Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Það skiptir máli hvar gervigreindarflögurnar eru framleiddar

Nvidia er nú orðið verðmætasta fyrirtæki heims. Gervigreindarbyltingin er á fullri ferð, en fréttir síðustu daga benda til þess að leið gervigreindar sé ekki endilega bein leið. Það eru vissulega stórir sigrar, eins og ævintýralegt hlutabréfaverð Nvidia, fyrirtækis sem framleiðir íhluti fyrir þróun gervigreindar, en það eru líka sorgir. Skyndibitarisinn McDonalds bakkaði á dögunum út úr samstarfi við IBM, frumkvöðul á sviði gervigreindar, um þróun á tölvusvörun með gervigreind fyrir sjálfsafgrei...

Jun 24, 202417 minEp. 292

Öllum gengjameðlimum El Salvador stungið í steininn

Fyrir tveimur árum var El Salvador hættulegasta land í heimi með hæstu morðtíðni veraldar. Síðan hefur morðtíðnin hríðfallið en í staðinn er El Salvador það land í heiminum með hlutfallslega flesta þegna sína í fangelsi. Íslendingurinn Jón Þór Ólafsson var myrtur á hrottafenginn hátt af gengjameðlimum þar í landi árið 2006. Samstarfsmenn hans segja okkur frá andrúmsloftinu í landinu ógninni af gengjunum. Hólmfríður Garðarsdóttir sérfræðingur í rómönsku Ameríku segir frá því upp úr hverju gengjam...

Jun 21, 202417 minEp. 291

Claudia Sheinbaum, nýkjörinn forseti Mexíkó, er boðberi betri tíma

Claudia Sheinbaum varð í byrjun júní fyrsta konan sem er kjörin forseti Mexíkó. Aldrei áður hefur forseti þar í landi náð kjöri með jafnmörgum atkvæðum. Yfir 35 milljónir atkvæða með nafni Sheinbaum, komu upp úr kjörkössunum og hún hlaut yfir sextíu prósent atkvæða. Næsti frambjóðandi, stjórnmálakonan Xochitl Galvez, var ekki einu sinni hálfdrættingur á við Sheinbaum, hlaut innan við 30 prósent atkvæða. Sheinbaum er með doktorsgráðu og hefur sérhæft sig í loftslagsmálum. Hún er virt vísindakona,...

Jun 20, 202417 minEp. 290

Hættur við veginn um Tröllaskaga

Alvarlegt rútuslys við Öxnadalsheiði á föstudag, varð til þess að miklum umferðarþunga var beint frá þjóðvegi eitt og um Tröllaskagann. Á þeim kafla eru tvenn einbreið jarðgöng og vegkaflar sem stundum eru sagðir þeir hættulegustu á landinu. Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar og Guðjón M. Ólafsson formaður bæjarráðs Fjallabyggðar hafa áhyggjur af öryggi vegfarenda. Þóra Tómasdóttir talaði við þá.

Jun 19, 202417 minEp. 289

Orðalag eins „og/eða annar ófyrirséður kostnaður“ á ekki heima í lánaskilmálum

EFTA-dómstóllinn gaf álit á dögunum um að skilmálar lána sem bera breytilega vexti séu ekki nægilega skýrir. Álitið snýr annars vegar að máli Neytendastofu gegn Íslandsbanka og hins vegar máli Neytendasamtakanna gegn Íslandsbanka og Landsbankanum. Í öllum tilvikum snúast málin um það hvort skilmálar lána, bæði neytendalána og fasteignalána, séu nægilega skýrir. Neytandinn hringir ekki bankann og segist vilja lækka vextina, en bankinn getur ákveðið að hækka þá. Og þá skiptir öllu máli að það sé l...

