48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar - podcast episode cover

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar

Feb 10, 20211 hr 38 min
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í þessum þætti birtum við upptöku af fjarbókaklúbbi um snilldarbókina The Explosive Child eftir dr. Ross Greene. Guðrún Inga Torfadóttir sat sveitt í nokkra daga yfir að því er henni fannst ofvaxna verkefni að gera bókinni skil og heimfæra CPS-fræði Ross Greene yfir á aðra hluti sem við ræðum um í þessu hlaðvarpi, eins og RIE og almennt virðingarríka framkomu við börn. Frábærir gestir mættu sem betur fer og gátu gefið fyllingu í ágrip Guðrúnar Ingu og góðar samræður fóru fram og reynslusögur fengu að fljóta. Það voru þær Ágústa Margrét Arnardóttir, Elsa Borg Sveinsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Margrét Thelma Líndal, Perla Hafþórsdóttir og Sif Grétarsdóttir sem tóku til máls.
Við mælum eindregið með hlustun á þennan þátt, hvaðan sem þú ert að koma ef þú á annað borð annast börn.

„Barnið þitt er ekki með hegðunaráskoranir öllum stundum allan sólarhringinn. Barnið á erfitt stundum, sér í lagi þar sem aðstæður krefjast aðlögunarhæfni, sveigjanleika, sjálfstjórnar og færni í að leysa úr vandamálum."

Ross segir að þegar barn hafi færnina til að mæta þessum aðstæðum, þá geri það það. En af því að barnið skorti færni, þá mæti barnið miklum erfiðleikum við að bregðast væntingum umhverfisins og ræður ekki við aðstæður. Og því segir Ross – og þetta er rauði þráðurinn í gegnum alla bókina:

„Börn gera vel ef þau geta."
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android