Nýlegar vídjóupptökur sem teknar voru með dróna yfir sædýragarðinum í Antibes í Frakklandi hafa farið eins og eldur í sinu um netheima. Á upptökunum má sjá furðulegt háttarlag háhyrningana Wikie og Keijo sem eitt sinn voru helsta aðdráttarafl garðsins. Garðinum var lokað í upphafi árs vegna þess að Frakkar hafa bannað háhyrningasýningar eins og þær sem Wikie og Keijo hafa tekið þátt í nær allt sitt líf. Síðan í janúar hefur hart verið tekist á um framtíð Wikie og Keijo og vilja eigendur garðsins...
Nov 10, 2025•15 min•Ep. 562
Fyrirhugaður smásölurisi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar ætlar að opna fyrstu lágvöruverðsverslunina á Blönduósi. Fyrirtækið heitir Drangar og verður það þriðji smásölurisinn á markaðnum, ásamt Högum og Festi. Kallað hefur verið eftir í áratugi að lágvöruverðsverslun opni í Húnavatnssýslu og Skagafirði. Reynir Grétarsson fjárfestir hefur framselt lóð undir verslunina til Dranga en hann hefur staðið í uppbyggingarstarfi í ferðaþjónustu á Blönduósi síðastliðin ár. Rætt er við Reyni, forstjóra Dranga, f...
Nov 07, 2025•16 min•Ep. 561
Börn sem tekin eru af foreldrum sínum og sett í fóstur virðast eiga margt sameiginlegt þegar þau fullorðnast. Nýleg íslensk rannsókn á afdrifum fósturbarna gefur til kynna að ískyggilega mörg glími við andlega vanlíðan. Yfirgnæfandi meirihluti uppkominna fósturbarna höfðu til dæmis íhugað eða reynt sjálfsvíg. Rætt er við Freydísi Jónu Freysteinsdóttur félagsfræðing, uppkomið fósturbarn og fósturforeldrið Önnu Margréti Hrólfsdóttur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Nov 06, 2025•16 min•Ep. 560
Fasteignafyrirtæki Ólafs Ólafssonar stefnir á stórfellda fasteignauppbyggingu í Brákarey við Borgarnes. Hótel, baðlón og íbúðir eru meðal annars á teikniborðinu. Sveitarstjóri Borgarbyggðar er hlynntur hugmyndunum og vinnur nú sveitarfélagið nú að deiliskipulagi fyrir svæðið. Almenn ánægja er meðal íbúa Borgarbyggðar um hugmyndirnar en einhverjir setja þó spurningamerki við það. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Nov 05, 2025•16 min•Ep. 559
Þeim sem fara fyrir öryggismálum í landinu er tíðrætt um fjölþáttaógnir sem steðja að Íslandi. Ógnum sem geta grafið undan lýðræði og innviðum samfélagsins. Ein af þessum ógnum eru erlend afskipti af íslenskri þjóðmálaurmæðu. Að hægt sé með skipulögðum hætti að hafa áhrif á almenningsálit í málum sem varða hagsmuni annarra ríkja. Viðhorf Íslendinga til stríða eða alþjóðasamvinnu svo sem Nato eða Evrópusambandsins. Við ætlum að ræða við fólk sem hefur miklar áhyggjur af þessu og vinnur við það al...
Nov 04, 2025•17 min•Ep. 558
Þrír af lífeyrissjóðunum sem eru stærstu hluthafar almenningshlutafélagsins Kviku banka svara spurningum um viðskipti bankans með breska veðlánafyrirtækið Ortus Secured Finance. Kvika gekk fyrr á árinu frá kaupum á restinni af hlutafé félagsins og á það allt í dag. Heildarkaupverð er 6.5 milljarðar króna. Bankastjóri Kviku, Ármann Þorvaldsson, stofnaði lánafyrirtækið ásamt viðskiptafélögum sínum árið 2012. Viðskiptafélag Ármanns og meðstofnendur voru þeir síðustu sem Kviku keypti út. Í svörum tv...
