Þetta helst - podcast cover

Þetta helst

RÚVwww.ruv.is
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Bati, geðveiki eða dauði

Fíknsjúkdómur er einn algengasti og alvarlegasti geðsjúkdómur samtímans. Með tilkomu ópíóíðanna er þetta sá sjúkdómur sem veldur dauða flestra á aldrinum 15 ára til fertugs. Samkvæmt nýlegum íslenskum eru um það bil 22 prósent líkur fyrir íslenska karla að verða fíklar einhvern tímann á ævinni og um tíu prósent líkur fyrir konur. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er málshefjandi sérstakrar umræðu á Alþingi í dag um fíknsjúkdóminn og stöðu þeirra sem af honum þjást. Hún gagnrýnir forgangsröð...

Mar 11, 202415 minEp. 231

Leita svara á Íslandi við ráðgátunni um Jón Þröst

Anna Marsibil Clausen leitar svara við ráðgátunni um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar hér heima á Íslandi en ekki í Dublin þar sem hann hvarf fyrir fimm árum. Hún sagði Þóru Tómasdóttur frá því hvers vegna þræðirnir liggja til Íslands.

Mar 08, 202417 minEp. 230

Hvað er verra en helvíti á jörð?

Fimm mánuðir eru liðnir frá því að stríðið á milli Hamas og Ísrael hófst. Meira en 25000 palestínsk börn og konur hafa verið myrt síðan 7. október, milljónir eru á flótta við ólýsanlega hræðilegar aðstæður og samninganefndirnar neita að hittast. Gíslar eru í haldi á báðum vígstöðvum. Takmarkið? Óljóst. Uppræting Hamassamtakanna, segir forsætisráðherra Ísraels. Og að koma í veg fyrir að Gaza geti ógnað öryggi landsins. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í miðaus...

Mar 07, 202416 minEp. 229

Njósnir og vopn í stafrænu stríði

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns er ráðgjafi í net- og upplýsingaöryggi og segir frá algengum vopnum sem hernaðarríki beita í stafrænum heimi. Hán hefur meðal annars nýtt þekkingu sína til að berjast gegn njósnum og ritskoðun á netinu. Þóra Tómasdóttir talaði við hán.

Mar 06, 202417 minEp. 228

Flokkurinn sem veðjaði á hestinn

Saga Miðflokksins spannar ekki einu sinni sjö ár, þó að rætur hans liggi miklu dýpra. Flokkurinn hefur verið að bæta við sig svo miklu fylgi í könnunum undanfarið að hann er kominn í sömu tölu og hann fékk í fyrstu Alþingiskosningunum sínum. Hvað er Miðflokksfólkið að gera sem skýrir þessa breytingu? Sunna Valgerðardóttir ræðir við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um merkissögu þessa unga flokks og rýmið sem orðræðan hans hefur fengið nýverið í íslensku samfélagi.

Mar 05, 202420 minEp. 227

Listin að afstýra átökum

Lilja Bjarnadóttir og Dagný Rut Haraldsdóttir reka Sáttamiðlaraskólann og leiða samtöl deilandi aðila svo þeir geti sjálfir fundið lausn á sínum ágreiningsmálum. Þær sögðu Þóru Tómasdóttur frá því hvernig sáttamiðlun er beitt, hvaða verkfæri þær styðjast við og hvernig í ósköpunum þær fá fólk til að takast í hendur sem annars væri á leið inn í dómsali.

Mar 04, 202417 minEp. 226

Nikótínóðir unglingar

Íslendingar hafa náð einstökum árangri í því ala upp nýja kynslóð nikótínneytenda þó fáum þyki það fagnaðarefni. Við heimsækjum eina af verslunum Svens og ræðum við ungt fólk sem neytir nikótíns. Við heyrum líka hvað Lára G. Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, telur að ungt fólk verði að vita um áhrif nikotíns.

Mar 01, 202417 minEp. 225

Nýtt þrælatímabil gengið í garð

Það eru fleiri þrælar í heiminum í dag en á öllu þrælatímabilinu hér á öldum áður. Talið er að um 50 til 60 milljónir séu í dag gerð út í þrældóm hverskonar um allan heim, meðal annars hér á Íslandi. Það kom talskonu Stígamóta á óvart hversu umfangsmikil mansalsmálin voru í kerfi stofnunarinnar þegar hún tók við fyrir ári síðan, en allt kapp er lagt á að uppræta vændi og mansal hér, þó að það reynist oft þrautin þyngri. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Drífu Snædal, sem varð talskona Stígamóta fy...

