Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Norska fordæmið: Er hægt að banna starfsmannaleigur á Íslandi?

Ellefu starfsmannaleigur í Noregi hafa stefnt norska ríkinu fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að þrjú sveitarfélög þar í landi bönnuðu starfsemi þeirra. Málið er fordæmisgefandi fyrir önnur ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), meðal annars Ísland. Þessi málaferli eru í þættinum sett í samhengi við mikla umræðu sem var um starfsmannaleigur hér í landi í lok september og byrjun október. Sú umræða kom í kjölfar þess að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um aðbúnað manna frá Austur-Evró...

Oct 30, 202415 minEp. 352

Virkjunin í Vatnsdalsá sem sumir vilja ekki sjá

Í þættinum í dag verður fjallað um fyrirhugaða vatnsaflsvirkjun Orkusölunnar efst í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu. Frétt um virkjunina birtist á forsíðu Morgunablaðsins þann 8. október. Um var að ræða fyrstu tíðindin sem bændur og landeigendur í Vatnsdal höfðu heyrt um virkjunina. Fréttin snerist um það að Orkusalan hefði keypt jörðina Forsælu sem er ofarlega í Vatnsdal og íhugaði að byggja þar virkjun. Hrossabóndi í Gilsstöðum í Vatnsdal, Kristján Þorbjörnsson, segir að það sé útilokað að Orkusal...

Oct 29, 202414 minEp. 351

Hvernig myndast vinátta í tölvuleikjum?

Hilmar Veigar Pétursson stofnandi tölvuleikjarins Eve Online ræðir um hvað það er í tölvuleikjum sem stuðlar að vináttu milli spilara. Hvernig vinátta myndast við slikar aðstæður og hvers vegna foreldrar fara stundum á mis við félagsleg tengsl barna í töluvleikjum. Við fjöllum einnig um kvikmyndina Ibelin sem nú er aðgengileg á Netflix og fjallar um vinasambönd í World of Warcraft. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Oct 28, 202418 minEp. 350

Er að gefast upp eftir 33 ár í löggunni

Ragnar Jónsson er blóðferlasérfræðingur í tæknideild lögreglunnar. Hann hefur verið lögreglumaður í 33 ár og elskar starfið sitt. En þetta ár hefur verið það erfiðasta á hans ferli og nú er svo komið að hann er farinn að hugsa sér til hreyfings. Átta manndrápsmál á árinu hafa tekið sinn toll. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann.

Oct 25, 202416 minEp. 349

Bókaþjófurinn hrellir rithöfunda á ný

Í þessum þætti er rætt um mann sem varð heimsþekktur fyrir að stela óútgefnum handritum rithöfunda. Mann sem flestir töldu að hefði verið stoppaður af, eftir að alríkislögreglan í Bandaríkjunum handtók hann fyrir nokkrum árum. En nei. Sunna Dís Másdóttir fékk að kynnast þjófnum á dögunum, rétt fyrir útgáfu nýrrar skáldsögu hennar. Friðgeir Einarsson, kollegi hennar, hefur kafað ofan í málið. Þóra Tómasdóttir talaði við þau.

Oct 24, 202416 minEp. 348

Hvað á að gera við norskar ÍSIS-konur?

Fyrir ellefu árum tóku tvær norskar unglingssystur ákvörðun um að halda til Sýrlands og giftast vígamönnum ÍSIS. Þær þurfa að svara fyrir ákvörðunina í réttarsal í Noregi næstu sex vikurnar. Voru þær virkir þátttakendur í hryðjuverkasamtökunum eða fangar án nokkurrar undankomuleiðar? Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður Rúv og Christine Svendsen fréttamaður NRK segja frá. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Oct 23, 202417 minEp. 347

Vandinn á Stuðlum og leiðin áfram

Hvers vegna er stigmögnun í vanda og ofbeldisbrotum ungmenna? Hvernig á að grípa í handbremsuna til að stöðva þessa þróun? Viðmælendur okkar fylgjast með vandanum úr ólíkum áttum og greina bæði versnandi ástand. Þóra Tómasdóttir ræddi við Halldór Þormar Halldórsson og Önnu Kristínu Newton.

