Lögreglumennirnir fyrrverandi Jón Óttar Ólafsson og Guðmundur Haukur Gunnarsson hjá njósnafyrirtækinu PPP gerðu leynilega upptöku af samtali sínu við Jónas Helgason í nóvember árið 2012. Jónas var aðalrannsakandinn í gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Íslands sem rannsakað hafði útgerðarfélagið Samherja á þessum tíma. Jónas tók meðal annars þátt í húsleit hjá Samherja og hafði 22 ára reynslu af störfum í lögreglunni áður en hann fór til Seðlabanka Íslands. Þegar samtalið átti sér stað voru sex mánuð...
May 19, 2025•16 min•Ep. 472
Við höldum áfram að ræða au pair-kerfið á Íslandi. Nú út frá sjónarhóli Rakelar Tönju Bjarnadóttur, fjögurra barna móður, sem hefur margvíslega reynslu af því. Svo heyrum við hvernig fyrirkomulagið horfir við Sigrúnu Ólafsdóttur, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur í rannsóknum sínum meðal annars skoðað ójöfnuð og aðstöðumun fólks í samfélaginu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
May 16, 2025•16 min•Ep. 471
Landeldi á laxi gæti orðið risastór atvinnugrein á Íslandi ef allt gengur að óskum hjá nokkrum fyrirtækjum sem eru hefja starfsemi í þessari grein hér á landi. Þrátt fyrir þessi auknu umsvif landeldisfyrirtækja hefur umræðan um þessa tegund fiskeldis verið tiltölulega lítil. Ástæðan er meðal annars sú að svo mikil umræða hefur verið um sjókvíaeldi á eldislaxi þar sem fiskurinn er alinn í kvíum í sjó í fjörðum landsins en ekki uppi á landi. Eitt af löndunum sem hefur lengri og meiri reynslu en Ís...
May 15, 2025•17 min•Ep. 470
Ungar konur frá Filippseyjum koma í stórum stíl til Íslands á au pair leyfi, sem er vistráðning til íslenskra fjölskyldna. Vistin er ekki skilgreind launuð vinna og því eru au pair-ar utan stéttarfélaga og ekki með eiginlegt atvinnuleyfi. Það er því ekkert kerfi eða öryggisnet utan um þær sem lenda í slæmum aðstæðum. Norðmenn hafa aflagt kerfið vegna hneykslismála og í Danmörku er kerfið afar umdeilt. Ný dönsk þáttarröð á Netflix vekur upp siðferðislegar spurningar um ójafnvægið milli filippseys...
May 14, 2025•17 min•Ep. 469
Sveinn Rúnar Hauksson heimilislæknir ræðir um umræðuna um notkun á hugvíkkandi efnum eins og LSD eða sýru þegar hann var ungur maður á sjöunda áratugnum og umræðuna um hugvíkkandi efni í samfélaginu í dag. Sveinn Rúnar notaði LSD á sínum tíma en fór verst á hassreykingum og endaði meðal annars inni á geðdeild í Þýskalandi vegna dagreykinga. Tímabilið sem Sveinn Rúnar ræðir um er að hið svokallaða hippatímabil þar sem neysla á kannabisefnum og ofskynjunarlyfjum alls kyns færðist mjög í vöxt. Hann...
May 13, 2025•17 min•Ep. 468
Hljómsveitin XXX Rottweiler hundar fagna 25 ára starfsafmæli sínu í Laugardalshöll 24. maí. Í þessum þætti reynir Þóra Tómasdóttir að skræla þykkan skráp af Ágústi Bent og komast að því hvernig líf hans hefur raunverulega verið þennan tíma.
May 12, 2025•17 min•Ep. 467
Í áratugi hefur kastalahúsið á Arngerðareyri í Ísafirði vakið aðdáum og furðu fólks sem hefur farið um Djúpið. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið sem byggði húsið, og Sigurður Þórðarson stýrði, varð gjaldþrota árið 1934. Sigurður hafði þá búið í húsinu ásamt eiginkonu sinni Ástu Jónsdóttur í nokkur ár. Samtímamenn Sigurðar furðuðu sig á því af hverju þetta hús var byggt á þessum stað og hefur þeirri spurningu í raun aldrei verið svarað. Frændi Ástu Jónsdóttur, lögfræðingurinn og hæst...