Feb 29, 202416 minEp. 224

Blóðið er besta vitnið

Ragnar Jónsson hefur starfað í íslensku lögreglunni í meira en þrjá áratugi. Undanfarin 23 ár hefur hann þó sérhæft sig í tilteknum kima lögreglustarfsins: blóði. Hann er blóðferlafræðingur hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann skoðar hvernig blóð hagar sér og skilur söguna sem það skilur eftir sig. Nýverið tók hann við stöðu forseta Evrópudeildar alþjóðasamtaka blóðferlafræðinga, sem telur um 600 sérfræðinga, og segir tengslin, samtalið og leitina að sannleikanum gera það að ve...

Feb 28, 202416 minEp. 223

Ráðgátan um undrabarnið Adam

Ráðgátan um undrabarnið Adam hefur bókstaflega heltekið Norðmenn á undanförnum vikum. Hún hverfist um tékkneskan unglingsdreng sem hóf skólagöngu í Marienlyst gagnfræðiskólanum í vesturhluta Oslóar, árið 2007. Málið er með furðulegri sakamálum sem upp hefur komið í Noregi og það teygir anga sína út fyrir landamærin, til Norðurlanda og sunnar í Evrópu. Þóra Tómasdóttir ræddi við Trude Lorenzen höfund hlaðvarpsþáttanna Ráðgátan Adam.

Feb 27, 202416 minEp. 222

Banvæna klæðningin sem brann í Valencia

Síðdegis á fimmtudag nýliðinnar viku kviknaði eldur í blokkaríbúð í borginni fögru, Valencia, höfuðborg samnefnds héraðs á Spáni. Byggingaverkfræðingur fullyrðir að þetta sé fyrsti bruni sinnar tegundar þar í landi. Klæðningin á húsinu, sem er tiltölulega nýtt, fuðraði upp eins og hún væri hönnuð til þess. Og það vekur upp óþægileg hugrenningatengsl við annars bruna. Það tók eldtungurnar í Valencia um það bil hálftíma að breiðast um alla blokkina frá einum biluðum, gömlum ísskáp í íbúð á fjórðu ...

Feb 26, 202415 minEp. 221

Töfrarnir í tölvunni hans Mats

Þegar norsku hjónin Robert og Trude Steen misstu son sinn Mats úr vöðvarýrnunarsjúkdómi fyrir tíu árum héldu þau að sonur þeirra hefði kvatt einmanna og sveltur á félagsleg tengsl. Fátt benti til þess að sagan hans Mats ætti eftir að hreyfa við milljónum manna um allan heim. Hvað þá enda sem ævintýri á hvíta tjaldinu. Robert Steen sagði Þóru Tómasdóttur sögu sonar síns sem nú er orðin að kvikmyndinni Ibelin.

Feb 23, 202415 minEp. 220

Ofurmóðir sannleikans

Áhrifavaldar þessa heims eru alls konar. Misgagnlegir og misskaðlegir. Svolítið eins og trúar- og lífsskoðunarhópar. Nú í vikunni mætti bandarísk sex barna móðir fyrir dómstól og játaði á sig næstum ólýsanlega glæpi gegn börnum sínum, sem hún hafði dásamað klukkustundum saman á netinu nokkrum árum fyrr. Hún var með milljónir áskrifenda og milljarða áhorf. En það er fleira sem þessi kona og skaðlegir sértrúarsöfnuðir eiga sameiginlegt. Hún var eiginlega í tveimur og drottnaði yfir þeim þriðja, fj...

Feb 22, 202417 minEp. 219

Rifist um Rapyd

Á undanförnum mánuðum hefur gustað um greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd. Hópur fólks hefur kallað eftir því að neytendur á Íslandi sniðgangi Rapyd og þrýsta á verslanir að slíta samstarfi við fyrirtækið. Þóra Tómasdóttir ræddi við Björn Brynúlf Björnsson sem hvetur til sniðgöngu Rapyd og Garðar Stefánsson forstjóra fyrirtækisins sem segir reiðinni beint í ranga átt.

Feb 21, 202418 minEp. 218

Dýrt innanlandsflug: Okkar upplifun

Það er dýrt að búa á Íslandi og það er dýrt að ferðast um Ísland. Sérstaklega í loftinu. Það er dýrara að fljúga á milli Akureyrar og Reykjavíkur en til flestra stórborga í nær-Evrópu. Af hverju? Sunna Valgerðardóttir skoðar dýrt innanlandsflug í þætti dagsins og tekur nýlegt dæmi af fjölskyldu einhverfs drengs sem þarf nú að greiða fullorðinsfargjald fyrir hann til stuðningsfjölskyldunnar vegna þess að hann er orðinn 12 ára.