Oct 22, 202417 minEp. 346

Engin samræming er í hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum

Engin lög eða reglur gilda um það að hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum sé birt opinberlega. Sveitarfélögum er því í sjálfsvald sett hvort þau krefja kjörna fulltrúa um slíka hagsmunaskráningu eða ekki. Í þættinum var fyrir skömmu fjallað um það formaður bæjarráðs í sveitarfélaginu Ölfusi, Grétar Ingi Erlendsson, hefði vikið af fundi bæjarrstjórnar þar sem teknar voru ákvarðanir sem snertu fyrirtæki sem hann og konan hans eru stórir hluthafar í. Í ljós kom að fulltrúar minnihlu...

Oct 21, 202416 minEp. 345

Áfengissull eldri borgara

Þegar fólk hættir að vinna eða upplifir hlutverkamissi í lífinu eru auknar líkur á að áfengisneysla aukist. Í þessum þætti ræðum við um hvernig aukin áfengisneysla eldri borgara birtist í heilbrigðiskerfinu. Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir á Landspítalanum, hefur kynnst vandanum í sínu starfi. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Oct 18, 202417 minEp. 344

Límið í sögulegum ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins og ,,sósíalista”

Með slitum Bjarna Benediktssonar á ríkisstjórnarsamstarfinu við Vinstri græna og Framsóknarflokksins lýkur sögulegu tímabili í íslenskri stjórnmálasögu. Einungis einu sinni áður hafði Sjálfstæðisflokkurinn unnið með þeim flokki sem er lengt til vinstri á Alþingi. Þetta var árunum 1944 til 1947 þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Sósalístaflokkurinn ,,eyddu flokkarígnum og sameinuðu krafta sína”, eins og Ólafur Thors formaður Sjálfstæðisflokksins orðaði það. Hann varð forsætisráðherra í Nýsköpunarstjó...

Oct 17, 202416 minEp. 343

Aðkoma geðlæknis að umfangsmiklu svikamáli

Í þessum þætti fjöllum við um hvers vegna þekktur geðlæknir var sviptur starfsleyfi sínu í fyrra. Læknirinn segist hafa verið blekktur til að skrifa uppá sterk lyf fyrir látna konu. Stofunótur og gögn frá lækninum hafa vakið upp grunsemdir rannsakenda.

Oct 16, 202416 minEp. 342

Valdi VG versta kostinn af þremur?: Stjórnarslitin og framtíð flokksins

Einn afdrifaríkasti atburðurinn í aðdraganda stjórnarslitanna var landsfundur VG fyrir rúmri viku. Á fundinum var samþykkt tillaga um að slíta stjórnarsamstarfinu næsta vor. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vissi því að dagar ríkisstjórnarinnar væru taldir og ákvað að slíta samstarfinu sjálfur eftir þetta. VG hafði þrjá kosti í stöðunni og valdi þennan. Í þættinum í dag er rætt við tvo meðlimi í fulltrúaráði VG um þessa atburðarás, stjórnarsamstarfið og framtíð flokksins. Þetta eru þær Álfhe...

Oct 15, 202416 minEp. 341

Hvernig skipuleggur maður kosningar á sex vikum? Landskjörstjórn brettir upp ermar!

Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri landskjörstjórnar var stödd í Kringlunni þegar Bjarni Benediktsson sleit ríkisstjórnarsamstarfinu í beinni útsendingu í gær. Við þær aðstæður hóf hún að hringja fyrstu símtölin um hvernig best sé að undirbúa kosningar. Í þessum þætti heyrum við af fyrstu verkum landskjörstjórnar, að hverju þarf að huga og hvað sé mesti höfuðverkurinn. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana og Kristínu Edwald formann landskjörstjórnar.

