Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Meðferðin á erlendu starfsfólki á veitingahúsum Elvars

Stéttarfélagið Efling stóð fyrir mótmælum fyrir framan veitingastaðinn Ítalíu í lok síðustu viku. Tilgangurinn var að mótmæla launaþjófnaði gegn starfsfólki sem stéttarfélagið segir að fari fram þar. Samkvæmt heimildum þá hefur Efling opnað rúmlega 20 mál fyrir hönd félagsmanna sinna gegn Ítalíu og öðrum veitingahúsi sem er í eigu sama fyrirtækis, Antico. Í Þetta helst í dag ræðir Ingi Freyr Vilhjálmsson við Slóvakann Erik Kristovco sem starfaði á veitingahúsinu Antico. Hann segist ekki hafa fen...

Sep 17, 202416 minEp. 322

Fötin sem við viljum ekki verða vandamál annarra

Í þessum þætti höldum við áfram að ræða um hið risastóra fjall af fötum og textíl sem safnast upp á Íslandi. Því neysla Íslendinga á fatnaði er svo gígantísk að við skerum okkur úr hópi annarra þjóða. Sorpa fær nú það verkefni að taka við fataúrgangi höfuðborgarbúa. Við ræðum við Gunnar Dofra Ólafsson samskiptastjóra Sorpu og Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur sem hefur skoðað skaðsemi hraðtískunnar. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.

Sep 16, 202417 minEp. 321

Fatafjallið sem safnast upp á Íslandi

Við heimsækjum fataflokkun Rauða krossins og skoðum magnið sem þjóðin hendir af textíl. Við ræðum við Guðbjörgu Rut Pálmadóttur sem hefur staðið við færibandið og flokkað föt í tólf ár. Þorbjörg Sandra Bakke, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir brýnna að skrúfa fyrir kranann en að ræða um hvernig best sé að endurnýta fatafjallið sem safnast upp hér á landi. Þóra Tómasdóttir ræddi við þær.

Sep 13, 202416 minEp. 320

Brasið á Brák og leigumarkaðurinn úti á landi

Mikill skortur er á leiguíbúðum víða á landsbyggðinni. 31 sveitarfélag stofnaði óhagnaðardrifið íbúðafélag, Brák, til að tryggja framboð á leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalitla. Brák hefur hins vegar ekki náð að klára þær íbúðir sem félagið lofaði að byggja. Staðan hefur haft àhrif á marga. Einn þeirra er Hilmar Þór Baldursson á Egilsstöðum Ingi F. Vilhjálmsson ræðir við hann og Einar Georgsson, framkvæmdastjóra Brákar, um íbúðafélagið. Einnig er rætt við Júlíu Sæmundsdóttur, félagsmálastjóra M...

Sep 12, 202413 minEp. 319

Græðgi í ræktun og eldi í landbúnaði

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um hættur sem steðja að íslenskum landbúnaði. Meðal annars í hrossa- og sauðfjárrækt, laxeldi í sjókvíum og eldi á hafbeitarlaxi. Fjallað er um nýja Landsáætlun erfðanefndar landsbúnaðarins. Ingi Freyr Vilhjálmsson ræðir við formann nefndarinar, Árna Bragason, sem lýsir áætluninni og áhyggjum sínum af því græðgi við ræktun og eldi á dýrum á Íslandi geti orðið umhyggju fyrir náttúrunni yfirsterkari.

Sep 10, 202416 minEp. 318

Fjöldamótmæli í Brasilíu og skautun í stjórnmálunum

Fjöldamótmæli voru í borginni Sao Paulo í Brasilíu um helgina. Í mótmælunum voru stuðningsmenn fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro meðal annars að láta í sér heyra vegna lokunar á samskiptaforritinu X, áður Twittter. Mótmælin eru enn ein birtingarmynd þeirrar miklu skautunar sem hefur átt sér stað í brasilískum stjórnmálum á liðnum árum. Á sitt hvorum pólnum eru núverandi forseti Lula og Bolsonaro. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur og Luciano Dutra um stöðuna sem kom er upp í stjórnmálum land...

