Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Guðmundur Ingi feginn að vera með vinnu

Guðmundur Ingi Kristinsson, nýr menntamálaráðherra, er 69 ára gamall með ríkulega lífsreynslu. Hann hefur setið á þingi fyrir Flokk fólksins síðan 2017 en svo á hann líka að baki reynslu sem er ekki auðvelt að gera skil í hefðbundinni ferilskrá. Reynslu af því að verða fyrir slysum, þurfa að reiða sig á almannatryggingakerfið og ekki síst, vinna sig aftur út í atvinnulífið eftir langa fjarveru. Á fyrstu dögum hans sem ráðherra missteig hann sig í ræðuhöldum á ráðstefnu en mætti gríðarlega mikils...

Mar 28, 202517 minEp. 442

,,Air Atlanta kom fram við mig eins og dýr"

Hollenskur flugmaður sem vann hjá íslenska flugfélaginu Air Atlanta í þrjú og hálft ár ber fyrirtækinu ekki vel söguna. Hann segir að fyrirtækið hafi komið fram við sig eins og dýr. Flugmaðurinn heitir Sjoerd Willinge Prince og er 30 ára gamall. Hann starfaði hjá Air Atlanta á árunum 2020 til 2023. Sjoerd var verktaki hjá Air Atlanta í gegnum maltverska starfsmannaleigu og naut því ekki sömu réttinda og fastráðinn starfsmaður. Flugmaðurinn segir frá því hvernig íslenska flugfélagið kom fram við ...

Mar 27, 202517 minEp. 441

Ólympíumeistari gegn föður sínum í rétti

Jakob Ingebrigtsen, ríkjandi ólympíumeistari og margfaldur heimsmeistari í hlaupagreinum, mætir föður sínum og fyrrum þjálfara í réttarsal næstu vikurnar. Þar færir hann rök fyrir því hvers vegna hann upplifði föður sinn ofbeldisfullan og ógnandi í uppvextinum. Við heyrum af réttarhöldunum og ræðum við hlauparann Hlyn Andrésson og íþróttalýsanda Rúv, Sigubjörn Árna Arngrímsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Mar 26, 202517 minEp. 440

Niðurrif á félagsheimili vekur sterkar tilfinningar í sunnlenskri sveit

Hluti íbúa Flóahrepps á Suðurlandi er ósáttur við að tæplega 100 ára samkomuhús í sveitinni hafi verið selt til Vegagerðarinnar. Þeir telja ljóst að rífa eigi samkomuhúsið til að rýma fyrir breikkun á Þjóðvegi 1. Húsið heitir Þingborg og stendur tæpa 10 kílómetra austan við Selfoss ofan í Þjóðvegi 1. Prjónaverslun hefur verið rekin í húsinu í 35 ár og eru meðal annars seldar þar ullarvörur frá um 100 einstaklingum hér á landi. Stofnaður hefur verið sérstakur Facebook-hópur til að berjast gegn þv...

Mar 25, 202517 minEp. 439

Berklar í gistiskýlum borgarinnar

Berklar hafa greinst meðal heimilislausra manna sem dvelja í gistiskýlum Reykjavíkur. Hjúkrunarfræðingar sem vinna við að ráða niður þessum vanda segja að smitrakning í hópi heimilislausra sé stór áskorun. Hana þurfi að leysa með óhefðbundum aðferðum eins og við heyrum af í þessum þætti. Viðmælendur eru hjúkrunarfræðingarnir Kristín Davíðsdóttir og Anna Tómasdóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Mar 24, 202518 minEp. 438

Áhrif glæpasamtakanna frá Venesúela teygja sig til Íslands

Síðastliðna viku hafa verið sagðar margar fréttir í íslenskum og alþjóðlegum fjölmiðlum um þá ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að senda mörg hundruð meðlimi venesúelsks glæpagengis úr landi. Glæpasamtökin heita El Tren de Aragua og eru starfandi í mörgum löndum í Suður-Ameríku. Meðlimir gengisins voru fluttir frá Bandaríkjunum í fangelsi í El Salvador. El Tren de Aragua hefur verið sagt vinna náið með einræðisherranum í Venesúela, Nicolás Maduro, og meðal annars vinna ódæðisverk fyrir h...