Jun 18, 202416 minEp. 288

Íslenskar löggur heimsþekktar meðal barnaníðinga

Íslenskir lögreglumenn eru orðnir heimsþekktir meðal þeirra sem eru haldnir barnagirnd eða sækjast í gróft kynferðislegt barnaníðsefni á netinu. Lögreglumennirnir hafa komið fyrir myndböndum af sér á myrkrum kimum internetsins þar sem barnaníðingar halda sig og deila grófu efni sín á milli. Ævar Pálmi Pálmason segir frá þessum aðgerðurm lögreglunnar. Sumar sem horft hafa á myndböndin hafa þegið hjálp frá taktuskrefid.is Þar starfar Anna Kristín Newton sálfræðingur. Þóra Tómasdóttir talaði við þa...

Jun 14, 202416 minEp. 287

Ofbeldi sem eltir þig hvert fótmál

Hvaða áskoranir mæta þeim sem reyna að brjótast undan nauðungarstjórnun? Hvernig geta þolendur hafið nýtt líf þegar ofbeldi fylgir þeim hvert fótmál í gegnum snjallsíma? María Rún Bjarnadóttir yfirmaður netöryggis hjá ríkislögreglustjóra hefur rannsakað hverjir beita stafrænu ofbeldi og hvers vegna. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfs segir ofbeldið nú fylgja konum inn í athvarfið og það geti reynst ógjörningur að brjótast undan því. Marta Kristín Hreiðarsdóttir hjá lögreglu...

Jun 12, 202417 minEp. 285

Börn hjóla, fullorðnir hjóla ...en ungt fólk hjólar síst

Þrátt fyrir að framhaldsskólar séu almennt smekkfullir af hraustu ungu fólki yfir skólaárið þá eru litlar líkur á að koma auga á framhaldsskólanema á hjóli. Aðeins um þrjú til fimm prósent framhaldsskólanema hjóla í skólann og hlutfallið er svipað krökkum í efstu bekkjum grunnskóla, unglingadeild, þrátt fyrir að í fyrsta til sjöunda bekk sé hjólið allsráðandi farartæki. Þórarinn Alvar Þórarinsson er íþróttafræðingur og sérfræðingur hjá ÍSÍ. Hann hefur skoðað tölfræði um hjólreiðar og rætt er um ...

Jun 11, 202415 minEp. 284

Átta stiga aðdragandi að manndrápum í nánum samböndum

Skoðun lögreglunnar á aðdraganda manndrápa í nánum samböndum, sýnir átta stig af nauðungarstjórnun. Lögreglan vil því að fólk þekki helstu einkenni stjórnunarinnar svo unnt sé að rjúfa vítahringinn áður en eitthvað hræðilegt gerist. Lögreglukonurnar Þóra Jónasdóttir og Marta Kristín Hreiðarsdóttir ræða um einkenni nauðungarstjórnunar. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir skerpa þurfi á notkun nálgunarbanns og tryggja öryggi þeirra sem vilja brjótast undan nauðungarst...

Jun 10, 202417 minEp. 283

Stríð verkalýðshreyfingarinnar við Wolt

Verkalýðshreyfingin víða um Evrópu heyjar harða baráttu við heimsendingarfyrirtækið Wolt og sakar það um að dansa í kringum leikreglur vinnumarkaðarins. Hreyfingin sakar Wolt um að stunda gerviverktöku, fyrra sig ábyrgð á sendlunum og skræla af þeim réttindi launþega. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja verkalýðsfélögin þurfi að laga sig að nútímanum. Þóra Tómasdóttir ræðir við fulltrúa ASÍ, upplýsingafulltrúa Wolt og sendil hjá Wolt á Selfossi.

Jun 06, 202417 minEp. 282

Hjólað allt árið

Sífellt fleira fólk velur að hjóla allt árið. Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni er ein þeirra sem hjólar nær allra sinna ferða. Hún segir innviðauppbyggingu á borð við hjólastíga skipta máli en að réttur búnaður og gott hjól skipti ekki síður máli. Þá sé mikilvægt að vinnustaðir geri fólki það auðveldara að fara til vinnu á hjóli, til dæmis með góðum hjólageymslum. Fyrsti eiginlegi hjólastígurinn var lagður á smá spotta á Laugaveginum fyrir ...

