Nú er liðin ein og hálf vika um það bil síðan jörð opnaðist á Reykjanesskaganum - í fjórða sinn á nokkrum árum. Gossprungan teygði sig inn fyrir varnargarðana sem áttu að vernda Grindavík, önnur opnaðist síðan innan þeirra og kvikan hlífði engu sem í vegi hennar varð. Þrjú einbýlishús, vegir og lagnir urðu gosinu að bráð. Og jörðin undir Grindavíkurbæ gliðnaði enn frekar. Sprungunum fjölgaði, undirlagið varð enn ótryggara. Nú þegar hafa þær tekið eitt mannslíf þegar Lúðvík Pétursson féll ofan í ...
Jan 25, 2024•18 min•Ep. 200
Allt bendir til þess að Donald Trump verði fulltrúi Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Við erum nefnilega alls ekki eina landið í heiminum sem heldur slíkar í ár, þau eru reyndar mun fleiri. Trump er spáð sigri í forvali flokksins í New Hampshire, en það er Nikki Haley sem keppir við hann þar og fyrr í vikunni heltist Ron DeSantis úr lestinni. Hann sá ekki fyrir sér að geta sigrað Trump. Greinendur vestanhafs segja að það megi nánast fullyrða að kapphlaupinu sé loki...
Jan 24, 2024•16 min•Ep. 198
Í Þetta helst í dag heyrum við upptökur af því sem fram fór fyrir utan og innan veggi Alþingishússins á aðeins tæpri klukkustund. Á meðan pólitíkin snerist í óvæntar áttir á einu augabragði. Veikindi matvælaráðherra gjörbreyttu stöðunni á stjórnarheimilinu.
Jan 23, 2024•17 min•Ep. 197
Það gustar í pólitíkinni á þessum mánudegi, þó að veðrið sé stillt. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar byrjuðu daginn á fundi og hittu svo stjórnarandstöðuna á fundi eftir fund, til að ræða Grindavík. En svo er alls konar annað í gangi líka. Sunna Valgerðardóttir skýrir eitthvað af því í þætti dagsins, þar sem staðan á pólitíkinni verður tekin, eins síbreytileg og hún er, sem virðist hverfast töluvert um skoðanir tiltekinna ráðherra á hinum ýmsu málum, eins og til dæmis hvölum og hælisleitendum. En al...
Jan 22, 2024•17 min•Ep. 196
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir frá því þegar hann bað ekkju fyrsta plastbarkaþegans afsökunar á þætti spítalans í málinu og hvers vegna hann telur rétt að hún fái bætur. Hann setur spurningamerki við þátt Sjúkratrygginga í málinu og telur rétt að fleiri stofnanir gangist við ábyrgð. Skort á viðbrögðum við málinu megi að hluta skýra með því að sjúklingurinn var Eritreumaður án baklands á Íslandi og ekki með þann stuðning sem vænta mætti ef um Íslending væri að ræða.
Jan 19, 2024•17 min•Ep. 195
Á dögunum féll frá einn stórtækasti listaverkasafnari Íslands, Pétur Arason. Hann safnaði af áfergju verkum eftir framúrstefnulega listamenn og átti yfir þúsund verk þegar hann kvaddi þennan heim. Markús Þór Andrésson deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur og Birta Guðjónsdóttir sýningastjóri, segja frá áráttu Péturs og einstöku safni.
Jan 18, 2024•17 min•Ep. 194
Það ríkir ófremdarástand víða í heiminum, mismikið og af mismunandi ástæðum. Í landi við nokkru miðbaug hefur verið lýst yfir 60 daga neyðarástandi eftir að einn maður slapp úr fangelsi. Það er allt á suðupunkti, morðtíðni í þessu tiltölulega friðsæla landi hefur margfaldast síðustu ár. Ekvador er langt í burtu og þetta er samfélag sem á líklega ekki margt sameiginlegt með okkur Íslendingum. En það er alltaf eitthvað. Það eru 30 virk eldfjöll í Ekvador og höfuðborgin, Kido, er umkringd níu þeirr...
Jan 17, 2024•17 min•Ep. 193
Grindvíkingar lýsa því margir að dagar þeirra líði að mestu í bíl um þessar mundir. Hjá stórum fjölskyldum er skutlið milli vinnu, skóla, frístunda og gististaða orðið ansi tímafrekt. Í þessum þætti fer Þóra Tómasdóttir á rúntinn með Rannveigu Jónínu Guðmundsdóttur sem þekkir þetta af eigin raun. Hún lýsir lífinu á hrakhólum, langþreytu og öryggisleysi eftir náttúruhamfarir undanfarinna vikna.
