Laufey hefur náð ævintýralegum árangri á tónlistarsviðinu á undanförnum tveimur árum. Sú velgengni virðist rökrétt framhald af aðdragandanum. Hún semur tónlistina sína sjálf, útsetur, syngur og leikur á ótal hljóðfæri. Þó hún sé aðeins 24 ára að aldri á hún að baki langan tónlistarferil og sigurför hennar er alls engin heppni. Í þessum þætti heyrum við af því hvernig hin kínversk-íslenska listakona varð einn mest spilaði djasstónlistarmaður á Spotify í fyrra. Þóra Tómasdóttir ræðir við Matthías ...
Dec 11, 2023•17 min•Ep. 169
Meira en 12.000 börn og konur hafa verið drepin í stríðinu á Gaza og það er nánast að gerast í beinni útsendingu fyrir alþjóð. 99. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna var virkjuð af framkvæmdastjóranum í gær, sem þýðir að hann geti beitt sér fyrir öryggisráðinu. Þetta er sjaldgæft. En hér heima á Íslandi hafa sum einfaldlega hætt að fylgjast með fréttum til að vernda sína eigin geðheilsu og reynt að sníða hjá myndskeiðum af grátandi, særðum eða dánum börnum á samfélagsmiðlum. Önnur hella sér í hyl...
Dec 08, 2023•15 min•Ep. 168
Að minnsta kosti 63 blaða- og fréttamenn hafa dáið í stríði Ísraelshers og Hamas, á þeim tveimur mánuðum sem það hefur staðið. Aldrei hafa fleiri blaðamenn látið lífið í stríði á jafn skömmum tíma. Og það er stríðsglæpur að drepa blaðamenn við störf. 63 dánir er ekki há tala miðað við þau rúmlega 17.000 sem hafa látið lífið, en það hefur alvarlegar afleiðingar. Skortur á réttum upplýsingum, falsfréttir og áróður er það sem eftir verður. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Ólöfu Ragnarsdóttur, frétta...
Dec 07, 2023•15 min•Ep. 167
Edda Björk Arnardóttir, sjö barna íslensk móðir, situr nú í sama öryggisfangelsi í Noregi og Anders Breivik var vistaður fyrir hryðjuverk. Edda er í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa í fyrra numið þrjá syni sína á brott frá föður þeirra í Noregi. Synir hennar eru nú í felum á Íslandi og barnaverndaryfirvöld vita ekki hvar þeir eru niður komnir. Faðir leitar drengjanna en hann fer með forsjá þeirra. Við rekjum nokkra helstu vendipunkta í þessu erfiða máli sem leiddi til þess að Edda var framseld til N...
Dec 06, 2023•15 min•Ep. 166
Þörfin fyrir að tilheyra, hjarðeðli, FOMO og egóismi gæti allt útskýrt það ástand sem skapaðist tvisvar með skömmum tíma nýverið - fyrst við opnun Ginu Tricot í Kringlunni og svo við upphaf sölu á snyrtivörufyrirtækinu ELF í Krónunni. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Rakel Garðarsdóttur, stofnandi umhverfissamtakanna Vakandi, um þessa hegðun, samfélagsmiðlanotkun og tvískinnunginn í þjóðinni. #haul #socialexperiment #shoppingaddict
Dec 05, 2023•15 min•Ep. 165
Opnanir fataverslana, vegghillur, bandarískar snyrtivörur, ódýrir símar, ókeypis smjörlíki eða splunkuný hlutabréf hafa komið Íslendingum til að mynda misskipulagðar raðir í gegn um tíðina. Stundum hefur skapast svo mikill glundroði að það liggur við slagsmálum. Nýjustu tíðindin eru Gina Tricot í Kringlunni og e.l.f. snyrtivörurnar í Krónunni, en þetta er ekkert nýtt samt. Sunna Valgerðardóttir skoðar kaupæði Íslendinga, ný og gömul, í þessum fyrri þætti af tveimur um okkar kaupóðu þjóð. (Mynd m...