Jun 05, 202417 minEp. 281

Barnalæknir vil gefa umdeilt lyf við ungbarnakveisu

Í þessum þætti er rætt um ástandið sem skapast á heimilum nýbura með ungbarnakveisu og hvað sé best að gera fyrir börnin á meðan kveisunni stendur. Það eru skiptar skoðanir á því meðal lækna hvernig best sé að tækla kveisuna. Viðar Örn Eðvarsson barnalæknir syndir svolítið á móti straumnum í þeim efnum. Hann telur undanþágulyfið dísíklóverin öfluga leið til að lina þjáningar erfiðustu tilfellanna en fáir læknar vilja ávísa því.

Jun 04, 202417 minEp. 280

Ungt fólk, TikTok og baráttan um Bessastaði

Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk. Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni auk bróður síns Tómasar Bjarts, en systkinin stunda háskólanám í New York. Eyrún Magnúsdóttir hitti A...

Jun 03, 202416 minEp. 279

Kemur dómur yfir Trump í veg fyrir að hann verði forseti?

Donald Trump fyrrum forseti Bandaríkjanna var fundinn sekur um skjalafals í svokölluðu mútugreiðslumáli til Stormy Daniels. Í hverju felast brot hans, um hvað snýst málið og hvaða pólitísku áhrif hefur dómurinn á möguleika hans til að verða næsti forseti Bandaríkjanna? Kári Hólmar Ragnarsson lektor við lagadeild Háskóla Íslands hefur legið yfir málinu.

May 31, 202418 minEp. 278

Bakvið tjöldin á kosningavöku RÚV

Um eða yfir hundrað manns koma að Kosningavöku RÚV sem hefst klukkan tíu á laugardagskvöld eftir að kjörstöðum í forsetakosningum lokar. Stífar æfingar fyrir stóra kvöldið hafa staðið yfir alla vikuna. Undirbúningur fyir kosningaumfjöllun RÚV hófst strax í janúar, en síðastliðinn mánuð hefur allt verið sett á fullt í að tryggja að kosningavakan gefi sem besta mynd af niðurstöðum kosninga og áhorfendur fái greinargóðar upplýsingar um leið og þær berast. Kosningavakan stendur yfir þar til ljóst er...

May 30, 202416 minEp. 277

Hvernig gengur að byggja nýjan spítala?

Við bregðum okkur inn fyrir girðinguna sem umlykur eina stærstu, dýrustu og flóknustu byggingaframkvæmd Íslandssögunnar. Það er að sjálfsögðu bygging nýs Landspítala við Hringbraut. Við ætlum að kanna hvernig framkvæmdin gengur, hvaða hús við sjáum vera að rísa á lóðinni og hvað sé langt í að þau verði tekin í notkun. Þóra Tómasdóttir ræðir við Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóra Nýs Landspítala.

May 29, 202417 minEp. 276

Áfengi í netverslunum. Hvað er löglegt og hvað ekki?

Netverslun með áfengi hefur færst í vöxt. Hún byggir á einni af meginstoðum EES-samningsins - frjálsum vöruflutningi milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins. Í skjóli samningsins geta verslanir í löndum utan Íslands, en innan svæðisins, selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanirnar ekki vera skráðar hér á landi. Íslenskar verslanir eins og Hagkaup eða Heimkaup geta því aðeins selt áfengi með því að stofna erlenda ...

May 28, 202416 minEp. 275

Mannabein á Bessastöðum

Þegar ráðist var í umbætur á aðgengi að kirkjunni á Bessastöðum, reyndust mannabein í jörðu hvar sem stungið var niður skóflu. Hundruð beinagrinda hvíla í jörðinni við bæinn. Ekki aðeins undir þeim fáu legsteinum sem sjá má í kirkjugarðinum. Sumar þeirra hafa gægst upp á yfirborðið að undanförnu. Leikarinn og arkitektinn Þorsteinn Gunnarsson segir frá þessari stórmerkilegu kirkju og Hermann Jakob Hjartarsson segir frá beinagrindunum sem hann gróf upp. Þóra Tómasdóttir talaði við þá.

