Sjávarútvegsverkefni Aurora-velgjörðarsjóðs í Sierra Leone í Afríku strandaði á spillingu segir framkvæmdastjóri sjóðsins. Ráða- og áhrifamenn í landinu vildu fá greitt undir borðið svo verkefni sjóðsins gætu orðið að veruleika. Framkvæmdastjórinn segir að Aurora hafi ekki viljað taka þátt í spillingunni í landinu. Rætt er við Regínu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Aurora. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Feb 11, 2025•16 min•Ep. 412
Á þriðjudaginn átti sér stað skotárás í skóla í sænsku borginni Örebro þegar 35 ára gamall myrti 10 einstaklinga og særði aðra 10. Hann skaut svo sjálfan sig. Sænska þjóðin er í sárum segir Anders Svenson, blaðamaður og ritstjóri tímaritsins Spraktidningen sem bjó hér á Íslandi í tæpt ár á sínum tíma. Blaðamaður Aftonbladet, Staffan Lindberg, segir ýmsum spurningum ósvarað í málinu. Tvær af þeim stærstu eru af hverju árásarmaðurinn gerði þetta og eins hvort lögreglan hafi staðið sig í stykkinu v...
Feb 07, 2025•16 min•Ep. 411
Þegar Roberto Luigi Pagani flutti til Íslands og hóf störf á leikskóla, talaði hann forníslensku eins og í gömlu handritunum. Á innan við áratug lærði hann málið uppá tíu og skrifaði um það doktorsritgerð. Hann er sérlegur áhugamaður um þróun íslenskunnar og hefur kortlagt breytingar tungumálsins mörg hundruð ár aftur í tímann. Roberto má kalla sérstakan kynningarfulltrúa Íslands á Ítalíu. Hann kemur reglulega fram í ítölskum fjölmiðlum og segir frá einstakri menningu Íslendinga. Þóra Tómasdótti...
Feb 06, 2025•16 min•Ep. 410
Sjaldgæft er að nýjar ríkisstjórnir bregðist strax við nýsamþykktum lögum með því að setja eigin ný lög til höfuðs þeim. Þetta er það sem nýja ríkisstjórnin hyggst gera varðandi búvörulögin sem samþykkt voru í fyrra. Stjórnmálafræðiprófessorinn Eva H. Önnudóttir segist ekki muna eftir sambærilegu fordæmi úr stjórnmálasögu liðinna ára þar sem nýsamþykktum lögum er breytt með setningu annarra. Lagaprófessorinn Hafsteinn Dan Kristjánsson segist ekki muna eftir mörgum öðrum fordæmum en að þau séu þá...
Feb 05, 2025•16 min•Ep. 409
Sigríður Ingvarsdóttir lét skyndilega af störfum rétt fyrir jólin. Hún hafði verið í starfinu í tvö hálft ár og var ráðin af meirihlutanum þar til 2026. A-listi jafnaðarfólks og Sjálfstæðisflokkurinn mynda þennan meirihluta. Starfslok bæjarstjórans hafa ekki verið útskýrð og vilja forsetans ekki veita viðtal um þau. Starfslok bæjarstjórans hafa vakið undrun og spurningar í Fjallabyggð. Viðmælendur Þetta helst í sveitarfélaginu segja allir að starfslok bæjarstjórans hafi komið íbúum í opna skjöld...
Feb 04, 2025•16 min•Ep. 408
Fyrir fimmtán árum var Ítalinn Mirko Garofalo heima hjá sér á Sikiley að vafra um internetið. Hann kom auga á ljósmyndir af íslenskri náttúru og féll í stafi yfir fegurðinni. Hann ákvað samstundis að hann skyldi læra íslensku. Á dögunum skilaði hann inn doktorsrannsókn sinni á íslenskri málfræði. Þóra Tómasdóttir talaði við hann.
Jan 31, 2025•16 min•Ep. 407
Fréttin um að Vinnumálastofnun megi ekki hýsa flóttamenn í JL-húsinu í Vesturbænum vakti mikla athygli í síðustu viku. Rætt er við tvær konur frá Venesúela sem eru búsettar í húsinu. Þær eru flóttamenn og bíða eftir niðurstöðu frá yfirvöldum um hvort þær megi setjast hér að. Þær lýsa lífi sínu í JL-húsinu og segjast ekki skilja af hverju nágrannar þeirra vilji ekki að þær fái að búa áfram þar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Jan 30, 2025•16 min•Ep. 406
Fjölmörg dæmi hafa komið upp í löndunum í kringum okkur þar sem samfélagsmiðlar leika lykilhlutverk í óeðlilegum afskiptum af lýðræðislegum kosningum. Það ógnar þjóðaröryggi líka hér á Íslandi að hægt sé að beita klækjabrögðum á samfélagsmiðlum til að koma fólki til valda. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar segir Ísland með alltof veika löggjöf til að girða fyrir hætturnar. Þóra Tómasdóttir talaði við hann.
