Í þessum þætti er farið yfir bókina The Objectivist Parenting eftir Roslyn Ross í fjarbókaklúbbi. Sem fyrr var tæpt á helstu atriðum bókarinnar og svo fjörlegar umræður inni á milli. Við vitum aldrei hverjir mæta á þessa fjarbókaklúbba en það sýnir sig að þegar stjórnartaumunum er sleppt kemur eitthvað frábært upp úr dúrnum. Þessi bók er knöpp og fer ítarlega yfir allt sem Roslyn og aðrir telja vera að atferlisstefnu (e. behaviorism) og hvað megi þá gera í staðinn. Svo skemmtilega vildi til að á...
Sep 30, 2020•1 hr 38 min
Í þessum þætti, sem spratt upp sem sjálfstætt framhald af frábærum síðasta þætti um minimalisma og virðingarríkt uppeldi, ræddum við nokkrar um hvernig við forgangsröðum í lífum okkar hvað varðar hagsmuni barnanna og okkar sjálfra. Ólíkir foreldrar forgangsraða með ólíkum hætti en það þýðir ekki að einhver þeirra hafi rétt fyrir sér og aðrir rangt. Þetta reyndist vera prýðisgott umræðuefni og hægt að velta ýmsu fyrir sér hvað þetta varðar. Þátttakendur að þessu sinni voru Gyða Björg Sigurðardótt...
Sep 16, 2020•1 hr 29 min
Þær Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir frá Kyrru lífsstíl hafa marga fjöruna sopið þegar kemur að því að ræða einföldun umgjarðar fjölskyldulífs enda verið að veltast með stóru spurningarnar undanfarin ár. Hvernig er best að haga gjöfum? Haga húsverkum? Hugsa um neyslu okkar? Raða í fataskápana? Huga að þvottinum? Þessi einföldu atriði geta flækt lífið afar mikið þegar við setjum okkur ekki í sérstakar stellingar og hugum að skipulagi og rútínu af fullri alvöru. Þá getur mor...
Sep 02, 2020•1 hr 16 min
Í þessum fyrsta þætti eftir sumarfrí ræddi Guðrún Inga Torfadóttir við Sigrúnu Yrju Klörudóttur, sem er konan á bak við heimasíðuna, fb-hópinn og Instagram-reikninginn Always Remember To Play. Hvernig datt henni í hug, búandi á Austfjörðum með börnin sín í fæðingarorlofi, að hefja þá vegferð að gerast áhrifavaldur um leik barna með metnaðarfullum hætti? Við mælum með að hlusta á þetta spjall við frábæra konu. M.a. ræddum við: •Hvernig hún kynntist virðingarríku uppeldi. •Að búa úti á landi í fæð...
Aug 19, 2020•57 min
Við vorum þrjár í þessum þætti hver á sínum stað á Norðurlöndunum. Í Svíþjóð var það Ingibjörg Ólafsdóttir, sem kallar sig Hjálp ég er útbrennd á Instagram, en hún hefur tiltölulega nýlokið meðferð að sænskum hætti við kulnun og hefur viðað að sér miklum fróðleik um málefnið og miðlað því til annarra. Í Danmörku var það Stefanía Rut Hansdóttir, sem skrifaði lokaritgerð sína í sálfræði ásamt vinkonu sinni um kulnun mæðra í starfi og hefur skrifað hreinskilið um tilveru sína að búa ein með börn sí...
Jul 08, 2020•1 hr 45 min
Í þessum þætti er upptaka birt af bókaklúbbi um bókina Hold On To Your Kids eftir þá Gordon Neufeld uppeldissálfræðing og lækninn og rithöfundinn Gabor Maté frá árinu 2004. Höfundar þessarar bókar eru þeirrar skoðunar að börn séu að renna foreldrum úr greipum, að verða nánast týnd kynslóð og þá sér í lagi með skjáina alls staðar í sjónlínu og unglinga sem vilja sem minnst vita af foreldrum sínum. Það sem foreldrar þurfi að skilja segir þeir, er að hegðunarerfiðleikar eru í raun ekki hegðunarerfi...