Oct 14, 202415 minEp. 340

Kvarta undan starfsmannaleigunni Norbygg í Hveragerði

Lettarnir Sandris Slogis og Egils Baldonis unnu hjá starfsmannaleigunni Norbygg hér á landi. Báðir lentu í erfiðleikum sem tengjast þessari vinnu þeirra fyrir Norbygg. Þessi starfsmannaleiga er skráð í Hveragerði á Suðurlandi og er í eigu lettneskrar konu sem heitir Ilona Osmana. Málefni starfsmannaleigna hafa mikið verið í umræðunni síðustu vikurnar eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um þær í lok september. Í þættinum voru meðal annars birt viðtöl við Sandris og Egils um reynslu ...

Oct 10, 202416 minEp. 339

,,Það eru allir Miðflokksmenn þessa dagana"

Miðflokkurinn mælist nú með næstum því jafn mikið fylgi og allir ríkisstjórnarflokkarnir til samans. Það er óhætt að segja að það sé létt yfir fólkinu í flokknum í þessum svakalega meðbyr. Þetta helst fylgdi þingmanninum Bergþóri Ólasyni eftir brot úr degi og fékk nasaþef af stemningunni í flokknum fyrir mikilvægan fund hans um helgina.

Oct 09, 202416 minEp. 338

Saga Constantins og dómsmálið gegn starfsmannaleigunni Seiglu

Þegar Rúmeninn Constantin Barbieru Manolache hætti að vinna hjá starfsmannaleigunni Seiglu í mars í fyrra fékk hann ekki greidd laun fyrir síðasta mánuðinn. Constantin hafði fengið fimm menn frá bænum sem hann kemur frá í Rúmeníu hingað til lands í vinnu. Þeir voru í sömu stöðu og Constantin og áttu inni laun hjá Seiglu sem þeir fengu ekki greidd. Constantin fann til ábyrgðar gagnvart þeim vegna þess að hann hafði fengið þá hingað til lands. Constantin segir frá reynslu sinni af Seiglu í þættinu...

Oct 08, 202415 minEp. 337

Ráðgátan um rússneskumælandi svikahrapp

Þegar lögregla var kölluð að heimili í Reykjavík í fyrra vor, vegna gruns um heimilisofbeldi, komst hún óvænt á spor svikahrapps sem á sér ekki hliðstæðu á Íslandi. Svindl hans virðist teygja anga sína um heilbrigðis- og velferðarkerfi landsins og langt út fyrir landsteinana. Svindlið hleypur á i tugum milljóna króna, það hefur kostað geðlækni læknisleyfið og útheimt óheyrilega rannsóknarvinnu. Í þessum þætti fáum við að heyra af því hvernig ára löng svikamylla hefur raknað upp. Þóra Tómasdóttir...

Oct 07, 202417 minEp. 336

Kjarabrotamálin hjá verkalýðshreyfingunni gegn starfsmannaleigunni Seiglu

34 kjarabrotamál eru opin hjá Verkalýðsfélaginu Hlíf gegn starfsmannaleigunni Seiglu. Verkalýðshreyfingin hefur þurft að hafa ítrekuð afskipti af starfsmannaleigunni fyrir hönd félagsmanna sinna. Þessi afskipti hófust um vorið 2023 þegar starfsmaður Seiglu varð fyrir líkamsárás og Verkalýðsfélagið Hlíf þurfti að aðstoða hann. Síðan þá hafa tugir nýrra mála komið upp. Eigandi Seiglu og lögmaður starfsmannaleigunnar hafna ásökunum um kjarabrot gegn starfsmönnum. Í þættinum er rætt við Gundega Jaun...

Oct 04, 202418 minEp. 335

Saga JL-hússins- viðskiptahöll verður móttaka flóttafólks

JL-húsið er eins konar minnisvarði um sögu Vesturbæjar. Það var tákn um velsæld og blómleg viðskipti en síðustu ár hefur ólukka verið yfir þessu reisulega húsi. Nú verður húsið að úrræði Vinnumálastofunar fyrir hátt í 400 flóttamenn. Þóra Tómasdóttir rifjar upp sögu hússins og ræddi við tvo fyrrum eigendur þess, Skúla í Subway og Áslaugu Thorlacius skólastjóra Myndlistarskólans.

