Virðing í uppeldi - podcast cover

Virðing í uppeldi

medvitadirforeldrarwww.spreaker.com
Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

99. Unglingar

Guðrún Inga Torfadóttir ræðir við Kristínu Björgu Viggósdóttur og Sólveigu Maríu Svavarsdóttur um hvernig má best efla foreldra í hlutverki sínu þegar börnin fara inn í unglingsárin. Þetta eru árin sem heilinn fer í gegnum ferli sem má líkja við að fara í allsherjar tiltekt og gerist í gamla heilanum fyrst og fremst, randkerfinu, og færir sig síðar ofar og framar og yfir í framheilann allra síðast. Barnið getur verið sjálfhverft og hugsar einvörðungu út frá eigin hagsmunum. Þetta er bæði frelsan...

Jan 23, 20251 hr 38 min

98. Þroski og vegferð Elsu og Kristínar sem mæður, grasrótarkonur og uppeldisfræðingar

Elsa Borg Sveinsdóttir og Kristín Björg Viggósdóttir ræddu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breytt um virðingarríkt uppeldi og þroskasögu sína þegar kemur að foreldrahlutverkinu og foreldraráðgjöf. Allar þrjár hafa verið vinkonur í sjö til átta ár og mynduðu félagsskapinn Meðvitaða foreldra með fleiri góðum. Heilmikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þær Elsa og Kristín urðu fyrst mæður fyrir nærri því einum og hálfum áratug, kynntust RIE og virðingarríka arminum og hófu nám í...

Feb 22, 20241 hr 12 min

97. Eitt svefnvandamál leyst

Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt! Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með litlu samtali á tilhögun háttatímans hjá einni frábærri stelpu sem nú arkar almennt betur sofin út í ...

Feb 08, 202422 min

96. Undirbúningur fæðingar

Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu. Dásamlegt spjall sem fer í góðan sarpinn með öðrum þáttum Virðingar í uppeldi sem fjalla um fæðingar....

Jan 25, 202441 min

95. Gleðiskruddan og jákvæð sálfræði

Perla Hafþórsdóttir tók á aðventunni á móti þeim Marit Davíðsdóttur og Yrju Kristinsdóttur sem saman sköpuðu Gleðiskrudduna og eru mjög virkar við að halda námskeið fyrir börn og ungmenni. Þær gáfu jafnframt út samnefnda dagbók fyrir börn að vinna með sem er mjög vel heppnuð og notuð víða. Gleðiskruddan byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan og við kynnumst í þessum þætti aðeins hvernig þær hugsa þetta allt saman. Eflandi og jákvætt upphaf hjá okk...

Jan 11, 20241 hr 3 min

94. Hugarfrelsi

Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bækur en ekki síst kennt í eigin persónu í bekkjum vítt og breitt um landið. Í þættinum leyfðu þær Dagn...

Dec 06, 20231 hr 23 min

93. Dúlur um úrvinnslu eftir erfiða fæðingu

Í þættinum fjalla þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur mættar að ræða erfiða fæðingarreynslu og úrvinnslu vikurnar og mánuði á eftir, eða jafnvel enn síðar. Þær fjalla fallega um þetta málefni og gott er að hlusta á þær og gera upp sína eigin fæðingarreynslu í leiðinni.

Nov 23, 202338 min

92. Ágústa Rúnars um kynslóðauppeldi

Í þættinum fékk Dagný Hróbjartsdóttir Ágústu Rúnarsdóttur til sín í spjall um foreldrahlutverkið og þróun og þroska sinn í því frá því hún varð móðir fyrst, tæplega 17 ára gömul og svo aftur komin yfir fertugt. Tímarnir hafa breyst og fólkið breytist með. Yndislegt spjall sem við mælum með!

Nov 08, 20231 hr 14 min

91. Leiðir til gleðilegrar sængurlegu

Hér er á ferðinni fjórði þáttur dúlanna Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur í Hönd í hönd. Þær ræða í þættinum um leiðir til þess að gera sængurleguna ánægjulegri og reynslu sína hvað það varðar. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn, sérstaklega ef þú eða einhver nákominn þér á von á barni.

