Er sanngjarnt að hreyfihamlaðir greiði fyrir að leggja í einkarekin bílastæði? Lögmaður Arnar Heimir Lárusson telur einkarekin bílastæðafyrirtæki brjóti á hreyfihömluðum með því að krefja þá um greiðslu fyrir að leggja. Lögin tryggi rétt þeirra til gjaldfrjálsra bílastæða. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er ein þeirra sem hefur fengið sektir fyrir að leggja í slík stæði. Ægir Finnsson framkvæmdastjóri Parka, skýrir málið frá sjónarhóli einkarekinna bílastæðafyrirtækja. Þóra Tómasdóttir talaði ...
May 02, 2024•16 min•Ep. 261
Fatlaðir einstaklingar vekja athygli á að þeir komist ekki að heitum pottum við sundlaugar landsins. Steinþór Einarsson sem fer fyrir sundlaugum Reykjavíkur, segir að aðgengismál við laugar séu í sífelldu betrunarferli. Hann telur ólíka hagsmunahópa hafa haft jákvæð áhrif á aðstöðuna á undanförnum árum og boðar meðal annars rennibraut fyrir fatlaða í Laugardalslaug. Bergur Þorri Benjamínsson formaður málefnahóps um aðgengi hjá réttindasamtökunum ÖBÍ er sannfærður um að hægt sé að gera betur í að...
Apr 29, 2024•17 min•Ep. 260
Töluverður fjöldi fólks kemur hingað á hverju ári til að njóta þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða: skoða hvali og kindur, borða hvali og kindur, baða sig í heitu vatni, horfa á norðurljós og eldgos, taka selfie við Hallgrímskirkju, fara varlega í Reynisfjöru og valhoppa á milli mathalla. En inn á milli venjulegu ferðamannanna leynast auðkýfingar sem vilja eitthvað örlítið extra. Ísland er vinsæll áfangastaður ríka og misfræga fólksins í heiminum sem hefur vanist því að fá aðeins það best...
Apr 26, 2024•17 min•Ep. 259
Hjólastólanotendur segjast nánast hvergi komast ofan í heita potta við sundlaugar landsins. Þær Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir doktorsnemi og Margrét Lilja Arnheiðardóttir formaður Sjálfsbjargar segja að þar sem aðgengi sé fyrir hreyfihamlaða, sé það aðeins ofan í ískaldar laugar. Tröppur og handrið ofan í heita potta geti ekki talist ásættanlegt aðgengi fyrir hjólastólanotendur. Þóra Tómasdóttir ræddi við þær.
Apr 24, 2024•16 min•Ep. 258
Tvær manneskjur létu lífið um helgina þar sem mjög mikill grunur leikur á að glæpur hafi verið framinn. Annað morðið var framið í sumarbústað á Suðurlandi, hitt í Naustahverfi á Akureyri. Fimm manns voru settir í fangelsi, fjórir vegna annars glæpsins og einn vegna hins. Morð eru ekki algeng á Íslandi, þó að þau séu vissulega að færast í aukana. Á þessu ári sem ekki er hálfnað hafa að öllum líkindum verið framin þrjú manndráp. Næstum því eitt á mánuði. Sunna Valgerðardóttir skoðar þessi voðaverk...
Apr 23, 2024•18 min•Ep. 257
Ingunn Jónsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir var meðal stofnenda einu frjósemisstöðvarinnar sem starfrækt er hér á landi. Hún fór þaðan ósátt fyrir nokkrum árum og boðar nú opnun nýrrar frjósemisstöðvar. Þá verður samkeppni um slíka þjónustu í fyrsta sinn á Íslandi. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana um tæknifrjóvganir, siðferðisleg álitamál og skort á regluverki um starfsemi frjósemisstöðva.
Apr 22, 2024•16 min•Ep. 256
Okkur líkar vel við skoðanakannanir. Þær segja okkur hver við erum, hvað okkur finnst, hvað við viljum og hvað við viljum ekki. Og nú koma þær á færibandi. Við erum að fara að kjósa okkur nýjan forseta og fylgi stjórnmálaflokkanna er sannarlega teygjanlegt hugtak. En hvert er hlutverk þessarra kannanna í raun og veru? Hafa þær áhrif? Eru þær marktækar? Við þessum spurningum eru ekki til einföld svör, eins og Agnar Freyr Helgason stjórnmálafræðingur ræðir við Sunnu Valgerðardóttur í þætti dagsins...