Sep 09, 202417 minEp. 317

Dráttarvélaslys hafa kostað tugi barna og bænda lífið

79 banaslys hafa orðið vegna dráttavéla eða tengdra tækja í landbúnaði á Íslandi. Banaslys vegna dráttarvéla voru þrisvar sinnum algengari meðal barna en fullorðinna. Slysin urðu flest í kringum 1960-70 fyrir tíma áfallahjálpar. Því má ætla að fæstir hafi unnið úr þeim áföllum sem fylgdu dráttarvélaslysunum. Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði barna, sagði frá rannsóknum sínum á dráttarvélaslysum á Íslandi. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Sep 06, 202416 minEp. 316

Fundu sig í einu fátækasta landi í heimi, Gíneu-Bissaú

Í þessum þætti ræðum við um Gíneu Bissá, lítið land í vestur-Afríku sem er á topp tíu lista yfir lönd sem fæstir ferðamenn heimsækja. Hjónin Geir Gunnlaugsson læknir og Jónína Einarsdóttir mannfræðingur hafa verið með annan fótinn í Gíneu Bissá í rúm 40 ár. Þar hafa þau eignast góða vini, alið upp börn sín og stundað rannsóknir á ýmsum mannlegum málefnum. Við heyrum líka af kynnum þeirra af hljómsveitinni Super Mama Djombo. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.

Sep 05, 202417 minEp. 315

Nýr klettastígur í Esjunni

Í þessum þætti förum við eftir nýlögðum klettastíg sem reistur hefur verið um Fálkaklett í Esjunni. Stígurinn er í anda hinna ítölsku via ferrata leiða sem fyrst voru lagðar um klettabelti alpanna fyrir nokkur hundruð árum siðan og voru m.a. mikilvægar flóttaleiðir á stríðstímum. Það sem byrjaði sem galin og óraunhæf hugmynd vatt fljótt uppá sig. Ekki síst eftir að Haraldur Örn hafði samband við Fjallafélagann og þúsund þjalasmiðinn Stein Hrút Eiríksson. Þóra Tómasdóttir slóst með þeim í för.

Sep 04, 202417 minEp. 314

Finna sjaldgæfa erfðasjúkdóma með snjallsímum

Samtal hjónanna Lotta Maríu Ellingsen og Hans Tómasar Björnssonar við eldhúsborðið heima hjá þeim leiddu þau af stað í þróun á snjallforriti sem vonandi getur greint erfðasjúkadóma úr fingraförum fólks. Þau eru bæði prófessorar við Háskóla Íslands, hún er sérfræðingur í læknisfræðilegum myndgreiningum og hann í barnalækningum og erfðafræði. Nú hafa rannsóknir þeirra og samstarf við aðra vísindamenn getið af sér lofandi niðurstöður, ritrýnda vísindagrein og einkaleyfi á tækninni.

Sep 03, 202417 minEp. 313

Óbættur hjá garði í áratug: Líðan ekkju plastbarkaþegans

Rúm tíu ár eru liðin frá því að fyrsti plastbarkaþeginn í heiminum, Andemariam Beyene, lést. Hann var búsettur á Íslandi þegar hann var sendur til Svíþjóðar til að fá læknismferð vegna krabbameins í hálsi. Eftir að aðgerðin var gerð kom í ljós að hún hafði aldrei verið reynd á dýrum áður en hún var prófuð á mönnum. Ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini var dæmdur í fangelsi vegna plastbarkamálsins í fyrra. Ekkja Andemariams, Mehrawit, hefur reynt að fá skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna mál...

Sep 02, 202417 minEp. 312

Nístandi sorg í Neskaupstað

Sviplegt dauðsfall ungs manns sem lést af völdum voðaskots þegar hann var við gæsaveiðar við Hálslón, lagðist þungt á íbúa í heimabæ hans, Neskaupstað. Sama dag og haldin var minningarstund um hann var greint frá því að eldri hjón hafi fundist látin á heimili sínu í bænum. Lögregla handtók heimamann sem grunaður er um að vera valdur að dauða þeirra. Við heyrum hvernig fólki er rétt hjálparhönd í slíkum aðstæðum. Þóra Tómasdóttir ræddi við Benjamín Hrafn Böðvarsson prest í Norðfjarðarsókn og Sigu...

