og eiga þær saman tvo stráka. Það væri auðveldlega hægt að henda í góða bók um alla þá flottu hluti sem þær hafa gert í gegnum tíðina hvort sem það er í tengslum við pólitík, fjölmiðla, ...

Jun 09, 20211 hr 55 minSeason 1Ep. 8

#07 - Sólrún Diego & Frans

Þrifdrottning Íslands og hin einstaklega skemmtilega Sólrún Diego kom í spjall ásamt eiginmanni sínum og betri helmingi, Frans Veigari Garðarssyni. Sólrún hefur verið einn allra vinsælasti áhrifavaldur landsins síðustu ár ásamt því að hafa gefið út tvær bækur, hvorki meira né minna, og tekið þátt í hinum og þessum verkefnum. Það var síðan virkilega gaman að fá að kynnast Frans sem segist, þrátt fyrir vinsældir Sólrúnar, vera “út á við” týpan í sambandinu. Þau sögðu mér meðal annars frá fyrstu þj...

Jun 02, 20211 hr 36 minSeason 1Ep. 7

#06 - Benni Vals & Heiða Björk

Benedikt Valsson eða Benni, eins og hann er yfirleitt kallaður, er dagskrárgerðarmaður og hefur starfað á hinum ýmsu miðlum undanfarin ár. Flestir ættu að kannast við Benna til dæmis úr Hraðfréttum sem sló rækilega í gegn á RÚV hér um árið. Heiða Björk Ingimarsdóttir er betri helmingurinn hans Benna og snillingur með meiru og hafa þau verið saman síðan þau voru unglingar. Í þættinum fórum við um víðan völl þar sem þau meðal annars sögðu mér frá dögunum í Nóatúni, vandræðanlegri íkveikjusögu og f...

May 26, 20211 hr 26 minSeason 1Ep. 6
Hosted on Buzzsprout
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android