Virðing í uppeldi - podcast cover

Virðing í uppeldi

medvitadirforeldrarwww.spreaker.com
Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

69. Spjallað um leiklist

Heimsækjum aðeins orð Robin Einzig, stofnanda Visible Child: „Visible Child styður ekki að börn séu sett í skipulagða tíma eða tómstundir þar til þau hafa náð um 7 ára aldri – og þá aðeins að þeirra eigin beiðni og á máta sem býður upp á frjálsa aðferð og sem helst felur ekki í sér skuldbindingu í lengri tíma svo þau geti hætt eða byrjað hvenær sem þeim langar.“ En hvernig líður þá 7 og 8 ára gömlum stúlkum sem um þessar mundir hoppa upp á svið og halda heilu leiksýningunum uppi nánast stundum o...

Mar 16, 20221 hr 43 min

68. Að upplifa lífið sitt á meðan það er að gerast

Bryndís Jóna Jónsdóttir átti frábært núvitundarspjall við þrjár okkar úr hópi Meðvitaðra foreldra sem jafnframt eru eða hafa verið nemendur hennar hjá Háskóla Íslands, þar sem hún starfar sem aðjúnkt. Bryndís er jafnframt núvitundarkennari hjá Núvitundarsetrinu, með MA diplóma í jákvæðri sálfræði, MA í náms- og starfsráðgjöf og B.Ed. í grunnskólafræðum með áherslu á íþróttir og heilsu. Þá er hún viðurkenndur núvitundarkennari frá Breathworks samtökunum í Bretlandi og með kennaraþjálfun í núvitun...

Mar 09, 20221 hr 1 min

67. Handan hegðunar - seinni hluti

Í dag höggvum við á hnútinn og ljúkum loks umfjöllun okkar um hina frábæru bók dr. Monu Delahooke Beyond Behaviors. Til þess að gefa meira fyrir hlustendur að melta og sofna ekki endanlega yfir sefandi rödd Guðrúnar Ingu ákváðum við að klippa inn bestu augnablik úr fjarbókaklúbbi Virðingar í uppeldi. Þátttakendur sem hljóma í þættinum eru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir , Ágústa Margrét Arnardóttir, Halldóra Mark, Kristín Björg Viggósdóttir, Laufey Ósk, Margrét Thelma Líndal og Perla Hafþórsdóttir...

Feb 09, 20221 hr 20 min

66. Spjallað um Waldorf-stefnuna

Í þessum fyrsta þætti Virðingar í uppeldi í umsjón Árna Kristjánssonar kynnumst við Waldorf-skólanum á Íslandi örlítið með spjalli hans við Waldorfkennarana Martein Teit Kristjánsson og Ingibjörgu Jónu Sigurðardóttur, sem bæði eru reynslumiklir kennarar í Waldorf-stefnunni og hafa jafnframt alið upp börn sín eftir gildum hennar. Stefna Waldorfskólans byggir á heimspeki og heildrænum lífskenningum Rudolfs Steiner. Í stuttu máli snýst stefnan um að allt skólastarfið byggi á jafnvægi og kærleik, hv...

Dec 01, 202140 min

65. Meistaraspjall um virðingarríkt uppeldi með Árna og Hörpu

Þau Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir fara hér yfir barnæskur sínar með Guðrúnu Ingu og setja í samhengi við hvernig þau mættu til leiks sem foreldrar. Þau ræða um mikilvægi ömmu og afa og tengslamyndunar þeirra við börnin og einnig hvernig við getum reynt að fá þau til liðs við okkur í að gera hlutina af virðingu. Þau ræða áfall sem þau urðu fyrir skömmu eftir að hafa orðið foreldrar og úrvinnslu þess. Það kom þeim alvarlega af stað í að endurhugsa og skoða allt umhverfi fjölskyld...

Nov 17, 20211 hr 23 min

64. Handan hegðunar - fyrri hluti

Í þessum frábæra þætti í umfjöllun Bókaklúbbs Meðvitaðra foreldra um bókina Handan hegðunar eftir dr. Monu Delahooke fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Önnu Mjöll Guðmundsdóttur, Margréti Thelmu Líndal og Sólveigu Rós til þess að lesa með sér yfir ítarlegan útdrátt úr fyrri hluta bókarinnar. Saman stöldruðu þær af og til við og leyfðu sér að velta upp ýmsum hugleiðingum um efnið. Bókin Handan hegðunar, eða Beyond Behaviors á frummálinu, kom út í mars á árinu 2019 og vekur sífellt meiri athygli í f...