Feb 20, 202418 minEp. 217

Íslensk ilmgerð í blóma

Samheldin fjölskylda stofnaði fyrirtækið Fischer til að geta ræktað listsköpun í sameiningu. Fyrirtækið hefur þróast úr því að vera lítil tilraunagerð í kjallara yfir í framleiðslufyrirtæki með vörur markaði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Asíu. Ingibjörg, Lilja og Sigurrós Birgisdætur, Sindri Már Sigfússon og Kjartan Hólm ræddu við Þóru Tómasdóttur um ævintýri Fischer.

Feb 19, 202417 minEp. 216

Landið fýkur burt II

Rætt er við Árna Bragason, fyrrverandi Landgræðslustjóra, í þessum síðari þætti um landið okkar sem var að fjúka burt. Árni hefur sterkar skoðanir á þróuninni undanfarna áratugi og segir að það hefði mátt koma í veg fyrir mikinn skaða ef fólk hefði hlustað og breytt rétt. En þó segir hann stöðuna miklu betri í dag en þegar umræðan um gróðureyðingu stóð sem hæst. Ríó Tríó, Gunni Þórðar og Jónas Friðrik eiga heiðurinn að hljóðmyndinni.

Feb 16, 202417 minEp. 215

Landið fýkur burt I

Hvað kemur upp í hugann þegar við rifjum upp drungaleg myndskeið af fjúkandi svartri hálendisauðn, rofabörðum og brotnandi sandöldum við gróðurströnd? Það eru að verða 35 ár síðan landið okkar var við það að fjúka burt. Eftir áratugastríð Landgræðslunnar við að ná athygli ráðamanna og almennings, tókst það loksins. Og það var ýmsum að þakka, meðal annars þáverandi forseta og tilteknum tónlistarmönnum. Sunna Valgerðardóttir fjallar um umhverfisógnina sem var, rifjar upp umræðuna með fréttamanni o...

Feb 15, 202417 minEp. 214

Væntingastjórnun fyrir komandi sumar

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sumarnætur og sveitaferðir, maríuhænur og lúsmý. Vísindamenn við Háskóla Íslands eru byrjaðir að rannsaka þennan óvinsæla vágest, meðal annars til að reyna að sporna við útbreiðslu hans. Rannsóknin hófst síðasta sumar og heldur áfram í ár, en ávaxtaflugurnar sem hanga heima hjá okkur allan ársins hring voru líka rannsakaðar. Sunna Valgerðardóttir fjallar um pínulitlar flugur í þætti dagsins.

Feb 14, 202416 minEp. 213

Annie Mist um æfingar á breytingaskeiði

Crossfit-meistarinn Annie Mist Þórisdóttir segir að konur á breytingaskeiði eigi að lyfta lóðum þrisvar í viku, taka hraða spretti einu sinni í viku og borða eitthvað prótein í hvert mál. Þannig sporni þær við vöðvarýrnun og styrki beinin. Þóra Tómasdóttir ræddi við Annie Mist um matarræði og æfingar á breytingaskeiði.

Feb 13, 202416 minEp. 212

Réttindalaus á réttargeðdeild í sjö ár

Fyrir þremur árum var greint frá máli mikið fatlaðs manns sem hafði þá verið fastur inni á réttargeðdeildinni á Kleppi vegna úrræðaleysis kerfisins. Þetta var kallað mannréttindabrot og lögbrot. Maðurinn er þar enn í dag, án allrar þeirrar nauðsynlegu þjónustu sem honum ber. Yfirlæknir deildarinnar hefur barist lengi fyrir máli mannsins, en lítið þokast. En nú stendur til að byggja nýja réttargeðdeild, þó að það hafi ekki farið hátt. Sunna Valgerðardóttir skoðar sögu réttargeðdeildarinnar á Ísla...

Feb 12, 202418 minEp. 211

Fyrstu kynni af sakborningum í hryðjuverkamálinu

Söguleg réttarhöld hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær aðeins örfáum klukkustundum eftir að eldgos hófst á Reykjanesi. Á meðan allra augu beindust að því var fámennur hópur fólks saman kominn í réttarsal við Lækjartorg til að heyra þá Sindra Snæ Birgisson og Ísidór Nathansson tjá sig um hryðjuverkamálið í fyrsta sinn fyrir dómi. Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður ræðir málið við Þóru Tómasdóttur.

Feb 09, 202417 minEp. 210

Atvinnumennska í fótbolta, kröfur og einmannaleiki

Í þessum þætti er rætt um áskoranir sem fylgja því að lifa drauminn og gerast atvinnumanneskja í vinsælustu íþrótt í heimi. Þóra Tómasdóttir ræðir við Magnús Agnar Magnússon, umboðsmann nokkurra fremstu knattspyrnumanna þjóðarinnar, og Gunnar Birgisson íþróttafréttamann á Rúv. Rætt er um kröfur til atvinnumanna, sameiginlega eiginleika þeirra allra bestu og einmannaleikann sem stundum fylgir velgengni í fótbolta.