May 09, 2025•17 min•Ep. 466
Sýning Listasafns Íslands á fölsuðum verkum er síðasta verk Ólafs Inga Jónssonar forvarðar fyrir safnið. Með henni vill hann vekja fólk til umhugsunar um hvernig verk í stóra málverkafölsunarmálinu voru fölsuð. Verkin voru á sínum tíma rakin til Gallerís Borgar. Úlfar Þormóðsson, stofnandi Gallerís Borgar, gefur ekki mikið fyrir þetta framtak Listasafns Íslands. Hann er að skrifa bók um sína hlið málsins og rangfærslur sem hann tellur Ólaf Inga hafa farið með í Þetta helst árið 2023.
May 08, 2025•17 min•Ep. 465
Brottrekstur Kára Stefánssonar hjá Íslenskri erfðagreiningu hefur verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga. Starfslok hans eru ekki ennþá að fullu útskýrð. Eigandi íslenskrar erfðagreiningar, bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið Amgen, hefur ekki viljað svara spurningum um starfslokin nema að litlu leyti. Fyrirtækið hefur sagt að það hafi verið strategísk ákvörðun hjá fyrirtækinu að breyta um stjórnendur til þess að búa til betri samhæfingu á milli rannsóknar- og þróunarstarfs Amgen. H...
May 07, 2025•17 min•Ep. 464
Tónlistarmaðurinn Brynjar Barkarson, eða Lil Binni eins og hann kallar sig, birti á hugleiðingar sínar um innflytjendamál á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Brynjar er annar tveggja meðlima í Club dub, sem er ein vinsælasta hljómsveit landsins. Viðbrögð við orðum Brynjars hafa vakið hörð viðbrögð og orðið til þess að bandið hans var afbókað af grunnskólaböllum í Reykjavík.
May 06, 2025•16 min•Ep. 463
Fyrirtæki tékkneska milljarðamæringins Daniel Kretinsky vill byggja tveggja kílómetra langa bryggju við Alviðruhamra á austanverðum Mýrdalssandi á Suðurlandi. Hann vill nota bryggjuna til að flytja út allt að fimm milljónir tonna af vikri frá Íslandi á ári. Umhverfismat á verkefninu stendur nú yfir. Efnið sem fyrirtækið vill flytja út um þess bryggju er gjóska sem féll til við eldgos í Kötlu árið 1918. Fyrirtækið hefur búið til orðið Kötlusalli til að aðgreina þetta efni frá öðrum vikri á Ísland...
May 05, 2025•16 min•Ep. 462
Justin Bieber dvelur nú á lúxushótelinu Depplum í Fljótunum í Skagafirði. Í þættinum forvitnumst við um það sem trekkir fólk eins og hann á þennan afskekkta stað. Við ræðum um áhrifin sem ferðaþjónusta fyrir ríka fólkið hefur á litla sveit eins og Fljótin. Þar sem veðráttan er miskunnarlaus, vegir afleiddir og margir bændur hafa brugðið búi. Um svipað leyti og grunnskólinn lagðist af urðu þyrlur og glæsibifreiðar hluti af hversdeginum í Fljótunum. Við rekjum sögu Deppla og ræðum við íbúa í sveit...
May 02, 2025•17 min•Ep. 461
Í um 15 ár hafa tveir nánustu samstarfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis og ríkasta manns Íslands verið tiltölulega lítið til umfjöllunar í fjölmiðlum miðað við hvað þeir eru umsvifamiklir. Þetta eru þeir Birgir Már Ragnarsson og Andri Sveinsson sem unnu lengi með Björgólfi Thor hjá fjárfestingarfélaginu Novator.Stundum hafa þeir verið kallaðir vinstri og hægri hönd Björgólfs Thors. Þeir eru orðnir tveir af ríkustu mönnum landsins og högnuðust til að mynda um 20 milljarða króna á fj...
Apr 30, 2025•16 min•Ep. 460
Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er eins og hálfgert tímahylki, því þar er allt svolítið uppá gamla mátann. Starfsfólk í rauðum sloppum á gólfinu tilbúið til að aðstoða viðskiptavininn með hvað sem er. Fjarðarkaup hefur hvorki farið í útrás né í netverslun. Það er persónuleg þjónusta og gott vöruúrval sem þeir bræður, Sveinn og Gísli Sigurbergssynir, leggja áherslu á í sínum verslunarrekstri. Og það hefur gefið góða raun. Að minnsta kosti helst þeim vel á starfsfólki eins og við fáum að kynna...