Nov 03, 20211 hr 22 min

63. Reynslusaga Ölmu um einveru

Alma Björk er menntaður framhaldsskólakennari, viðskiptafræðingur og umhyggjusöm þriggja barna móðir sem segir Guðrúnu Ingu í þessum þætti frá baráttu sinni fyrir réttindum sonar síns í grunnskólakerfinu. Sú barátta hefur leitt líf hennar inn á nýjar og aðrar brautir; hún hóf nám í lögfræði og hefur son sinn nú í heimakennslu og á í virku samtali við aðra foreldra í svipuðum sporum inni á hópnum Sagan okkar á Facebook ásamt því að hafa reynt eins og hún getur að ná til eyrna skólayfirvalda og st...

Oct 27, 202144 min

62. Að eignast þriðja barn

Í þessum þætti setjast þrjár þriggja barna mæður niður til að ræða hvernig lífið breyttist við að eignast þriðja barn. Það voru þær Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir sem ræddu málin. Hugmyndin að þættinum var í grunninn sú að ræða hvernig nálgun að uppeldi breytist við að eignast þriðja barn eftir hafa tileinkað sér virðingarríkar uppeldisaðferðir og vera svo „RIE frá fyrsta degi.“ Og hvernig lítur það út þegar það er í afar mörg horn að líta? ...

Oct 20, 202140 min

Enn um hreyfiþroska með góðum gestum

Við höfum nokkrum sinnum fjallað um hreyfiþroska ungbarna hér í hlaðvarpinu. Fyrst í þætti okkar um grunnatriði RIE og um að kenna eða kenna ekki, þegar við vorum að hefja flugið í þessu hlaðvarpi fyrir tveimur árum síðan. Þá hafa bæði sjúkraþjálfararnir Agnes og Kara úr Hraust þjálfun aðeins komið inn á þetta með okkur í 22. þætti sem og Freyja Barkardóttir sjúkraþjálfari og Kristín Björg Viggósdóttir iðjuþjálfi í 33. þætti. Í dag ætlum við aftur að taka þetta upp – og ítarlegar. Af hverju? Jú,...

Oct 06, 202157 min

60. Í heilum heimi í uppalendahlutverkinu með Gyðu Dröfn

Gyða Dröfn Tryggvadóttir er frábær ráðgjafi í meðvirknifræðum Piu Melody og gefur hlustendum okkar hér innsýn í hvernig hún hefur öðlast skarpskyggni á hvernig mynstrin úr æsku birtast okkur á fullorðinsárum og hafa áhrif á öll okkar sambönd og tengsl. Að alast upp í klessutengslum eða hafa verið yfirgefin eða látin afskipt af uppalendum okkar hefur þannig langvarandi og lúmsk áhrif sem mikils er til að vinna að skoða og leita sér aðstoðar við, sér í lagi fyrir þau okkar sem eru í miðju kafi að ...

Sep 15, 20211 hr 8 min

59. Bókaklúbbur - Hvernig á að tala svo lítil börn hlusti og hlusta svo lítil börn tali

Eftir langan sumardvala erum við vöknuð til lífsins í Virðingu í uppeldi og hefjum kröftugan og fjörugan fræðslu- og umræðuvetur um virðingarríkt uppeldi með umfjöllun um bókina How To Talk So Little Kids Will Listen And Listen So Little Kids Will Talk. Það virðist loða við uppeldisbækur sem við lesum að vera með langa titla. En það er í lagi, við ráðum við það. Þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Margrét Thelma Líndal mættu í spjall til Guðrúnar Ingu Torfadóttur um þessa...

