Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Sögulegir samningar um skurðaðgerðir

Í vikunni var sagt frá því að Sjúkratryggingar Íslands hefðu gert samninga við þrjú einkarekin heilbrigðisfyrirtæki um að þau geri allt að 1000 skurðaðgerðir á ári með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins. Samningarnir eru til þriggja ára. Um er að ræða sögulega samninga að því leyti að ekki hafa áður verið gerðir langtímasamningar við einkaaðila um liðskiptaaðgerðir hér á landi. Tekist hefur verið á um slíka einkarekstrarvæðingu í íslenskum stjórnmálum um langt árabil en nú er umræðan um þetta t...

Aug 15, 202516 minEp. 502

Baráttan um vörumerkið Iceland

Í áraraðir máttu íslensk fyrirtæki ekki nota nafnið Iceland í sinni markaðssetningu. Jafnvel þó það væri þeim mikilvægt að tengja vörur þeirra og þjónustu við upprunalandið sem hafði jákvæða ímynd í hugum evrópskra neytenda. Ástæðan var sú að bresk matvörukeðja hafði tryggt sér víðtæka skráningu á nafninu Iceland sem sitt vörumerki. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Viðmælendur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Ásdís Magnúsdóttir.

Aug 14, 202516 minEp. 501

Ósagða sagan um Klíníkina

Eftirlitsstofnunin Sjúkratryggingar Íslands ákvað að láta ógert að krefja skurðlækni hjá einkarekna heilbrigðisfyrirtækinu Klíníkinni um 87 milljónir króna vegna meintra ofrukkana. Fjallað er um þessa ákvörðun í gagnrýnni skýrslu sem Ríkisendurskoðun vann um starfsemi Sjúkratrygginga Íslands og birti nú í sumar. Ein helsta niðurstaða skýrslunnar er að eftirlit Sjúkratrygginga Íslands með þeim peningum ríkisins sem stofnunin greiðir út sé ekki nægilega gott. Hvorki Klíníkin né skurðlæknirinn sem ...

Aug 13, 202516 minEp. 500

Kvikasilfur á Veðurstofuhæð

Hitastig á landinu var í áratugi mælt með kvikasilfursmælum. Veðurstofan rak mannaðar veðurstöðvar víða um landið með slíkum mælum. Nú hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestan grun um að á Veðurstofuhæðinni í Reykjavík sé kvikasilfursmengun í jörðu. Reiturinn er merktur hæsta áhættuflokki á korti Umhverfis- og orkustofnunar yfir mengaðan jarðveg. Við heyrum forvitnilega frásögn af því sem gæti hafa valdið mengun á svæðinu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Viðmælendur: Kristín Kröyer, Svava Stei...

Aug 12, 202517 minEp. 499

Leitin að heita vatninu

Ímyndum okkur að hægt sé að auka ráðstöfunartekjur 14 þúsund heimila um tugi þúsunda á ári, spara ríkinu 2,5 milljarða á ári og bæta ígildi meðalstórrar virkjunar inn á raforkukerfið. Eitthvað í þá áttina yrði ávinningurinn ef heitt vatn finnst á köldum svæðum á Íslandi. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Eddu Báru Árnadóttur verkaefnastjóra hjá Bláma. Hún leitar að heitu vatni á Patreksfirði.

Aug 11, 202515 minEp. 498

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann-3.þáttur

Rannsókn lögreglu á hvarfi Sean Bradley árið 2018 fór fljótt að snúast um rannsókn á aðal vitninu í málinu. Konunni sem hann var talinn hafa farið með úr landi. Konan á sér sögu sem gerði það að verkum að vinir Sean gátu ekki treyst henni. Nokkru áður en Sean hvarf hafði hann fengið fúlgur fjár í arf frá ættingjum á Írlandi. Rannsóknin lögreglu sneri meðal annars að því hvort einhver hefði verið á eftir peningunum hans. Hvarf hans er enn óupplýst. Viðmælendur: Alexandra Melanie Davíðsdóttir, Rún...