Nov 03, 2025•15 min•Ep. 557
Margir Counter-Strike-spilarar urðu fyrir fjárhagslegu tjóni þegar framleiðendur tölvuleikjarins gerðu breytingar á úthlutun stafrænna muna í leiknum. Þessir stafrænu munir ganga kaupum og sölum utan leiksins fyrir himin háar fjárhæðir. Sem dæmi getur hnífur sem notaður er í leiknum kostað um 120 milljónir íslenskra króna. Eftir því sem við komumst næst stundar stór hluti íslenskra spilara viðskipti með hina stafrænu muni leiksins. Þó ömulegt sé að áætla hve umfangsmikil þau viðskipti eru. En vi...
Oct 31, 2025•16 min•Ep. 556
Á Hrekkjavöku verður myndlistarverk eftir Ólöfu Nordal til sýnis í gamla sóttvarnarhúsinu við Ánanaust í Reykjavík. Verkið er hennar útgáfa af Leirfinni, einum umdeildasta skúlptúr Íslandssögunnar. Verk Ólafar á sér langa og forvitnilega sögu sem teygir sig anga sína á Kristnihátið á Þingvöllum, til Ríkislögreglustjóra og ofan í lítinn skókassa. Ólöf segir okkur frá fyrirhöfninni við að skapa verkið og deilum við höfund hins eiginlega Leirfinns. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Oct 30, 2025•17 min•Ep. 555
Samkeppniseftirlitið rannsakar tvö fyrirtæki á sorphirðumarkaði. Þetta eru Terra og Kubbur. Forstjóri helsta samkeppnisaðilans, Íslenska gámafélagsins, segir að ýmsar einkennilegar tilviljanir hafi komið upp í tilboðum í sorpþjónustu hjá sveitarfélögum síðastliðin ár. Íslenska gámafélagið er ekki hluti af þessari rannsókn. Forstjórinn lýsir þessum sorhirðumarkaði og hvernig rusl hefur orðið að gulli á liðnum árum og sé góður framtíðarbissniss. Formaður Neytendasamtakanna lýsir því hvernig grunse...
Oct 28, 2025•15 min•Ep. 554
Fyrir rúmu ári birti 16 ára íslensk stúlka færslu á Tiktok þar sem hún lýsti kynnum sínum af hópi á netinu sem kallaður er 764. Færslan vakti athygli bandarísku alríkislögreglunnar FBI. Hópurinn 764 hringir nefninlega háværum viðvörunarbjöllunum þar, hjá alþjóðalögreglunni Interpol og evrópsku lögreglunni, Europol. Hjá þessum löggæsluyfirvöldum starfar fjölmennt lið rannsakenda við að afhjúpa bakmenn þessa hóps. Á þriðja hundruð mála eru til rannsóknar. Hópurinn herjar á börn á aldrinum 8-17 ára...
Oct 27, 2025•17 min•Ep. 553
Í vikunni kom niðurstaða í síðasta Íslandstengda hrunmálið í heiminum. Þetta er Lindsor-málið svokallaða í Lúxemborg. Rætt er við Ólaf Hauksson héraðssaksóknara um þetta. Síðasta hrunmálið á Íslandi var klárað árið 2021. En hvað er með annars konar uppgjör við efnahagshrunið 2008? Steinþór Gunnarsson verðbréfamiðlari var dæmdur fyrir lögbrot í Landsbanka Íslands en fékk mál sitt endurupptekið og var á endanum sýknaður. Hann hefur krafið íslenska ríkið um bætur og vill að Alþingi skipi rannsóknar...
Oct 24, 2025•15 min•Ep. 552
Björk Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits í Seðlabanka Íslands, segir að fjármálaeftirlitið sé sterk stofnun á Íslandi. Starf Bjarkar í Seðlabanka Islands er ígildi þess sem áður kallaðist forstjóri fjármálaeftirlitsins. Eftir sameiningu FME við Seðlabanka Íslands árið 2020 varð þessi nýi starfstitill til. Þetta helst settist niður með Björk á skrifstofu hennar í Seðlabanka Íslands og ræddi við hana um fjármálaeftirlit á Íslandi og hvernig þessi stofnun hefur verið styrkt fr...
