72. Betri borg fyrir börn - podcast episode cover

72. Betri borg fyrir börn

Jun 24, 202248 min
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í þessum þætti ræðir Gyða Björg Sigurðardóttir við þrjár konur, þær Karen Lind Gunnarsdóttur, sálfræðing hjá Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar, Gró Einarsdóttur, doktor í félagssálfræði, og Emblu Vigfúsdóttur, listrænan leikjahönnuð.
Þær starfa í teymi sem vinnur að verkefninu „Betri borgar fyrir börn“ sem unnið er í samstarfi milli þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar og Bloomberg Philanthropies. Verkefnið felur í sér þjónustuumbreytingu á opinberri þjónustu við börn af hálfu borgarinnar. Á Hönnunarmars var sett upp sýning í Hörpunni þar sem afrakstur rannsóknarvinnunnar var sýnd á listrænan, áþreifanlegan og sjónrænan máta. Við fjöllum um rannsóknaraðferðir, þær áskoranir sem helst komu upp á yfirborðið og hvernig nýta mætti listina til að miðla og túlka þjónustuferli og upplifun fólks. Vonir eru bundnar við að þetta verkefni muni leiða til bættrar þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra til að hjálpa þeim sem lenda í krókaleiðum í kúluspili lífsins.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android