Jun 27, 202519 minEp. 497

Fæðardeilan um vatnið og laxinn á Suðurlandi

Finnur Björn Harðarson, leigutaki laxveiðiárinnar Stóru-Laxár í Hreppum á Suðurlandi, hefur átt í hörðum og persónulegum deilum við eigendur jarðarinnar Iðu síðastliðin ár. Hann vænir fólkið sem á Iðu um stórfellt, óþarfa laxadráp í ármótum Stóru-Laxár og Hvítar sem skemmi fyrir laxgegnd og hrygningu í Stóru-Láxá. Eigendur Iðu væna Finn hins vegar um eignaspjöll og ólögmæta umgengni um land þeirra og staðhæfa að hann fari offari í persónuárásum gegn þeim. Deilan er komin til lögreglu og lögmanna...

Jun 26, 202519 minEp. 496

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann - 2.þáttur

Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi árið 2018. Hvarf hans er ráðgáta sem lögreglu hefur ekki enn tekist að upplýsa. Mikilvægasti upplýsingagjafi lögreglunnar um málið er konan sem síðast sá hann á lífi. Hún er talin hafa farið með honum til Spánar. Leit okkar að Sean Bradley fer hins vegar fljótt að breytast í leitina að konunni. Þessi þáttur fjallar um hana og hvers vegna lögregla beindi sjónum sínum sérstaklega að henni við rannsókn málsins. Konan á sér athyglisverða ...

Jun 24, 202517 minEp. 495

„Loksins á ég öruggt heimili“ - leigjendur hjá Bjargi

Í þættinum er rætt við tvær konur sem telja sig heppnar að hafa fengið inni hjá leigufélaginu Bjargi. Þær segja það hafa gjörbreytt stöðu þeirra og skapað þeim öryggi sem þær hafa ekki fundið fyrir á húsnæðismarkaðnum áður. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

Jun 23, 202515 minEp. 494

Fyrirtæki Ratcliffes vill leigja fleiri laxveiðiár

Six Rivers, fyrirtæki enska milljarðamæringsins Jim Ratcliffe, er með sex laxveiðiár á Norðausturlandi. Fyrirtækið hefur áhuga á að minnsta kosti fjórum ám til viðbótar. Þetta eru Laxá í Aðaldal, Svalbarðsá, Sandá og Ormarsá. Jim Ratcliffe er í hópi ríkustu manna heims og er hann hvað þekktastur fyrir eignarhald sitt á enska knattspyrnufélaginu Manchester United. Rætt er við framkvæmdastjóra Six Rivers, Gísla Ásgeirsson, um fyrirtækið og framtíðaráform þess. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson...

Jun 20, 202515 minEp. 493

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann -1.þáttur

Írski fiðluleikarinn Sean Bradley heillaði stjórnendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands með leik sínum og hreppti fasta stöðu í sveitinni á níunda áratugnum. Hann lék með Sinfó í rúman áratug og kenndi við tónlistarskóla víða um landið. Árið 2018 hvarf hann sporlaust. Þá virðist hann hafa flogið til Spánar með konu sem leigði af honum íbúð. Vinir Sean vantreysta konunni og kalla eftir svörum um hvað varð um hann. Við heyrum af rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi og ræðum við nokkra vini Sean. Umsjón:...

Jun 19, 202516 minEp. 492

Stríð hrossabóndans við álverið í Hvalfirði

Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi á Kúludalsá í Hvalfirði, hefur staðið í stappi við álfyrirtækið Norðurál sem rekur álverið á Grundartanga í Hvalfirði. Ragnheiður hefur í 18 ár haldið því fram að hrossinn hennar hafi hennar veikst vegna flúormengunar frá álverinu. Hún hefur þurft að láta lóga hrossunum vegna þessarar meintu mengunar. Hrossinn sem hún hefur þurft að láta lóga eru meira en 20 talsins. Fjallað er um sögu Ragnheiðar og þessa baráttu hennar í heimildarmyndinni Bóndinn o...

