Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Hálf-íslenskur maður grunaður um aftöku í Svíþjóð

Á mánudag hófst aðalmeðferð við héraðsdóm í Stokkhólmi í óhugnalegu morðmáli. Þar er Guðmundur Mogensen, hálfíslenskur karlmaður, ákærður er fyrir að hafa banað hinni rúmlega sextugu Kristínu, á heimili hennar í Stokkhólmi í október í fyrra. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð enda enn eitt dauðsfallið í gengjastríði sem þar hefur geisað undanfarin ár. Sænskir fjölmiðlar segja að málið hefndaraðgerð og tengist syni Kristínu sem er leiðtogi í einu gengjanna. VIðmælendur: Atli Steinn Guðmund...

Sep 26, 202514 minEp. 532

Bjargráð við einmanaleika

Við ræðum um einmanaleika við hjúkrunarfræðinginn Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur. Hún hefur stúderað hvers vegna fólk verður einmana og veit eitt og annað um það sem getur hjálpað til við að mynda tengsl við annað fólk. Við ræðum um einföld bjargráð við einsemdinni.

Sep 25, 202516 minEp. 531

Sjónvarpsstöð aðeins fyrir fólkið í blokkinni

Hamraborgarrásin var sjónvarpsstöð aðeins fyrir íbúa í stóru blokkinni í Hamraborg í Kópavogi. Rásin var starfrækt frá 1993 til aldamóta og sendi út úr dekkjageymslu í bílakjallara blokkarinnar. Stöðin var hugsuð til að efla samstöðu nágrannanna og styrkja rödd þeirra í harðri baráttu við Kópavogsbæ. Þóra Tómasdóttir ræðir við sjónvarpsstjórann Þóri Steingrímsson og listakonuna Berglindi Jónu Hlynsdóttur sem hefur heldur betur séð menningarverðmæti í Hamraborgarrásinni.

Sep 24, 202517 minEp. 530

Deilan um Konukot í Ármúla

Í þættinum í dag er fjallað um mál sem hefur verið til umfjöllunar í fréttamiðlum síðustu vikurnar: Flutning Konukots í fasteign í Ármúla og andstöðu heilbrigðisfyrirtækisins Sameindar við hann. Konukot á að vera í næsta húsi við Sameind. Heilbrigðisfyrirtækið vill meina að vegna brunavarna gangi ekki að hafa Konukot í húsinu. Sameind hefur kært flutning Konukots í húsið. Rætt er við Kristínu Pálsdóttur hjá Konukoti og Rannveigu Einarsdóttur hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Sturla Arinbjarn...

Sep 23, 202514 minEp. 529

Er góð hugmynd að stytta sumarfrí skólabarna?

Íslensk grunnskólabörn eru mun lengur í sumarfríi en grunnskólabörn á Norðurlöndum. Við ræðum um tillögu nýs varaborgarfulltrúa Viðreisnar, Erlings Sigvaldasonar, um að færa nokkra sumarfrísdaga grunnskólabarna yfir á haustönn. Viðmælendur: Margrét Pála Ólafsdóttir, Magnús Þór Jónsson og Erlingur Sigvaldason. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 22, 202515 minEp. 528

Bátastríðið: Hlölli vs. Nonni

Fjallað er um bátastríðið í Reykjavík á milli Hlöllabáta og Nonnabita á tíunda áratug síðustu aldar. Rætt er við Jón Guðnason, eða Nonna á Nonnabitum, sem segir frá því hvernig hann stofnaði sinn eigin bátastað eftir að hafa unnið á Hlölla í sjö ár. Hlöllabátar voru stofnaðir árið 1986 og kenndir við Hlöðver Sigurðsson. Nonni segir frá kergjunni og keppninni á milli staðanna tveggja í miðbæ Reykjavíkur og hvernig viðskiptavinirnir skiptust í hópa eftir því hvort þeir voru Nonna- eða Hlöllamegin ...

Sep 19, 202516 minEp. 527

Nýtt lyf við fæðingarþunglyndi

Við ætlum að ræða um fæðingarþunglyndi í þessum þætti og heyra hvað raunverulega getur hjálpað þegar foreldrar upplifa þessa sérstöku tegund af þunglyndi. Miklar vonir eru bundnar við nýtt lyf sem sérstaklega er þróað við fæðingarþunglyndi. Er það lausnin við vandanum? Anna María Jónsdóttir geðlæknir í Grænuhlíð svarar því. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 18, 202517 minEp. 526

Gagnrýnin úttekt KPMG um RIFF

Fjölmargar ábendingar eru settar fram um starfsemi og rekstur kvikmyndahátíðarinnar RIFF í úttekt sem KPMG vann fyrir ráðuneyti menningarmála. Samtals setur KPMG fram 22 ábendingar sem ráðuneytið flokkar sem alvarlegar. Bæði er um að ræða ábendingar og umfjöllun sem snýst um rekstur og peninga og eins stjórnun og starfsmannamál kvikmyndahátíðarinnar. Framkvæmdastjóri og eigandi RIFF er Hrönn Marinósdóttir. Hátíðin hefur verið haldin í Reykjavík á hverju hausti síðastliðin 20 og er alltaf fjallað...

