Betri helmingurinn með Ása - podcast cover

Betri helmingurinn með Ása

Ási spjallar á léttu nótunum við skemmtilegt fólk og þeirra betri helming.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

#05 - Friðrik Dór & Lísa

Friðrik Dór Jónsson þarf varla að kynna fyrir neinum en hann hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og hafa mörg laganna hans náð að skipa sér stóran sess í huga og hjörtum landsmanna. Lísa Hafliðadóttir er hans betri helmingur en þau hafa verið saman nánast hálfa ævina og giftu þau sig eftirminnilega á Ítalíu árið 2018. Frikki og Lísa eru miklir fagurkerar sem elska góðan mat og eiga það sameiganlegt að vera mikið keppnisfólk þar sem ófá spilakvöldin hafa farið úr böndunu...

May 19, 20211 hr 31 minSeason 1Ep. 5

#04 - Logi Bergmann & Svanhildur Hólm

Loga Bergmann og Svanhildi Hólm kannast örugglega flestir við af skjánum og hafa þau bæði gert mikið af áhugaverðum hlutum í gegnum tíðina. Fyrir utan það þá hafa þau verið gift í sextán ár og eiga samtals sjö börn, hvorki meira né minna. Logi og Svanhildur eru ótrúlega skemmtileg og samstillt hjón sem finnst t.a.m fátt skemmtilegra en að vera í félagsskap hvors annars og hafa bæði mikið dálæti á köttum. Þau hafa mikinn húmor fyrir sjálfum sér og sjá ekki tilganginn í því að stressa sig á hlutum...

May 12, 20211 hr 21 minSeason 1Ep. 4

#03 - Vala Kristín & Birkir Blær

Leikkonan Vala Kristín Eiríksdóttir hefur verið mikið í sviðljósinu undanfarin ár í hinum ýmsu verkum, ýmist á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu og á skjám landsmanna. Birkir Blær Ingólfsson er hennar betri helmingur og er virkilega áhugaverður einstaklingur. Birkir er rithöfundur, lögfræðinemi og einn af handritshöfundum Ráðherrans sem sló í gegn á síðasta ári. Þátturinn er einlægur, áhugaverður og fyndinn allt í senn þar sem við ræddum um lífið & tilveruna, rómantíkina, og skemmtilegar sögu...

May 05, 20211 hr 25 minSeason 1Ep. 3

#02 - Fannar & Vala

Í þessum þætti fékk ég til mín góða gesti en það voru þau Fannar Sveinsson og betri helmingurinn hans hún Vala. Fannar gerði garðinn frægan í Hraðfréttum á sínum tíma en hefur undanfarið verið iðinn við leikstjórn og framleiðslu á fjölbreyttu sjónvarpsefni. Við ræddum allt milli himins og jarðar, skrýtnar venjur Fannars voru uppljóstraðar og kynntumst Völu á skemmtilegan hátt.

Apr 30, 20211 hr 33 minSeason 1Ep. 2

#01 - Gunni Helga & Björk Jakobs

Í þessum fyrsta þætti var mjög viðeigandi að fá í heimsókn leikarahjónin Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttur. Gunni & Björk eiga bæði ótrúlegan feril að baki á sviði listarinnar, bæði sem leikarar og leikstjórar og einnig sem rithöfundar. Fyrir utan að vera bæði ógeðslega skemmtileg og fyndin , þá hafa þau verið saman í tæp þrjátíu ár, hvorki meira né minna og höfðu frá mörgum frábærum sögum að segja. Þetta var virkilega skemmtilegt spjall við þessi geggjuðu hjón þar við ræddum lífið og li...

Apr 28, 20211 hr 23 minSeason 1Ep. 1
Hosted on Buzzsprout
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android