Eftir utanvegahlaupið Kerlingafjöll Ultra náðum við nokkrum af öflugustu karla jafnt sem kvenna hlaupurum í stutt spjall þar sem við fórum bæði yfir hlaupið í Kerlingafjölunum jafnt sem næstu keppnir, æfingar og margt fleira. Við náðum spjalli við Stefán, Grétar og Þorstein Roy karla meginn og Andreu Kolbeinsdóttir og Elísu Kristinsdóttir kvenna meginn. ------------------------------------------------------ Kerlingafjöll Ultra: https://kerlingarfjoll.is/kerlingarfjoll-ultra ---------------------...
Jul 27, 2025•1 hr 24 min
Mari þarf ekki mikið að kynna til leiks fyrir hlustendum… Mari byrjaði að keppa í utanvegahlaupum hér á landi 2019 (Esjumaraþonið var hennar fyrsta hlaup) með mjög góðum árangri og færði sig svo fljótlega í Bakgarðshlaup þar sem hún náði fljótt árangri sem fáir hér á landi geta leikið eftir. Mari hefur lengst farið farið 57 hringi í Bakgarðshlaupum sem telur 382 km, hátt í 3 heila sólahringa á hlaupum !!! ------------------------------------------------------ Instagram hjá Mari: https://www.inst...
Jul 16, 2025•1 hr 24 min
Teitur hefur unnið, lifað og hrærst í líkamsræktarbransanum í mörg ár og starfar í dag sem einkaþjálfari hjá World Class. Teiti þykir gaman að skora á sjálfan sig og gerði sér lítið fyrir og keppti í hálfum járnkarli núna fyrir stuttu sem hann kláraði með stæl. Hálfur Iron man = 1.9 km sund - 90 km hjól og 21,1 km hlaup. Sigurjón og Teitur snerta á ansi mörgum þáttum tengt heilsu í góðu spjalli sem allir ættu að hafa gaman af. ------------------------------------------------------ Instagram hjá ...
Jun 30, 2025•1 hr 37 min
Sigurjón Sigurbjörnsson byrjaði sinn hlaupaferil 42 ára gamall og hefur farið kringum 30 maraþon og þar af rúmmlega helming af þeim undir 3 klst. Sigurjón hefur einnig þrisvar keppt í 100 km götuhlaupi og er Íslandsmetahafi þar eftir að hann hljóp 100 km hér heima árið 2009 á 7 klst og 59 min sem er meðalpace uppá 4:48 min. Sigurjón og Sigurjón fara um víðan völl í spjallinu og snerta á hans hlaupaferli og fara í æfingar og æfingaáætlun fyrir maraþon jafnt sem 100 km hlaup. ---------------------...
Jun 12, 2025•1 hr 25 min
Örvar Steingrímsson er með reyndari hlaupurum hér á landi og hefur keppt fyrir hönd Íslands í heimsmeistaramótum í utanvegahlaupum og náð virkilega flottum árangri í hinum ýmsu keppnum. Sigurjón og Örvar fara um víðan völl og ræða upphafið á hlaupunum hjá Örvari og ræða undirbúning og ýmsar æfingar sem hann, Guðni Páll og fleiri tóku til að undirbúa sig fyrir hinar ýmsar áskoranir. Örvar ræðir einnig hvað sé framundan en næsta stóra áskorun hjá honum er 100km í Rauðavatn Ultra 9.Ágúst þar sem ha...
May 28, 2025•1 hr 51 min
María Krista eða Kristaketo eins og hún er betur þekkt á Instagram hefur fylgt ketónísku og lágkolvetna mataræði til lengri tíma með góðum árangri og bættri líðan andlega jafnt sem líkamlega og er þessa dagana að prófa sig áfram með carnivore mataræði. Sigurjón og Kristín fóru um víðan völl í næringuni og snertu á ýmsum atriðum tengt næringu og heilsu. María er dugleg að deila uppskriftum og ýmsum fróððleik á samfélagsmiðlum undir krisstaketo. ----------------------------------------------------...
