Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Ránið á Villa villisvíni upplýst

Ráðgátan um uppstoppaða pólska villisvínið Villa vakti athygli þegar Þetta helst fjallaði um hana í síðasta mánuði. Danskur TikTok-áhrifavaldur tók málið meðal annars upp þar í landi. Málið fjallar um það að uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1996. Árið 2015 var villisvíninu skilað til fjöslkyldunnar. Í þessum þætti af Þetta helst er fjallað um ferðalag villisvínsins á þessum árum og sagt frá því hvar það var og hver ...

Dec 13, 202415 minEp. 382

Vilja friðlýsa Hólavallakirkjugarð

Minjastofnun og Kirkjugarðar Reykjavíkur vilja fá Hólavallakirkjugarð í miðbæ Reykjavíkur friðlýstan af umhverfisráðherra. Við litum inn í garðinn og hittum þar Heimi Björn Janusarson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Dec 12, 202416 minEp. 381

Jólasýning Þjóðleikhússins og myrk saga Spánar

Í Þjóðleikhúsinu um jólin verður sett upp leikrit sem byggir á verki spænska skáldsins Federico García Lorca, Yerma. Kjarninn í verkinu snýst um þrá aðalsöguhetjunnar eftir því að eignast barn. Ástrálski leikhúsmaðurinn Simon Stone skrifar sjálfstætt verk sem byggir á þessu leikriti Lorca. Rætt er við Margréti Jónsdóttur Njarðvík sem kenndi spænskar bókmenntir um árabil og þýddi leikrit Lorca á sínum tíma og þýðanda leikrits Simon Stone, Júlíu Margréti Einarsdóttur. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmss...

Dec 11, 202416 minEp. 380

Sýrlendingar á Íslandi vilja endurreisa heimalandið

Kinan Kadoni og Fayrouz Nouh flúðu stíðið í Sýrlandi og settust að á Íslandi. Eftir að Assad missti völdin í landinu leitar hugur þeirra aftur heim. Þau vonast til að friður komist á og vilja taka þátt í að endurreisa Sýrland. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau og Ólöfu Ragnarsdóttur fréttamann Rúv og sérfræðing í málefnum Mið-Austurlanda.

Dec 10, 202416 minEp. 379

Heidelberg-málið í Ölfusi: ,,Þetta eru mjög óþægileg tengsl"

Guðmundur Oddgeirsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Íbúalistans í Ölfusi, segir að tengsl Elliða Vignissonar bæjarstjóra og Grétars Inga Erlendssonar bæjarfulltrúa við námufjárfesta í bænum séu óþægileg. Þýska sementsfyrirtækið Heidelberg vill byggja mölunarverksmiðju í bænum og stendur íbúakosning nú yfir um verkefnið. Íslenskir námufjárfestar í Ölfusi, meðal annars Einars Sigurðsson útgerðarmaður, eru viðskiptafélagar þýska fyrirtækisins. Bæði Elliði og Grétar Ingi tengjast þessum fjárfestum og v...

Dec 06, 202414 minEp. 378

Aðstæður í íslenskum svínabúum

Er svínarækt á Íslandi verksmiðjubúskapur þar sem dýravelferð lútir í lægra haldi fyrir hagkvæmnisjónarmiðum eða nútímaleg búgrein undir ströngu eftirliti? Þóra Tómasdóttir ræðir við svínabóndann Ingva Stefánsson, Þóru Jónasdóttur yfirdýralækni MAST og Rósu Líf Darradóttur hjá samtökum um dýravelferð á Íslandi.

Dec 05, 202415 minEp. 377

Saka svínabændur um verskmiðjubúskap

Enginn á að vera hryggur um jólin, segir í auglýsingaherferð Samtaka um dýravelferð á Íslandi. Fulltrúar samtakanna segja velferð svína lúti í lægra haldi fyrir hagkvæmnissjónarmiðum ræktenda. Við ræðum við Rósu Líf Darradóttur hjá samtökunum, Þóru Jóhönnu Jónasdóttur yfirdýralækni Mast og svínaræktandann Ingva Stefánsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Dec 04, 202417 minEp. 376

Kirkja Ingu Sæland stendur á tímamótum

Ótrúlegur árangur Flokks fólksins í kosningunum um helgina flokkast til mikilla tíðinda. Hvern hefði grunað að flokkur sem var stofnaður fyrir einungis átta árum myndi skáka sjálfum Sjálfstæðisflokknum í einu traustasta vígi flokksins í Suðurkjördæmi og fá 20 prósent atkvæðanna? Flokkurinn bætir við sig fjórum þingmönnum, er kominn með 10 þingmenn. Hann er kominn í stjórnarmyndunarviðræður með Samfylkingu og Viðreisn eftir atburði morgunsins. En hvernig stjórnmálaflokkur er þetta og hvaðan kemur...