Oct 03, 202416 minEp. 334

Formaður bæjarráðs Ölfuss vill byggja 95 íbúðir í sveitarfélaginu

Formaður bæjarráðs Ölfuss, Grétar Ingi Erlendssson, á hlut í eignarhaldsfélagi sem ætlar að byggja tæplega 100 íbúðir í Ölfusi. Íbúðirnar eiga að rísa á svæði sem kallast Bakkamelur. Þetta svæði liggur við veginn á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Grétar Ingi er einn af eigendum félagsins Bakkamelur ehf. sem mun standa að byggingu íbúðanna. Viðskipti og framkvæmdir þessa félags eru nú til meðferðar hjá sveitarstjórn Ölfuss en gera þarf ráð fyrir íbúðunum í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í su...

Oct 02, 202417 minEp. 333

True Detective-áhrifin á kvikmyndageirann

Kvikmyndagerðarfólk segir fögur fyrirheit menningarmálaráðherra um meiri pening í kvikmyndasjóð hafi verið svikin. Þau telja að núverandi styrkjafyrirkomulag þjóni þörfum erlendra kvikmyndarisa en geri útaf við innlenda kvikmyndagerð og útiloki frumsköpun á íslensku efni. Þau hafa áhyggjur af True Detectice-áhrifunum. Við ræðum málið við Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra og kvikmyndaframleiðendurna Hilmar Sigurðsson og Göggu Jónsdóttur.

Oct 01, 202417 minEp. 332

Ríkisstyrkir til rafbílakaupa: Eitt fyrirtæki fékk rúmlega 100 milljónir af 510

Bifreiðaumboðið Brimborg fékk rúmlega 100 milljónir króna af þeim 510 sem íslenska ríkið veitti nýlega fyrirtækjum í ríkisstyrki til rafbílakaupa. Þá fær Brimborg líka stóran hluta af styrkjunum með óbeinum hætti þar sem stór hluti af fyrirtækjunum sem fá styrkina ætla að kaupa rafbíla af þessu umboði. Um er að ræða ríkisstyrki vegna kaupa á rafmagns vörubílum í atvinnuskyni. Samtals eru veittir styrkir vegna kaupa á 87 bifreiðum. Tilgangurinn er að ýta undir umhverfisvernd og orkuskipti með því...

Sep 30, 202416 minEp. 331

Skipulögð glæpastarfsemi Puff Daddy

Puff Daddy, eða Sean Combs eins og hann heitir, er ákærður fyrir að hafa í áraraðir stundað skipulagða glæpastarfsemi, mansal og kynlífsþrælkun. Saksóknari í New York segir hann hafa notað viðskiptaveldi sitt, Combs Enterprise, til að fremja brotin og hylma yfir þau. Árni Matthíasson tónlistarspekúlant hefur fylgst náið með málinu og telur litlar líkur á að Puff Daddy verði frjáls á ný. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann.

Sep 27, 202417 minEp. 330

Hversu mikinn þrótt hafa Líbanir?

Hvers vegna stigmagnast átökin milli Hezbollah og Ísraela nú? Við heyrum af því sem mótar líf fólks í Líbanon, hvaða áhrif sprengjuregn Ísraela hefur á þjóðina og hvernig málin blasa við frétta- og mannúðarstarfsfólki. Þóra Tómasdóttir ræddi við Láru Jónasdóttur frá Læknum án landamæra, Ólöfu Ragnarsdóttur fréttamann Rúv og Antoun Issa fyrrum fréttamann The Guardian.