Jun 24, 2020•1 hr 37 min
Í þættinum er fjallað vel og ítarlega með hæfilegu kæruleysi að venju um hreyfiþroska barna út frá kenningum dr. Emmi Pikler og RIE með Freyju Barkardóttur sjúkraþjálfara og Kristínu Björgu Viggósdóttur iðjuþjálfa. Okkur þótti þetta vera góður tímapunktur fyrir foreldra allra barnanna þarna úti sem eru ekki enn farin að ganga og geta spreytt sig liggjandi á jörðinni úti við, helst berfætt eins og við gleymdum að koma inn á í þættinum sjálfum. Upptökum stjórnaði Guðrún Inga Torfadóttir.
Jun 10, 2020•1 hr 30 min
Í dag ræðum við Guðrún Birna le Sage, Ágústa Margrét Arnardóttir og Guðrún Inga Torfadóttir við Þóru Jónsdóttur, lögfræðing hjá Barnaheillum og markþjálfa. Hugmyndin var Ágústu Margrétar eftir að þær kynntust í gegnum markþjálfarahitting á netinu. Þetta er því spjall tveggja lögfræðinga og þriggja markþjálfara og eðlilega var komið aðeins inn á bæði hlutverkin. Þóra kemur í þættinum inn á hlutverk laga og mannréttindasáttmála sem ramma utan um samfélög og smæstu stofnanir þess og þá sér í lagi B...
May 27, 2020•1 hr 29 min
Rafrænn bókaklúbbur, svo til óklipptur, fær að flakka í þessum þætti. Bókin er The Whole Brain Child eftir Daniel J. Siegel og Tinu Payne Bryson. Fæst okkar myndu bara standa á öðrum fæti ef við gætum notað báða fætur. En hið furðulega er að mörg okkar – sérstaklega börn – nýta sér ekki mikilvæga hluta heilastarfsemi sinnar án þess þó að það sé meðvitað val. Vandinn er að hlutar heilans þroskast á mismiklum hraða og á ólíkum tímum, svo að barnið þekkir oft ekki heilastarfsemi sína frekar en marg...
May 13, 2020•2 hr 2 min
Í þessum þætti er brjóstagjöfin rædd stuttlega en ófullkomlega eins og reynslusögur eru flestar. Fullt af góðum litlum punktum koma þarna fram hjá þeim Elsu Borg Sveinsdóttur, Guðrúnu Birnu le Sage, Guðrúnu Björnsdóttur, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, Gyðu Björg Sigurðardóttur og Perlu Hafþórsdóttur. Skilaboðin eru að þú getur leitað hjálpar og ráða hjá fagfólki, vinkonum og öðrum góðum. Stundum þarftu engin ráð heldur stuðning og hlustun. Brjóstagjöfin er krefjandi verkefni fyrir nýja móður, jafnvel...
May 01, 2020•1 hr 20 min
Í þessum þætti settumst við Guðrún Björnsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Perla Hafþórsdóttir niður yfir fáeinar upptökur með börnunum okkar þar sem reyndi á eitthvað sem okkur þótti vera þess virði að taka upp. Þetta er því eins konar raunveruleg tilraunastofa þar sem við deilum upptökum okkar með hlustendum, ræðum þær og gefum hvor annarri endurgjöf. Það reynir hér á að koma nærri þriggja ára barni í daglúr og ein okkar fer yfir atburðarrás með nærri þriggja ára st...
Apr 14, 2020•1 hr 15 min
Ágústu Margréti Arnardóttur kynntust hlustendur okkar í 17. þætti. Þegar hún kom í bæjarferð um daginn gripum við tækifærið og Guðrún Inga Torfadóttir og Guðrún Birna le Sage fengu hana aftur í settið og þær spjölluðu út frá nýrri bók Daniels Siegels og Tinu Brysons, The Power of Showing Up. Þegar kom að því að klippa þáttinn komst Guðrún Inga að því að hann á fullt erindi við okkur í dag. Við gerðum svo það sem allir eru að gera í dag, fórum á fjarfund og tókum upp inngang að þættinum til þess ...