May 14, 2025•1 hr 47 min
Ævintýramaðurinn Guðmundur Freyr Jónsson kíkti í gott spjall þar sem hann fór yfir hina ýmsu fjallgöngur og ævintýri sem hann og hans félagar hafa farið í gegnum yfir undanfarin ár. Guðmundur er hinn mesti fjallagarpur og hefur samhliða fjallabrölti lag kapp á utanvegahlaup jafnt sem styrktarþjálfun í UltraForm. Sigurjón og Gummi fara um víðan völl og snerta á ýmsum þáttum sem fólk ætti að hafa virkilega gaman að heyra af. ----------------------------------------------------- Instagram hjá Gumma...
Apr 29, 2025•2 hr
Rakel og Gummi eru seint að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur !! Milli þess sem þau sigrast á hverju Ultrahlaupinu á fætur öðru þá ferðast þau um heiminn á framandi staði og skoða mismunandi menningarheima út um allan heim. Sigurjón fer yfir vinnu, æfingar, hlaupin, ferðalögin og meira til með þeim Rakeli og Gumma. Þessir ultra hlauparar kunna bæði að þjást og njóta sem eru jú tveir mjög miklir kostir og hálf nauðsynlegt að kunna að gera í okkar nútímasamfélagi. --------------------------...
Apr 13, 2025•1 hr 33 min
í Hlaðvarpsþætti 90 komum við til ykkar frá Tenerife þar sem fjölmargir Íslendingar kepptu í fjallahlaupinu Bluetrail þar sem keppt er í 24 km, 47 km, 73 km og 110 km með mismikilli hækkun. Í hlaðvarpinu spjölluðum við við keppendur fyrir hlaupið, Sigurjón fór yfir stöðuna á hlaupurunum yfir hlaupið sjálft (á/gegnum drykkjarstöðvum) og svo heyrðum við loks í keppendum eftir áskorunina og spurðum þau út á keppnina.------------------------------------------------------------------- Instagram hjá S...
Mar 30, 2025•1 hr 13 min
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir og Sigurjón kynnast í Boot Camp og keppa svo í einstaklings, para og líðakeppni í þrekmótaröðinni í allnokkur ár. Arnfríður gerði sér lítið fyrir og sigraði þrekmótaröðina í kvenna flokki 2015 og hlaut þar titilinn hraustasta kona landsins. Líkt og Sigurjón þá kemur Arnfríður Gígja úr sveitinni þar sem lífið snérist mikið um hreyfingu samhliða því að sinna helstu störfum tengt sveitalífinu. Arnfríður starfar innan lögreglunar í dag þar sem ekki vantar verkefnin.---...
Mar 20, 2025•1 hr 2 min
Martha Lind var alltaf öflug í hreyfinu á yngri árum og í raun svo öflug að hún æfði fullmargar íþróttir samtímis þar til hún var vinsamlegast beðin um að velja sér færri greinar til að æfa :P Líkt og gengur og gerist þá dróg hægt og rólega úr hreyfingu þegar Martha færðist yfir á fullorðinsárin og fyrir rest var lítil hreyfing samhliða ekki svo góðu mataræði og aukakílóin fóru að læðast á hana hægt og rólega. Áður en Martha sneri við blaðinu missti hún mjög góða vinkonu langt fyrir aldur fram o...
Feb 26, 2025•1 hr 22 min
Sigurjón og Jóhanna kynnast í íþróttafræði á Laugarvatni og deila saman miklum áhuga á hreyfingu og heilsu. Líkt og gengur og gerist þá skildu leiðir eftir námið og lífið tók við hjá bæði Sigurjóni og Jóhönnu. Jóhanna Marín var hinn sannkallaða ofurmóðir sem var með allt á hreinu, alla bolta á lofti og sló hvergi slöku við. Hún var í námi, í vinnu, hreyfði sig alla daga, borðaði öllu jafna hollt og tikkaði bara í öll boxin. Hægt og rólega fór líkaminn þó að gefa vísbendingar að allt væri ekki me...