Aug 30, 202416 minEp. 311

Saga José Daniel: Frá dósasöfnun til mannúðarleyfis

Venesúelabúinn José Daniel beið í tæp tvö ár eftir svari við því hvort hann fengi leyfi til að setjast að á Íslandi. Hann vann fyrir sér á meðan með því að tína dósir í Reykjavík. Í sumar fékk hann svo loks mannúðarleyfi í eitt ár og fær að setjast hér að - að minnsta kosti um tíma. Hann segir sögu sína. José talar um ófremdarástandið í Venesúela, hvernig fjögurra dóttir hans er eftir hjá ömmu sinni í heimalandinu, hversu mjög hann elskar öryggið á Íslandi, gleðina sem hann upplifir við að vera ...

Aug 29, 202417 minEp. 310

Börn á þyngdarstjórnunarlyfjum

Um 50 börn á Íslandi sem glíma við offitu eru á þyngdarstjórnunarlyfjum á borð við Ozempic og Wegovy. Tryggvi Helgason barnalæknir annast meðferð hluta þessara barna. Að hans mati er hún allt að því byltingakennd aðferð í meðhöndlun á alvarlegri offitu. Hann telur að Embætti landlæknis hafi dregið lappirnar í viðbragði við mikilli aukningu offitu. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis er ósammála og segir mikilvægt að nálgast viðfangsefnið af nærgætni við þau sem glíma vi...

Aug 28, 202417 minEp. 309

Veitingageirinn eins og erfiður tölvuleikur

Að reka veitingastað í Reykjavík í dag er eins og að spila erfiðan tölvuleik segir Hrefna Sætran á Fiskmarkaðnum. Gunnar Karl Gíslason, sem rekur Dill, segir að markaðurinn á Íslandi sé erfiðari en á hinum Norðurlöndunum. Jón Mýrdal á Kastrup kallar eftir því að skyndibitastaðir og vegasjoppur girði sig í brók og lækki verð. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir.

Aug 27, 202416 minEp. 308

Vandi veitingahúsanna og harkið í bransanum

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um rekstrarumhverfi veitingahúsa í Reykjavík. Gjaldþrot í bransanum hafa aukist á síðustu tveimur árum og veitingastaðir koma og fara ört. Rætt er við Jón Mýrdal veitingamann á Kastrup og Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóra samtaka fyrirtækja í veitingarekstri. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir.

Aug 26, 202415 minEp. 307

Drykkjuskapur íslensks þingmanns í Noregi

Í þessum þætti ætlum við að ræða um drykkjuskap og fyllerí. Því drykkjuvenjur Mímis Kristjánssonar, hins hálf íslenska þingmanns norska sósíalistaflokksins Rautt, hefur heldur betur orðið að umtalsefni í norskum fjölmiðlum að undanförnu. Þóra Tómasdóttir ræddi við Atla Stein Guðmundsson sem er blaðamaður Morgunblaðsins í Noregi.

Aug 23, 202413 minEp. 306

Af hverju kæla stýrivextirnir ekki hagkerfið?

Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær að stýrivextir verði óbreyttir í 9,25 prósentum. Vextirnir hafa verið óbreyttir í heilt ár. Verðbólga hefur hjaðnað talsvert frá því hún náði hámarki í 10,2 prósentum í febrúar í fyrra og stendur nú í 6,3 prósentum. Tveir hagfræðingar ræða um þessa ákvörðun Seðlabanka Íslands. Þeir benda meðal annars á að svo margir hafi fært sig yfir í verðtryggð lán og stýrivextirnir bíti ekki á þennan hóp. Stýrivextir hér á landi eru þeir fimmtu hæstu í Evrópu. Ingi Freyr Vi...