Apr 19, 2024•18 min•Ep. 255
Aukin harka, hnífaburður ungmenna, hnífaárásir færast í aukana, vopnuð útköll sérsveitar aldrei verið fleiri. Þetta er kunnuglegt stef. Sjö prósent unglinga á höfuðborgarsvæðinu sögðust í fyrra ganga með hníf á sér. Þó ekki til að nota þá, heldur til að verja sig. Þetta er svolítið hátt hlutfall. Í þessum síðari þætti af tveimur ræðir Sunna Valgerðardóttir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við HÍ, um þróunina hér. Sömuleiðis heyrist í Ragnari Jónssyni, lögreglumanni og blóðf...
Apr 17, 2024•17 min•Ep. 254
Tvær grófar hnífaárásir hafa verið framdar í Sidney í Ástralíu á undanförnum þremur dögum. Sú fyrri var um miðjan dag á laugardag, þegar fertugur Ástrali gekk inn í eina stærstu verslunarmiðstöð borgarinnar, vopnaður hnífi, og stakk sex til bana. Í gær var svo gerð önnur árás, sem hefur verið flokkuð sem hryðjuverk. Sextán ára unglingur gekk inn í kirkju í úthverfi Sidney og stakk fjóra og öllu var streymt á samfélagsmiðlum. Miklar óeirðir brutust út. Af hverju er verið að nota hnífa, en ekki by...
Apr 16, 2024•15 min•Ep. 253
Sífellt fleiri fá uppáskrifuð ADHD-lyf og skammtastærðirnar eru stærri en nokkru sinni hafa verið rannsakaðar. Heimilislæknar vilja ekki lengur bera ábyrgð á háum skammtastærðum sem geðlæknar skrifa uppá. Hjartalæknirinn Helga Margrét Skúladóttir hefur einnig áhyggjur af stórum skömmtun lyfjanna og hefur séð alvarlegar afleiðingar þeirra á hjartadeild Landspítalans. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana og Önnu Bryndísi Blöndal fagstjóra á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Apr 15, 2024•17 min•Ep. 252
Hópur eldri kvenna frá Sviss vann tímamótasigur fyrir mannréttindadómstóli Evrópu í vikunni. Konunum tókst að færa sönnur fyrir því að heilsu þeirra sé ógnað með rolugangi svissneskra stjórnvalda í loftslagsmálum. Við heyum sögu einnar þeirra og ræðum þýðingu dómsins við Hilmar Gunnlaugsson hæstarréttarlögmann og Aðalheiði Jóhannsdóttur prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.
Apr 12, 2024•16 min•Ep. 251
Ríkisstjórn Íslands virðist vera sprellifandi plagg. Á síðustu tuttugu árum hafa verið tíu ríkisstjórnir við völd. Þær ættu í eðlilegu árferði að hafa verið fimm. Sunna Valgerðardóttir fjallar um ráðherra, ríkisstjórnir, undirskriftir, bréfaskriftir, lagabreytingar og fólkið sem þetta allt snýst um.
Apr 11, 2024•15 min•Ep. 250
Það leikur allt á reiðiskjálfi í stjórnmálunum, ekki í fyrsta sinn svo sem, en langt síðan síðast. Það eru akkúrat átta ár síðan Sigurður Ingi Jóhannsson tók við forsætisráðherrakeflinu af forvera sínum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, eftir Panamaskjölin. Og það eru líka átta ár síðan Kristján Kristjánsson settist í stjórnendastólinn í pólitíska umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Sunna Valgerðardóttir og Kristján reyna að setja sig í spor viðmælenda sinna og spá í spilin, en kapallinn var e...
Apr 09, 2024•18 min•Ep. 249
Forystufólk stjórnarflokkanna ræðir enn um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður á RÚV og Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur greina stöðuna. Birgir Þór Harðarson vefstjóri RÚV segir frá því hve mikil forvitni fólks er á framvindu mála. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Apr 08, 2024•17 min•Ep. 248
Þetta er ár mikilla breytinga. Við fáum nýjan forseta, nýjan borgarstjóra, nýjan biskup og að öllum líkindum nýjan forsætisráðherra. Það getur verið vandasamt að taka ákvarðanir sem kollvarpa veruleikanum. Fólk þarf að velta hlutum fyrir sér. Íhuga. Daðra við hugmyndina. Taka svo ákvörðun af eða á. En er það fordæmalaust, að forsætisráðherra íhugi alvarlega að reyna við Bessastaði? Alls ekki. Sunna Valgerðardóttir skoðar hvernig málum var háttað árið 1996, þegar forsætisráðherra Íslands var næst...
