Ósanngjörn undankeppni HM
Nov 20, 2025•16 min•Ep. 570
Episode description
Línur eru farnar að skýrast hvað varðar þær þjóðir sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári. Hefðbundnum undankeppnum lauk í vikunni en enn á eftir að leika nokkra umspilsleiki.
Liðum hefur verið fjölgað og undankeppnin litast af því. Þjálfari ítalska landsliðisins heldur því fram að nýtt fyrirkomulag sé ósanngjarnt fyrir Evrópu.
Í þætti dagsins er farið yfir helstu tíðindi undankeppninnar og spurt hvort hún sé ósanngjörn fyrir Evrópu, og þar af leiðandi íslenska liðið.
Viðmælendur: Stefán Pálsson og Jóhann Már Helgason.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android