Aug 22, 202417 minEp. 305

Sá skuggahliðar fótboltans og gerðist umboðsmaður leikmanna

Fótboltaferill Bjarka Más Ólafssonar tók skjótan endi þegar hann greindist átján ára gamall með alvarleg hjartavandamál. Þá sneri hann sér að þjálfun og síðar umboðsmennsku fyrir aðra leikmenn. Nú starfar hann hjá belgísku umboðsskrifstofuni Stirr Associates og aðstoðar íslenska og erlenda fótboltamenn við að elta drauma sína á hæsta stig íþróttarinnar. Þóra Tómasdóttir ræddi við Bjarka Má Ólafsson og Heimi Hallgrímsson þjálfara.

Aug 21, 202416 minEp. 304

Átökin um Heidelberg í Ölfusi

Landeldisfyrirtækið First Water stendur fyrir dýrustu einkaframkvæmd Íslandssögunnar í Ölfusi. Fyrirtækið gerir athugasemdir við risavaxna mölunarverksmiðju þýska fyrirtækisins Heidelberg. Þess vegna er málið í algjörri biðstöðu og óljóst hvort mölunarverksmiðjan verði byggð. Ingi Freyr Vilhjálmsson talaði við Þorstein Víglundsson talsmann Heidelberg og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur bæjarfulltrúa í Ölfusi.

Aug 20, 202416 minEp. 303

Sjúkratryggingar undir smásjá yfirvalda

Ríkisendurskoðun hefur á ný hafið úttekt á Sjúkratryggingum Íslands. Á sama tíma hefur eftirlitsdeild Sjúkratrygginga verið lögð niður. Fjölmörgum spurningum um starfsemina er ósvarað og forstjórinn vill ekki veita viðtal. Styrr hefur staðið um stofnunina í áraraðir. Fyrrum forstjóri sagði upp störfum með eftirminnilegum hætti í fyrra. Ingi Freyr skýrir stöðuna.

Aug 19, 202415 minEp. 302

Enn frjór jarðvegur fyrir óeirðir á Norður-Írlandi

Enn er frjór jarðvegur fyrir mótmæli og óeirðir á Norður-Írlandi þar sem þjóðin er enn í sárum eftir áratuga löng og blóðug átök. Það birtist okkur á liðnum vikum í harkalegum mótmælum sem brutust út vegna upplýsingaóreiðu á netinu. Sólveig Jónsdóttir rithöfundur lýsir ástandinu sem ungir Norður-Írar hafa alist upp í. Birta Björnsdóttir fréttamaður RÚV segir frá því sem kveikti í mótmælunum á Bretlandseyjum. Þóra Tómasdóttir talaði við þær.

Aug 16, 202418 minEp. 301

Dýraníð í laxeldi í Noregi

Matvælastofnun Noregs hefur sektað norska laxeldisfyrirtækið Leroy fyrir gróft brot á lögum um velferð dýra. Hvað gerir íslenska Matvælastofnunin til að koma í veg fyrir að sambærileg slys eigi sér stað í sjókvíaeldi á Íslandi? Norsk laxeldisfyrirtæki eiga meirihluta í íslensku sjókvíaeldi. Þetta helst ræðir við forstjóra MAST, Hrönn Jörundsdóttur, og dýralækninn Egil Steingrímsson sem mun taka við eftirliti MAST með laxeldi í næsta mánuði. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir

Aug 15, 202415 minEp. 300

Óeirðir í Venesúela eftir forsetakosningar

Harkaleg mótmæli brutust út í Venesúela eftir forsetakosningarnar þar í lok júlí. Sitjandi forseti, Nicolás Maduro, lýsti yfir sigri en stjórnarandstaðan segir mótframbjóðandann, Edmundo Gonzalez, réttmætan sigurvegara. Ingi Freyr Vilhjálmsson er nýr umsjónarmaður Þetta helst og þekkir landið vel. Hann skýrir frá ástandinu eftir kosningar og ræðir við Venesúelabúa á Íslandi.

Aug 14, 202416 minEp. 299

Er Kamala Harris að toppa of snemma?