Apr 29, 2025•16 min•Ep. 459
Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) þar sem fyrirliggjandi veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar er gagnrýnt hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða myndbönd sem tekin er upp í fjórum sjávarútvegsbæjum á landsbyggðinni þar sem ungt fólk lýsir jákvæðum áhrifum kvótakerfisins og útgerðanna á viðkomandi samfélög. Bæirnir þar sem myndböndin eru tekin upp eru: Eskifjörður, Grundarfjörður, Dalvík og Vestmannaeyjar. Yfirskrift myndbandanna er að fyrirhuguð veiðigjaldahækkun sé s...
Apr 28, 2025•17 min•Ep. 458
Talið er að amk 6000 manns glími við heilabilun á Íslandi. Því þykir fagnaðarefni að lyfið Leqembi hafi fengið markaðsleyfi hér á landi. Lyfið er sagt það fyrsta sem virðist hafa áhrif á undirliggjandi ferli Alzheimer-sjúkdómsins. Öldrunarlæknar tala um tímamót í viðeign við þennan ömurlega sjúkdóm. Við spyrjum þær Helgu Eyólfsdóttur yfirlækni minnismóttökunnar og öldrunarlækninn Steinunni Þórðardóttur nánar út í þetta.
Apr 25, 2025•16 min•Ep. 457
,,Kastalinn” svokallaði á Arngerðareyri í Ísafirði á Vestfjörðum hefur um áratugaskeið vakið aðdáun og furðu. Kaupfélagsstjórinn Sigurður Þórðarson lét hið pínulitla Kaupfélag Nauteyrarhrepps reisa húsið yfir sig fyrir tæpum hundrað árum. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið varð gjaldþrota. Til þess að skilja af hverju í ósköpunum þetta litla kaupfélag byggði þennan steinsteypta kassa í kastalastíl á þessum tíma þarf að átta sig á manninum sem húsið er minnisvarði um, Sigurði Þórðarsy...
Apr 23, 2025•16 min•Ep. 456
Íslensk stjórnvöld sendu sextán ára gamlan dreng frá Kolumbíu í lögreglufylgd til heimalands síns í október í fyrra. Hann var sendur úr landi ásamt föður drengsins sem hafði beitt hann ofbeldi og afsalað sér forræði yfir honum. Drengurinn bjó einn á götunni í höfuðborg Kólumbíu, Bogatá, í einn mánuð eftir komuna til landsins þar sem faðir hans yfirgaf hann samstundis. Bogatá er ein hættulegasta borg í heimi og var drengurinn á vergangi þar og svaf meðal annars í neyðarskýlum og á götunni þar til...
Apr 16, 2025•15 min•Ep. 455
Stjórnendur fyrirtækisins Janusar settu íslenska ríkinu fjölþætt skilyrði í viðræðum um mögulegan nýjan samning við Sjúkratryggingar Íslands. Skilyrðin voru meðal annars þau að eftir að íslenska ríkið myndi taka Janus yfir yrði starfsemin að öllu leyti óbreytt. Þá er átt við sama skipulag, stjórnun og starfsmannahald. Eitt af því sem fólst í skilyrðunum var að engar breytingar yrðu gerðar á kjörum starfsfólks. Samkvæmt athugun heilbrigðisráðuneytisins reyndust laun starfsmanna Janusar vera umtal...
Apr 15, 2025•17 min•Ep. 454
Þegar Þetta helst hafði lokið þriggja þátta umfjöllun um háhyrningaveiðar Sædýrasafnsins, þá barst þættinum óvæntur tölvupóstur frá hlustanda. Pósturinn var frá hinni 21 árs gömlu Sigrúnu Helgudóttur sem hefur skrásett örlög hvers einasta háhyrnings sem veiddur var við Íslandsstrendur. Og Sigrún færði okkur fréttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Apr 14, 2025•16 min•Ep. 453
Íslendingar hafa fengið innsýn í harðari og hættulegri veruleika en fólk á að venjast hér á landi í gegnum fjölda Venesúelabúa sem hafa flutt til Íslands á liðnum árum. Sumir þessara Venesúelabúa hafa sagt sögur sínar í fjölmiðlum þar sem þeir greina frá því að þeir hafi tekið þátt í pólitísku starfi í heimalandinu. Þeir hafa sagt frá því að í kjölfarið að hafi þeir lent í ofsóknum einræðisherrans Nicolas Maduro sem stýrt hefur landinu með harðri hendi í rúman áratug. Einn Venesúelabúi sem hefur...
Apr 11, 2025•13 min•Ep. 452
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilar nú tvo leiki við ísraelska landsliðið um laust sæti á heimsmeistaramóti sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi í haust. Íþróttafréttamennirnir Valur Páll Eiríksson og Einar Örn Jónsson segja öskrandi tvískinnung að Rússum sé vísað úr alþjóðlegum íþróttamótum á meðan Ísrael fær að taka þátt.