May 27, 202417 minEp. 274

Konur verða að vita af góðum launum í upplýsingatækni

Upplýsingatæknigeirinn er að langmestu leyti mannaður af karlmönnum. Ef kynjahlutföllinn ekki breytast í þessum ört vaxandi geira verða tæknilausnir framtíðarinnar þróaðar af einsleitum hópi. Anna Sigríður Islind, dósent í tölvunarfræði við HR, og Þóra Rut Jónsdóttir, stjórnarkona í Vertonet, vilja vekja athygli kvenna á því að há laun séu í boði í geiranum.

May 24, 202417 minEp. 273

Anton Sveinn McKee og staða afreksíþróttafólks

Lengi hefur verið ljóst að staða afreksíþróttafólks hér á landi er erfið. Þau sem keppa á efsta stigi fá vissulega styrki en þeir eru lágir og íþróttafólk þarf gjarnan að treysta á að mamma eða pabbi geti hlaupið undir bagga. Anton Sveinn McKee segir mömmu sína hafa í gegnum árin verið sinn helsta stuðningsmann, en að það sé ekki eðlileg staða að þurfa að reiða sig á stuðning ættingja til að geta verið í fremstu röð. Hann segist þakklátur fyrir styrki og stuðning sem hann hefur fengið, meðal ann...

May 23, 202416 minEp. 272

Veðmálafíkn hverfist um að tapa

Umfang íþróttaveðmála eru að aukast hér á landi. Íslenskt veðmálafyrirtæki heldur því fram að veðmál geri íþróttir meira spennandi og leikinn skemmtilegri. Kristinn Hjartarsson er einn þeirra sem hefur kynnst myrkum hliðum veðmálanna. Um tíma stjórnaðist allt hans líf af veðmálum og tók sinn toll af heilsunni og fjölskyldulífinu. Pétur Magnússon ræddi við hann um fíknina sem hann þróaði með sér, stóru vinningana og tilfinninguna sem heltók hann þegar hann tapaði.

May 22, 202415 minEp. 271

Hvenær kemur svo þessi Sundabraut?

Sundabraut er löngu þekkt orð í almennri umræðu hér á landi. Svo margumrædd að við tökum stundum ekki eftir því þegar hún er enn einu sinni komin á dagskrá, eftir nokkurra áratuga flæking í ýmsum kerfum. Samfélagslegur ávinningur, arðsöm framkvæmd, minni heildarakstur, minni mengun, tímasparnaður, styttri vegalengdir og færri slys. Allt þetta hefur verið nefnt sem kostir brautar um Sundin. Sundabraut hefur auðvitað verið umdeild, enda risavaxin framkvæmd. Deilt hefur verið um leiðir og útfærslur...

May 21, 202415 minEp. 270

Andstæðir pólar um óstuddar fæðingar

Konur sem aðhyllast fæðingar án aðkomu fagfólks vilja að kerfið virði val þeirra og ákvarðanir. Landlæknir og yfirljósmóðir á Landspítalanum taka undir að konur eigi að hafa val en ítreka áhættur sem því fylgja að fæða án fagmenntaðra. Það séu margir áhættuþættir sem konur ekki geti greint sjálfar og að skima þurfi fyrir til að tryggja öryggi. Rætt er um tortryggni á báða bóga og hvort eitthvað sé hægt að gera til að vinna á henni.vViðmælendur eru Ronja Mogensen, Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir og ...

May 17, 202416 minEp. 269

Er verðlaunafé ógn við Ólympíuandann?

