Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Bláa lónið með tvö nýja baðstaði á teikniborðinu

Á síðustu vikum hefur verið nokkur umræða um uppbyggingu í ferðaþjónustu í náttúru Íslands. Smáhýsin í Skaftafelli hafa vakið hörð viðbrögð hjá sumum og fyrirhugað baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul og Vatnajökulsþjóðgarð sömuleiðis. Magnús Orri Schram, er yfirmaður þróunarmála hjá Bláa lóninu, segir að mikil eftirspurn sé eftir baðstöðum hjá erlendum ferðamönnum. Hann segir að lykilatriði sé að byggja vel og fallega þannig að mannvirkin passi inn í náttúruna. Magnús Orri segir að Bl...

Dec 22, 202515 minEp. 592

Fyrri hálfleik lokið á 157. þingi

Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar voru samþykkt á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Í gær var einnig samþykkt umdeilt frumvarp um kílómetragjald á ökutæki, frumvarp um hækkun frítekjumarks eldri borgara og frumvarp um hlutdeildarlán, sem á að gera þau aðgengilegri fleirum. Og þingmenn halda nú í jólafrí. Í þættinum er farið yfir þau mál sem hafa verið samþykkt í haust og stöðuna eftir áramót. Viðmælandi: Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Dec 19, 202513 minEp. 591

Baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul

Bláa Lónið hf. vill byggja hótel og gera baðlón við rætur Hoffellssjökuls við Hoffell í Nesjum. Framkvæmdirnar eru utan Vatnajökulsþjóðgarðs en eru rétt við mörk hans. 99 umsagnir hafa borist til Skipulagsstofnunar út af þessum fyrirhuguðu framkvæmdum. Umsagnir eru enn að berast um verkefnið þrátt fyrir að umsagnarfrestur hafi runnið út 1. desember. Síðasta umsögnin er dagsett 17. desember. Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, ræðir um framkvæmdina og segir að það sé krefjandi...

Dec 18, 202515 minEp. 590

Pólitíkusar ekki lengur menn ársins

Í dag beinum við sjónum okkar að þeirri hefð að útnefna manneskju ársins. Hlustendur Rásar 2 - og síðar lesendur RÚV.is - hafa valið manneskju ársins á hverju ári frá 1989. Athygli vekur að kjörnir fulltrúar hafa verið valdir 10 sinnum, eða í rúmlega fjórðungi tilfella, en aldrei frá 2007. Viðmælandi: Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Dec 17, 202514 minEp. 589

Þorpið á Grænlandi þar sem næsti bar er á Íslandi

Ragnar Axelsson birti ljósmyndir frá þorpi á Grænlandi í byrjun desember í bandaríska tímaritinu the The New Yorker. Greinin fjallar öðrum þræði um grænlenskan ísbjarnarveiðimann, Hjelmer Hammeken, sem býr í þorpinu, Ittoqortoormiit, á austurströnd Grænlands. Ragnar segir frá Hammeken, þorpinu og vinnslu greinarinnar í bandaríska blaðinu sem fagnar 100 ára afmæli sínu í ár. Ittoqortoormiit er svo einangrað á Grænlandi að næstu matsölustaðir, kaffihús og barir eru á Íslandi, 500 kílómetra í burtu...

Dec 16, 202516 minEp. 588

Verður af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum?

Sanna Magdalena Mörtudóttir tilkynnti á föstudag að hún ætli ekki að bjóða sig fram undir merkjum Sósíalistaflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún boðaði nýtt framboð sem hún vonar að verði öflugt samstarf á vinstri vængnum. Samstarf á vinstri vængnum - þar sem helst er horft til Sósíalistaflokksins - eða Sönnu allavega - , Pírata og Vinstri grænna, hefur verið til umræðu í nokkurn tíma. Í þætti dagsins er rætt um stöðu mögulegs sameiginlegs framboðs, ásteytingarsteina og sögu sameini...