Apr 01, 2020•1 hr 59 min
Við hefjum þáttinn á örlitlu innskoti um stöðuna í dag frá Guðrúnu Ingu Torfadóttur og um framhaldið næstu vikur en við munum engan bilbug láta á okkur finna ef við getum einhverju um það ráðið og höldum áfram dagskrá okkar. Aðalheiður Sigurðardóttir, fyrirlesari og samskiptaráðgjafi, er móðir stúlku sem fékk einhverfugreiningu átta ára gömul. Hún kom til Guðrúnar Birnu le Sage og Kristínar Bjargar Viggósdóttur og sagði þeim frá reynslu sinni sem móðir barns á einhverfurófi. Hún talar um áfallið...
Mar 25, 2020•1 hr 31 min
Í dag er komið að þriðja þætti í umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns áfram, út frá bókinni hans Unconditional Parenting. Við nældum okkur í nýjar raddir í síðasta bókaklúbbi um bókina. Eða svo til nýjar sumar, Eva Rún Guðmundsdóttir, Elsa Borg Sveinsdóttir, Hafdís Ósk Pétursdóttir og loks Sólveig Rós! Í fyrsta þætti okkar um kenningar Alfies Kohns fórum við yfir hvað sé að skilyrtu og stjórnunartengdu uppeldi. Í öðrum þætti ræddum við ástæðurnar fyrir því að við dettum í skilyrt og ...
Mar 11, 2020•1 hr 27 min
Í þessum þætti höldum við umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns áfram, út frá bókinni hans Unconditional Parenting. Með Guðrúnu Ingu Torfadóttur eru mættar þær Eva Rún Guðmundsdóttir, Guðrún Birna le Sage og Gyða Björg Sigurðardóttir. Í síðasta þætti stikluðum við á stóru um fyrri helming bókarinnar Unconditional Parenting. Við fórum yfir hegðunarvandamál sem leiða af skilyrtri ást foreldra og af hverju vinsælar uppeldisaðferðir láta börnum líða eins og þau séu samþykkt aðeins ef þau ...
Feb 26, 2020•1 hr 36 min
Í dag hefjum við umfjöllun okkar um fræði og boðskap Alfies Kohns, og þá sérstaklega út frá bókinni hans Unconditional Parenting sem hann gaf út árið 2005 og fjallar um skilyrðislaust uppeldi ásamt því að við ræðum lítillega eina frægustu fyrri bóka hans, Punished by Rewards, frá árinu 1993. Í Time magazine hefur Alfie verið lýst sem „ef til vill mesta gagnrýnanda Bandaríkjanna um áhuga menntakerfisins á einkunnum.“ Hann gagnrýnir samkeppni og verðlaunadýrkun og hefur verið óþreytandi að tala og...
Feb 05, 2020•1 hr 21 min
Við höldum áfram að ræða um líkama okkar mæðranna. Djúpt samþykki, tenging og tjáning með líkamanum er bransinn sem Margrét Erla Maack lifir og hrærist í. Guðrún Inga Torfadóttir fékk þessa vinkonu sína úr framhaldsskóla og ballett til þess að opna á það með hlustendum okkar hversu mikilvægt það er að við konurnar samþykkjum okkur sjálfar. Hennar leið er að standa á sviði misfáklædd og gera grín að sjálfri sér og kenna öðrum konum í Kramhúsinu að detta í gírinn. Enginn líkami er rangur líkami og...
Jan 22, 2020•1 hr 3 min
RIE fyrir fullorðna? Við fengum þær stöllur Agnesi Ósk Snorradóttur og Köru Elvarsdóttur sjúkraþjálfara frá Hraust þjálfun í heimsókn til okkar í skrautlega upptöku þar sem þær ræddu við þrjár Guðrúnar úr hópi Meðvitaðra foreldra, Guðrúnu Ingu Torfadóttur, sem þurfti svo að hlaupa í burtu að ná vinnufundi, Guðrúnu Birnu le Sage sem stýrði þessu af stakri rósemd áfram, og loks náði Guðrún Björnsdóttir í lokin til okkar eftir lok vinnufundar hjá sér til að deila hvernig heilsan hennar hrundi nú í ...