Fyrir hvert Ólympíugull í frjálsum íþróttum í París í sumar ætlar alþjóða frjálsíþróttasambandið að greiða sem nemur sjö milljónum króna í verðlaunafé. Þetta verður í fyrsta sinn sem íþróttafólk fær greitt fyrir verðlaun á Ólympíuleikum. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Alþjóða Ólympíusambandinu og ðrum alþjóðlegum íþróttasamböndum. Aðeins verður greitt fyrir gullverðlaun, og aðeins í frjálsum íþróttum. Alþjóða frjálsíþróttasambandið er eina íþróttasambandið sem hefur te...

May 16, 202417 minEp. 268

Konur sem afþakka mæðravernd og ungbarnaeftirlit

Kerfið verður að hlusta á og aðlaga sig að þörfum kvenna sem velja að fæða börn sín utan heilbrigðiskerfisins og án aðkomu fagfólks. Það þýðir ekki bölsóttast út í ákvarðanir þeirra. Þetta segir Berglind Hálfdánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands. Þóra Tómasdóttir heldur áfram umfjöllun um svokallaðar óstuddar fæðingar sem eru að ryðja sér til rúms á Íslandi.

May 15, 202416 minEp. 267

Lögregluofbeldi og stúdentamótmæli

Stúdentar hafa sýnt Palestínufólki samstöðu víða um heim með mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza. Alda samstöðumótmæla stúdenta sem hófst við Columbia háskóla í New York um miðjan apríl hefur nú breiðst út um háskóla víða í Evrópu. Tjaldbúðir má sjá á háskólalóðum í Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Hollandi og fleiri löndum. Að mestu leyti fara þessi mótmæli friðsamlega fram, en athygli hefur vakið að lögregla hefur brugðist við af mikilli hörku, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Í þæt...

May 14, 202416 minEp. 266

Að fæða barn án aðkomu heilbrigðiskerfisins

Sex börn fæddust utan heilbriðgðiskerfisins og án aðkomu fagfólks á Íslandi í fyrra. Við heimsækjum Brynhildi Karlsdóttur sem fæddi dóttur sína í anda hugmyndafræði um óstuddar fæðingar eða free birthing. Við ræðum líka við blaðamanninn Klöru Ósk Kristinsdóttur sem hefur fjallað um málið í Morgunblaðinu frá sjónarhóli fagfólks. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

May 13, 202417 minEp. 265

Ef stúkan er gul þá er það heimavöllur

Íþróttastarf Ungmennafélags Grindavíkur heldur áfram þótt það verði með breyttu sniði. Félagið hefur háð baráttu fyrir tilvist sinni í vetur en á nú í viðræðum við ríkið, sveitarfélög og önnur íþróttafélög um að tryggja áframhaldandi starfsem í einhverri mynd. Meistaraflokkar félagsins í körfubolta og fótbolta eru á fullri ferð og Þetta helst leit við á leik karlaliðsins í körfubolta í Smáranum í vikunni. Verkefni framkvæmdstjóra félagsins í vetur hafa verið ólík því sem gengur og gerist hjá íþr...

May 10, 202416 minEp. 264

Er Met gala málið eða úrelt fyrirbæri?

Fjáröflunin Met gala vekur jafnt athygli sem einstakur tískuviðburður en þykir líka hrópandi fáranleiki í miðjum stríðsátökum. Hundruðir mótmælenda og stuðningsmanna Palestínu marseruðu saman að safninu til að mótmæla samkomunni í ár en mættu brynvörðum lögreglumönnum New York ríkis. Við ræðum um hvers vegna Met gala er svona fyrirferðarmikill viðburður, heyrum af langri sögu hans, tilgangi og öllu umstanginu. Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Stefán Svan Aðalheiðarson ræða málið við Þóru Tómasdót...

May 08, 202416 minEp. 263

Svindlfaraldur skekur eldri borgara í Skandinavíu

Ósvífnir símasvindlarar hafa komið sér upp árangursríkum aðferðum við að tæma bankareikninga hjá grunlausum eldri borgurum. Þóra Tómasdóttir tók saman umfjöllun Sænska ríkissjónvarpsins um málið.

May 06, 202415 minEp. 262
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android