Dec 03, 202416 minEp. 375

Stjórnmálamenn þurfa meira aðhald

Ingibjörg Þórðardóttir fylgist með stjórnmálunum úr annarri átt en við hér heima. Hún hefur gegnt ýmsum ritstjórastörfum fyrir CNN og breska ríkisútvarpið BBC. Hún rýndi stjórnmálastöðuna með Þóru Tómasdóttur ræddi við hana um glænýja stöðu í íslenskum stjórnmálum eftiralþingiskosningar. Ingibjörg kallar eftir meira aðhaldi fjölmiðla með loforðum stjórnmálamanna.

Dec 02, 202415 minEp. 374

Raddir íbúa í Ölfusi um verksmiðju Heidelberg

Þýska sementsfyrirtækið Heidelberg hélt íbúafundi Í Þorlákshöfn á miðvikudaginn þar sem fjallað var um umdeilda mölunarverksmiðju sem fyrirtækið vill byggja í útjaðri bæjarins. Fjölmenni var á fundinum og eru skoðanir á verksmiðjunni skiptar. Íbúakosning stendur nú yfir um verksmiðjuna. Í henni stendur til að mala móberg sem tekið verður úr námum í Ölfusi og afar sjávarbotni við Landeyjar. Móbergið verður svo notað til að búa til sement sem notað er í steypu. Þetta helst fór á fundinn, hlustaði ...

Nov 29, 202413 minEp. 373

Húsnæðismálin og áhyggjur unga fólksins

Áhyggjur ungs fólks á menntaskólaaldri af húsnæðismálum er nýlegur veruleiki hér á landi. Hvenær og hvernig mun það geta eignast eigið húsnæði? Þessar áhyggjur á komu vel í ljós á framboðsfundi í Menntaskólanum í Mosfellsbæ þar sem frambjóðendur allra flokka nema tveggja sátu fyrir svörum og spjölluðu við nemendurna. Húsnæðismálin voru fyrsta málið á dagskrá en svo var líka slegið á léttari strengi um ananas á pítsur og notkun rafmagnshlaupahjóla undir áhrifum áfengis. Góð stemning var á fundinu...

Nov 28, 202415 minEp. 372

Eftirsótta barnabókasafnið hennar Rósu

Bókasafnsfræðingurinn Rósa Björg Jónsdóttir hefur sankað að sér barnabókum á öllum heimsins tungumálum og lánað börnum sem vilja lesa á sínu móðurmáli. Miðað við hve eftirsóttar bækurnar hennar eru, mætti ætla að börn hafi meiri áhuga á lestri en stundum er haldið fram. Þóra Tómasdóttir heimsótti Rósu á bókasafninu.

Nov 27, 202415 minEp. 371

Fylgi íhaldssamari flokka til hægri vanmetið í könnunum

Niðurstöður úr rannsóknum tveggja stjórnmálafræðinga benda til þess að fylgi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins sé vanmetið í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga. Að sama skapi má ætla að fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar sé ofmetið. Rannsóknirnar byggja á síðustu þremur Alþingiskosningum. Árið 2016, 2017 og 2021. Rætt er við Agnar Freyr Helgason, dósent í stjórnmálafræði, um þessar rannsóknir. Hann er höfundur kafla í glænýrri bók um stjórnmálafræði ásamt Evu H. Önn...

Nov 26, 202416 minEp. 370

Átakafundurinn í Ölfusi: ,,Ég ákvað að fara áður en það verða slagsmál”

Í dag hefjast bindandi íbúakosningar um umdeilda mölunarverksmiðju þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg í sveitarfélaginu Ölfusi. Meirihlutinn í sveitarfélaginu hélt sinn fyrsta íbúafund um verksmiðjuna í salnum Versölum í Þorlákshöfn á fimmtudaginn í síðustu viku. Þar var tekist á um verksmiðjuna, svo vægt sé til orða tekið. Birtar eru upptökur af fundinum og rætt við bæjarfulltrúa og íbúa um verksmiðjuna. Í þættinum heyrist í þeim Ingibjörgu Ingvadóttur, Gunnsteini Ómarssyni, Elínu Fanndal, H...

Nov 25, 202417 minEp. 369

Sniðganga Storytel

Rithöfundasambandið hvetur félagsmenn til að sniðganga Storytel vegna hlægilegra greiðslna frá streymisveitunni. Við ræðum um Storytel og sambærilegar streymisveitur við Margréti Tryggvadóttur formann Rithöfudnasambands Íslands og Ólaf Jóhann Ólafsson rithöfund og fyrrum aðstoðarforstjóra Time Warner. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Nov 22, 202415 minEp. 368

Ráðgátan um Villa villisvín

Uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1997. Villisvínið hafði þá verið í eigu fjölskyldunnar sem átti það í tæpan áratug og hafði fengið nafnið Villi. 18 árum síðar var villisvíninu skilað til eigenda sinna sem þá bjuggu í Kópavogi. Með því fylgdi dagbók sem það hafði ritað um árabil og fótósjoppaðar myndir af ferðum þess um heiminn. Hákon Björn Högnason, sonur hjónanna sem keyptu villisvínið á markaði í Póllandi árið 19...