Jan 29, 2025•16 min•Ep. 405
Óvissa ríkir nú um hvort 60 flóttamenn frá Venesúela fái að búa áfram í JL-húsinu. Þetta er staðan eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um að heimila Vinnumálastofnun að hýsa allt að tæplega 330 flóttamenn þar. Húsfélag í fjölbýlishúsi á Grandavegi 42 kærði ákvörðunina að heimila búsetu flóttamannanna þar. Umrætt húsfélagið kærði ákvörðunina vegna þess að hún hafði ekki farið í grenndarkynningu áður en Vinnumálastofnun fékk ley...
Jan 24, 2025•15 min•Ep. 404
E. coli hópsýkingin sem upp kom á leikskóla í Reykjavík í fyrra hefur vakið fólk til umhugsunar um hættur í eldhúsum. Í þessum þætti ræðum við um hættur í eldhúsum á heimilum landsmanna því þar getur verklagið líka klikkað og það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Við ræðum við kennara í matvælaöryggi og heimilisfræði, þau Margréti Sigfúsdóttur og Baldur Sæmundsson. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Jan 23, 2025•16 min•Ep. 403
Útgerðarfélagið Samherji á Akureyri er annað stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins miðað við úthlutaðan kvóta á þessu fiskveiðiári. Einungis Brim hf. Í Reykjavík er stærra miðað við kvótaeign. Í þættinum er sagt frá eignarhaldi eigenda og stofnanda Samherja á öðrum fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi og rætt um samþjöppun í eignarhaldi á aflaheimildum. Í Þetta helst á síðustu viku hefur verið fjallað um eignarhald eigenda Ísfélagsins og Kaupfélags Skagfirðinga á fyrirtækjum í öðrum rekstri en út...
Jan 22, 2025•16 min•Ep. 402
Í þessum þætti er rætt um fólk sem áhættusérfræðingar lögreglu og fangelsisyfirvalda meta sem hættulegustu einstaklinga þessa lands. Einstaklinga sem viðmælendum okkar ber saman um að falli oftast milli stafs og bryggju í kerfinu. Það eru ekki til nein úrræði fyrir þá. Þegar þeir losna úr afplánun fara þeir beint aftur í afbrot. Þóra Tómasdóttir ræddi við Halldór Val Pálsson forstöðumann fangelsa, Sædísi Jönu Jónsdóttur áhættusérfræðing lögreglu og Matthías Matthíasson í geðteymi fangelsanna.
Jan 21, 2025•17 min•Ep. 401
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðarákróki er orðið að stórfyrirtæki á landsvísu sem fjárfestir í fyrirtækjum á mörgum ólíkum sviðum. Flóra fjárfestinga kaupfélagsins nær allt frá útgerð og landbúnaði, til framleiðslu á ídýfum og majónessósum, og yfir í afþreyingariðnaðinn. Sem dæmi um fyrirtæki sem kaupfélagið á má nefna Hamborgarafabrikkuna, Metró, Vogabæ, E. Finnson, Mjólku, American Style, Aktu Taktu, Shake and Pizza, Black Box, Keiluhöllina, Fóðurblönduna, hoppugarðinn Skopp í Kópavogi og síðast...
Jan 20, 2025•16 min•Ep. 400
Deilur um hvort heppilegt sé að fyrirtækið Kaldvík fái að hefja laxeldi í Seyðisfirði hafa tvístrað tæplega 700 manna samfélagi bæjarins. Andstæðingar eldisins segja síðlaust að fyrirtækið lokki brotna byggð með störfum. Fylgjendur eldisins segja starfsemina kærkomna. Þóra Tómasdóttir ræðir við Katrínu Oddsdóttur, Jónínu Brynjólfsdóttur og Guðnýju Láru Guðrúnardóttur.
Jan 17, 2025•16 min•Ep. 399
Tvær fyrirtækjablokkir á Íslandi sem eru byggðar á rekstri tveggja stórútgerða eru eigendur tveggja stærstu majonesfyrirtækja landsins. Þetta eru Gunnars Majones og Vogabær, sem bæði framleiðir E. Finnsson-sósurnar og Vogaídýfurnar. Útgerðirnar eru FISK Seafood, sem Kaupfélag Skagfirðinga á, og Ísfélag Vestmannaeyja, sem Guðbjörg Matthíasdóttir hefur átt í gegnum tíðina. Þessi staða er birtingarmynd þeirrar þróunar að nokkrar stórar fyrirtækjasamstæður sem byggja á fjármunum stórútgerða eru orði...