Jun 18, 202515 minEp. 491

Viðar leigir út 56 stúdíóíbúðir og herbergi

Viðar Guðjohnsen er stórtækur leigusali 56 stúdííóíbúða og herbergja í fasteign sem hann á í Reykjavík. Viðar var tiltölulega lítt þekktur í samfélaginu þar til árið 2018 en þá bauð hann sig fram í leiðtogakjöri hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir borgarastjórnarkosningar. Viðar lýsir því hvernig það kom til að hann byggði húsið sem hann í Mörkinni 8 með þessum íbúðum og herbergjum fyrir meira en þremur áratugum síðan. Húsnæðið er skilgreint sem gistiheimili samkvæmt fasteignamati. Í því eru aðallega ...

Jun 16, 202516 minEp. 490

Endurflutningur: Tímamót í meðhöndlun á Alzheimer

Talið er að amk 6000 manns glími við heilabilun á Íslandi. Því þykir fagnaðarefni að lyfið Leqembi hafi fengið markaðsleyfi hér á landi. Lyfið er sagt það fyrsta sem virðist hafa áhrif á undirliggjandi ferli Alzheimer-sjúkdómsins. Öldrunarlæknar tala um tímamót í meðhöndlun við þessa erfiða sjúkdóms. Viðmælendur: Helga Eyjólfsdóttir yfirlæknir minnismóttökunnar og öldrunarlæknirinn Steinunn Þórðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Endurflutningur frá 25. apríl 2025.

Jun 13, 202516 minEp. 489

Stjórnendur Play höfðu þrjá kosti í stöðunni

Fjórir lífeyrissjóðir eru meðal 20 stærstu hluthafa flugfélagsins Play sem nú stendur á tímamótum eftir að greint var frá yfirtökutilboði tveggja hluthafa félagsins í vikunni. Þessi hluthafar eru forstjórinn Einar Örn Ólafsson og Elías Skúli Skúlason, sem er varaformaður stjórnar. Hluthafar Play munu tapa miklum peningum ef líkum lætur. Hluthöfum Play stendur til boða að ganga að yfirtökutilboðinu eða að halda áfram að vera hluthafar í flugfélaginu með þeim Einari Erni og Elíasi Skúla. Ólafur hj...

Jun 12, 202516 minEp. 488

Börn eiga ekki að sofa úti í vagni

Hjúkrunarfræðingurinn Herdís Storgaard segir í nýjum tilmælum á Heilsuveru að foreldrar eigi ekki að láta börn sín sofa úti í vagni. Þeir eigi að henda gömlu bastvöggunum frá Blindrafélaginu og alls ekki nota hin svokölluðu hreiður í svefnumhverfi barna. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Jun 11, 202517 minEp. 487

Breytt staða brunavarna eftir heimsókn lögreglu til Quang Le

Slökkviliðið má fara inn í íbúðarhúsnæði þar sem grunur leikur á að brunavarnir séu í ólagi. Þetta er niðurstaða úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í lok apríl. Landsréttur staðfesti þessa niðurstöðu í byrjun maí. Úrskurðurinn á rætur sínar að rekja til þess að slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk ábendingu frá lögreglunni um að brunavörnum kynni að vera ábótavant í húsi í Katrínartúni í Reykjavík. Þetta hús er í eigu föður Davíðs Viðarssonar, eða Quang Le, sem verið hefur til rannsóknar v...

Jun 10, 202516 minEp. 486

Barátta eftirlifenda Kielland-slyssins

Í gær var stór stund í lífi rúmlega tvö hundruð fjölskyldna sem upplifðu hörmungar þegar olíuborpallurinn Alexander Kielland hrundi í Norðursjó, árið 1980. 45 árum síðar samþykkti norska Stórþingið að greiða ætti bætur til þeirra sem upplifðu eða misstu ástvin í þessu mannskæðasta vinnuslysi í sögu Noregs. Meðal þeirra sem létust var Íslendingurinn Hans Herbert Hansen. Hann var 33 ára Akureyringur, og skildi eftir sig þrjú ung börn á Íslandi. Elsta dóttir hans, Guðný Hansen, hefur í heilan áratu...