Jan 08, 2020•1 hr 25 min
Í þessum þætti svona skömmu fyrir jól heimsækjum við það efni sem við flest viljum komast hjá yfirleitt að ræða eða verða fyrir: sorgina. Til Guðrúnar Ingu Torfadóttur komu þær Aldís Rut Gísladóttir prestur, jógakennari og þriggja barna móðir og Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona, íþróttakona og tveggja barna móðir. Þær hafa báðar ástríðu fyrir virðingarríku uppeldi og deildu með Guðrúnu Ingu visku sinni og reynslu hvað viðkemur sorginni, sorgarúrvinnslu og viðbrögðum. Kristín Sif sagði ok...
Dec 18, 2019•1 hr 56 min
Í þessum enn einum aukaþætti desember-mánaðar gátum við ekki staðist mátið að ná í skottið á Kristínu Maríellu áður en hún sneri aftur heim til fjölskyldu sinnar. Við ræddum um umræðuefni vikunnar á samfélagsmiðlum, að viðurkenna tilfinningar barnanna okkar. Hvernig förum við að því að halda ró okkar yfir gráti barna og jafnvel reiði? Samfélagið okkar virðist reyna að bæla og koma í veg fyrir tjáningu á heilbrigðum tilfinningum. Sumir fullorðnir muna eftir að hafa verið refsað, þeim hótað eða ja...
Dec 09, 2019•49 min
Í þessum aukaþætti aðventunnar spjölluðum við mismeðvitaðir foreldrar um sýn okkar á jólahaldið og hvernig við höfum og erum enn að reyna að einfalda og endurhugsa hlutina til þess að koma á friðsælli aðventu fyrir alla fjölskylduna. Talið barst að uppákomum og skyldum foreldranna í alls kyns viðburðum, val á jólagjöfum, hefðum sem við viljum stundum henda á haugana og loks ræddum við skógjafir og tilvist jólasveinsins vel. Þær sem tóku þátt að þessu sinni voru þær Elsa Borg Sveinsdóttir, Eva Rú...
Dec 02, 2019•1 hr 15 min
Í þetta sinn settumst við þrjú og hálft par niður til þess að ræða samböndin okkar. Það voru þau Guðrún Birna le Sage og Áki Barkarson, Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir og Birkir Ólafsson, undir stjórn Guðrúnar Ingu Torfadóttur sem tókst ekki að sannfæra sinn mann um að mæta þar sem hann var upptekinn í mikilvægari málum að eigin sögn. Hvernig hefur okkur tekist að taka upp virðingarríka uppeldishætti, RIE eða hvaða nafni sem við viljum nefna það, sa...
Nov 27, 2019•2 hr 20 min
Ágústa Margrét Arnardóttir settist niður með okkur Guðrúnu Birnu le Sage og Guðrúnu Ingu Torfadóttur og sagði okkur allt af létta um vegferð sína og fjölskyldunnar yfir í virðingarríkt uppeldi, baráttu við að mæta syni sínum sjö ára og hjálpa honum að ná tökum á lífi sínu og hvernig fjölskyldan hefur stokkað upp og breytt öllu hjá sér. Við ræddum um Plan B aðferð Ross Greene og hvernig börn gera vel ef þau geta og hvaða áhrif samskipti okkar foreldranna hafa á fjölskyldulífið allt. Við mælum með...
Nov 20, 2019•1 hr 38 min
Hér settumst við vinkonuhópurinn saman í miðri sumarbústaðarferð og byrjuðum að tala án þess að hafa ákveðið umræðuefni. Úr varð umræða um tónlistarnám, íþróttaiðkun og lestur ungra barnanna okkar. Rauði þráðurinn er hversu flókið það er að finna jafnvægi þess að vera styðjandi sem foreldri við að börnin efli og þrói hæfileika sína og svo að þau fái líka nægt rými til að vera heima í rólegheitunum. Nokkrar okkar eiga börn í fyrstu bekkjum grunnskóla með minni systkini einnig heima og upplifum al...