Sep 26, 202417 minEp. 329

Svörtu sauðirnir í ferðaþjónustunni: 90 milljóna þrot og starfsfólk situr eftir

Í dag fjöllum við um misbresti í rekstri og regluverki í íslenskri ferðaþjónustu og áhrif þessa á starfsfólk í greininni. Fjallað hefur verið um þetta efni út frá mismunandi vinklum í síðustu tveimur þáttum. Ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Outventure varð gjaldþrota fyrr á árinu. Gjaldþrot félagsins er upp á um 90 milljónir króna, segir skiptastjórinn Helga Vala Helgadóttir. Eftir situr starfsfólk, aðallega verktakar, sem eiga háar kröfur á hendur félaginu. Eigandi ferðaþjónustunnar er með sam...

Sep 25, 202416 minEp. 328

Vill refsingar við launaþjófnaði og grimmara eftirlit með síbrotamönnum

Ekkert lát er á fréttum af brotum á erlendu starfsfólki á íslenskum vinnumarkaði. Launaþjófnaður, hótanir og skipulögð brotastarfsemi þrífst í byggingageiranum, ferðaþjónustu og veitingageira. Þóra Tómasdóttir ræðir við Finnbjörn Hermannsson forseta ASÍ um síbrotamenn og leiðir að bættum vinnumarkaði.

Sep 24, 202417 minEp. 327

Hótað brottrekstri fyrir að ganga í stéttarfélag

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um einstakt mál sem komið er fyrir félagsdóm. Málið snýst um hótun eiganda ferðaþjónustufyrirtækis í garð spænsks starfsmanns þess. Í spjalli á samfélagsmiðlinum Slack var starfsmanninum hótað brottrekstri ef hann gengi í stéttarfélag. Slíkar hótanir kallast union busting á ensku eða niðurbrot á stéttarfélagi á íslensku. Hið meinta brot í málinu snýr að því að óheimilt er að banna starfsmanni fyrirtækis að ganga í stéttarfélag. Þetta mál er birtingarmynd stór...

Sep 23, 202416 minEp. 326

Norskur læknir ákærður fyrir nauðganir á 88 sjúklingum

Í vikunni var héraðslæknir í litlu byggðinni Frosta, norður af Þrándheimi í Noregi, ákærður fyrir nauðganir gegn 88 konum. Konurnar voru sjúklingar mannsins og við þær aðstæður tók hann yfir sex þúsund klukkustundir af myndefni af konunum. Við ræðum málið við Henning Levold fréttamann NRK og heyrum lýsingar af samfélaginu frá Rósbjörgu Rósenberg sem bjó í Frosta fyrir skömmu.

Sep 20, 202415 minEp. 325

Vaxtavalsinn: Hvað ætlar um fjórðungur íslenskra heimila að gera?

Á þessum árshelmingi og fyrri hluta 2025 munu tæplega 350 milljarðar af húsnæðislánum losna undan vaxtabindingu. Þetta er um fjórðungur af öllum þeim sem eru með húsnæðislán á Íslandi. Um er að ræða fólk sem festi hjá sér vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum með breytilegum vöxtum þegar stýrivextir voru miklu lægri en þeir eru núna. Fjallað er um stöðu þessa stóra hóps í þættinum í dag. Hvað ætlar hann að gera þegar vextirnir hjá honum losna? Við ræðum málið við Steinunni Bragadóttur, hagfræðing ...

Sep 19, 202417 minEp. 324

Ofbeldið sem fylgir ópíóíðafíkn og heimilisleysi

Hæglega má fullyrða að á Íslandi sé ópíóíðafaraldur. Viðmælendur okkar í dag benda á að lítið sé talað um er ofbeldið sem verður daglegt brauð í lífi þeirra sem glíma við slíka fíkn. Við heimsækjum konu sem þekkir það af eigin raun. Hún segir neysluna harðari en áður, hnífaburður sé algengari og sífellt yngra fólk ánetjist efnunum á örskotsstundu. Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur í nýju neyslurými, tekur undir það.

Sep 18, 202417 minEp. 323
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android