Nov 21, 202415 minEp. 367

Kergjan út í Storytel

Rithöfundasamband Íslands hefur hvatt félagsmenn sína til að setja bækur sínar ekki inn á streymisveitinuna Storytel. Ástæðan er að sambandinu þykja greiðslur Storytel til rétthafa, hlægilegar lágar. Við ræðum um kergjuna sem grasserar meðal rithöfunda og útgefanda í garð Storytel við þau Egil Örn Jóhannsson fyrrum útgefanda, Árna Matthíasson blaðamann og Lísu Björk Óskarsdóttur landsstjóra Storytel á Íslandi.

Nov 20, 202417 minEp. 366

Á fimm ára afmæli Namibíumáls Samherja

Rannsókn Samherjamálsins í Namibíu er á lokametrunum hjá embætti héraðssaksóknara. Í kjölfarið mun málið verða sent til saksóknara hjá embættinu sem mun ákveða hvort ákært verður í því eða ekki. Fimm ár eru liðin frá því málið kom upp í fjölmiðlum. Þessara tímamóta var minnst í Namibíu í síðustu viku. Þá gáfu samtökin IPPR út skýrslu um áhrfi Samherjamálsins á sjómenn og fiskverkafólk sem vann hjá fyrirtækinu. Rætt er við starfsmann samtakanna, Graham Hopwood og Ólaf Hauksson hjá embætti héraðss...

Nov 19, 202415 minEp. 365

Óttast að réttindagæsla fatlaðra lognist útaf

Réttindagæslumenn fatlaðs fólks óttast að rof verði á þjónustu við fatlaða þegar frestun hefur orðið á að Mannréttindastofnun Íslands taki til starfa. Réttindagæslan segir þung mál á þeirra borði sem m.a. varði ofbeldi gegn fötluðum, sem ekki megi við töfum. Rætt er við Jón Þorstein Sigurðsson hjá réttindagæslunni og Margréti Steinarsdóttur hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Nov 18, 202417 minEp. 364

Hlustað á frambjóðendur og kjósendur tala saman

Frambjóðendur stjórnmálaflokka verja nú dágóðum tíma í að hitta og tala við kjósendur. Kosið verður til Alþingis eftir rúmar tvær vikur. Á fimmtudaginn bauð Fjölbrautaskólinn í Breiðholti frambjóðendum úr ölllum flokkum í heimsókn til að hitta nemendur skólans og ræða við þá um stjórnmálin. Þetta helst fór á samkomuna og fékk að vera með í samtölum nemendanna við frambjóðendur og spyrja nokkurra spurninga. Eftir þá heimsókn má eiginlega fullyrða að það eru húsnæðismálin og líka geðheilbrigðismál...

Nov 15, 202416 minEp. 363

Njósnafyrirtækið Black Cube sem líklega gabbaði son Jóns Gunnarssonar

Fyrirtækið Black Cube hefur ratað í fréttir um allan heim fyrir óvægnar aðgerðir sínar í þágu viðskiptavina sinna. Meðal þeirra var kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein. Í þessum þætti fjöllum við um aðferðir Black Cube og fólkið sem hefur orðið fyrir þeim. Umsjón Þóra Tómasdóttir.

Nov 14, 202414 minEp. 362

Tilkynnt um einkavæðingu offituaðgerða rétt fyrir kosningar

Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að einkavæða svokallaðar efnaskiptaaðgerðir, skurðaðgerðir eins og magaermi til að vinna gegn offitu. Þetta er í fyrsta skipti sem til stendur að gera þessar aðgerðir með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins. Frá þessari stefnubreytingu var greint aftast í fréttatilkynningu um samninga um ,,lýðheilsutengdar aðgerðir” í byrjun nóvember. Um er að ræða enn eitt aðgerðaformið sem er einkarekstrarvætt hér á landi á liðnum árum. Talsvert hefur gengið á hjá Sjúkratr...