Jan 16, 2024•16 min•Ep. 192
Það er drungi yfir landinu. Snemma í gærmorgunn, sunnudaginn 14. janúar, opnaðist jörðin aftur á Reykjanesskaganum. En þetta var öðruvísi en síðustu eldgos. Þarna sýndi náttúran á sér aðra hlið, eða kannski bara alveg sömu hlið, bara á verri stað. Í þætti dagsins hvílir Sunna Valgerðardóttir áhyggjuraddir ráðamanna, dramatískar lýsingar fjölmiðlanna, skipanir yfirvalda og vangaveltur vísindamanna. Þessi fyrsti þáttur eftir eldgosið er tileinkaður Grindvíkingum, bænum þeirra og því einstaka æðrul...
Jan 15, 2024•15 min•Ep. 191
Leit að manni sem hvarf ofan í sprungu í Grindavík fyrir tveimur sólarhringum síðan á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Jafnvel reynslumikið og sérþjálfað björgunarfólk hefur aldrei fengist við viðlíka verkefni áður. Í þessum þætti er farið yfir atburðarásina og það sem gerir leitina svona erfiða.
Jan 12, 2024•17 min•Ep. 190
Við höldum áfram spjalli okkar við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðiprófessor um embætti forseta Íslands og einbeitum okkur nú að kosningunum sem framundan eru. Stjórnarskráin var skjalfest fyrir 80 árum og þá var það skráð að frambjóðendur til forseta Íslands þyrftu að safna saman nöfnum 1500 meðmælenda til að vera löggildir. Sú tala hefur ekkert breyst síðan þá, þrátt fyrir að fjórfalt fleiri séu á kjörskrá. Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt þessa úreltu tölu eru sitjandi forseti og forsætisráð...
Jan 11, 2024•17 min•Ep. 189
Hlutverk forseta Íslands er að miklu leiti það sama og hlutverk ríkjandi konunga eða drottninga í öðrum þingræðisríkjum. Íslenska leiðin var farin hér við stofnun lýðveldisins 1944, þegar hlutverk forsetans var skilgreint í stjórnarskránni og hefur það, eins og annað í því ágæta riti, ekki breyst síðan. En túlkun stjórnarskrárinnar er oft alls konar og hefur því hlutverk Bessastaðabóndans- eða freyjunnar, breyst mikið með tímanum. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræ...
Jan 10, 2024•14 min•Ep. 188
Í þessum þætti er fjallað um afleiðingar og uppgjör plastbarkamálsins. Viðmælandi okkar er Björn Zoega, forstjóri Karólínska sjúkrahússins og stjórnarformaður Landspítalans. Hann segir að þessu rúmlega áratuga langa máli sé ekki enn lokið af hálfu landspítalans. Þóra Tómasdóttir talaði við hann.
Jan 09, 2024•14 min•Ep. 187
Nýja árið byrjar ekki vel fyrir ríkisstjórnina. Umboðsmaður Alþingis lét það verða eitt af sínum fyrstu verkum að birta álit sitt um hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, sem beðið hafði verið eftir með nokkurri eftirvæntingu. Að minnsta kosti hjá einhverjum, til dæmis forsvarsmönnum Hvals HF. Þeir ætla í mál. Niðurstaða umboðsmanns er sú að Svandís hafi ekki fylgt meðalhófsreglu með ákvörðun sinni og skort lagaheimild til að gera það sem hún gerði. Sunna Valgerðardóttir skoðar ...
Jan 08, 2024•18 min•Ep. 186
Þetta verður mikið kosningaár um allan heim. Það verður kosið til þings eða forseta í rosalega mörgum löndum, 65 nánar tiltekið, þriðjungi allra ríkja heimsins. Að sjálfsögðu látum við Íslendingar ekki okkar eftir liggja þar - við kjósum okkur forseta. Og það verður nýr forseti því fjölskyldan á Bessastöðum ætlar að flytja sig um set eftir átta ára búsetu þar. Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesson tilkynnti í áramótaávarpi sínu að hann hygðist nú róa á önnur, eða gömul, mið, segja skilið við fo...