Apr 05, 2024•16 min•Ep. 247
Hvers vegna ákváðu tryggir kjósendur VG að yfirgefa flokkinn sinn? Daníel E. Arnarsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir segja frá sínum ástæðum, hvernig þeim hugnast uppstokkun í flokknum og Katrín Jakobsdóttir sem forseti Íslands. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Apr 04, 2024•16 min•Ep. 246
Ísland verður seint talið skógi vaxið, en flestum líður okkur vel innan um tré. Við sækjum í skóglendi, jafnvel þó að við þurfum að keyra töluverðan spotta til þess. Fyrir nokkru var virði Heiðmerkur rannsakað út frá því sem kallast ferðakostnaðaraðferðin og í ljós kom að kostnaðurinn sem fólk leggur út fyrir ferðum sínum þangað, jafngildir virði Heiðmerkur, og vel það. Daði Már Kristófersson hagfræðingur ræðir við Sunnu Valgerðardóttur um virði, og mikilvægi, skóga á Íslandi.
Apr 03, 2024•18 min•Ep. 245
Bandaríski tónlistarmaðurinn Puff Daddy birtist nú í nýju ljósi í heimspressunni. Nýlega endurkoma hans inn í tónlistarheiminn hefur hrundið af stað fjölda ásakana og kæra á hendur honum fyrir alvarlega glæpi. Málin urðu kveikja að umfangsmikilli rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar á einkalífi Puff Daddy. Hann er sakaður um mansal, nauðganir, frelsisviptingar og kynferðisbrot auk brota á fíkniefnalögum og vopnalögum. Árni Matthíasson tónlistarspekúlant og Robbi Cronic segja Þóru Tómasdóttur ...
Apr 02, 2024•16 min•Ep. 244
Það hefur margt gerst í þessari stuttu viku. Það var framið rán, skip sigldi á brú og svo var framið annað rán. Ránin voru framin á Íslandi, brúin sem hrundi var í Baltimore í Bandaríkjunum. Þar sem þessi Helst þáttur er sá síðasti fyrir páskafrí, við mætum ekki aftur til leiks fyrr en í næstu viku, þá verður hann lagður undir þessi þrjú atvik. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum.
Mar 27, 2024•17 min•Ep. 243
Við heyrum af aðferðum sem hafa raunverulega skilað árangri í kosningum. Leiðum til að fiska atkvæði fólks og ná kjöri þó ekki sé úr miklu fjármagni að moða. Tryggvi Freyr Elínarson segir frá tæknilegum brögðum sem skiluðu Miðflokknum glæstri niðurstöðu í alþingiskosningum 2017. Einar Karl Haraldsson segir frá gagnreyndum aðferðum í kosningaastarfi og því sem átti þátt í sigri Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hann fyrst var kjörinn forseti Íslands árið 1996.
Mar 26, 2024•16 min•Ep. 242
Það er farið að síga á seinni hluta mars og rúmar tvær vikur liðnar síðan stjórn Landsbankans boðaði til aðalfundar. Hann átti að fara fram í síðustu viku, en það var ekki gert. Það kom smá babb í bankabátinn eftir að hann keypti tryggingafélag. Sunna Valgerðardóttir fjallar um kaup Landsbankans á TM og hvers vegna allt fór upp í loft.
Mar 25, 2024•18 min•Ep. 241
Ef þú hefur orðið fyrir slysi sem heldur þér frá daglegum störfum, veldur þér sársauka í lengri tíma og krefst þess að þú leitir þér læknismeðferðar, þá getur verið að þú eigir rétt á bótum. Þó þú sért með sæmilegar tryggingar er tryggingafélagið þitt ekkert endilega alltaf hjálplegt þegar þú þarft mest á því að halda. Guðbjörg Benjamínsdóttir hæstaréttarlögmaður veitir góð ráð og leiðir okkur á mannamáli í gegnum frumskóg slysatrygginga. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.
Mar 22, 2024•18 min•Ep. 240
Nú eru 44 Íslendingar að safna undirskriftum á island.is til að geta boðið sig fram til forseta landsins í komandi kosningum. Sum virðast reyndar hafa ratað þangað fyrir misskilning, einhver skráðu sig á fylleríi og muna ekki eftir því, en sum eru þar af heilum hug. Tvö stór nöfn tilkynntu komu sína í baráttuna í vikunni og enn fleiri líklegir liggja undir hinum margumrædda og mikið notaða feldi. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Árna Sæberg, blaðamann á Vísi og umsjónarmann Forsetavaktarinnar, um...