Nov 13, 202414 minEp. 361

Boðar lausn við mengun frá líkbrennslu

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir fer fyrir Tré lífsins sem gjarnan vill reisa nýja bálstofu með mengunarvörnum í Garðabæ. Bálstofan í Fossvogi mengar svo mikið að nágrannar eru orðnir langþreyttir. Sigríður Bylgja segir hins vegar að fyrirstaðan fyrir framkvæmdunum sé svaraleysi frá dómsmálaráðherra. Við heimsækjum Sigríði Bylgju og spyrjum Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra út í málið. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Nov 12, 202416 minEp. 360

Umhverfi túlkafyrirtækja er eins og ,,villta vestrið"

Tveir starfsmenn Háskóla Íslands segja laga- og regluverk sem gildir um túlkaþjónustu hér á landi vera í miklum ólestri. Kaup opinberra aðila á túlkaþjónustu hafa stóruakist með auknum fjölda innflytjenda hér á landi en regluverkið hefur ekki haldið í við þessar breytingar. Ingi Freyr Vilhjálmsson ræðir við þau Gauta Kristmannsson og Birnu Imsland um málið. Gauti segir umhverfi þessara fyrirtækja vera eins og ,,villta vestrið" og Birna kallar eftir ,,pólitískum vilja" til breytinga. Í þættinum e...

Nov 11, 202416 minEp. 359

Hvernig ákveður fólk hvað það ætlar að kjósa?

Fylgi stjórnmálaflokkanna er á fleygiferð nú þegar 22 dagar eru til Alþingiskosninga. Hvað ræður úrslitum þegar fólk gerir upp hug sinn og ákveður hvaða flokk það ætlar að kjósa? Við spurðum kjósendur á hverju þeir byggja sínar ákvarðanir.

Nov 08, 202415 minEp. 358

Svona dagaði laxeldisfrumvarpið uppi: Hvað gerist eftir kosningar?

Lagareldisfrumvarpið varð að lögum áður en ríkisstjórn Sjálfstæðis-, Framsóknarflokks og Vinstri grænna sprakk nú í haust. Þetta frumvarp var einn af af nokkrum stórum ásteytingarsteinum í stjórninni. Af hverju náðist ekki samkomulag um frumvarpið á milli stjórnarflokkanna og hvað verður um þetta mál? Rætt er við Þórarinn Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins og formann atvinnuveganefndar, og Gísla Rafn Ólafsson, þingmann Pírata og fyrrverandi formanna atvinnuveganefndar, sem segja frá því...

Nov 07, 202416 minEp. 357

Mengandi líkbrennsla í Fossvoginum

Bálstofan í Fossvogi er elsta bálstofa á Norðurlöndum. Þegar lík eru brennd í bálstofunni kemur frá henni reykur sem stundum leggst yfir náliggjandi leik- og grunnskóla. Í skólunum eru meðal annars börn með viðkvæm lungu sem ekki geta leikið sér úti þegar er logn og reykurinn er mikill. Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, hefur reynt að vinda ofan af vandamálinu. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann, og Arnar Þór Gunnarsson starfsmann bálstofunnar. Einnig er rætt v...

Nov 06, 202415 minEp. 356

Tangóinn um verksmiðjuna í Þorlákshöfn

Þátturinn í dag er tekinn upp í bænum Þorlákshöfn í sveitarfélaginu Ölfusi á Suðurlandi á fallegum mánudegi í byrjun nóvember. Í lok síðustu viku greindi Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, frá því að nú í nóvember verði bindandi kosning meðal íbúa um mölunarverksmiðju þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg. Verkefnið hefur verið umdeilt í Ölfusi um langt skeið og eru skoðanir skiptar. Þetta helst tók nokkra íbúa tali og spurði þá um skoðanir þeirra á verksmiðjunni.

Nov 05, 202415 minEp. 355

Frændhygli í skátunum og fjárreiður bandalagsins

Starfsemi Bandalags íslenskra skáta hefur verið talsvert til umræðu í vikunni eftir að Kveikur fjallaði um fjárreiður félagsins. Í þættinum var sagt frá ferðalagi rúmlega 100 barna á skátamót í Suður-Kóreu í fyrra. Börnin fjármögnuðu ferðina sjálf með fjáröflunum, fermingarpeningum og öðru slíku. Sex milljón króna afgangur var af ferðasjóðnum og runnu þessir peningar í starfsmannakostnað, sögðu fararstjórar í Kveik. Samkvæmt umfjölluninni var umsýslukostnaðurinn í heildina rúmlega 8 milljónir. F...

Nov 01, 202415 minEp. 354

Skrautleg slóð Pakistanans Munir á Íslandi

Í þessum þætti ræðum við um mann sem rekur veitingastaði í Keflavík og í Vatnajökulsþjóðgarði en sætir lögreglurannsókn á ýmis konar brotum. Hann hefur ítrekað fengið verkalýðshreyfinguna og lögreglu á dyr hjá sér og er sakaður um að misnota aðstæður erlends starfsfólks. Meðal annars hælisleitanda sem bjó á hóteli viðskiptafélaga hans. Þóra Tómasdóttir ræddi við Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur formann Afls og Guðbjörgu Kristmundsdóttur formann í verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur.

Oct 31, 202416 minEp. 353
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android