Feb 07, 202417 minEp. 209

Þjóðin vill það sem er ekki í boði

Ekkert þeirra fjögurra sem þjóðin vill helst sjá sem forseta Íslands næstu fjögur ár eftir komandi forsetakosningar, hefur gefið kost á sér í embættið. Flest vilja Guðna Th. áfram, næstflest vilja að forsætisráðherrann skipti um stól, svo kemur einn helsti rithöfundur þjóðarinnar og síðan frambjóðandinn sem veitti Guðna mesta mótspyrnu fyrir átta árum síðan. Þetta kemur allt fram í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup. Sunna Valgerðardóttir rýnir í tölurnar og skoðar líka þau sem hafa þó boðið sig fram, á...

Feb 05, 202418 minEp. 207

Óróapúls íslenskra stjórnmála

Þróunin í fylgi flokkanna samkvæmt Þjóðarpúlsum Gallup er merkileg. Sá nýjasti kom í gær og samkvæmt honum er Samfylkingin er við það að ná sama fylgi og ríkisstjórnarflokkarnir þrír samanlagt, Miðflokkurinn hefur ekki mælst stærri í fjögur ár og Sjálfstæðisflokkurinn aldrei minni. Græna flóðbylgja Framsóknarflokksins virðist vera orðin að lygnum polli og Vinstrihreyfingin grænt framboð er við það að detta út af þingi. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um pó...

Feb 02, 202420 minEp. 206

Pyntaður til dauða á heimili sínu

Dagbjört Rúnarsdóttir, fædd 1981, situr nú í fangelsi fyrir morð. Hún er ákærð fyrir að hafa myrt sambýlismann sinn á hrottafenginn hátt - hún virðist hafa pyntað hann til dauða. Hún neitar sök í málinu, þó að það liggi eiginlega alveg ljóst fyrir að hún sé sek, þar sem það eru til óvenjuskýr sönnunargögn í málinu. Upptökur. Morðið var framið í Bátavogi síðasta haust og þingfesting fyrir héraðsdómi var um miðbik síðasta mánaðar. Þetta er óvenju-hrottafengið morð, það fimmta á einu ári. Við sögu ...

Feb 01, 202415 minEp. 205

Erfðamál og skipting eigna þarf ekki að vera höfuðverkur

Erfðamál og skipting eigna getur verið eldfimt umræðuefni en Elín Sigrún Jónsdóttir hreinlega brennur fyrir að aðstoða fólk við nákvæmlega það. Hún er lögfræðingur með langa og víðtæka reynslu. Hún hefur rekið útfarastofu, unnið hjá lífeyrissjóði, við eignamiðlun og ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Eftir að hafa safnað í reynslubankann í nokkra áratugi, stofnaði hún sitt eigið fyrirtæki.Hún leiðbeinir fólki við ráðstöfun eigna, gerir erfðaskrár, kaupmála og leitar leiða þegar deilur eru inna...

Jan 31, 202417 minEp. 204

Grísinn sem felldi fölsunarmálið

Ólafur Ingi Jónsson forvörður sá strax að verk sem eignað var Svavari Guðnasyni og selt á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku í fyrra, væri falsað. Hann segir það gert frá grunni af fölsunum úr stóra fölsunarmálinu. Ólafur Ingi rekur sögu falsana á Svavari Guðnasyni og minnist verksins, Din islandske gris, sem felldi stóra fölsunarmálið fyrir Hæstarétti árið 2004.

Jan 30, 202416 minEp. 203

Fölsun á Svavari Guðna seld í Kaupmannahöfn

Falsararnir úr stóra málverkafölsunarmálinu svokallaða eru enn að leika fólk grátt mörgum árum eftir að rannsóknum á brotum þeirra var hætt. Í lok síðasta árs seldist verk eftir Svavar Guðnason á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku. Verkið hafði handbragð falsara, samkvæmt Ólafi Inga Jónssyni, forverði á Listasafni Íslands. Kaupandinn var lögmaðurinn Knútur Bruun sem hefur verið baráttumaður fyrir réttindum myndhöfunda og beitt sér fyrir því að hægt verði að gera falsanir úr stóra fölsunarmál...

Jan 29, 202417 minEp. 202

Eldgosin heima: Grindavík og Eyjar II

Síðari þáttur Þetta helst um það sem Vestmannaeyingar og Grindvíkingar eiga sameiginlegt eftir hamfarirnar í bakgörðunum þeirra. Sömuleiðis það sem er ólíkt. Stuðst er við fréttir, viðtöl, heimildarmynd og ritgerð um afleiðingar gosanna tveggja.

Jan 26, 202416 minEp. 201
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android