Jan 05, 2024•16 min•Ep. 185
Öllum konungsríkjum Evrópu verður stýrt af konungum eftir að Margrét Þórhildur Danadrotting réttir Friðriki krónprinsi, syni sínum, krúnuna um miðjan mánuðinn. Evrópa hefur ekki verið drottningalaus í nær 200 ár, síðan Viktoría var krýnd drottning yfir Bretlandi 1837. Af þeim tíu konungsríkjum álfunnar hafa síðan þá alltaf verið að minnsta kosti ein ríkjandi drottning, um tíma voru þær meira að segja þrjár. En allt útlit er fyrir að einhverjar prinsessur taki við krúnunum af feðrum sínum þegar þ...
Jan 04, 2024•15 min•Ep. 184
Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, er kominn í leyfi frá störfum sínum. Ástæður þess eru, samkvæmt heimildum Þetta helst, tengdar plastbarkamálinu. Staða Tómasar og framtíð hans innan spítalans er í skoðun hjá æðstu stjórnendum spítalans. Níu læknar við Landspítalann lýsa vaxandi kergju innan spítalans vegna hegðunar Tómasar Guðbjartssonar.
Jan 03, 2024•15 min•Ep. 183
Þetta helst hefur nýtt ár á að leita svara við spurningunni um hvernig fólk öðlast hamingju. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir er sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu og doktor í sálfræði. Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum á hamingju og veit því aðeins meira en margur um hvað raunverulega stuðli að hamingju Íslendinga. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.
Jan 02, 2024•15 min•Ep. 182
Við flytjum inn og skjótum upp gífurlega miklu magni af flugeldum um hver áramót, þó að gagnrýnisraddirnar sem mæla á móti því verði sífellt háværari. Eigum við að geyma þessa flugelda okkar eins og eftirminnileg ár, eða bara gleyma þeim eins og þeim glötuðu? Sunna Valgerðardóttir dustar flugeldarykið af í þessum síðasta þætti ársins, skoðar gamlar fréttir og nýrri, úreldar auglýsingar og skýrslur sem enduðu í skúffum. Takk fyrir hlustunina á árinu og við heyrumst aftur á því nýja!
Dec 29, 2023•15 min•Ep. 181
Í þessum þætti er stiklað á stóru í umfjöllun Þóru Tómasdóttur um nýja anga af stóra málverkafölsunarmálinu. Þátturinn er samantekt um óstöðvandi falsara sem hafa blekkt listasöfn, uppboðshús og kaupendur um allt land. Þáttarröðin var flutt 11.-15. september og 30. október 2023.
Dec 28, 2023•15 min•Ep. 180
Matvælastofnun var ekki heimilt að aflífa dýr Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda í Lækjatúni á Suðurlandi þegar hún veiktist og þurfti að leggjast inn á sjúkrastofnun fyrir ári síðan. Dýrin voru frísk og ástand þeirra metið í lagi, þegar starfsfólk stofnunarinnar ákvað að aflífa þau. Þóra Tómasdóttir ræðir við Guðna Ágústsson og Guðbjörn Ingvason sveitunga Guðmundu og Sigurð Guðmundsson lögmann hennar um þessa aðgerð Matvælastofnunar.
Dec 27, 2023•15 min•Ep. 179
Við borðum margar milljónir af mandarínum á hverju ári á Íslandi, langmest á aðventunni. Við torgum svona þrjátíu stykkjum á haus að meðaltali. Aldrei virðumst við kunna okkur hóf, en þessi ofsaneysla á mandarínum skýrist kannski af því að fyrir ekkert svo löngu fengust bara engir ávextir hér á sómasamlegu verði. Sunna Valgerðardóttir fjallar um mandarínur og klementínur, ávexti sem vér þekkjum fólk á, myglaðar mandarínur, eitraðar mandarínur og ómissandi jólaávexti. Hljómsveitin Eva leikur undi...
Dec 22, 2023•15 min•Ep. 178
Harry Bretaprins vann sigur í máli sínu gegn fjölmiðlasamsteypunni Mirror Group fyrir rétti í London. Þrjú blöð brutu lög með umfjöllun sinni um prinsinn sem var byggð á upplýsingum sem fólk á vegum þeirra aflaði með því að brjótast inn í síma hans, og þúsunda annarra, og hlusta á talhólfsskilaboð. Símahlerunarmálið stóra, sem upp komst 2011, skók heimsbyggðina og eftirskjálftarnir eru bara rétt að byrja. Dómurinn er sagður fordæmisgefandi og líklegt að hann muni breyta bresku fjölmiðlalandslagi...