Jan 16, 2025•16 min•Ep. 398
Margir eiga sér þann draum að verða besta útgáfan af sjálfum sér og stunda stífa sjálfsrækt til að ná því markmiði. Áhrifavaldurinn Gummi Kíró miðlar sinni sjálfsrækt daglega á samfélagsmiðlum. Þrír sálfræðingar hafa efasemdir um gagnsemi þess að eltast við drauminn um að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Ýmsar rannsóknir bendi til að mikil sjálfsrækt geti verið streituvaldandi. Viðmælendur: Hafrún Kristjánsdóttir, Helga Arnardóttir, Viktor Örn Margeirsson og Guðmundur Birkir Pálmason. Umsjón:...
Jan 15, 2025•18 min•Ep. 397
Í ár eru 50 ár liðin frá dauða einræðisherrans Francisco Francos og hefur ríkisstjórn Sósíalistaflokks Spánar skipulagt mikla dagskrá allt árið til að minnast þessa. Hægri flokkurinn, PP, hefur hins vegar gefið það út að hann muni ekki taka þátt í þessum minningaratburðum og segja forsvarsmenn flokksins að forsætisráðherrann Pedro Sanchez sé með dagskránni að reyna að drepa á dreif umræðu um eigin spillingarmál. Umræðan um spænsku borgarastyrjöldina og arfleifð Francisco Francos er enn þá mjög h...
Jan 14, 2025•17 min•Ep. 396
Einn þyngsti dómur sem fallið hefur í kynferðisbrotamáli á Íslandi var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi. Í málinu var brotið ítrekað gegn andlega fötluðu fólki en það hefur vakið hörð viðbrögð að aðeins einn maður hafi verið sóttur til saka. Fjórir aðrir karlmenn komu við sögu í málinu. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ævar Pálma Pálmason yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.
Jan 13, 2025•15 min•Ep. 395
Íslenska pítusósan sem E. Finnsson hefur selt í nærri fjóra áratugi er ekki til í neinu öðru landi í heiminum. Íslendingar flytja hana með sér á milli landa eða reyna að endurgera hana í eldhúsunum sínum. Hver er saga þessarar sósu og hver er maðurinn á bak við E. Finnsson? Umsjón: Ingi F. Vilhjálmsson
Jan 10, 2025•16 min•Ep. 394
Kettlingurinn Dimma var fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem skætt afbrigði fuglaflensunnar dró til dauða. Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir MAST, hefur áhyggjur af því að veiran beiðist út meðal fleiri spendýra. Við heimsækjum Önnu Karen Sigurðadóttur dýralækni á Keldum og spyrjum hvort fuglaflensan geti orðið faraldur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Jan 09, 2025•17 min•Ep. 393
Fjallað um kaup Útgerðarfélags Reykjavíkur, áður Brims, á 1500 tonna kvóta útgerðarfyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði fyrir 7,5 milljarða króna. Þórsberg er stærsta útgerðin á Tálknafirði og önnur stærsta útgerðin í Vesturbyggð, aðeins Oddi hf. á Patreksfirði er stærri. Hvaða áhrif má áætla að þessi viðskipti með aflaheimildir Þórsbergs muni hafa fyrir sveitarfélagið? Rætt er við Gerði Björk Sveinsdóttur, bæjarstjóra í Vesturbyggð, Halldór Árnason, sjómann á Patreksfirði, Örn Pálsson, framkvæ...
Jan 08, 2025•15 min•Ep. 392
Bókin It ends with us eða Þessu lýkur hér fjallar um hvernig rjúfa megi vítahring heimilisofbeldis. Bókin varð Tiktok-hittari og síðar kvikmynd. Við upptökur myndarinnar spunnust deilur milli aðalleikaranna Blake Lively og Justin Baldoni sem svipa til söguþráðarins. Útgefandi bókarinnar hér á landi, Birgitta Elín Hassel og Tiktok-fréttakona Rúv, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, sögðu Þóru Tómasdóttur frá málinu.