Feb 07, 2025•1 hr 21 min
Erlu Guðmundsdóttur þarf vart að kynna fyrir mörgum þar sem hún hefur hjálpað fjölmörgum að bæta heilsu sína með hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum, með heilsumarkþjálfun í Sjúkrasport, og heilsumolum á Instagram, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Erla leitar stöðugt leiða til þess að bæta eigin heilsu og heilsurútínu og eftir smá burnout tengt mörgum þáttum lífsins tók hún heilsuna ennþá fastari tökum en þó með aðeins annarri nálgun en bara meiri hreyfingu og hollara mataræði. Sigurjón og Erla fóru um...
Jan 26, 2025•1 hr 30 min
Melkorka Árný Kvaran hefur unnið við hreyfingu og lífstíl meira og minna allt sitt líf og klárað nám í íþróttafræði, næringafræði og hjúkrunarfræði og hefur því mikla þekkingu á mörgu sem viðkemur heilsu. Sigurjón og Melkorka fara um víðan völl og ræða hennar nám, vinnu, hreyfingu og alveg yfir í hryðjuverkaáras í maraþonhlaupi sem breytti hennar fókus á hreyfingu og yfir í starf hennar í dag sem hjúkrunarfræðingur í dag. Melkorka og Sigurjón ræða andlega jafnt sem líkamlega heilsu, ástandið í o...
Jan 12, 2025•1 hr 15 min
Helgi Halldórsson og Hlynur Þór Þorleifsson hafa báðir áhugaverða sögur að segja frá sinni heilusvegferð. Þeir voru báðir komnir á frekar slæman stað sem rekja má til margra þátta en það er óhætt að segja að þeir sneru alveg við blaðinu og komu sér í ótrúlega gott stand líkamlega jafnt sem andlega á stuttum tíma með réttum áherslum. Þeir eru svo sannarlega komnir í mikið UltraForm í dag og sigrast á erfiðum áskorunum í dag líkt og að drekka vatn. Likt og svo margir eiga til að gera í dag þá gley...
Jan 01, 2025•1 hr 35 min
Sigurjón og Símona ræða hér fyrirtækjarekstur UltraForm alveg frá því að Sigurjón byrjaði með hópaþjálun í bílskúrnum yfir í hóptímastöð sem varð til þessa að Sigurjón og Símona fóru fljótt í fulla vinnu fyrir UltraForm, þau ræða allt sem getur fylgt því að reka fyrirtæki, stress, hindranir, stór verkefni, stóru og glitlu sigranir, skipulagið, fjölskyldulífið og margt fleira. Hér deilum við einnig með ykkurr spjalli þar sem Sigurjón var í hlaðvarpsþættinum Íslenski Draumnurinn og þar ræddi Sigur...
Dec 20, 2024•2 hr 12 min
Garp þarf ekki mikið að kynna fyrir þeim sem fylgjast með flestum Ultra áskorunum hér á landi, ef hann er ekki bak við myndavélina eða að taka viðtöl við fólk þá er hann sjálfur mættur á startlínuna. Garpur er einnig mikill fjallagarpur þegar kemur að því að klífa hinn ótrúlegustu fjöll og tinda og Sigurjón og Garpur fara yfir víðan völl í skemmtilegu spjalli. ------------------------------------------------------------------------------- - Instagram hjá Garpi: https://www.instagram.com/garpure/...
Dec 09, 2024•1 hr 32 min
Sigurður Sindri Magnússon hefur svo sannarlega látið draum sinn rætast í fyrirtækjarekstri og með mikilli vinnu hefur hann stofnað Deluxe Iceland þar sem hann og hans fyrirtæki þjónustar kröfuharða viðskiptavini sem vilja upplifa það besta á Íslandi. Sigurður er einnig með fókus á heilsuna og passar vel uppá að huga að líkamlegri jafnt sem andlegri heilsu samhliða sínu fyrirtækjarekstri og gerði sér lítið fyrir og hljóp heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni núna 2024 með sínu fólki í Deluxe Icelan...