Sep 17, 202515 minEp. 525

Vandræðagangur í borginni

Við ræðumum stöðuna í borgarstjórn Reykjavíkur við fréttamanninn Alexander Kristjánsson. Allir flokkar eru að búa sig undir sveitarstjórnarkosningar í vor og ýmis tíðindi hafa borist úr ráðhúsinu að undanförnu. Samkvæmt vinsældarmælingum virðast borgarbúar frekar óhressir með sína kjörnu fulltrúa í Reykjavík.

Sep 16, 202515 minEp. 524

Dularfullt dauðsfall Heklínu 4.þáttur

Síðasti þáttur í seríunni um Heklínu. Í þessum þætti fáum við að heyra meira um uppruna Stevens Grygelko og hvaða áhrif andlát hans hefur haft á fólkið hans hér á Íslandi.

Sep 15, 202517 minEp. 523

Dularfullt dauðsfall Heklínu 3.þáttur

Íslensk bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í London fyrir tveimur árum. Heklína var ein af áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Hún átti líka sterkar rætur á Íslandi.Í þessum þriðja þætti um dularfullt dauðsfall hennar fáum við að heyra hvers vegna vinir hennar óttast að eitthvað saknæmt gæti hafa komið fyrir hana. Viðmælendur: Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Joshua Granell (Peaches Christ). Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 12, 202516 minEp. 522

Áralöng saurmengun í Varmá

Hrafnkell Karlsson bóndi í Ölfussi segir Hveragerðisbæ hafa sýnt af sér tómlæti í skólphreinsimálum bæjarins. Skólp frá Hveragerðisbæ hefur runnið út í bæjaránna Varmá síðastliðin ár og valdið saurgerlamengun í henni. Pétur Markan bæjarstjóri í Hveragerði segir að bærinn sé að byggja nýja og betri skólphreinisstöð sem vonandi muni koma í veg fyrir þessa mengun. Hann segir að þessi skólphreinisstöð verði flaggskip hér á landi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Sep 11, 202515 minEp. 521

Dularfullt dauðsfall Heklínu 2.þáttur

Heklína var hálfíslensk og heimsfræg dragdrottning sem fannst látin í London fyrir tveimur árum. Heklína var listamannanafn Steven Grygelko. Hann hafði lifað skrautlegu lífi og alist að hluta til upp á Íslandi. Í þessum þætti heyrum við af vináttu hans við kvikmyndagerðarkonuna Hrafnhildi Gunnarsdóttur og poppstörnuna Pál Óskar Hjálmtýsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 10, 202517 minEp. 520

Hagsmunaárekstrarnir í Íslandsbankaútboðinu

Síðdegis á föstudag var sagt frá því að þrjú verðbréfafyrirtæki hafi borgað samtals 60 milljóna króna sektir fyrir brot á lögum út af þátttöku sinni í þessu útboð ríkisins á hlutabréfum í Íslandsbanka árið 2022. Sektirnar eru vegna hagsmunaárekstra þeirra í vinnu við útboðið. Fyrirtækin sem eiga í hluta eru Íslensk verðbréf, Fossar og ACRO verðbréf. Sektirnar er enn ein afleiðingun af þessu umdeilda útboði. Rætt er við Guðrúnu Johnsen um útboðið og sættir þessara fyrirtækja við Seðlabanka Ísland...

Sep 09, 202515 minEp. 519

Dularfullt dauðsfall Heklínu 1.þáttur

Íslensk-bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í Sohó í London fyrir rúmum tveimur árum. Enn er óvitað hvernig hún dó. Mál hennar hefur vakið heimsathygli. Heklína var meðal áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Aðdáendur hennar og vinir hafa sótt hart að bresku lögreglunni og sakað hana um sinnuleysi og fordóma í garð hinsegin fólks. Gagrnýnin er ekki alveg úr lausu lofti gripin. Viðmælendur: Páll Óskar og Gogo Star. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 08, 202516 minEp. 518

Gagnrýni fyrrverandi aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs á umræðuna um trans

Jóhannes Skúlason er stjórnarmaður í Samtökunum 78 og fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, núverandi formanns Miðflokksins. Hann blandaði sér í umræðuna um mál málanna í vikunni, umræður Snorra Mássonar þingmanns Miðflokksins, og Þorbjargar Þorvaldsdóttur verkefnastýru hjá Samtökunum 78 í Kastljósi á mánudaginn. Snorri hefur verið harðlega gagnrýndur af mörgum fyrir ummæli sín um transfólk í þættinum. Jóhannes skrifaði langt komment inn á Fésbókarsíðu Sigmundar Davíðs þar s...