Nov 06, 2019•1 hr 7 min
Guðrún Birna le Sage og Kristín Björg Viggósdóttir fóru askvaðandi ásamt Ófeigi, ungum syni Kristínar, niður í Iðnó þar sem fram fór einn metnaðarfullra dagskrárliða Play Iceland ráðstefnunnar. Þar tóku þær einn skipuleggjenda ráðstefnunnar tali, Bryndísi Hreiðarsdóttur, til að fræðast stuttlega um þessa ráðstefnu sem haldin var í sjöunda eða áttunda sinn á dögunum. Þá ræddu þær við Kim Jones sem mætt var á ráðstefnuna í fyrsta sinn frá Bretlandi. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt en hefur í 30...
Oct 23, 2019•1 hr
Í þessum fjórtánda þætti náði Guðrún Inga Torfadóttir tali af Tom Hobson sem staddur var á Íslandi til að taka þátt í ráðstefnunni Play Iceland á dögunum. Hann gaf sér góðan tíma til að setjast niður og ræða í upptöku um hversu mikið hann dáist að íslenskum leikskólum og leikskólabörnum. Þá ræddi hann um leikskólann sem hann starfar í og sér um að reka ásamt foreldrum barnanna sem ganga í skólann og hvernig börnin setja sér reglur sjálf, fá að reyna á sig í áhættusömum leik og hvaða hlutverki ha...
Oct 16, 2019•55 min
Í þessum þætti hlaðvarpsins var rætt um mataruppeldi. Guðrún Inga Torfadóttir stjórnaði upptökum og spurði misgáfulegra spurninga, með spekingum úr hópi Meðvitaðra foreldra, þeim Guðrúnu Björnsdóttur og Svövu Margréti Sigurðardóttur. En í hópi sérfræðinga voru það Ása María Reginsdóttir og Ebba Guðný Guðmundsdóttir sem heiðruðu okkur með nærveru sinni. Sigrún Þorsteinsdóttir barna- og heilsusálfræðingur sendi okkur jafnframt vandað innslag um rannsóknarverkefnið Bragðlaukaþjálfun sem fer fram um...
Oct 09, 2019•2 hr 10 min
Í þessum 12. þætti berst talið að systkinasamböndum. Hvernig getum við búið barn undir komu systkinis og staðið með því í gegnum hegðunarerfiðleika við þau umskipti? Og ólumst við sjálf upp í hlutverkum sem við báðum aldrei um og erum jafnvel að endurtaka leikinn með okkar eigin börn? Það getur loks verið eldfimt ástand þegar systkini rífast og slást og foreldrarnir vita ekki sitt rjúkandi ráð. Allt þetta og fleira til bar á góma. Þær sem mættu í hljóðver að þessu sinni úr hópi Meðvitaðra foreld...
Sep 25, 2019•2 hr 21 min
Bjartur Guðmundsson, leikari og árangursþjálfari, mætti í topp tilfinningalegu formi til Guðrúnar Ingu Torfadóttur í spjall, þar sem erfitt var að heyra hver væri að taka viðtal við hvern. Farið var yfir alls konar; hvaðan hann kemur í sinni hugmyndafræði, triggerabaráttuna, hvernig sé hægt að koma inn breytingum í líf sitt og vega og meta hegðun sína eftir líka gæði upplifana og þeim þörfum sem liggja að baki, sykurfíkn, að sætta sig við sjálfan sig í dag en vilja betur fyrir sig í framtíðinni ...
Sep 11, 2019•1 hr 47 min
Í þessum tíunda þætti hlaðvarpsins Virðing í uppeldi fékk Guðrún Inga Torfadóttir heiðursgestinn Kristínu Maríellu í spjall. Í síðari hluta þáttarins komu til okkar Kristínar þær Guðrún Birna le Sage, Guðrún Björnsdóttir og Svava Margrét Sigurðardóttir. Við ræddum um triggera, eða viðnám og vörðum í það öllu okkar púðri og héldum engu eftir. Við fórum yfir nýlegar sögur þar sem við fórum sjálfar út af sporinu, þrátt fyrir að gefa okkur út fyrir að vera umhugað um meðvitað og virðingarríkt uppeld...
Aug 28, 2019•2 hr 17 min