#57 - Þórhildur & Kjartan - podcast episode cover

#57 - Þórhildur & Kjartan

May 25, 20221 hr 32 minSeason 1Ep. 57
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í þessum 57. þætti átti ég frábært & forvitnilegt spjall við hjónin Þórhildi Magnúsdóttur og Kjartan Loga Ágústsson.
Þórhildur heldur úti Instagram-reikningnum vinsæla Sundur & Saman þar sem hún fjallar til dæmis um sambönd og samskipti í samböndum en hún heldur einnig námskeið og hjálpar fólki að bæta sambandið, saman & í sitthvoru lagi.
Kjartan starfar í dag sem læknir og er hann í sérnámi í röntgenlækningum.
Þórhildur & Kjartan hafa vakið athygli á undanförnum misserum en eru þau opinská með það að hafa opnað sambandið sitt fyrir um fjórum árum síðan og eru í dag í fjölásta eða í poly-sambandi.
Þórhildur og Kjartan kynntust á fyrsta árinu sínu í MR og byrjuðu hjólin fljótt að snúast og töluðu þau um að þau hefðu fljótt verið orðin “Klessupar” en bjó Þórhildur á þessum tíma í Keflavík og var þá oft henntugara að gista hjá Kjartani í staðin fyrir að keyra stanslaust fram og til baka.
Í dag eru þau búin að vera gift í 9 ár og eiga saman tvo stráka.
Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar en þar á meðal tókum við umræðuna um fjölásta sambönd og  hvernig hugmyndin kviknaði hjá þeim að opna þeirra samband á sínum tíma. Þá ræddum við einnig mikilvægi þess að sambönd séu á góðum stað þegar farið er útí að opna það, hræðslu samfélagsins við umræðuna um poly-sambönd, mikilvægi þess að gefa sér tíma í að sinna samböndum og deildu þau með mér skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal spontant ákvörðun Kjartans um að bóka utanlandsferð í miðri tjaldútilegu.

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Dominos  -  https://www.dominos.is/

Promennt  -  https://www.promennt.is/is

For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android