Oct 26, 202343 min

90. Gestur Pálmason

Í þessum 90. þætti Virðingar í uppeldi kynnumst við viðhorfi Gests Pálmasonar, stjórnenda- og teymisþjálfara hjá breska þjálfunarfyrirtækinu Complete Coherence til foreldrahlutverksins í samtali við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Áhugi hans og starfsorka liggur í að vinna með fullorðnu fólki við að ná lengra í störfum og lífi sínu. Viðhorf okkar og orka segi til um hvernig við tengjumst öðrum sem hefur mikið að segja hversu langt við náum. Heilinn hafi möguleika á að aðlagast og breytast alla ævi og ...

Oct 06, 20231 hr 16 min

89. Stutt hugvekja um mörk

Öll höfum við stundum gott af því að hlusta á eitthvað sem peppar okkur í leiðtogahlutverkinu. Hér er stutt hugvekja um mörk í boði Guðrúnar Ingu Torfadóttur.

Sep 15, 202316 min

88. Dúlur um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu

Enn á ný heiðra dúlurnar Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir í Hönd í hönd okkur með nærveru sinni í Virðingu í uppeldi með spjalli sínu og vangaveltum um parsambandið á meðgöngu og í fæðingu - og hvað aðkomu dúlur geta haft til að liðka fyrir og gefa því byr undir báða vængi áður en þau taka á móti barninu. Fallegt og rólegt spjall sem er yndi að taka í göngutúrnum, með makanum í bíltúr eða á koddanum fyrir svefninn.

Aug 24, 202335 min

87. Guðrún Jóhanna um að styrkja félagsfærni

Guðrún Inga Torfadóttir tók hér á móti Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttur iðjuþjálfa. Hún er með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk og heldur námskeið í því hjá Lífsbrunni ásamt því að vinna með börnum og fjölskyldum þeirra almennt við skynúrvinnslumöt til að mynda. Frábært og upplýsandi spjall!

Aug 08, 20231 hr 13 min

85. Vignir Sigurðsson barnalæknir

Hvað gerist þegar tvær traustar vinkonur sem kynntust í gegnum félagsskap okkar í kringum virðingarríkt uppeldi og búa á Selfossi taka spontant viðtal við barnalækninn á svæðinu sem önnur þeirra var svo ánægð með í síðustu heimsókn? Þessi þáttur. Vignir Sigurðsson læknir leyfir sér hér að segja það sem stendur hjarta hans nær. Vinkonurnar tvær blómstra í þessu spjalli sömuleiðis. Sértu heilbrigðisstarfsmaður sem stundum eða alla daga þjónustar börn, hlustaðu. Sértu væntanlegt eða núverandi forel...

Jun 28, 20231 hr 29 minEp. 85

84. Guðrún Björns og Soffía Bærings um dúlustarfið

Framundan inn á milli annarra þátta eru nokkrir þættir úr smiðju þeirra Guðrúnar Björnsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur. Þær starfa báðar sem doulur. Guðrún er ein stofnmeðlima Meðvitaðra foreldra og tveggja barna móðir. Segja má að foreldrahlutverkið og ástríða hennar fyrir virðingarríku uppeldi hafi leitt hana á þá braut sem hún starfar á í dag, með börnum hjá Hjallastefnunni og sem doula eftir að hafa lært hjá Soffíu. Soffía er þriggja barna móðir, eiginkona og félagsfræðingur og brennur því fy...

Jun 14, 202348 min

83. Barna og fjölskyldustofa - Farsæld barna

Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur hjá Barna og fjölskyldustofu spjölluðu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur frá Fyrstu fimm - hagsmunafélagi foreldra og fagaðila um barnvænna samfélag. „Hvað á að gera þegar barn byrjar að eiga í vanda?“ er meðal þess sem Barna- og fjölskyldustofa einblínir á að leysa úr. Unnið er hörðum höndum að því að skapa vett...

May 25, 20231 hr 1 min

82. Marta Birna

Marta Birna Baldursdóttir er einstæð móðir og sérfræðingur og verkefnisstýra í kynjaðri fjárlagagerð í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Hún spjallar hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breitt um foreldrahlutverkið og upplifun sína við að afla sér þekkingar á því sviði, sem og hvernig er að vera í fullu starfi og halda öllum boltum á lofti sem einstætt foreldri með litla aðstoð. Þá bregður á góma jafnframt hvort rétt sé að stefna á einhvers konar heimgreiðslur til foreldra með gleraugum kyn...

