#28 - Hjálmar & Ljósa - podcast episode cover

#28 - Hjálmar & Ljósa

Oct 27, 20211 hr 13 minSeason 1Ep. 28
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Það er óhætt að segja að Hjálmar Örn Jóhannsson sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins en hann skaust hratt upp stjörnuhiminn á Snapchat fyrir nokkrum árum þar sem hann sló í gegn sem hinir ýmsu karakterar. Hvítvínskonan er sennilega einn af hans allra vinsælustu karakterum og má segja að hún sé orðin aðal-heiðursgestur í samkvæmum á Íslandi í dag, þá einna helst hjá hvítvínskonum landsins.
Hjálmar er annar þáttastjórnanda eins vinsælasta hlaðvarps landsins Hæhæ og kemur hann einnig reglulega fyrir í útvarpi, sjónvarpi og svo lengi mætti telja.
Ljósbrá Logadóttir, eða Ljósa eins og hún er gjarnan kölluð, er betri helmingurinn hans Hjálmars og var virkilega gaman að kynnast henni í þessum þætti og heyra hennar hliðar af lífinu með skemmtikraftinum Hjálmari í þessu virkilega einlæga og skemmtilega spjalli.
 Ljósa starfar hjá Alvotech og er samhliða því í MBA námi.  Hjálmar og Ljósa segja skemmtilega frá því í þættinum  hvernig leiðir þeirra lá eftirminnilega saman á double date-i hér um árið en í dag eiga þau saman tvö börn en á Hjálmar einnig tvær dætur úr fyrra sambandi.
Í þættinum ræddum við einnig skemmtibransann og hvernig þetta fór allt saman á flug hjá Hjálmari á sínum tíma en Ljósa á mikinn þátt í þeirri vegferð,  mikilvæg gildi þeirra að sýna öllum virðingu, rómantísku hliðina og trúlofun þeirra í Hide Park ásamt því að margar frábærar sögur fengu að láta ljós sitt skína.

Þátturinn er í boði:

Aha.ishttps://aha.is

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://thebagelco.dk/pages/island

Ajax


For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android