Jun 06, 202516 minEp. 485

„Helvíti“ að búa undir herbergjahóteli

Hjón á miðjum aldri lýsa því hvernig það hefur verið að búa undir herbergjahóteli í miðbæ Reykjavíkur í tæpan áratug. Blaðamaður Þetta helst heimsótti konuna og eiginmann hennar í íbúðina þeirra. Í húsinu með þeim búa 7 til 8 einstaklingar í litlum herbergjum. Leigusali þeirra er fyrirtækið 101 house sem sérhæfir sig í útleigu á herbergjum í póstnúmeri 101 í Reykjavík. Eigandi fyrirtækisins er Indriði Björnsson, sextugur karlmaður sem búsettur er í Reykjavík. Fyrirtæki hans á ellefu fasteignir í...

Jun 05, 202516 minEp. 484

Glæsihótel verður hjúkrunarrými

Fyrir hálfum mánuði réðst Inga Sæland með sleggju á veggi í hinni sögufrægu byggingu Loftleiða í Reykjavík.Tilgangurinn með hamaganginum í ráðherranum var að vekja athygli á því að ríkið hefði komist að samkomulagi við fasteignafélagið Reiti um að húsnæðinu yrði breytt í hjúkrunarrými. Ráðast á í gangerar endurbætur á húsinu svo það geti svalað brotabrot af þörf þjóðarinnar fyrir hjúkrunarrými. Í þessum þætti ætlum við að banka uppá á vinnusvæðinu og skoða hvernig fasteignafélaginu gengur að bre...

Jun 04, 202515 minEp. 483

Grásleppublótið á Bakkafirði

Um helgina var haldið grásleppublót á Bakkafirði Í Langanesbyggð á norðausturlandi. Þar var þessi kynlega fisktegund heiðruð með hátíðahöldum og fjölbreyttri dagskrá. Boðið var upp á siglingu í grásleppubáti. Gestir fengu frumlega rétti sem búnir eru til úr þessum fiski. Frumsýnd var heimildarmynd um grásleppuveiðar eftir Rut Sigurðardóttur. Börnin fengu að handleika og skella kossi á lifandi grásleppur sem höfðu verið veiddar daginn áður. Og síðast en ekki síst seldu skipuleggejdnur hátíðarinna...

Jun 03, 202516 minEp. 482

Nýja hægrið- þeir sem vilja að heimurinn sé eins og fyrirtæki

Dagskrárgerðarmennirnir Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson hafa að undanförnu sökkt sér ofan í hugmyndir hins nýja hægris í Bandaríkjunum. Um það fjalla þau í hlaðvarpsþáttunum Konungssinar í Kísildal. Þau segja okkur frá róttækri framtíðarsýn nokkurra ólíkra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að styðja Donald Trump, hata woke-ismann og vilja reka samfélög eins og fyrirtæki.

Jun 02, 202517 minEp. 481

Fólkið sem er stórtækt í útleigu herbergja

Bruninn á Hjarðarhaga í síðustu viku hefur enn og aftur vakið upp umræðu um stöðu erlends verkafólks á íslenskum leigumarkaði sem býr í herbergjahótelum. Með herbergjahótelum er átt við fasteignir þar sem fólk sem er ótengt býr í herbergjum og deilur eldhúsaðstöðu og salerni. Einn þeirra sem er orðinn stórtækur á þessum leigumarkaði með herbergi er veðufræðingurinn og prófessorinn Haraldur Ólafsson. Haraldur á 10 íbúðir í Reykjavík í tveimur einkahlutafélögum og hafa margir ótengdir einstaklinga...

May 30, 202516 minEp. 480

Guðrún Hafsteins dustar ryk í Valhöll

Mörg spjót standa á Guðrúnu Hafsteinsdóttur formanni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana. Hún er gagnrýnd fyrir að vera ekki búin að hífa upp fylgi flokksins og vera ósýnileg í umræðu um veiðigjöld. Við heimsækjum Guðrúnu á formannsskrifstofu hennar í Valhöll og heyrum hvernig hún hyggst tækla verkefnin og lægja öldur eftir klofning flokksins á síðasta landsfundi hans. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