Sep 05, 202518 minEp. 517

Íslandstengingar Vitaly Orlovs

Síðastliðna tvo mánuði hafa verið sagðar margar fréttir í fjölmiðlum um viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri. Viðskiptaþvinganirnar byggja á því að fyrrverandi eigandi Vélfags er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Útgerðin er einn stærsti kvótahafi í Evrópu, meðal annars í Noregi. Þetta fyrirtæki er talið vinna með ríkisstjórn Vladimírs Pútíns og stunda njósnir fyrir hann . Viðskiptaþvinganir eru liður í aðgerðum Íslands, Evrópusambandsins og Noregs gegn fyrirtækjum í Rússlandi ...

Sep 04, 202515 minEp. 516

Björn á Bessastöðum

Í dag ætlum við að banka uppá hjá manni sem fyrir rúmu ári þurfti að stokka spilin sín alveg uppá nýtt. Líf hans umturnaðist þegar eiginkona hans, Halla Tómasdóttir, var kjörinn forseti Íslands. Síðan hefur hann smám saman verið að læra hvað felst í hlutverki maka á Bessastöðum. Við erum komin til að fara yfir stóru málin með honum, spyrja hann út í hlutverkið, lífið undir smásjá almennings, kóngafólk og auðvitað álegg á pítsur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sep 03, 202520 minEp. 515

Baksagan um uppsagnir Vinnslustöðvarinnar

Fiskvinnslan Leo Seafood í Vestmannaeyjum var rekin með 214 milljóna króna tapi í fyrra og 132 milljóna króna mínus árið 2023. Leo Seafood er í eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmanneyjum. Fiskvinnslan og hefur verið til umræðu síðustu daga eftir að greint var frá því á föstudaginn að útgerðin þyrfti að segja upp öllum 50 starfsmönnum vinnslunnar upp og loka henni. Þessar uppsagnir Vinnslustöðvarinnar og lokun fiskvinnslunnar hafa enn og aftur kveikt upp umræðuna um veiðigjöld ríkisstjórnarinnar. Þ...

Sep 02, 202517 minEp. 514

Þetta liggur fyrir um harmleikinn á Edition-hótelinu

Fréttir um andlát feðgina á Edition-hótelinu í Reykjavik í sumar hafa vakið mikla athygli síðustu mánuði. Eiginkona mannsins sem lést og móðir konunnar situr í gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa banað þeim. Málsvörn konunnar snýst meðal annars um það að fjölskyldan hafi komið til Íslands til þess að deyja. Sjálf var konan með stungusár þegar lögreglan kom á vettvang. Freyr Gígja Gunnarsson, blaðamaður í Speglinum hér á Ríkisútvarpinu, hefur fylgst náið með málinu og skrifað um það fréttir. Þetta h...

Sep 01, 202518 minEp. 513

Barátta hrossabóndans gegn álverinu í Hvalfirði

Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir segir að þöggun ríki í samfélaginu um skaðlega mengun frá álverinu í Hvalfirði. Hún hefur skrifað bók um baráttu sína gegn mengun álverins. Bókin heitir Barist fyrir veik hross: Frásögn úr grasrótinni. Ragnheiður býr á bænum Kúludalsá í Hvalfirði. Ragnheiður hefur síðastliðin 16 ár gagnrýnt álver Norðuráls á Grundartanga vegna meintrar mengunar frá því. Hún hefur sagt að vegna flúormengunar frá álverinu þá hafi hrossin hennar veikst og að þurft hafi að lóg...

Aug 29, 202519 minEp. 512

Aðstæður kvenna sem þurfa örorku

Konur yfir fimmtugu fara í auknum mæli á örorku. Við umfangsmikar breytingar á öroku- og endurhæfingakerfinu á Íslandi var gerð sérstök rannsókn á aðstæðum þessara kvenna. Við ræðum um umönnunarstrit, vaktavinnu, fjárhagsáhyggjur og húsnæðisvanda sem á endanum kostar sitt. Viðmælendur: Huld Magnúsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Ari Klængur Jónsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Aug 28, 202516 minEp. 511

Refsingar dómstóls götunnar

Heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson hefur skrifað grein um dómstól götunnar sem vakið hefur nokkra athygli. Lúkasarmálið, KSÍ-málið, Atla Rafns-málið, mál Ingós veðurguðs, Klausturmálið, Sigurðar Inga-málið og fleiri og fleiri eru meðal annars viðfangsefni Róberts í greininni sem birtist í tímaritinu Skírni nú í vor. Í greininni fjallar hann um útilokunar- og slaufunarmenningu út frá sjónarhóli heimspekinnar og tekur mörg dæmi úr íslenskum samtíma en einnig erlendis frá. Allt eru þetta mál sem...