Mar 21, 202516 minEp. 437

Saga Sofiu - „Þetta hefði getað verið ég“

Nýjar upplýsingar í málinu: Fyrrverandi kærasta mannsins sem grunaður var um að hafa banað Sofiu, segist ítrekað hafa misst meðvitund eftir kyrkingartök hans. Í þættinum lýsir hún sambandi þeirra og sláandi líkindum með sögu Sofiu. Einnig er rætt við föður hennar. Umsjón: Þóra Tómasóttir

Mar 20, 202517 minEp. 436

Uppgjörið hjá sósíalistum og söguleg dæmi um þekktar deilur í stjórnmálaflokkum

Síðastliðna viku hefur allt logað í deilum innan Sósíalistaflokks Íslands. Deilurnar hverfast um stofnanda flokksins og formann framkvæmdastjórnar hans, Gunnar Smára Egilsson. Nokkrir yngri meðlimir flokksins hafa stigið fram og gagnrýnt Gunnar Smára fyrir stjórnendastíl hans. Gunnar Smári boðaði til fundar í síðustu vegna þessarar gagnrýni og hefur gengið á með linnulausanum skeytasendingum í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum á milli deiluaðila síðan þá. Gunnar Smári hefur vísað gagnrýninni á bug. ...

Mar 19, 202517 minEp. 435

Saga Sofiu - hinar kærustur hins grunaða

Í þriðja og síðasta þættinum um Sofiu Kolesnikova fáum við að heyra af ýmsu sem lögregla komst að við rannsókn á andláti hennar. Við fáum að heyra meira um samband Sofiu og kærastans sem lögregla varð sífellt uppteknari af að skoða. Og við fáum að heyra að hinn grunaði átti ekki aðeins eina kærustu. Viðmælendur: Jón Gunnar Þórhallsson, Valda Kolesnikova, Deivs Kolesnikovs og Kristrún Elsa Harðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Mar 18, 202518 minEp. 434

Fitufordómar sem böl

Fjallað um bók heimspekiprófessors við bandaríska háskólann Cornell um fitufordóma. Hún heitir Kate Manne og er frá Ástralíu. Bók hennar var tilnefnd til bandarísku bókmenntaverðlaunanna National Book Awards í fyrra. Af því tilefni var talsvert fjallað um bók hennar í bandarískum fjölmiðlum í lok síðasta árs og í byrjun þessa. Manne er á leiðinni til Íslands í maí til að flytja fyrirlestur á ráðstefnu um Metoo-byltinguna og feminíska heimspeki sem haldin verður í Háskóla Íslands í maí. Rætt er v...

Mar 17, 202516 minEp. 433

Saga Sofiu - millifærði háar fjárhæðir á kærastann

Venjur og hagir Sofiu Kolesnikova breyttust verulega á síðustu mánuðum lífs hennar. Áður en hún fannst látin með áverka á hálsi og gríðarlegt magn kókaíns í líkamanum. Hún sýndi breytta hegðun og steypti sér í skuldir. Deivs Andrei Kolesníkovs, litli bróðir Sofiu, og Valda Kolesnikova, móðir Sofiu, segja frá sögu fjölskyldunnar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Þetta er annar þáttur af þremur um Sofiu.

Mar 14, 202519 minEp. 432

Ríkisstjórnin hefur áhyggjur af samþjöppun eigna hjá stórútgerðinni

Í vikunni voru kynnt á Alþingi tvö þingmál sem sýna áhyggjur ríkisstjórnarflokkanna af samþjöppun kvóta og eigna hér á landi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins. Þessi þingmál fela í sér nýja stefnumörkun sem er annars eðlis en hjá síðustu ríkisstjórn. Annað málið snýst um beiðni frá þingmönnum úr ríkisstjórnarflokkunum um að matvælaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, flytji Alþingi skýrslu um umsvif stærstu útgerðarfélaga landsins í íslensku atvinnulífi. Hitt málið snýst um frumvarp Hönnu Katr...

