#35 - Gói & Inga - podcast episode cover

#35 - Gói & Inga

Dec 15, 20211 hr 44 minSeason 1Ep. 35
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í þessum þætti fékk ég til mín virkilega góða gesti þau Guðjón Davíð Karlsson, eða Góa eins og hann er alltaf kallaður, og eiginkonu hans Ingibjörgu Ýr Óskarsdóttur. 
Gói er í dag fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið en hefur hann í gegnum tíðina leikið í fjölda verka á fjölum leikhúsanna, í sjónvarpi og kvikmyndum, samið handrit og leikstýrt bæði í leikhúsi og sjónvarpi.  
Inga er ljósmóðir og segir frá því í þættinum að eftir að hún varð vitni að fyrstu fæðingunni í hjúkrunarfræðináminu hafi ekki verið aftir snúið og var hún þá staðráðin í því að gerast ljósmóðir.
Gói og Inga kynntust árið 2003 en sameiginlegur vinur þeirra benti þeim á hvort annað og úr varð blind date sem má segja að hafi verið ást við fyrstu sýn. Í dag hafa þau verið gift í tólf ár og eiga saman þrjú börn. 
Gói og Ingibjörg eru ofur hress og höfðu frá svo miklu skemmtilegu og áhugaverðu að segja að við hefðum auðveldlega getað setið í marga tíma til viðbótar. Spurning um að ég fái þau bara aftur til mín við tækifæri. 
Þessi þáttur er pakkaður af geggjuðum umræðum og sögum; við ræddum leiklistina og ljósmóður-starfið,  fegurðina í því að ferðast með fjölskylduna innanlands með hjólhýsið og festast ekki of mikið í því að plana hluti,  eftirminnilegt einkaþjálfunartímabil þeirra á Akureyri, fyrstu jólin þeirra sem fjölskylda þar sem þau misreiknuðu sig aðeins í skammtastærðunum og sögðu þau mér margar kostuglegar sögur, þar á meðal var ein frá ferð þeirra á veitingastað með elsta drenginn þeirra sem fór aaaðeins öðruvísi en þau höfðu gert ráð fyrir. 

Aha.ishttps://aha.is

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Ajax


For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android