Dec 15, 202515 minEp. 587

Sagan um jörðina og smáhýsin í Skaftafelli

Umræða um smáhýsin í Skaftafelli hefur verið talsverð síðustu daga. Bygging húsanna er umdeild hjá sumum, meðal annars Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Húsin er í eigu fyrirtækis sem heitir Arctic Circle Hotels. Hótelfyrirtækið er í eigu ferðaþjónusturisans Arctic Adventures og verktakafyrirtækisins Þingvangs. Artic Adventures á 60 prósenta hlut í hótelfyrirtækinu og Þingvangur á 40 prósent. Í húsunum verður gistaaðstaða fyrir ferðamenn. Jóhann Ásgeir Baldurs, framkvæmdastjóri Artic Adventures, s...

Dec 12, 202514 minEp. 586

Vitni í Samherjamálinu segist hafa fengið tilboð fyrir að þegja

Namibísk kona sem er vitni í rannsókn Samherjamálsins segist hafa verið boðin greiðsla upp á 85 milljónir íslenskra króna, fyrir að hætta að spyrja spurninga um rekstur íslenska útgerðarfélagsins í Namibíu árið 2016. Konan heitir Sharon Neumbo og var stjórnarformaður namibísks félags sem vann með Samherja í útgerð í landinu. Sharon segir að sá sem hafi boðið henni þessa upphæð hafi verið Egill Árnason, starfsmaður Afríkuútgerðar Samherja. Eftir að Samherjamálið kom upp árið 2019 segist Sharon sö...

Dec 11, 202515 minEp. 585

Tímamót í vaxtamálinu

Tímamót verða í vaxtamálinu svokallaða eftir rúma klukkustund þegar hæstiréttur kveður upp dóm sinn í máli tveggja lántakenda vegna skilmála í lánasamningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum. Þetta er annað málið af fjórum sem lántakendur höfðuðu með fulltingi Neytendasamtakanna árið 2021. Um fátt hefur verið rætt meira en fyrsta málið sem leitt var til lykta um miðjan október - enda hafði það mikil áhrif á húsnæðismarkaðinn. Í þættinum eru rætt um áhrifin hingað til og velt upp hver áhrif þ...

Dec 10, 202514 minEp. 584

Aldrei fleiri íslensk skáldverk en fræðiritum fækkar

Rúmar tvær vikur eru til jóla og í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að jólabókaflóðinu þetta árið, umfangi þess og hvernig þróun bókaútgáfu hefur verið að undanförnu. Rýnt er í tölur Félags íslenskra bókaútgefenda um fjölda bóka núna, á síðustu árum og áratugum. Viðmælendur: Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda Starri Reynisson, bóksali Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Dec 09, 202516 minEp. 583

Trillukarlar í baráttu Davíðs og Golíats

Örn Pálsson og Arthúr Bogason hafa stýrt Landssambandi smábátaeigenda í 40 ár. Báðir láta þeir nú af störfum. Örn hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins frá stofnun þess. Hann lýsir því hvernig hann tók við þessu starfi og hvaða tilgangi sambandið hefur þjónað í gegnum áratugina. Örn segir meðal annars frá baráttunni við stórútgerðina eftir að kvótakerfinu var komið á. Kjartan Páll Sveinsson tekur við starfi formanns Landsambandsins. Hann horfir fram á veginn og lýsir því meðal annars hvernig ...

Dec 08, 202516 minEp. 582

Ráðuneytið ver gagnrýnina á Morgunblaðið

Mennta-og barnamálaráðuneytið ver gagnrýni sem það setti fram á vinnubrögð Morgunblaðsins í tveimur fréttum í lok nóvember. Ráðuneytið bendir á fordæmi um sambærilegar fréttir þar sem einstaka fjölmiðlar hafa verið gagnrýndir af tilteknum ráðuneytum. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigurður Dögg Auðunsdóttir, gagnrýnir ráðuneytið harðlega fyrir fréttirnar um Morgunblaðið sem það birti á heimasíðu Stjórnarráðsins. Hún segir að fordæmin sem ráðuneytið bendir á í svari sínu séu annars eðlis en g...