Dec 21, 2023•15 min•Ep. 177
Í þessum þætti heimsækir Þóra Tómasdóttir grindvíska fjölskyldu sem undirbýr nú jólin í einskonar útlægð frá heimili sínu. Hjónin Lóa Kristín Ólafsdóttir og Bergur Hinriksson hafa komið sér fyrir ásamt sonum sínum tveimur, þeim Ara Berg 11 ára og Hinriki Hrafni 19 ára, í nýbyggingu í Garðabæ. Þar er lífið allt öðruvísi en í stóra húsinu þeirra í náttúruparadísinni í Grindavík. Þau bera sig vel, halda þétt hvert utanum annað og eru staðráðin í gera það besta úr aðstæðunum.
Dec 20, 2023•15 min•Ep. 176
Klukkan rúmlega níu í gærkvöldi hófst öflug skjálftahrina við Sundhnúkagíga. Þetta gerðist allt svolítið skyndilega, en svo virðist sem fáir hafi kippt sér mikið upp við fregnirnar á þeim rúma klukkutíma sem það tók frá því að hrinan byrjaði þar til jörðin við Sundhnúkagíga rifnaði og hleypti upp alveg gífurlegu magni af kviku sem var búin að krauma undir yfirborðinu í langan, langan tíma. Þetta var hröð atburðarás sem leit í fyrstu alls ekki vel út, en eftir því sem líða tók á nóttina og morgun...
Dec 19, 2023•15 min•Ep. 175
Forstjóri Landspítalans bað nýlega ekkju fyrsta plastbarkaþegans afsökunar á þætti spítalans í Plastbarkamálinu. Ekkjan heitir Merhawit Baryamikael Tesfaslase og hefur aðeins einu sinni sagt sögu sína. Það var í viðtali við Ragnheiði Linnet árið 2017. Ragnheiður Linnet er jafnframt eiginkona forstjóra Landspítalans. Í þessum þætti segir Ragnheiður sögu Merhawit.
Dec 18, 2023•15 min•Ep. 174
Fyrir um einu og hálfu ári síðan rakst textílhönnuður nokkur á svolítið merkilegt á göngu sinni um enska strönd. Hönnuðurinn, sem er líka forfallinn áhugamaður um steingervinga og fornleifar, áttaði sig strax á að þarna hafði hann fundið svolítið merkilegt. ?Ég fann svolítið stórkostlegt,? sagði textílhönnuðurinn á ströndinni. Þetta var reyndar ekkert bara einhver ensk strönd, heldur Júrastrandlengjan og þetta sem hann fann var hluti af mjög stórri og mjög gamalli hauskúpu. Maðurinn hringdi nokk...
Dec 15, 2023•15 min•Ep. 173
Stjórnendur RÚV benda á að það sé EBU, Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, sem setji reglurnar og fari með valdið í málefnum Ísraela í næstu Júróvisjónkeppni. Jónatan Garðarsson dagskrárritstjóri Rásar 1 segir frá þessu samstarfi sem á sér langa sögu og snýst um svo miklu miklu meira en bara Júróvisjón. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Dec 14, 2023•15 min•Ep. 172
Það er óhætt að segja að þrýst sé á Rúv um að sniðganga Júróvisjón á næsta ári. Stjórnendur stofnunarinnar hafa fengið fjölda tölvupósta þar sem farið er fram á að RÚV hætti við þátttöku í keppninni eða krefjist þess að Ísraelum verði vikið úr henni. Um átta þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til Rúv um það sama. Þóra Tómasdóttir ræðir við Veru Knútsdóttur sem skorar á RÚV að hætta við keppni, Jónatan Garðarsson dagskrárritstjóra Rásar 1 og Stefán Eiríksson útvarpsstjóra
Dec 13, 2023•15 min•Ep. 171
Snyrtivöruiðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum. Markaðurinn er einn sá stöðugasti, traustasti og stærsti í heimi. Í fyrra nam veltan á heimsvísu um 20 þúsund milljörðum íslenskra króna - 20 billjónum - og samkvæmt hagfræðispám mun hann bara halda áfram að stækka. Snyrtivöruframleiðendur beina nú sjónum sínum að börnum, því allir hinir markhóparnir eru mettaðir. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þætti dagsins við Maríönnu Pálsdóttur snyrtifræðing og Rakel Garðarsdóttur, stofnanda Vakandi, um serumv...
Dec 12, 2023•16 min•Ep. 170