#65 - Halli Melló & Matthildur - podcast episode cover

#65 - Halli Melló & Matthildur

Jul 20, 20221 hr 20 minSeason 1Ep. 65
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Hallgrímur Ólafsson, eða Halli Melló eins og hann er gjarnan kallaður, mætti til mín í áhugavert og skemmtilegt spjall nú á dögunum ásamt sínum betri helmingi Matthildi Magnúsdóttur.
Halli er leikari og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið undanfarin ár og getið sér þar gott orð. Hann hefur komið víða við í leiklsitinni en ættu margir að kannast við hann til dæmis sem manninn sem aldrei náði húinu í hinu víðfræga atriði í áramótaskaupinu hér um árið.
Matthildur er lögfræðingur að mennt og hefur starfað hjá skattinum allar götur síðan hún útskrifaðist.
Halli þakkar Matthildi fyrir að þau séu saman í dag, en allt hófst þetta á örlagaríku facebookaddi sem Halli var ekki lengi að samþykkja en hann kannaðist við Matthildi af störfum hennar sem þula og hafa þau verið saman nær allar götur síðan.
Í dag eru þau gift eiga saman tvo stráka en átti Halli fyrir eina dóttur úr fyrra sambandi.
Í þættinum fórum við um víðan völl en ræddum við meðal annars lífið í sjávar-bæjunum, fyrstu og síðustu fjölskyldu útileguna, leiklistina & fjölskyldulífið, athyglisbresti og margt fleira ásamt því að við heyrðum margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Halli fékk það staðfest að Matthildur væri framtíðarkonan í pulsusjoppu á Laugarvatni.

Blush.is -     https://blush.is/

Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/

Dominos  -  https://www.dominos.is/

Promennt  -  https://www.promennt.is/is


For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android