Aug 27, 202520 minEp. 510

„Þvælan“ í Laxárdal - deilur í fjölskyldu Ásmundar Einars

Í áratugi hefur stór fjölskylda Laxárdal í Dölunum tekist á um land og yfirráð, arf og skiptingu hans. Við sögu koma skemmdarverk, hefndaraðgerðir, skítahaugar og rotnandi hræ svo eitthvað sé nefnt. Ástæðan fyrir því að málið hefur reglulega ratað í fréttir er ekki síst að í fjölskyldunni sem deilir er fyrrum þingmaðurinn og ráðherrann Ásmundur Einar Daðason. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í deilunum í sumar. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður Rúv á Vesturlandi, sökkti sér ofan í máli...

Aug 26, 202516 minEp. 509

Áralöng átök um liðskiptaðgerðir

Eftir að einkafyrirtæki eins og Klíníkin og Cosan byrjuðu að gera liðskiptaaðgerðir með kostnaðarþátttöku ríkisins árið 2023 hefur biðtími eftir þessum aðgerðum snarminnkað. Biðlistakerfið sem stýrir aðgangi að þessum aðgerðum er hins vegar gallað og vanhugsað segir Hjörtur Hjartarson, forstöðulæknir á Landspítalanum. Hann segir að kerfið bjóði upp á og hafi leitt til hagsmunaárekstra á milli einkaaðila og ríkisins. Um nærri 1000 daga hafa þessi einkafyrirtæki átt í deilum um sem hafa ratað til ...

Aug 25, 202520 minEp. 508

Tengsl tveggja stærstu rána Íslandssögunnar

Lögregla hefur grun um að sami maður og játað hefur þátt í einu stærsta ráni Íslandssögunnar í Hamraborg í fyrra hafi verið að verki þegar hraðbanka var skóflað með gröfu út úr byggingu í Mosfellsbæ í vikunni. Talið er að um tuttugu milljónir króna hafi verið í hraðbankanum. Þóra Tómasdóttir skoðar möguleg tengsl ránanna og annarra stórra sakamála. Viðmælandi: Sveinn Andri Sveinsson verjandi sakbornings í Hamraborgarráninu.

Aug 22, 202516 minEp. 507

Eldislaxarnir í íslenskum ám

Eldislaxar hafa fundist í laxveiðiám á Vestur- og Norðurlandi síðustu vikuna. Fréttirnar hafa vakið mikla athygli og kallaði Fiskistofa til teymi norskra kafara sem eru sérhæfðir í því að veiða eldislaxa í ám í Noregi. Kafararnir fundu miklu færri eldislaxa en búist var við en einn þeirra segir að búist megi við að miklu fleiri fiskar eigi eftir að finnast á næstu vikum. Fjallað er um þetta eldislaxamál og viðbrögð eftirlitsstofnana eins og Fiskistofu og Matvælastofnunar við því. Umsjón: Ingi Fr...

Aug 21, 202515 minEp. 506

Með bullandi áhyggjur af ökuhæfni foreldra

Öldrunarlæknirinn Steinunn Þórðardóttir segir tímabært að breyta reglum og umgjörð um ökuréttindi aldraðra. Hún telur fyrirkomulagið í núverandi mynd veita falskt öryggi. Kristín Jónsdóttir segir okkur frá samskiptum við föður sinn sem vildi alls ekki hætta að keyra þó hann væri að tapa færninni 94 ára gamall. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Aug 20, 202516 minEp. 505

Gagnrýnir að Landspítalinn sé gerður hornreka

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi þingmaður VG og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, gagnrýnir að Landspítalinn sé ekki aðili að nýjum samningum íslenska ríkisins við einkarekin heilbrigðisfyrirtæki. Sjúkratryggingar Íslands undirrituðu langtímasamninga við um skurðaðgerðir við þau í síðustu viku. Svandís segir að hún hafi alltaf talið heppilegra þegar hún var heilbrigðisráðherra að Landspítalinn væri í miðlægu hlutverki í slíkri samningagerð. Á sama tíma gagnrýnir hún að Landspítalinn sé ekki me...

Aug 19, 202517 minEp. 504

Ökuréttindi og aldursfordómar

Á Íslandi þurfa eldri borgarar að endurnýja ökuréttindi sín örar en tíðkast í flestum nágrannalöndum okkar. Guðbrandur Bogason sem hefur verið formaður Ökukennarafélagsins í 27 ár, segir það endurspegla fordómum fyrir eldri borgurum. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins er að reyna að fá lögunum breytt svo eldra fólk þurfi ekki standa í þessu veseni. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Aug 18, 202517 minEp. 503
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android