Mar 21, 2024•16 min•Ep. 239
Enn og aftur er KSÍ og kærur vegna kynferðisbrota landsliðsmanna í fréttum. Í þessum þætti ræðum við um val á Alberti Guðmundssyni í landsliðshóp á sama tíma og mál gegn honum er á borði hins opinbera. Þóra Tómasdóttir ræðir við Þorvald Örlygsson formann KSÍ, Evu B. Helgadóttur lögmann stúlkunnar sem kærði Albert og Freyr Gígja Gunnarsson fréttamann Rúv um sambærileg mál.
Mar 20, 2024•18 min•Ep. 238
Hún heitir hinum ýmsu nöfnum: Salsola tragus, þornurt, rússneskur kaktus, rússaþistill, vindnorn. Flest þekkjum við hana þó líklega á sínu enska formlega heiti, Tumbleweed. Veltigresi kannski. Þessi yfir meðallagi harðgera jurt er nú orðin svo ágeng í Bandaríkjunum að það er búið að lýsa yfir faraldri vindnorna í nokkrum ríkjum. Þær rúllast upp í hóla allt að þriggja metra háa, stífla vatnskerfi, slíta raflagnir og fylla húsgarða. Sunna Valgerðardóttir fer í þætti dagsins yfir sögu þessarar merk...
Mar 19, 2024•14 min•Ep. 237
Fríar skólamáltíðir hafa verið pólitískt bitbein í áraraðir en urðu til þess að koma á friði í Karphúsinu á dögunum. Þóra Tómasdóttir ræddi fríar skólamáltíðir við sveitarstjórnarfólk og heyrði hvernig fyrirkomulagið hefur reynst í Þingeyjarsveit og Svalbarðsstrandahreppi.
Mar 18, 2024•17 min•Ep. 236
Bára Baldursdóttir sagnfræðingur segir frá fordæmalausum frelsissviptingum ungra stúlkna sem fram fóru af hálfu hins opinbera hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni. Lögreglan stundaði umfangsmiklar njósnir á stúlkum sem grunaðar voru um að hafa áhuga á hermönnum úr setuliðinu. Bára sá sig knúna til að skrifa bók um þessa atburði eftir að hafa komist í skjöl sem haldið var frá almenningi í áraraðir. Þóra Tómasdóttir ræðir við Báru.
Mar 15, 2024•16 min•Ep. 235
Þáttur dagsins fjallar um það sem við vitum flest, en förum samt fæst eftir. Hvað er gott fyrir okkur, hvað eigum við að gera til að líða sem best. Hann fjallar líka aðeins um það sem við ættum að forðast, en gerum fæst. Það er nefninlega svo gott að gera okkur ekki gott, segir læknirinn. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Michael Clausen, barna- og ofnæmislækni, sem segir Hippókrates hafa hitt naglann á höfuðið fyrir 2.500 árum: Við eigum að borða grænmeti og fisk, drekka vatn, hreyfa okkur, tengj...
Mar 14, 2024•17 min•Ep. 234
Tveir bandarískir bræður á fertugsaldri voru handteknir í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, á mánudag og leiddir fyrir dómara í gær. Bresk yfirvöld höfðu þá gefið út handtökuskipun sem rúmenska lögreglan fylgdi eftir. Bræðurnir heita Andrew og Tristan Tate og það er sá fyrri sem hefur hvað helst unnið sér ýmislegt misfallegt til frægðar. Hann verður framseldur til Bretlands þegar málaferlum hans lýkur í Rúmeníu. Sakarefnin: Kynferðisbrot og mansal. Sunna Valgerðardóttir skoðar feril Andrew Tate.
Mar 13, 2024•16 min•Ep. 233
Díana Ósk Óskarsdóttir er prestur á Landspítala, faglegur handleiðari og fer fyrir stuðningsteymi starfsfólks spítalans. Það er hennar helsta baráttumál að fagfólk sem vinnur við að hjálpa öðrum, fái sjálft faglega hjálp og handleiðslu til að styrkja sig í starfi. Ekki bara hefur hún upplifað mikilvægi þess í starfi sínu, heldur átti hún sjálf erfið unglingsár, var á götunni frá ellefu ára aldri og þurfti heldur betur að reiða sig á faglega aðstoð til að rata inn á gæfulegri braut í lífinu. Þóra...
Mar 12, 2024•17 min•Ep. 232