Dec 05, 202515 minEp. 581

Reykjavíkurflugvöllur festur í sessi í samgönguáætlun

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, kynnti í gær samgönguáætlun til ársins 2040. Þar kenndi ýmissa grasa eins og ítarlega hefur verið fjallað um en hér í dag beinum við sjónum okkar að Reykjavíkurflugvelli - sem á samkvæmt kynningunni að festa í sessi. Lagt er til að byggja nýja flugstöð, taka í notkun fjarturn fyrir flugumferðarstýringu og ráðast í endurbætur á aðflugsljósum. Viðmælendur: Margrét Manda Jónsdóttir, stjórnarmaður í Hljóðmörkum Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður og formaður H...

Dec 04, 202513 minEp. 580

Ríkisfyrirtæki setja 245 milljónir í félagsgjöld

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, óskaði nýlega upplýsinga um hvaða fyrirtæki í eigu ríkisins hefðu greitt til Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og tengdra félaga á síðustu tíu árum. Fjármála- og efnahagsráðherra birti svar við fyrirspurninni í fyrrakvöld og í ljós kom að tólf fyrirtæki, sem eru að hluta eða heild í eigu ríkisins, greiða 245 milljónir króna í félagsgjöld til samtakanna – og hafa greitt um tvo milljarða frá 2015. Rýnt er í þessi mál og rætt við Krist...

Dec 03, 202512 minEp. 579

Aþanasíus Mannsason og mannanafnanefnd

Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að nöfnum, lögum um þau og störfum mannanafnanefndar. Nýir úrskurðir nefndarinnar voru birtir í lok síðustu viku og nú má til að mynda heita Aþanasíus, Fjörður, Mannsi, Jörvaldi og Ríma. Úrskurðir nefndarinnar vekja alla jafna athygli og lengi hefur verið deilt um hvort og hvernig löggjafinn eigi að leggja línur í þessum málum. Viðmælendur: Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar Umsjón: Ingvar Þór Björnsson Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, stjórnarmaður í mannanafn...

Dec 02, 202517 minEp. 578

Ásókn erlendra dýragarða í íslenska lunda

Dýragarðar í Singapúr og Japan hafa reynt að fá íslenska lunda senda til sín í gegnum árin. Nú síðast í febrúar á þessu ári reyndi verslunarráð í Hokkaido-héraði að fá íslenska lunda. Árið 2010 reyndu yfirvöld í Singapúr að fá 200 íslenska lunda senda sem til stóð að hafa í sérstöku heimskautagerði í dýragarði, segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Þessum beiðnum er yfirleitt alltaf hafnað. Erpur Snær Hansen starfar hjá Náttúrufræðistofu Suðurlands og er sérfræðingur í lundu...

Dec 01, 202516 minEp. 577

Staða hernaðarandstæðinga á ófriðartímum

Í þættinum í dag er sjónum beint að stöðu hernaðarandstæðinga á ófriðartímum - en minna fer fyrir þeim röddum á þingi og í umræðunni. Stuðningur við veru Íslands í NATO mælist mikill, rúmlega 71% en tæplega 12% landsmanna eru henni andvígir. Viðmælendur: Einar Valur Ingimundarson, umhverfisverkfræðingur og hernaðarandstæðingur Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði Svandís Svavarsdóttir, formaður VG Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Nov 28, 202517 minEp. 576

Raddir um fyrirhugað sjókvíaeldi í Mjóafirði

Matvælaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, sagði frá því á Sjávarútvegsdeginum fyrr í vikunni að hún hefði falið Hafrannsóknastofnun að gera burðarþolsmat og tillögur að eldissvæðum í Mjóafirði. Íbúar Mjóafjarðar eru 11 talsins. Hvað segja íbúar á Austfjörðum um þetta fyrirhugaða eldi? Rætt er við Aðalheiði Elfríð Heiðarsdóttur, vitavörð og íbúa á Dalatanga í Mjóafirði á Austfjörðum, um þetta laxeldi. Fjölskylda Aðalheiðar hefur búið á Dalatanga í bráðum 60 ár. Fjölskyldan hefur séð um vitann og...

Nov 27, 202514 minEp. 575

Er matarkarfan óeðlilega dýr?