May 03, 202357 min

81. Þegar ég kynntist RIE

Í þættinum fáum við að heyra sögu Huldu Margrétar Brynjarsdóttur í spjalli hennar við Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Hulda fer með miðilinn Leið að uppeldi og segir okkur frá því þegar hún kynntist uppeldisstefnunni RIE, hvaða bækur hún las fyrst, námskeið hennar hjá RIE Institute með Ruth Ann Hammond sem kennara og almennt um hvernig henni hefur fundist eftir að hún fluttist til Íslands og hóf störf í leikskóla eftir þriggja ára búsetu í Noregi. Hvað er það sem stendur upp úr að hennar mati fyrir ís...

Mar 29, 20231 hr 29 min

80. Tryggvi Hjaltason

Tryggvi Hjaltason er duglegur að tjá sig um málefni barna og stöðuna í menntakerfinu og er sjálfur fjögurra barna faðir á aldrinum eins til tólf ára. Hann er formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og starfsmaður greiningardeildar CCP og er þeim eiginleikum gæddur að hann dýfir sér djúpt ofan í málefnin sem vekja áhuga hans. Guðrún Inga Torfadóttir ræddi við hann um sýn hans á uppeldið, hlutverk hans sem uppalanda og maka, hvernig hann hefur þroskast í hlutverkinu, hvaðan innblásturinn hans kem...

Mar 13, 20231 hr 24 min

79. Þátturinn sem þú vilt hlusta á - með Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur

Perla Hafþórsdóttir heimsótti reynsluboltann, fag- og ástríðukonuna fyrir velferð barna, Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, Öddu, og fékk að eiga við hana samtal um ævistarfið og þau tól og tæki sem hún hefur þróað í starfi sínum með börnum. Adda heldur utan um kennslu í forvörnum um ofbeldi fyrir börn, foreldra og kennara ásamt því að ræða um heilbrigð samskipti og kenna börnum að vera læs á tilfinningar sínar á stofu sinni. Fræðsluátakið kallast Samtalið - fræðsla ekki hræðsla. Hún útskrifaðist sem l...

Nov 24, 20221 hr 24 min

78. Mörk og samfélagslegt uppeldi

Eftir gríðarlega neikvæðar fréttir að undanförnu um líðan barna, eineltismál, frásagnir af ofbeldi og með menntamálin í deiglunni töldum við rétt að taka aðeins púlsinn hjá tveimur frábærum sem vita talsvert um hlutina. Anna Rakel Aðalsteinsdóttir, félagsfræðingur og sáttamiðlari hjá Foreldrahúsi og Sólveig María Svavarsdóttir, heimakennari, unnu eitt sinn saman í grunnskóla. Þær hafa báðar gríðarmikla reynslu að baki að því að vinna með börnum, horfa á kerfið innan og utan frá, ala upp sín eigi...

Oct 21, 20221 hr 37 min

77. Umhverfisþættir í uppeldi með Unu Emilsdóttur

Í þættinum fékk Árni Kristjánsson til sín Unu Emilsdóttur, sérnámslækni í umhverfislæknisfræði, til að ræða um heilsuspillandi efni í nærumhverfi okkar og hvernig aukin þekking á skaðsemi þessara efna getur aukið sjálfstraust í foreldrahlutverkinu og stuðlað að virðingu í uppeldi. Una er brautryðjandi hér á landi í vitundarvakningu um áhrif efnanotkunar á heilsu okkar. Hún er jafnframt tveggja barna móðir ungra barna. Börn, sérstaklega á meðgöngu og hin fyrstu árin, eru með vanþróaðra hreinsiker...

Sep 22, 20221 hr 31 min

76. Um íþróttauppeldi barna

Kristín Björg Viggósdóttir fékk þau Viðar Halldórsson og Guðlaugu Ingibjörgu Þorsteinsdóttur í spjall um tilgang íþróttaiðkunar fyrir börn. Þau ræddu aðgengi barna að íþróttum og hvernig íþróttir gætu verið meira á forsendum barnanna frekar en á forsendum íþróttagreina. Til að mynda hefur sýnt sig að börn innflytjenda taka síður þátt í íþróttum og stelpur síður en strákar. Einnig getur verið flókið fyrir börn með tvö lögheimili að stunda íþróttir. Þá ræddu þau um mismunandi styrkleika barna, hve...

