63. Reynslusaga Ölmu um einveru - podcast episode cover

63. Reynslusaga Ölmu um einveru

Oct 27, 202144 min
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Alma Björk er menntaður framhaldsskólakennari, viðskiptafræðingur og umhyggjusöm þriggja barna móðir sem segir Guðrúnu Ingu í þessum þætti frá baráttu sinni fyrir réttindum sonar síns í grunnskólakerfinu. Sú barátta hefur leitt líf hennar inn á nýjar og aðrar brautir; hún hóf nám í lögfræði og hefur son sinn nú í heimakennslu og á í virku samtali við aðra foreldra í svipuðum sporum inni á hópnum Sagan okkar á Facebook ásamt því að hafa reynt eins og hún getur að ná til eyrna skólayfirvalda og stjórnvalda.

Við ræðum hér um reynslu Ölmu Bjarkar og frábærlega skýru sýn hennar á hvað sé að þeirri stefnu sem sumir skólar hafa tekið við hegðunarerfiðleikum barna sem sækja skólana og hver réttindi barna til að líða vel í skólanum sínum eru og hvernig megi betur styðja við þau réttindi.

Þessi þáttur er undanfari umfjöllunar Bókaklúbbs meðvitaðra foreldra um bókina Beyond Behaviors eftir dr. Monu Delahooke sem kom út á árinu 2019 og vekur sífellt meiri athygli fagaðila og foreldra um heim allan.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android