Mar 13, 202516 minEp. 431

Saga Sofiu - ráðgátan um andlátið

Þegar Sofia Kolesnikova fannst látin á Selfossi var óljóst hvort hún hefði verið kyrkt af kærasta sínum eða látist af of stórum skammti fíkniefna. Kærastinn eyddi sönnunargögnum af vettvangi áður en tilkynnt var um andlátið og varð margsaga um hvað gerðist. Við lögreglurannsóknina teiknaðist upp mynstur sem líktist nauðungastjórnun. En málið fór aldrei fyrir dóm þar sem sakborningur lést í miðri málsmeðferð. Viðmælendur: Jón Gunnar Þórhallsson og Kristrún Elsa Harðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdót...

Mar 12, 202519 minEp. 430

Deilurnar um kvótasetningu á grásleppu

Kvótasetning síðustu ríkisstjórnar á grásleppu hefur verið umdeild. Sumarið 2024 voru sett lög sem fólu í sér að grásleppa var kvótasett í fyrsta sinn. Fram að því höfðu sjómenn víðs vegar um landið veitt þessa tegund á grundvelli veiðileyfa þar sem grásleppan er veidd ákveðna daga á ári í um 80 ár. Þingmaðurinn Lilja Rafney Magnúsdóttir úr Flokki fólksins kallaði eftir því í aðsendri grein á Vísi.is fyrir nokkrum dögum að lögunum um kvótasetningu grásleppu yrði breytt og að veiðifyrirkomulagið ...

Mar 11, 202517 minEp. 429

Skora á þingmenn að bæta meðferðarúrræði fyrir börn

Forsvarsmenn sveitarfélaganna á höfuborgarsvæðinu skora sameiginlega á þingmenn að bregðast við úrræðaleysi í málefnum meðferðarheimila fyrir börn og barna með fjölþættan vanda. Þetta er sá málaflokkur sem forsvarsmenn sveitarfélaganna telja mikilvægast að Alþingi bregðist við í. Forsvarsmenn sveitarfélaganna héldu fund með þingmönnum í safnaðarheimili Kópavogskirkju á föstudaginn 7. mars og fóru yfir þennan aðsteðjandi vanda. Rætt er við Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóri í Mosfellsbæ og Sigrúnu ...

Mar 10, 202517 minEp. 428

Hryðjuverkamálið sem varð að engu

Sakborningar í íslenska hryðjuverkamálinu fagna sýknu í Landsrétti og vona að málinu sé lokið. En er líklegt að þeir hafi látið af hatursfullu viðhorfi til ákveðinna þjóðfélagshópa? Og hvers vegna reyndist málið svona flókið í dómskerfinu? Þóra Tómasdóttir ræddi við verjendurna Svein Andra Sveinsson og Einar Odd Sigurðsson auk Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Mar 07, 202517 minEp. 427

Vesenið í Menntasjóði námsmanna

Í september í fyrra ákvað Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra úr Sjálfstæðisflokknum, að tilkynna Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur að starf hennar yrði auglýst laust til umsóknar þegar skipunartíma hennar lýkur næsta sumar. Nýr ráðherra málaflokksins, Logi Einarsson, hefur ekki í hyggju að hrófla við þessari ákvörðun Áslaugar Örnu. Mikið hefur gengið á hjá Menntasjóði námsmanna frá því Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttur var skipuð í starfið með umdeildum hætti fyri...