Sep 01, 20211 hr 46 min

58. Bókauppeldi með Bergrúnu Írisi og Hermundi

Guðrún Inga Torfadóttir og Eva Rún Guðmundsdóttir hafa oft rætt saman með áhyggjufullum tóni eftir að börnin þeirra fóru upp á grunnskólastigið. Hverjar hafa áhyggjur þeirra verið? Jú, önnur er með strák og hin með stelpu. Þær hafa báðar haft áhyggjur af því að ánægja barnanna af að lesa fölni í umhverfi leshraðamælinga, límmiðagjafa og einkunnaspjalda. Börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umhverfi sem snýst allt um að mæla snilli þeirra og duglegheit. Og, sem betur fer, vorum við með góða g...

Jun 30, 20211 hr 55 min

57. Meðvituð sambönd með Þórhildi og Soffíu

Þá er komið að enn öðrum þættinum um ástarsambönd okkar foreldranna. Með Guðrúnu Ingu til halds og trausts voru mættar til leiks þær Soffía Bæringsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir. Fyrsti hluti þáttarins fjallar um týpískar aðstæður þar sem foreldrum í sambandi lenti saman við að svæfa barn og reyndi á samanburð, að vera saman í liði og hvernig yngri útgáfa af okkur sjálfum getur vaknað þegar allir eiga að vera sofandi. Guðrún Inga velti upp spurningum um hvernig parið gæti unnið úr tengslaslysi...

Jun 16, 20211 hr 16 min

56. David Weinstock on Raising Children Empathically

In this episode, conducted in English in this Icelandic podcast on respectful parenting, Gudrun Inga discusses with David Weinstock how his methods of practicing somatic NVC by using his Aikido training background, can be applied when raising children. We hear how he has best understood what our human needs are and how to listen empathically to our children. If you'd like to learn more about Mr. Weinstock‘s work, head to liminalsomatics.com to check out his online training or read his book, „Bec...

Jun 02, 20211 hr 19 min

55. Bókaklúbbur Suðurlandsþríeykisins skoðar grunnatriði RIE - Elevating Child Care

Í þessum þætti heimsóttu þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk okkur í hlaðvarpið og fjölluðu um bók Janet Lansbury, Elevating Childcare með Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Bókin er grunnbók um RIE-uppeldi og því er þetta frábær umfjöllun fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessum efnum og góð upprifjun fyrir aðra. Þær grínuðust mikið inn á milli háalvarlegra umræðna og sögðu misviðeigandi reynslusögur - svo vonandi er þetta lifandi létt og leikandi hlustun. Gróft efnis...

May 19, 20211 hr 40 min

54. Sæunn Kjartansdóttir

Sálgreinirinn og rithöfundurinn Sæunn Kjartansdóttir er ein helsta hugsjónarmanneskja eldri kynslóðarinnar um virðingarríkt og tengslavænt uppeldi. Perla Hafþórsdóttir tók á móti henni í litla eldhúsið sitt í spjall um helstu hugðarefni Sæunnar, sem hún hefur verið mikilvirk við að setja í orð og birta á prenti hingað til. Bækur hennar Fyrstu 1000 dagarnir, Árin sem enginn man, Hvað gengur fólki til? og nú síðast bók hennar um eigin uppeldisár, Óstýriláta mamma mín... og ég, eru allar frábærar o...

May 05, 20211 hr 4 min

53. Fyrstu fimm

Þrír meðlimir úr stjórn Fyrstu fimm mættu til Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða um þau sjónarmið sem leiddu þau saman og liggja að baki áherslumálum hagsmunafélagsins. Þau Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Matthías Ólafsson og Ólafur Grétar Gunnarsson eru öll í stjórn Fyrstu fimm og eru, eins og aðrir í stjórninni, blanda af fagfólki og foreldrum með reynslu af virðingarríku uppeldi. Þau hafa öll ástríðu fyrir að skapa hér á landi fjölskylduvænna samfélag og að bæta verulega stöðu Íslands þegar kemur a...

Apr 21, 20211 hr 43 min

52. Um tengsl og áhrif annarra með Sigrúnu Júlíusdóttur

Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í Félagsráðgjöf og stofnandi Tengsla meðferðarþjónustu fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur, var viðmælandi Kristínar Bjargar Viggósdóttur í þessum 52. þætti. Sigrún er reynslubolti á sínu sviði og hefur haft mikil áhrif á málefni barna og fjölskyldna á Íslandi síðastliðna áratugi. Hún hefur meðal annars haft áhrif á að foreldraviðtöl séu haldin í leikskólum og hvernig þeim skuli háttað, haldið námskeið fyrir stjúpforeldra, kennt mörgum háskólastúdentum, skrifað ...