Aug 31, 202258 min

75. Skólabyrjun

Til Guðrúnar Ingu mættu þær Una Guðrún Einarsdóttir, aðstoðarskólastjóri grunnskólastigs og grunnskólakennari sem sérhæft hefur sig í kennsluaðferðum í lestri – en ekki síst fjögurra barna móðir - og Þórey Huld Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri leikskólastigs og tveggja barna móðir og reynslubolti í aðlögun og alls konar tengdu leikskólanum í Urriðaholtsskóla. Þær þrjár ræddu allt og ekkert sem tengist því að byrja í leikskólanum og grunnskólanum. Lestrarnám bar auðvitað líka á góma sem og ýmisleg...

Aug 18, 20221 hr 42 min

74. María Rún um stafrænt uppeldi

María Rún Bjarnadóttir er doktor í lögfræði og móðir og hefur haft stefnumarkandi áhrif á hvernig tekið er á stafrænum kynferðisbrotamálum hér á landi hin síðustu ár. Hún þekkir málaflokkinn sömuleiðis vel vegna núverandi starfa sinna hjá ríkislögreglustjóra sem verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra. Þær Guðrún Inga Torfadóttir nutu þess afskaplega vel að leyfa umræðunni að fara út um allar trissur og bera saman bækur sínar hvað viðkemur stafrænu uppeldi barna, fræðslu til þe...

Jul 27, 20221 hr 46 min

73. Samvinna við skilnað

Guðrún Björnsdóttir, doula og einingastýra hjá barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði, tók þau Davíð Alexander Östergaard, sem er í MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, og Ragnheiði Láru fjölskylduráðgjafa tali um samvinnu foreldra eftir skilnað. Ragnheiður stofnaði ráðgjafarþjónustuna Tvö Heimili árið 2019 og hefur langa reynslu sem ráðgjafi á þessu sviði hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Bæði hafa þau líka persónulega reynslu af skilnuðum og samstarfi eftir skilnað og eru vottaðir SE...

Jul 06, 20221 hr 8 min

72. Betri borg fyrir börn

Í þessum þætti ræðir Gyða Björg Sigurðardóttir við þrjár konur, þær Karen Lind Gunnarsdóttur, sálfræðing hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Gró Einarsdóttur, doktor í félagssálfræði, og Emblu Vigfúsdóttur, listrænan leikjahönnuð. Þær starfa í teymi sem vinnur að verkefninu „Betri borgar fyrir börn“ sem unnið er í samstarfi milli þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar og Bloomberg Philanthropies. Verkefnið felur í sér þjónustuumbreytingu á opinberri þjónustu við börn af hálfu borgarin...

Jun 24, 202248 min

71. Umhverfisvernd og uppeldi með Stefaníu Rut og Alexöndru

Í þessum þætti settust þær Stefanía Rut Hansdóttir og Alexandra Kjeld niður með Guðrúnu Ingu og sögðu henni allt af létta um textíliðnaðinn og sjónarmið um umhverfisvernd með ýmsum leiðum - s.s. með ungbarnafataleigu og endurnýtingu en ekki síst kaupum á umhverfisvænum textíl. Eftir um 30 mínútna spjall um það var sjónum vikið að öðrum áhugamálum þeirra og Guðrúnar Ingu um foreldrakulnun, að ala sig upp aftur, að ala upp börn með þekkingu um taugakerfið og svo framvegis. Frábært, létt spjall sem...

Apr 13, 20221 hr 27 min

70. Guðmundur Ingi - um skjánotkun, uppeldi drengja og að alast upp af annarri kynslóð

Guðmundur Ingi Þorvaldsson ræðir hér við Árna Kristjánsson um hvernig var að alast upp sem drengur í sveitinni sinni og verða síðan faðir fremur seint á lífsleiðinni. Umhverfið þá gjörólíkt og væntingar og hugmyndir um hlutverk feðra allt annað en áður var. Verandi faðir tveggja drengja hefur hann hugsað sig í gegnum ýmislegt sem varðar uppeldi stráka. Hann segir okkur einnig frá viðhorfum sínum til skjánotkunar og uppeldis barna eftir að hafa unnið að heimildarmynd um efnið – og hvernig hann fo...

Mar 30, 202255 min
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android