Mar 06, 202516 minEp. 426

Nettröll gegn transfólki

Í hvert sinn sem Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands minnist á transfólk í opinberri umræðu fær yfir sig holskeflu af hatursfullum athugasemdum. Guðrún á sjálf transbarn og segir augljóst bakslag í mannréttindabaráttu transfólks. Undir það tekur baráttukonan Ugla Stefanía sem hefur vanist grimmilegu áreiti í áraraðir. Þorbjörg Þorvaldsdóttir hjá Samtökunum 78 segir þróunina ógnvænlega. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Mar 05, 202516 minEp. 425

Nýi formaður Sjálfstæðisflokksins og áralöngu átökin

Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin nýr formaður Sjálfstæðisflokksins um helgina. Áralöng átök hafa verið á milli tvegga fylkinga í flokknum en önnur þeirra var á bandi Guðrúnar. Formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar árið 2022 endurspeglaði þessi átök en þá laut hann í lægra haldi gegn sitjandi formanni, Bjarna Benediktssyni. Guðlaugur Þór segir frá því að hann hafi stutt Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Diljá Mist Einarsdóttur gegn Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Jens Garðari Helgasyni. Hann segi...

Mar 04, 202516 minEp. 424

Hvernig framtíð vilja Sjálfstæðismenn?

Útlit er fyrir æsispennandi kosningar um nýjan formann Sjálfstæðisflokksins á landsfundi um helgina. Samkvæmt heimildum fréttastofu er stór hluti þeirra um það bil tvö þúsund landsfundarfulltrúa sem fá að kjósa formann, enn óákveðnir. Þeir munu því gera upp hug sinn á sjálfum fundinum. Á morgun, laugardag, flytja frambjóðendur sínar ræður sem líklega ráða úrslitum í sjálfri kosningunni á sunnudag. Þóra Tómasdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur.

Feb 28, 202514 minEp. 423

Vilja stöðva ljótar verktakablokkir

Er Reykjavík að verða ljótari borg? Það telja þeir Magnús Skúlason arkitekt og Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði. Freyr Snorrason borgarfræðingur býr við Hlíðarenda og er algjörlega ósammála þeim. Dóra Björt Guðjónsdóttir hjá umhverfis-og skipulagsráði Reykjavíkur vill herða reglur um gæði nýbygginga. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Feb 27, 202517 minEp. 422

Ævisaga íslensku pítusósunnar II: Ferðalagið um heiminn

Meðal Íslendinga sem búa erlendis tíðkast að flytja íslenska pítusósu með sér á milli landa. Ástæðan er sú að pítusósan íslenska, sem matreiðslumaðurinn Eiríkur Finnsson bjó til fyrir rúmum fjörtíu árum, er ekki til í öðrum löndum. Rætt er við þrjá Íslendinga í þremur heimsálfum sem allir hafa flutt pítusósu með sér til útlandsins. Þeir ræða um dálæti sitt á þessari sósuna og reyna að koma því í orð hver galdurinn er við hana. Eiríkur Finnsson ræðir einnig um þá erfiðleika sem hann stóð frammi f...

Feb 26, 202516 minEp. 421

Er Tesla fjölskyldubíll eða pólitísk yfirlýsing?

Íslendingar elska Teslu en hafa skiptar skoðanir á Elon Musk forstjóra fyrirtækisins. Í þessum þætti ræðum við um stöðu bílaframleiðandans og hvort pólitík forstjórans hafi áhrif á sölutölur. Við skoðum líka nýja gerð af Teslu og tölum við áhugafólk um bílinn. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Feb 25, 202517 minEp. 420

Borgarstjórn á botninum

Traust til stjórnmála hefur farið minnkandi í lýðræðisríkjum um allan heim. Þetta eru niðurstöður nýrrar vísindagreinar sem fræðimenn við Southhampton-háskólann birtu í vikunni. Aðalhöfundurinn er Viktor Orri Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði. Á sama tíma birti Gallup árlega mælingu á trausti til stofnana hér á landi. Þar má sjá vísbendingar um hið sama. Svarendur bera lang minnst traust til borgarstjórnar Reykjavíkur og hefur traustið aldrei mælst minna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Feb 21, 202517 minEp. 419