Nov 24, 2024•1 hr 31 min
Daði hefur undanfarin ár verið meðal bestu keppenda í enduro/þolakstri hér á landi en lenti í mjög slæmu slysi á hjólinu ekki alls fyrir löngu og hefur verið að ná sér tilbaka eftir það atvik. Daði deilir með okkur góðum minningum úr æsku, uppeldi, skólagöngu, hjólasportinu, námi í Grikklandi og loks slysinu og bataferlinu eftir slys sem er búið að vera ótrúlega krefjandi verkefni. Sigurjón og Daði hafa unnið mikið saman með lífstílinn og hreyfinguna sem þeir koma inná í spjallinu. -------------...
Nov 08, 2024•1 hr 40 min
Sveinn Atli og Sigurjón fara langt aftur og hafa tekist á við hinar ýmsu áskoranir saman. Sveinn Atli hefur þjálfað Boot Camp í mörg ár, æft og þjálfað ólympískar lyftingar, tekið þátt í hinum ýmsu Spartan keppnum og loks tekist á við hin ýmsu ultrahlaup. Sveinn var að skipta um starfsvettvang eftir mörg ár í Boot Camp í Sporthúsinu og þjálfar núna í Elite þjálfun samhliða hlaupafjarþjálfuninni sinni Vaxandi hlaupaþjálfun. -------------------------------------------------------------------------...
Nov 01, 2024•1 hr 7 min
Sigurjón og Símona fara yfir flutninga UltraForm í Gylfaflöt 10, Grafarvog þar sem planið er að hafa mjög flotta stöð með stærri og flottari sal, saunu, köldum pottum og fleiru. Þau skutuhjúin fara einnig yfir komandi hlaup hjá UltraForm sem eru 5 og 10 km hlaup á braut, Akrafjall Ultra, Hólmsheiðarhlaupið og Rauðavatn Ultra. Þau fara svo að lokum yfir hlaupasumarið jafnt sem þeirra heilsurútínu til að segja fólki hvað þau gera til að halda sér alltaf í þessum keppnisgír. -----------------------...
Oct 18, 2024•1 hr
Vilborg Arna Gissurardóttir er sennilega ein mesta Ultra manneskja sem UltraForm hefur fengið í hlaðvarpið. Flestir þekkja til Vilborgar fyrir ótrúlegar áskoranir og þrekraunir á borð við Suðurpóllsgönguna (The South Poll), Tindana Sjö (Seven Summits) og margar aðrar ótrúlegar áskoranir. Vilborg býr núna í Sloveníu en þar náði Sigurjón henni einmitt í spjall þar sem hún var nýbúin að klára 50 km hlaup með mikilli hækkun um fjöll og firnindi. ------------------------------------------------------...
Sep 29, 2024•1 hr 37 min
Freyr Hákonarson og Sigurjón hafa brallað margt saman þegar kemur að hinum ýmsu áskorunum, þrekmótaröðin, Heimsmeistaramót í Spartan keppni og margt fleira. Þeir félagar ræða aga, æfingar, næringu, lífið og tilveruna. Freyr byrjaði fyrir stuttu með nýja tíma í Reebok Fitness sem kallast Blackout og hafa hlotið áhuga margra en þar er ekkert gefið eftir og agi og harka haft í fyrrirúmi. ----------------------------------------------------------------------------- Intagram hjá Frey: https://www.ins...
Sep 19, 2024•1 hr 39 min
Egill Trausti er seint þekktur fyrir að velja sér minnstu áskoranirnar í lífinu og tekur allt sem hann gerir alla leið. Egill kemur úr fótboltanum, fór yfir í frjálsar og svo yfir í Crossfit eftir stutt stopp í frjálsum. Hann tók svo góða U-beygju og er í dag komin í kaf í hlaupin samhliða styrktarþjálfun og hefur keppt ansi mikið þrátt fyrir aðeins tæplega tvö ár í hlaupunum. Egill og Sigurjón fara yfir hlaupin og snerta á mörgum þáttum sem snúa að heilsu jafnt sem daglegri rútínu hjá Agli. Þræ...