Oct 23, 2025•17 min•Ep. 551
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, tók á vormánuðum við forstöðumannastarfi stuðningsheimilisins Blönduhlíðar í Mosfellsbæ. Heimilið hafði verið mikið í fréttum mánuðina á undan vegna umdeildra kosningaloforða og vandræðagangs við opnun þess. Nú hefur heimilið verið starfandi í hálft ár og við spyrjum Birgi Örn um starfsemina, gagnið sem slíkt úrræði getur gert og áskoranir í meðferðarrúrræðum ungmenna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Oct 22, 2025•15 min•Ep. 550
Hringborð Norðurslóða fór fram í Hörpu í síðustu viku og um helgina. Ráðstefnan hefur verið haldin á hverju hausti frá árinu 2013. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er stjórnarformaður Hringborðsins. Hann ræðir um ráðstefnuna í ár og stöðuna á fyrirhugaðri byggingu höfuðstöðva Hringborðsins í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Yfirvöld í Reykjavík hafa úthlutað stofnun Ólafs Ragnars lóð undir húsið og er unnið að fjármögnun þess segir hann. Húsið á að vera á milli 20 og 30 þúsund ferme...
Oct 21, 2025•16 min•Ep. 549
Við ætlum að ræða um orkustjórnun og hvað er mikilvægt að halda hæfilegu jafnvægi milli hvíldar og áreynslu bæði í íþróttum og í hversdeginum. Við ætlum að ræða við mann sem kynntist því óvænt hve mikilvægt er að lifa ekki í of mikilli streitu. Hinrik Pálsson hefur leitt lyftingadeild Stjörnunnar, Kraftlyftingasamband Ísland og þjálfað unga sem aldna í kraftlyftingum. Hann segir frá því sem hann hefur lært af því að glíma við eftirköst covid og vera slegin út á hliðarlínuna í langan tíma.
Oct 20, 2025•17 min•Ep. 548
Kvika lauk fyrr á þessu ári kaupum á öllu hlutafé í bresku lánafyrirtæki sem bankastjórinn Ármann Þorvaldsson stofnaði árið 2013. Seljendur hlutabréfanna eru meðal annars meðstofnendur Ármanns í Ortus Secured Finance. Þetta er veðlánafyrirtæki sem sérhæfir sig í að veita svokölluð brúarlán með veði í fasteignum. Brúarlán eru lán sem eru veitt til skamms tíma. Kvika er almenningshlutafélag sem er að langstærstu leyti í eigu íslenskra lífeyrissjóða. Þeir sem seldu hlutabréfin sín í Ortus til Kviku...
Oct 17, 2025•15 min•Ep. 547
Morgunleikfimi hefur verið fastur liður á virkum dögum á Rás 1 frá árinu 1957. Undanfarin 40 ár hefur þátturinn verið í umsjón Halldóru Björnsdóttur en þar á undan voru þau Jónína Benediktsdóttir og Valdimar Örnólfsson umsjónarmenn. Við ræðum um hefðina sem hefur skapast fyrir því að mörg þúsund Íslendingar geri morgunleikfimi á sama tíma í áratugi. Viðmælendur: Halldóra Björnsdóttir og Fanney Birna Jónsdóttir dagskrárstjóri Rásar 1. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Oct 16, 2025•15 min•Ep. 546
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, vitnaði í Mao Zedong, formann Kommúnistaflokks Kína á árunum 1949 til 1976, á kvennaráðstefnu í Peking á mánudaginn. Forsetinn er í opinberri heimsókn í Kína og vísað í ræðu sinni till þekktrar tilvitnunar í Mao formann þar sem hann fjallar um jafnrétti kynjanna. ,,Konur halda uppi hálfum himninum.” Mao í er í vestrænum sagnfræðiritum talinn vera einn mesti harðstjóri tuttugustu aldarinnar og er honum stundum líkt við Jósep Stalín í Sóvétríkjunum. Vegna stefnu...
