#62 - Arna Ýr & Vignir Þór - podcast episode cover

#62 - Arna Ýr & Vignir Þór

Jun 29, 20221 hr 30 minSeason 1Ep. 62
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Fegurðardrottingin og athafnakonan Arna Ýr Jónsdóttir mætti til mín ásamt sínum betri helming, Vigni Þór Bollasyni kírópraktor í einlægt og ótrúlega skemmtilegt spjall.
Arna ýr var krýnd Ungfrú Ísland árið 2015 og tók í kjölfarið þátt fyrir Íslands hönd í hinum ýmsu fegurðarsamkeppnum úti í heimi ásamt því að hreppa titilinn Miss Universe Iceland árið 2017. Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar en hefur hún verið áberandi á samfélagsmiðlum rekur í dag fyrirtækið taubleyjur.is og stundar ásamt því nám í hjúkrunarfræði en stefnir hún á að láta drauminn rætast og gerast ljósmóðir.
Vignir er kírópraktor og rekur stofuna Líf kírópraktor þar sem hann tekur á móti fólki á öllum aldri, en hefur getið af sér einstaklega gott orð fyrir að aðstoða börn og ungabörn.
Vignir sá Örnu fyrst þegar hún var í nöglum hjá systur hans, en tók hún í hendina á honum og heilsaði með nafni. Vigni leist strax vel á þessa stelpu og spurði systur sína útí hana.  
Systir hans sagði honum þó að gleyma þessu þar sem Arna væri á föstu. 
Ári síðar sér hann Örnu bregða fyrir á Instagram hjá vinkonu sinni og lætur hana vita að honum lítist vel á hana. Vinkonan skilar því til Örnu sem var þá á lausu og hún var ekki lengi að bregðast við því með addi á insta og hafa þau verið saman allar götur síðan þá.
Í dag eru þau trúlofuð og eiga saman 2 börn. Í þættinum fórum við um víðann völl og ræddum meðal annars fegurðarsamkeppnir og þegar Arna stóð föst með sjálfri sér, trúlofun þeirra í stofunni heima, heimafæðingu, ferðasögur ásamt því að heyra skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Arna varð meðvituð um skakkan háls sinn á deit tímabilinu sem hún var ekki viss hvernig færi í kírópraktorinn.

Þátturinn er í boði:

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Dominos  -  https://www.dominos.is/

Promennt  -  https://www.promennt.is/is

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android