Það sem fyrir mánuði síðan leit út fyrir að vera öruggt tap Joe Biden, og öruggur sigur Trumps í kapphlaupinu um forsetastólinn í Bandaríkjunum, hefur snúist í óvænta átt. Varaforsetaefni Harris, Tim Walz, virðist ganga fantavel að skapa stemningu fyrir framboði þeirra á meðan varaforsetaefni Trump, J.D. Vance, virðist ganga ögn verr að ná til almennings. Þóra Tómasdóttir ræddi við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands.

Aug 13, 202417 minEp. 298

Komið að uppgjöri í stjórnmálum

Hvernig tekst ríkisstjórnarflokkunum að halda saman þegar einn þeirra virðist vera að þurrkast út af þingi? Hvernig á að höggva á hnútana í þeim stóru málum sem þeir eru algjörlega óssamála um. Hverjir þurfa skipta um forystu og hvaða leiðir verða farnar til að manna efstu sæti framboðslista? Þóra Tómasdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann RÚV, og félagana Þórhall Gunnarsson og Andrés Jónsson sem fara af stað með nýtt hlaðvarp um stjórnmál í þessari viku.

Aug 12, 202418 minEp. 297

Peningaþvætti með aðstoð sérfræðinga

Brotamenn á Íslandi virðast hafa greiðan aðgang að sérfræðingum sem aðstoða þá við peningaþvætti. Þetta kemur fram í síðasta áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis. Og þetta þekkir Sveinn Ingiberg Magnússon yfirlögregluþjónn hjá Héraðssaksóknara. Hann vinnur við það alla daga að rekja upp svikamyllur eins og fjallað er um í dönsku heimildarþáttunum Svarti svanurinn. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann.

Jun 28, 202417 minEp. 296

Náttúrugrið láta kanna meint lögbrot innan Vatnajökulsþjóðgarðs

Félagið Náttúrugrið er með til skoðunar að senda erindi vegna framkvæmda til stækkunar íshella á Breiðamerkurjökli í Vatnajökulsþjóðgarði, sem greint var frá í þættinum í gær og hefur falið lögfræðingi að skoða málið. Til álita er bæði að kanna meint brot á náttúruverndarlögum og lögum um þjóðgarðinn. Þá lætur félagið einnig skoða hvort óhóflegar framkvæmdir við íshella gætu krafist þess að sótt sé um framkvæmdaleyfi, en slíkt myndi heyra undir skipulagsyfirvöld og þar með sveitarstjórn á svæðin...

Jun 27, 202416 minEp. 295

Íshellar á Breiðamerkurjökli

Íshellaferðir á Breiðamerkurjökli, og raunar víðar, njóta mikilla vinsælda. Myndbönd innan úr fagurbláum íshellum hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og eftirspurn eftir ferðunum er mikil. Samkvæmt talningu Vatnajökulsþjóðgarðs hafa 195 þúsund manns farið í íshellaferð í vetur. Ekki er hægt að fara í íshella árið um kring, og ekki er alltaf hægt að segja til um hvenær þeir eru tilbúnir og hvenær þarf að loka þeim. Reyndir jöklaleiðsögumenn sem Þetta helst hefur rætt við segja að ekki sé ráð...

Jun 26, 202416 minEp. 294

Ungt fólk yfirgefur borgina fyrir betra líf úti á landi

Margt ungt fólk leitar af landsbyggðinni inn í höfuðborgina til að mennta sig og komast í störf sem því þykir áhugaverð. Í þessum þætti er rætt við ungt fólk sem velur að flytja úr höfuðborginni og út á land. Þau kunna að meta lífsgæðin í smábæum þar sem er minna stress og minni tími fer í leiðinlegar bílferðir á milli daglegra viðkomustaða. Hólmfríður Rut Einarsdóttir flutti með sína fjölskyldu á Egilsstaði en Auðunn Haraldsson stefnir á flutninga með fjölskyldu sinni til Vestmannaeyja. Þóra Tó...

Jun 25, 202416 minEp. 293
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android