Apr 07, 202153 min

51. Birna Almars

Birnu Almarsdóttur þekkja e.t.v. nokkrir glöggir hlustendur úr þáttum okkar nr. 43 og 44 um bókina sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið eftir Philippu Perry. Í þættinum fáum við að kynnast Birnu og ferðalagi hennar í gegnum krabbameinsmeðferð síðasta hálfa árið. Við heyrum hvernig RIE nýttist henni persónulega sem og með dóttur hennar og kærasta í gegnum þetta allt, hvar þurfti að gefa slaka á mörkum og reglum og þola að vera ekki sú kraftmikla unga kona sem hún alla jafna er. Samtalið e...

Mar 24, 20211 hr 3 min

50. Svefnuppeldi - hátíðarþáttur

Í sérstökum hátíðarþætti í tilefni þess að vera 50. þáttur hlaðvarpsins Virðingar í uppeldi fjöllum við ítarlega og af metnaði um svefnuppeldi. Gestir eru þau dr. Berglind Sveinbjörnsdóttir, dr. Erla Björnsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson og Soffía Bæringsdóttir. Stjórnandi þáttarins er Guðrún Inga Torfadóttir og með henni þau Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Konráð Jónsson og Perla Hafþórsdóttir. Matthías Ólafsson bættist síðan við með frábæra punkta. Þátturinn skiptist í: I. hluti: Ungbarnasvef...

Mar 10, 20213 hr 24 min

49. Auðnast: Um sambönd og uppeldi

Þær Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir frá Auðnast spjölluðu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hrefna er hjúkrunarfræðingur og Ragnhildur sálfræðingur. Báðar eru þær með framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð en nefna sig aðallega mæður. Saman stofnuðu þær fyrirtækið með miklar hugsjónir um að huga að öllum þáttum heilsunnar til að ná jafnvægi í einkalífi og starfi. Í spjallinu, sem fór um víðan völl með þessum tveimur snillingum, bar það helst á góma hvernig þær höndla hluti...

Feb 24, 20211 hr 12 min

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar

Í þessum þætti birtum við upptöku af fjarbókaklúbbi um snilldarbókina The Explosive Child eftir dr. Ross Greene. Guðrún Inga Torfadóttir sat sveitt í nokkra daga yfir að því er henni fannst ofvaxna verkefni að gera bókinni skil og heimfæra CPS-fræði Ross Greene yfir á aðra hluti sem við ræðum um í þessu hlaðvarpi, eins og RIE og almennt virðingarríka framkomu við börn. Frábærir gestir mættu sem betur fer og gátu gefið fyllingu í ágrip Guðrúnar Ingu og góðar samræður fóru fram og reynslusögur fen...

Feb 10, 20211 hr 38 min

47. Konfektmoli með þakklæti

Áslaug Björt Guðmundardóttir, rithöfundur bókarinnar Þökk til þín, verkefnabókar, Guðrún Birna le Sage markþjálfi með meiru og uppeldiskúnstner og Þórhildur Magnúsdóttir verk- og hagfræðibræðingur, Kyrrukona og þakklætisiðkandi ræddu í þessum þætti við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um þakklæti. Í þættinum ræddum við hvernig við styrkjum þakklætisvöðvann með iðkun, líkamlegri sem og andlegri og getum þannig unnið gegn neikvæði-skekkjunni, þar sem heilinn leitar uppi hættur og neikvæða hluti og sleppir...

Jan 27, 202156 min

46. Hátíðaruppgjörið

Við fögnum því ákaflega að nýtt ár er runnið í garð en förum fyrst aðeins yfir hvernig hátíðirnar gengu. Hvað mætti gera betur og hvað mætti endurtaka? Þetta var því þáttur til að taka upp núna rétt eftir áramót og jafnvel hlusta á hann líka til að hugsa málið sjálf á meðan minnið er enn á sínum stað - en hlusta svo aftur fyrir næstu jól til að endurtaka ekki sömu vitleysurnar. Þátttakendur voru Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir, Svava Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Inga To...