Umdeilda heimildarmyndin um arðrán Dana á Grænlandi

Heimildarmynd um hvernig danska ríkið og þarlendir fjárfestar högnuðust ævintýralega á námu á Grænlandi á 19. og 20. öld hefur verið mikið í umræðunni í löndunum tveimur eftir að hún var frumsýnd í danska ríkisútvarpinu í byrjun mánaðarins. Myndin heitir Hið hvíta gull Grænlands. Myndinni var kippt úr sýningu í danska ríkisútvarpinu í gær í kjölfar mikillar umræðu þar í landi sem náði inn til ríkisstjórnar Danmerkur. Ástæðan er sú að í myndinni eru settar fram umdeildar og umdeilanlegar staðhæfi...

Feb 20, 202516 minEp. 418

Heklaði sér fyrir húsi í Þingholtum

Við heyrum sögu tveggja kvenna sem hafa með aðstoð tækninnar náð að skapa sér góðar tekjur fyrir listsköpun með hekli og prjóni. Þær eiga það sameiginlegt að hafa vakið áhuga fólks á gömlum hefðum og hreinlega komið þeim aftur í tísku. Þær selja stafrænar uppskriftir í netverslun og á veitum á borð við Ravelry. Viðmælendur: Heléne Magnússon og Tinna Þórudóttir Þorvaldar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Feb 19, 202516 minEp. 417

Konurnar sem þrífa kontórinn þinn

Viðtal við 25 ára gamla konu frá Venesúela, Andreinu Edwards, sem sýnt var í kvöldfréttum RÚV á föstudaginn hefur vakið mikla athygli. Hún gagnrýndi fyrirtækið Ræstitækni, þar sem hún vann við þrif, harðlega. Viðtalið var hluti af þeirri miklu umræðu sem verið um launakjör ræstingafólks, sem yfirleitt er af erlendu bergi brotið, hér á landi. Andreina er til viðtals í þættinum. Rætt er við aðra samstarfskonu Andreinu, Leydi Teran, sem segir að Íslendingar þurfi að líta á hælisleitendur og aðrar i...

Feb 18, 202516 minEp. 416

Krísuástand í tónleikahaldi - listamenn borga með sér

Tónlistarfólk í fremstu röð segir reiknisdæmið við tónleikaferðalög ekki ganga upp fyrir millistéttina lengur. Einungis stórstjörnur geti túrað um heiminn. Kallað er eftir stuðningi við tónleikastaði sem gæti skapað stöðugleika í greininni. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ásu Dýradóttur, Kaktus Einarsson og Sindra Má Sigfússon.

Feb 14, 202517 minEp. 415

Jákvæð þróun í íslensku sjókvíaeldi

Engin slysaslepping var tilkynnt til Matvælastofnunar í íslensku sjókvíaeldi í fyrra. Þetta er mikil breyting frá árinu 2023 þegar stór slysaslepping hjá Arctic Fish leiddi til fjöldamótmæla á Íslandi. Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar, segir að mikið hafi verið gert til að bæta regluverk hjá laxeldisfyrirtækjum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Feb 13, 202516 minEp. 414

Hælisleitandi frá Venesúela segir frá nauðungarflutningi frá Íslandi

Hælisleitandinn Hector Montilla var nauðungarfluttur frá Íslandi í fylgd lögreglumanna til heimalands síns Venesúela þann 3. febrúar. Hann hafði búið á Íslandi frá því í desember 2022 og fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Hector segir að lögreglan á Íslandi hafi beitt hann óþörfu harðræði og ítrekað sett hann í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hlemm á Hverfisgötu áður en honum var fylgt úr landi. Hann segist hafa verið meðhöndlaður eins og glæpamaður á Íslandi. Umsjón: Ingi Freyr...

Feb 12, 202511 minEp. 413
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android