Það dylst væntanlega fáum að matarkarfan er dýr hér á landi. Í kvöldfréttum sjónvarps á mánudagskvöld lögðu þrír fréttamenn af stað í verslunarleiðangur í fjórum norrænum löndum til að gera samanburð á verði. Í þætti dagsins er litið á Norðurlöndin og rýnt í verðlag, laun og kaupmátt. Þá er sjónum beint að stöðu efnahagsmála hér og stöðu launafólks. Viðmælendur: Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingur Halla Gunnarsdóttir, formaður VR Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Nov 26, 202515 minEp. 574

Deilur um peninga og pólitík skekja Glímusambandið

Deilur hafa geisað innan Glímusambands Íslands út af fjárreiðum og stjórnarháttum í sambandinu. Deilurnar snúast meðal annars um háan kostnað við glímukynningar og ferðalög erlendis á vegum sambandsins. Skipt var um alla stjórn Glímusambandsins á einu bretti á ársþingi sambandsins í lok september samkvæmt fundargerð þingsins. Fundargerðin er harðorð. Sigmundur Stefánsson tók við prókúru sambandsins af fyrri framkvæmdastjóra eftir ársþingið. Hann hafði verið fenginn í það verkefni í vor að yfirfa...

Nov 25, 202515 minEp. 573

Fjárfestingasjóðir sem verða meðeigendur í fasteignum

Um fátt hefur verið meira rætt síðustu vikur og mánuði en fasteignamarkaðinn. Þar hefur staðan verið erfið í nokkurn tíma. Við bættist töluverð óvissa um miðjan síðasta mánuð þegar vaxtamálið svokallaða var leitt til lykta og lánaframboði breytt verulega. Í þessu ástandi virðist ný fjármögnunarleið fyrir kaupendur vera að ryðja sér til rúms. Á stuttum tíma hafa að minnsta kosti fimm fjárfestingasjóðir í eigu byggingaverktaka verið stofnaðir sem bjóðast til að kaupa allt að fjórðungshlut í fastei...

Nov 24, 202516 minEp. 572

Þrjár bilanir og mögulegur hönnunargalli hjá Norðuráli

Þrjár sambærilegar bilanir hafa komið upp í rafspennum hjá Norðuráli á Grundartanga. Þetta Ekki var fjallað um tvær fyrstu bilanirnar opinberlega þar sem þær höfðu ekki áhrif á aðra raforkunotendur hér á landi. Þessar tvær fyrstu bilanir áttu sér stað í lok nóvember í fyrra og í lok sumars. Bilanirnar höfðu hins vegar mikil áhrif á Norðurál og reyndu stjórnendur félagsins að koma í veg fyrir að sambærilegar bilanir endurtækju sig. Þetta tókst þó ekki og nú í október var sagt frá þriðju biluninni...

Nov 21, 202515 minEp. 571

Ósanngjörn undankeppni HM

Línur eru farnar að skýrast hvað varðar þær þjóðir sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári. Hefðbundnum undankeppnum lauk í vikunni en enn á eftir að leika nokkra umspilsleiki. Liðum hefur verið fjölgað og undankeppnin litast af því. Þjálfari ítalska landsliðisins heldur því fram að nýtt fyrirkomulag sé ósanngjarnt fyrir Evrópu. Í þætti dagsins er farið yfir helstu tíðindi undankeppninnar og spurt hvort hún sé ósanngjörn fyrir Evrópu, og þa...

Nov 20, 202516 minEp. 570

Rjúpnasmölun í Dölunum

Björgunarsveitin Ósk í Búðardal hafnaði boði upp á háa peningaupphæð fyrir ,,smala” rjúpum fyrir veiðimenn á jörðinni Ljárskógum í Dölum í lok október. Slík veiði gengur út á það að menn reka upp rjúpur fyrir veiðimenn sem svo skjóta þær á flugi. Þessi veiðiferð á rjúpu hefur tíðkast lengi í Skotlandi. Svona veiðiskapur hefur hins vegar ekki verið stundaður á rjúpu á Íslandi þar sem hefð er fyrir því að menn gangi til rjúpna. Eigandi Ljárskóga, Arnór Björnsson, segir að hann hafi ákveðið að bjóð...