Jan 06, 20211 hr 59 min

45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit

Í þessum þætti fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Siggu Dögg kynfræðing og Soffíu Bæringsdóttur fjölskylduráðgjafa og doulu með sér til að spá aðeins í sambandsslitum foreldra. Þátturinn hefst á 7 mínútna langri og krefjandi einræðu Guðrúnar, ef þú vilt sleppa við hana, um tengslatýpur og hvernig þær geta haft áhrif á hvernig samband virðist fara hring eftir hring í þvottavél af spennu, upplausn og sátt. Og þótt þess konar sambönd geti enst í mörg ár eða ævilangt þá geta þau haft neikvæð áhrif á u...

Dec 16, 20201 hr 16 min

44. Bókin sem... seinni hluti

Í þessum síðari þætti um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið, förum við yfir skilyrði góðrar geðheilsu og að setja mörk. Þetta var svo gott efni að við áttum erfitt annað en að tala djúpt og mikið og það var áskorun að klippa eitthvað í burtu til að þetta yrði ekki allt of langt. Þátttakendur að þessu sinni voru reynslu- og þekkingarbrunnar: Ágústa Margrét Arnardóttir, Birna Almarsdóttir, Brynja Gestsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir, Hulda Brynjarsdóttir, Laufey Ó...

Dec 09, 20201 hr 44 min

43. Bókin sem... fyrri hluti

Í þessum þætti gefum við hlustendum okkar færi á að hlusta á ítarlega umfjöllun okkar um bók Philippu Perry, Bókin sem þú vildir að foreldrar þínir hefðu lesið (og börnin þín fagna að þú gerir). Bókin er löng og yfirgripsmikil en auðlesin að okkar mati og rímar vel við kenningar Mögdu Gerber og fleiri virðingarríka sérfræðinga um uppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og leyfði sér að grípa niður hér og þar í bókina í yfirferð sinni en góðir gestir úr Bókaklúbbi Meðvitaðra foreldra ...

Nov 25, 20201 hr 17 min

42. Pabba-rabb II

Eftir rúmlega árs þögn er komið að öðrum pabbarabbs-þætti. Þeir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, sem stýrði umræðum, Arnar Pétursson, Árni Kristjánsson og Matthías Ólafsson tengdu sig inn á sömu bylgjulengd á sama tíma og ræddu hvað virðingarríkt uppeldi er fyrir þeim og hvaða áhrif það hefur helst haft á þá í föðurhlutverkinu. Á meðal þess sem bar á góma var hvaða upplifun sumir þeirra hafa af feðraorlofi og hvernig þeir hlaða batteríin og hvað gefur þeim raunverulega hvíld og hvað ekki. Lauflétt og ...

Nov 11, 202054 min

41. Umhugsunarefni dagsins

Í þættinum förum við nokkrar yfir hvað við erum að hugleiða í dag í tengslum við uppeldið og létum upptökutækið ganga á milli okkar. Það sem kom við sögu var ýmist uppeldi á okkur sjálfum eða börnunum okkar. Hér fengu vangaveltur að flakka um notkun uppnefna í systkinahópi, svefnrútínu, einkatíma, útiveru, húsverkaþátttöku, svefntíma, málþroska, að vera gagnsæ um okkar líðan við börnin og uppákomur og álag í miðju farsóttartímabili. Og dúndur hugleiðing um ofurkonuhugtakið. Þær sem voru til í tu...

Oct 28, 20201 hr 12 min

40. Vandræðasögur – börn í klípu og hvað gerum við?

Í fertugasta þætti okkar skyggnumst við á bak við barnabókina Vandræðasögur og fáum að heyra lýsingu höfunda bókarinnar á hugmyndafræðinni sem fyllir þær báðar ástríðu um hvernig við getum sem best hjálpað börnum að leysa úr klípum sín á milli og aðkomu hinna fullorðnu til að það megi heppnast sem best. Sögur eru vel til þess fallnar að fá börn í samræður um þær klípur sem geta komið upp í samskiptum barna. Við skyggnumst inn í hvernig við getum sem best lesið sögurnar til að koma þeim til skila...

Oct 14, 20201 hr 15 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android