May 28, 202518 minEp. 479

Hjarðarhagamálið og aðstæður erlends verkafólks á leigumarkaði

Bruninn á Hjarðarhaga í síðustu viku hefur vakið mikla athygli og er til rannsóknar hjá lögreglu. Fjórir menn bjuggu saman í íbúðinni sem er 80 fermetrar að stærð og með þremur herbergjum, samkvæmt fasteignamati. Þeir voru allir að erlendu bergi brotnir. Einn Bandaríkjamaður, einn Tékki og tveir Ungverjar. Þeir tengdust ekki innbyrðis. Búið var að stúka af hluta íbúðarinnar til að búa til fleiri lokuð rými fyrir leigjendurna. Tveir af mönnunum létust í brunanum og sá þriðji særðist alvarlega. Ha...

May 27, 202516 minEp. 478

Staða Guðrúnar Hafsteins í Sjálfstæðisflokknum

Við ætlum að ræða um stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur eftir að hafa verið formaður Sjálfstæðisflokksins í tæpa þrjá mánuði. Nú er farið að bera á gagnrýni í garð Guðrúnar, meðal annars úr stuðningshópi Áslaugar Örnu. Gagnrýnin er viðruð í hlaðvörpum og skoðanagreinum og lútir að því að nýr formaður hafi ekki uppskorið eins og hún sagðist vilja gera. Viðmælendur: Eva Heiða Önnudóttir, Andrés Magnússon, Vigdís Häsler og Ólöf Skaftadóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

May 26, 202517 minEp. 477

,,Líffræðilegar áskoranir” í sjókvíaeldi og framtíðin

Stærsta laxeldisfyrirtæki landsins tapaði 3 milljónum evra vegna áhrifa laxalúsar og laxadauða hjá fyrirtækinu. Framleiðsla fyrirtækisins á eldislaxi dróst saman um meira en helming frá fyrsta ársfjórðungi 2024 vegna þessa. Framleiðslan fór frá 2800 tonnum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 og niður í 1100 tonn á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri Arnarlax fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs á þriðjudaginn. Í uppgjörinu kemur fram að um sé að ræða svokallaðar ,,líffræði...

May 23, 202516 minEp. 476

Sífellt yngri burðardýr koma til Íslands

Evrópska lögreglan Europol hefur áhyggjur af því að skipulagðir brotahópar noti í auknum mæli ungmenni til að fremja fyrir sig alvarlega glæpi. Angar af þeirri þróun hafa birst okkur hér á landi. Europol hefur einnig áhyggjur af því að gervigreindin auki afkastagetu skipulagðra glæpahópa. Fjölþætt starfsemi brotahópanna geti því, að mati Europol, grafið í auknum mæli undan stöðugleika í Evrópuríkjum. Við ræðum við eina Íslendinginn sem starfar hjá Europol, Stefán Sveinsson um nýútkomna greininga...

May 22, 202516 minEp. 475

Pylsusalan hjá SS tvöfaldast í blíðunni

Í blíðskaparveðrinu sem verið hefur á landinu síðustu daga taka margir fram grillin sín og fíra upp í þeim. Eitt af því sem margir grilla á góðviðrisdögum eru pylsur, ekki síst fyrir börnin. Forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS), Steinþór Skúlason, segir að pylsusala fyrirtækisins virka tvöfaldist í góðu veðri eins og verið hefur í landinu síðustu daga. En eru pylsur eins og hjá SS góður matur? Um þetta hafa næringarfræðingar og talsmenn íslensku pylsunnar slegist í gegnum árin. Einn þeirra sem...

May 21, 202517 minEp. 474

Mannúðarstarf orðið að vopni í stríði

Sameinuðu þjóðirnar eru í djúpstæðri krísu og fé stofnunarinnar gæti orðið uppurið um mitt ár. Það kostar mannslíf og langþráða uppstokkun á starfsemi stofnunarinnar. SÞ hafa verið gagnrýndar fyrir fitulag í efstu þrepum, kostnaðarsama yfirbyggingu og fyrir að láta pólitík ráða för í mannúðarstarfi. Viðmælendur: Lára Jónasdóttir og Svanhildur Þórðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

May 20, 202517 minEp. 473
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android