Oct 15, 2025•15 min•Ep. 545
Fjölfatlaður fjögurra ára drengur frá Venesúela fær ekki vernd eða mannúðarleyfi til að setjast að á Íslandi. Þetta er niðurstaða Útlendingastofnunar frá því í byrjun október. Drengurinn heitir Elían og er með klofinn hrygg, vatnshöfuð og er bundinn við hjólastól og næringarinntöku í gegnum sondu. Móðir Elíans, Leidy Díaz, ætlar að áfrýja synjuninni til kærunefndar útlendingamála. Rætt er við Leidy í Þetta helst í dag og fjallað um mál hennar og sonar hanns. Lögmaður hennar, Jón Sigurðsson, segi...
Oct 14, 2025•16 min•Ep. 544
Helsti stjórnarandstæðingur einræðisherrans í Venesúela, Nicholas Maduro, fékk Friðarverðlaun Nóbels fyrir helgi. Hún heitir María Corina Machado og er 56 ára gömul. Maria Corina hefur í mörg ár barist gegn einræðisstjórnum Hugo Chavez og Nicolas Maduro. 26 ár eru nú liðin frá því að Hugo Chavez var kjörinn forseti í Venesúela og hefur landið gjörbreyst á þessum tíma og gildi lýðræðisins eru fótum troðin í landinu. Þessari þróun hefur Maria Corina barist gegn í meira en 20 ár. Fjallað er um sögu...
Oct 13, 2025•15 min•Ep. 543
Greint var frá viðræðum um samruna Íslandsbanka og Skaga fyrr í vikunni. Hugmyndin er sú að hluthafar Skaga fái 15 prósent af hlutafénu í sameinuðu fyrirtæki. Samlegðaráhrifin af samrunanum eru fyrst og fremst kostnaðarhagræði og arðsamari rekstur. Skagi samanstendur af þremur fyrirtækjum: tryggingafélaginu VÍS, fjárfestingarbankanum Fossum og verðbréfafyrirtækinu Íslenskum verðbréfum. Þrír stærstu einkafjárfestarnir í Skaga eru félög sem tengjast þekktum viðskiptamönnum eins og Bjarna Ármannssy...
Oct 10, 2025•15 min•Ep. 542
Tónlistarkonan og aðgerðarsinninn Margrét Kristín Blöndal er enn í haldi Ísraelshers. Ekkert hefur heyrst frá henni síðan herinn stöðvaði skip úr Frelsisflotanum við Miðjarðarhaf í fyrrinótt. Magga Stína var um borð í skipinu Conscience sem reyndi að sigla hjálpargögnum til Gaza. Magga Stína hefur undanfarin tvö ár verið áberandi í skipulögðum mótmælum á Íslandi gegn stríðsrekstri Ísraelshers. Hún hefur gagnrýnt íslenska ráðamenn harkalega fyrir að gera ekki nóg til að þrýsta á endalok stríðsins...
Oct 09, 2025•16 min•Ep. 541
Umhverfisfyrirtækið Terra ætlar að lækka laun rúmlega 30 sorphirðumanna um 20 prósent. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akranes, ætlar að berjast gegn þessari launalækkun. Fyrirtækið Terra safnar úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum og leigir út ruslagáma og rekur flokkunarstöðvar fyrir úrgang. Terra var með 9,6 milljarða tekjur í fyrra og hagnaðist um ríflega 500 milljónir. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða og eru sveitarfélög einn helsti viðskiptavinur Terra u...
Oct 08, 2025•15 min•Ep. 540
Ellefu og hálf milljón króna fundust nýlega á reikningi í umsjá Reykjavíkurborgar. Ellefu milljónir sem voru nýlega auglýstar sem einstakt viðbótar framlag í Tónlistarsjóð. Peningarnir koma upprunalega úr Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar.Í þessum þætti ætlum við að rekja uppruna peninganna og heyra óvenjulega sögu af því hvers vegna þessi væna summa hefur ratað inn Tónlistarsjóð í ár. VIðmælendur: Ása Dýradóttir, Halla Björg Evans, Guðjón Friðriksson, Bjarki Sveinbjörnsson, María Rut Reynisdóttir...