Sep 06, 2024•1 hr 57 min
Hafdís og Elísa eru miklir æfingafélagar og eru seint þekktar fyrir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Þær hafa tæklað ótrúlegar æfingar jafnt sem áskoranir saman í sumar og þar má nefna 11 Esjuferðir sem var styrktarverkefni hjá þeim vinkonum og nokkura daga æfingaferð erlendis þar sem þær hlupu daglega krefjandi leiðir með mikilli hækkun og báru allan búnað á bakinu. Ekki nóg með að þær gerðu þetta allt heldur gerðu þær þetta milli þess sem þær tækluðu mikið af erfiðustu fjaallahlaup...
Aug 25, 2024•1 hr 24 min
Sigurjón kíkti í spjall til Kristjáns sem heldur úti Jákastið hlaðvarpið og þeir félagar áttu gott spjall þar sem Sigurjón fer yfir fjölmarga þætti sem snúa að hreyfingu, mataræði, endurheimt, föstu, blóðsykri og fleiri þáttum sem snúa að heilsu. Nú þegar sumarið er langt komið og margir fara í sína hefðbundnu rútínu getur verið gott að huga að atriðum sem geta ýtt undir bætta heilsu. --------------------------------------------- Jákastið hjá Kristjáni: https://open.spotify.com/show/1CcNpKB2wz4m...
Aug 18, 2024•1 hr 24 min
Lukka kom í frábært spjall í hlaðvarpsþætti 11 í UltraForm hlaðvarpinu (legg til að fólk hlusti á þann þátt fyrst) og snýr núna aftur eftir ansi vígalega tilraun í mataræði sem bæði dróst mikið á langinn og hafði ansi mikil áhrif á Líf Lukku bæði andlega jafnt sem líkamlega. Sigurjón og Lukka kafa djúpt í mataræðið og áhrif þess á andlega jafnt sem líkamlega þætti hjá Lukku og snerta einnig á álagsprófum,- líkams og efnaskiptamælingum ásamt öðrum meðferðartímum hjá Greenfit. --------------------...
Aug 01, 2024•1 hr 55 min
Arnar er ekki þekktur fyrir að velja einföldustu leiðina í lífinu og hefur gaman af krefjandi áskorunum og hefur sem dæmi tæklað: 7x7 róður, Concept Iron Man, farið í gegnum eina erfiðustu Spartan Race Ultra keppni sem fyrirfinnst og margt fleira. Arnar hefur búið með sinni fjölskyldu víða í heiminum og við förum yfir mismunandi menningarheima og upplifun Arnars á þeim. Arnar býr í Belgíu í dag á samt sinni konu (Ingu Þóru) og börnum og starfar í dag hjá Rogue Fitness. Inga Þóra rekur Crossfit s...
Jul 19, 2024•1 hr 41 min
Anna Berglind Pálmadóttir hefur lengi verið í fremri röð hlaupara hér á landi og sínt sig og sannað á brautinni jafnt sem í utanvegahlaupum. Sigurjón og Anna fara um víðan völl í spjallinu og fara yfir hennar íþróttaferil sem byrjaði í þolfimi í ræktinni, færðist yfir í Crossfit og keppti svo í 5 km hlaupi sér til gamans þar sem hún rúllaði undir 20 min líkt og ekkert væri sjálfsagðara. Anna lenti einnig í alvarlegu slysi í Esjuni fyrir nokkrum árum sem hún hefur náð að jafna sig ótrúlega vel af...
Jul 05, 2024•1 hr 48 min
Sólveig Kristín hefur heldur betur áhugaverða sögu að segja. Bulemía, þunglindi, sjálfsvíshugsanir, slæm meltingarvandamál og libidimía eru allt vandamál sem getur verið mjög erfitt bæði að greina, fá aðstoð við og hvað þá sigrast á. Með bættum lífstíl og mjög sterku hugarfari náði Sólveig að sigrast nánast alveg á sínum heilsufarskvillum og er komin á órtúlega góðan stað í dag. Sólveig segir sína sögu og deilir góðum leiðum til að bæta sinn lífstíl inná instagram aðgangnum Sólskins Líf --------...
Jun 21, 2024•1 hr 42 min