Jan 07, 2025•17 min•Ep. 391
Metta Sport er íslenskt fatamerki sem selur æfingaföt. Fyrirtækið hefur vaxið ævintýralega á liðnum árum og jukust tekjur þess um 256 prósent á milli áranna 2022 og 2023. Markhópurinn er aðallega börn og ungt frá 10 til 30 ára. Árið 2022 seldi fyrirtækið vörur fyrir tæplega 107 milljónir króna en 2023 námu tekjurnar 357 milljónum og hagnaðurinn nærri 100 milljónum. Hver er ástæðan fyrir þessum miklum uppgangi Metta Sport? Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Jan 06, 2025•15 min•Ep. 390
Þættirnir Say Nothing á streymisveitunni Disney hafa flett ofan af gömlum sárum írsku þjóðarinnar og hrundið af stað umræðu um óuppgerða glæpi frá óreirðartímum síðustu aldar. Þeir segja frá aðild tveggja systra í voðaverkum írska lýðveldishersins, ÍRA. Sólveig Jónsdóttir rithöfundur segir frá rannsóknarvinnunni að baki þáttunum. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Jan 03, 2025•16 min•Ep. 389
Íþróttafélögin FH og Haukar í Hafnarfirði hafa mikil ítök og áhrif á bæjarmálapólitíkina í Hafnarfirði. Nýi bæjarstjórinn segir að vægi þessara íþróttafélaga í samfélaginu í Hafnarfirði sé meira en gengur og gerist í öðrum sveitarfélögum sem hann þekkir til í. Fyrrverandi bæjarfulltrúi segir allt of lengi hafi hagsmunir þessara tveggja félaga litað kosningar og ákvarðanatöku í Hafnarfirði of mikið. Fjallað er um þetta í tengslum við nýlega umræðu um byggingu knatthússins Skessunnar í Hafnarfirði...
Jan 02, 2025•17 min•Ep. 388
Rík hefð er fyrir því að bera fram rjúpur á aðfangadagskvöld. Uppskriftir af máltíðinni hafa gengið kynslóða á milli í langan tíma. Á undanförnum áratug hefur svokallaði nýji mátinn orðið sívinsælli eldunaraðferð. Reipitogið milli nýja og gamla tímans, um hvort sé betra að sjóða rjúpur eða snöggsteikja þær, það er umræðan í þessum þætti. Við heyrum af deilum feðganna Torfa Hjálmarssonar og Freys Torfasonar um nákvæmlega það. Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson segir okkur frá eldunaraðferðu...
Dec 20, 2024•15 min•Ep. 387
Fyrirtæki fyrverandi formanns FH, Best hús, fékk tæpar 400 milljónir króna frá félaginu vegna byggingar knatthúss í Hafnarfirði. Hann heitir Jón Rúnar Halldórsson og var formaður FH frá 2005 til 2019. Bróðir Jóns, Viðar Halldórsson, er formaður FH og stýrði byggingaframkvæmdum og bókhaldinu þegar knatthúsið var byggt. Hann fékk greiddar tæpar 73 milljónir króna fyrir þetta. Hafnarfjarðarbær íhugar nú að kaupa knatthúsið og fékk Deloitte til að vinna greiningu á viðskiptunum með knatthúsið. Þar k...
Dec 19, 2024•15 min•Ep. 386
Í þessum þætti fjöllum við um lítið lag sem vekur sterk hughrif. Lagið Ó helga nótt er stundum kallað krúnudjásn jólalagabankans. Jólalegasta jólalag allra tíma. En kynslóðunum ber ekki saman um hvaða útgáfa af laginu er sú allra fegursta. Við leitum álits hjá Sigga Gunnars, Sigríði Thorlacius, Björgvini Halldórssyni og Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Dec 18, 2024•16 min•Ep. 385
Bandarísk þingnefnd skrifaði nýlega bréf til tveggja ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps þar sem hún lýsir áhyggjum af mögulegum njósnum Kína á Íslandi. Njósnirnar eiga mögulega að geta farið fram í gegnum norðurljósamiðstöð Kína á Kárhóli í Þingeyjarsýslu. Starfsemi rannsóknarmiðstöðvarinnar er nokkuð dularfull og virðast íslensk stjórnvöld vita lítið um hana. Eftirlit Íslands með rannsóknarmiðstöðinni er sömuleiðis ekkert. Rætt er við Bjarna Má Magnússon, deildarforseta lögfræðideildar Háskó...
Dec 17, 2024•16 min•Ep. 384
Í þessum þætti ræðum við um hvort það sé góð þróun að stórfyrirtæki hyggjist ráðast í byggingu og rekstur leikskóla. Viðmælendur eru Jóhann G. Jóhannsson hjá Alvotech, Svava Björg Mörk lektor í leikskóalfræðum og hjónin Sandra Pétursdóttir og Arnór Jónsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Dec 16, 2024•15 min•Ep. 383