Oct 07, 2025•18 min•Ep. 539
Sjóðsstjóri hjá Stefni átti sjálfur hlutabréf í flugfélaginu Icelandair á sama tíma og sjóðir fyrirtækisins voru stórir hluthafar í því. Nánir fjölskyldumeðlimir sjóðsstjórans áttu líka hlutabréf í Icelandair á sama tíma. Þetta var á árunum 2010 til 2017. Sjóðsstjórinn heitir Jóhann Möller og er í dag framkvæmdastjóri Stefnis sem er dótturfélag Arion banka. Jóhann hefur starfað hjá Stefni frá árinu 2006. Á þessum tíma vann Jóhann við stýringu á innlendum hlutabréfasjóðum Stefnis sem stunduðu fjá...
Oct 06, 2025•15 min•Ep. 538
26 konur úr meistaraflokki ÍR í fótbolta hafa ákveðið að hætta í félaginu. Þær saka félagið um mismunun og metnaðarleysi fyrir kvennabolta. Nú leita þær leiða til að spila saman áfram en hjá öðru félagi. Framkvæmdastjóri KSÍ hefur boðið ÍR aðstoð við að greiða úr vandanum. Forseti hagsmunasamtaka kvenna segir stöðuna einstaka og grafalvarlega. Svo margir leikmenn yfirgefi ekki félagið að ástæðulausu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Viðmælendur: Sigríður Dröfn Auðunsdóttir, Þórdís Helga Ásgeirsdóttir, ...
Oct 03, 2025•17 min•Ep. 537
Fall flugfélagsins Play hefur verið stóra frétt vikunnar. Ásakanir hafa verið settar fram um að stjórnendur Play séu að stunda kennitöluflakk og ætli sér að hefja flugrekstur á ný með hreint borð á Möltu. Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, segir að rangfærslur og samsæriskenningar muni leiðréttast í fyllingu tímans. Viðskipti Play við nýstofnað dótturfélag sitt, Fly Play Europe Holdco í ágúst auðvelda skuldabréfaeigendum Play hins vegar að taka maltverska starfsemi Play yfir og mögu...
Oct 02, 2025•15 min•Ep. 536
Frétt vikunnar á Íslandi er gjaldþrot flugfélagsins Play. Fáir bjuggust við því að félagið yrði gjaldþrota svona fljótt eftir nýlega 2,8 milljarða króna fjármögnun þess í skuldabréfaútboði í lok ágúst. Stærsti einstaki hluthafi Play var íslenski lífeyrissjóðurinn Birta með rúmlega 10 prósenta eignarhlut. Framkvæmdastjóri Birtu Ólafur Sigurðsson segir að gjaldþrot Play hafi komið honum í opna skjöldu. Birta tapar um 1700 milljónum á gjaldþrotinu. Rætt er við Ólaf um gjaldþrot Play og hvort fjárfe...
Oct 01, 2025•15 min•Ep. 535
Katla Þorsteinsdóttir, dóttir Þorsteins Más Baldvinssonar og Helgu S. Guðmundsdóttur, er orðin stór eigandi í félagi sem þau hjónin áttu saman áður. Félagið á eignir upp á rúmlega 30 milljarða króna og skuldar nær ekkert. Það heitir Eignarhaldsfélagið Steinn og hélt áður utan um hlutabréf þeirra Þorsteins Más og Helgu, sem er fyrrverandi eiginkona hans, í Samherja. Þetta kemur fram í ársreikningi Eignarhaldsfélagsins Steins ehf. fyrir árið 2024 sem samþykktur var af stjórn félagsins þann 18. sep...
Sep 30, 2025•14 min•Ep. 534
Meðal þeirra sem hafa laðað ferðamenn frá Íslandi til Tenerife eru hjónin Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir. Þau hafa búið á eyjunni í tólf ár og markaðsett hana sem góðan áfangastað fyrir sólarsvelta Íslendinga. Trausti segir okkur frá því sem ferðamenn hvorki sjá né heyra á þessari vinsælu eyju.
Sep 29, 2025•17 min•Ep. 533