Apr 10, 2025•16 min•Ep. 451
Ungir menn virðast í auknum mæli taka ungar konur kverkataki og þrengja að öndunarvegi þeirra. Kyrkingar eða „choking“ virðast sífellt fyrirferðameiri í klámi. Í þessum þætti heyrum við í konu sem hefur orðið ítrekuðum kverkatökum og áhyggjur fagfólks af áhrifum kláms. Viðmælendur: Jenný Kristín Valberg, Drífa Snædal, Þóra Jónasóttir, Marta Kristín Hreiðarsdóttir og Jón Gunnar Þórhallsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Apr 09, 2025•16 min•Ep. 450
Í þriðja þætti um háhyrningaveiðar og viðskipti Sædýrasafnsins fáum við að heyra lýsingar forstöðumanns safnsins á því hvernig veiðarnar fóru fram. Afleiðingar af þessum veiðum eru endalausar deilur milli dýraverndunarsinna, hvalasérfræðinga og dýragarða víða um heim. Viðmælendur: Sigursteinn Másson og Edda Elísabet Magnúsdóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Apr 08, 2025•16 min•Ep. 449
Kauphallir um allan heim eru rauðglóandi eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna snarhækkaði tolla á innfluttar vörur í síðustu viku. Hörður Ægisson viðskiptablaðamaður skýrir hvernig áhrif tollastríðsins birtast okkur á mörkuðum í dag. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson.
Apr 07, 2025•16 min•Ep. 448
Háhyrningar sem veiddir voru við strendur Íslands og seldir í dýragarða, eignuðust afkvæmi sem nú er tekist á um hvað eigi að gera við. Þeir hafa verið í dýragörðum alla ævi og náð háum aldri. Við ræðum við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, Sigurstein Másson og Ragnhildi Jónsdóttur. Þetta er annar þáttur af þremur um háhyrningaviðskiptin. Umsjón Þóra Tómasdóttir.
Apr 04, 2025•17 min•Ep. 447
Dýraverndunarsinnar hafa boðað til mótmæla við sædýrasafnið í Antibes í Frakklandi um helgina. Ástæðan er að til stendur að flytja tvo íslensk-ættaða háhyrninga úr garðinum og í dýragarðinn Loro Parque á Tenerife. Málið hefur farið fyrir franska dómsstóla en algjör óvissa ríkir um framtíð dýranna. Saga háhyrninganna er skrítnari en þig grunar. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ragnhildi Jónsdóttur sem ólst upp í Sædýrasafninu.
Apr 03, 2025•18 min•Ep. 446
Flugvirkjafélag Íslands er ósátt við flugfélagið Air Atlanta vegna þess að það hefur ekki viljað ráða flugvirkja sem launþega nema að litlu leyti. Aðrir eru meðal annars starfsmenn hjá áhafnarleigunni Airborne á Möltu. Fjallað hefur verið um flugfélagið Air Atlanta í tveimur þáttum af Þetta helst síðaastliðina viku. Sá þriðji er þessi hér. Eftir að fyrsti þátturinn af Þetta helst um Air Atlanta var birtur í síðustu vikur hafa borist margar ábendingar frá alls kyns aðilum um starfshætti félagsins...
Apr 02, 2025•17 min•Ep. 445
Blaðamaðurinn Helgi Steinar Gunnlaugsson hefur stúderað Kína öll sín fullorðinsár. Hann lærði alþjóðasamskipti í Pekíng og er einn fárra Íslendinga sem talar reiprennandi kínversku. Við ætlum að spyrja hann út í tollastríðið Bandaríkjanna og Kína, viðskiptatengsl Íslands og Kína og ekki síst, njósnir Kínverja á Íslandi sem ríkislögreglustjóri hefur áhyggjur af. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Apr 01, 2025•17 min•Ep. 444
Air Atlanta hefur um árabil haft erlendar flugfreyjur í vinnu hjá sér í gegnum starfsmannaleigu á Möltu. Flugfreyjurnar eru meðal annars frá löndum eins og Indonesíu og Malasíu. Þær eru með um 50 dollara, tæplega, sjö þúsund krónur, í laun á dag, Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta segir í svari við spurningum Þetta helst um launakjör flugfreyjanna að erfitt sé að bera laun saman á milli landa. Fyrrverandi flugmaður hjá Air Atlanta, Hollendingum Sjoerd Willinge Prins var í viðtali við ...
Mar 31, 2025•17 min•Ep. 443