Nov 19, 202516 minEp. 569

Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða

Um 16 manns búa í hjólhýsum og húsbílum á iðnaðarsvæði við gömlu sementsturnana á Sævarhöfða í Reykjavík. Byggðin var flutt þangað fyrir rúmlega tveimur árum en átti einungis að vera þar í fáeina mánuði. Nú er breytinga að vænta og íbúar telja að þeir verði fluttir í Skerjafjörð fyrir jól. Rætt er við Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, íbúa á svæðinu, í þættinum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Nov 18, 202515 minEp. 568

Markaðsherferð Samherja með þorskhnakka á Íslandi

Ný markaðsherferð útgerðarrisans Samherja með þorskhnakka í neytendaumbúðum hefur vakið athygli. Auglýsingar Samherja, sem bera yfirskriftina Besti bitinn, hafa verið birtar á samfélagsmiðlum síðustu vikur. Rætt er við Lóu Báru Magnúsdóttur um herferðina þar sem hún hefur mikla reynslu af vinnu í markaðsstarfi og vörumerkjastjórnun. Þessar auglýsingar Samherja eru meðal annars áhugaverðar vegna þess að ekki er algengt að útgerðarfélög markaðssetji fisk undir eigin nafni á innanlandsmarkaði á Ísl...

Nov 17, 202516 minEp. 567

Gæludýralög spurning um líf og dauða

Ný lög um gæludýrahald í fjölbýlishúsum hefur ýtt af stað mikilli umræðu um hvernig standa eigi að gæludýrahaldi á heimilum. Inga Sæland félagsmálaráðherra fagnar því að hafa komið lögunum í gegnum þingið og dýravelferðarsamtök taka undir það. Við ræðum um dýr, vináttu, ofnæmi, gelt og gervikisur við þær Ingu Sæland og Söndru Ósk Jóhannsdóttur hjá Dýrfinnu.

Nov 14, 202516 minEp. 566

Deilan um þjónustu Neyðarlínunnar og fyrirtækið sem aðstoðar fólk eftir árekstur

Í meira en áratug boðaði Neyðarlínan 112 einkafyrirtæki á slysstað í umferðaróhöppum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki höfðu átt sér stað slys á fólki. Fyrirtækið heitir Aðstoð og öryggi en er betur þekkt sem Árekstur.is. Það var stofnað af fyrrverandi lögreglumanni sem heitir Ómar Þorgils Pálmason. Fyrirtækið er alltaf reglulega í fréttum, nú síðast í lok októnber þegar metfjöldi bíla þurfti aðstoð í mikilli snjókomu í Reykjavík. Neyðarlínan boðaði starfsmenn þessa fyrirtækis á slysstað með sms...

Nov 13, 202515 minEp. 565

Syrgjandi foreldrar Sigurðar Kristófers

Á undanförnum dögum hafa björgunarsveitir staðið fyrir fjáröflun með sölu á Neyðarkallinum. Salan í ár vakti sérstaklega mikla athygli og seldist kalllinn upp víðast hvar um landið. Neyðarkallinn í ár er nefninlega tileinkaður Sigurði Kristófer McQuillan Óskarssyni. Hann lést aðeins 36 ára gamall í slysi við björgunaræfingar í Tungufljóti í fyrra. Sigurður var vinamargur og kröftugur björgunarsveitarmaður sem var formaður í björgunarsveitinni Kyndli í Mosfellsbæ. Í þessum þætti ætlum við að ræða...

Nov 12, 202516 minEp. 564

Vélfagsmálið og njósnastarfsemi Rússlands í Evrópu

Umræðan um njósnir og undirróður Rússlands Vladimírs Pútíns er farin að teygja sig meira og meira til Íslands. Í síðustu viku var aðalmeðferð í dómsmáli sem tengist þessari umræðu. Málið er án hliðstæðu hér á landi. Þetta er mál íslenska tæknifyrirtækisins Vélfags gegn íslenska ríkinu. Málið snýst um efnahagsþvinganir sem íslenska ríkið setti á tæknifyrirtækið Vélfag á Akureyri vegna eigendatengsla fyrirtækis rússneska auðmannsins Vitaly Orlov við Vélag. Fyrirtæki Orlovs heitir Norebo og var fyr...

Nov 11, 202516 minEp. 563
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android