Dec 04, 2023•15 min•Ep. 164
Mikil reiði hefur blossað upp meðal fólks sem á einni nóttu fékk lækkað lánshæfismat í kladdanum hjá Creditinfo. Fjölmargir eru ósáttir við að eldri vanskil, sem áður voru fyrnd, komi aftur inn í gagnagrunninn og lækki lánshæfismat þeirra. Afleiðingarnar eru meðal annars þær að fólk missir lánaheimildir svo sem kredittkort nú rétt fyrir jólin. Þóra Tómasdóttir ræðir við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar og Lovísu Ósk Þrastardóttur yfirlögfræðing hjá Umboðsmanni skuldara. Þær kalla eftir...
Dec 01, 2023•15 min•Ep. 163
Ríkisstjórnin sagðist í júlí ætla að leggja nýja neysluvatnslögn til Vestmannaeyja. Sú gamla væri löngu komin á tíma. Það sannaðist svo nýlega, þegar akkeri togara Vinnslustöðvarinnar eyðilagði lögnina á 300 metra kafla, sleit ljósleiðarann og mögulega rafstreng. Það er hættuástand. Svo er Herjólfur bilaður líka. Þó að Eyjamenn hafi heldur betur fengið að kynnast ókostunum við jarðvirkni þá þurfa þau samt að leita til lands eftir auðlindunum. Sunna Valgerðardóttir skoðar sögu vatnsveitunnar í Ey...
Nov 30, 2023•15 min•Ep. 162
Þó lög séu í landinu um hvað vextir af skuldum megi vera háir virðast innheimtufyrirtæki finna mýmargar leiðir til að smyrja ríkulega á innheimtukostnað. Við rýnum í innheimtubréf sem eru til skoðunar hjá Neytendasamtökunum en svo virðist sem innheimtufyrirtæki hreinlega leiki sér að reglunum til þess að hámarka ágóðann af innheimtustarfseminni. Þóra Tómasdóttir ræðir við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna og Einar Bjarna Einarsson lögfræðing Neytendasamtakanna.
Nov 29, 2023•15 min•Ep. 161
Dómstóll í Busan-héraði Suður Kóreu dæmdi á föstudag unga konu til lífstíðarfangelsisvistar fyrir morð. Konan játaði að hafa stungið ungan enskukennara til bana, hlutað lík hennar í sundur, komið einhverjum bútum fyrir í ferðatösku og fleygt í ánna. Ástæða morðsins var forvitni. Konan hafði lengi haft mikinn áhuga á sakamálasögum, sérstaklega sönnum sakamálasögum, og orðin forvitin um hvernig það væri að fremja morð sjálf. Hún lét verða af því, eftir að hafa skipulagt ódæðisverkið í marga mánuði...
Nov 28, 2023•15 min•Ep. 160
Í þessum þætti er rætt við fólk sem upplifir að það hafi starfað sem gerviverktakar hjá fjölmiðlafyrirtækinu Torgi. Fyrirtækið rak Hringbraut, Fréttablaðið og DV. Þegar Torg varð gjaldþrota áttu þau inni peninga sem ekki teljast forgangskröfur í þrotabúinu. Á dögunum sendi skiptastjóri þrotabúsins þeim bréf sem vakið hefur mikla reiði, þar sem hann krafði þau um endurgreiðslu launa sinna. Þóra Tómasdóttir ræddi við Margréti Erlu Maack, Njál Gunnlaugsson og Tómas Arnar Sigurbjörnsson.
Nov 27, 2023•15 min•Ep. 159
Hinn sextugi Geert Wilders ætlar að leiða Holland inn í breytta tíma eftir sigur í þingkosningunum á miðvikudag. Hann leiðir öfga-hægriflokkinn sem er kenndur við frelsi, er á móti íslam, vill Holland úr ESB og ætlar að reka harða innflytjendastefnu. Svipað er uppi á teningnum í Argentínu, þó að ekkert ESB sé til staðar til að ganga úr, en nýr forseti landsins, Javier Milei, ætlar að einkavæða nánast allt, leggja niður ríkisstofnanir og heilbrigðiskerfið sömuleiðis. Sunna Valgerðardóttir ræðir v...
Nov 24, 2023•15 min•Ep. 158
Þessi óvenjulega staða; lágt gengi hlutabréfa í Marel og fjárhagsvandræði forstjórans fráfarandi, Árna Odds Þórðarsonar, fara ekki fram hjá þeim sem eiga peninga og vakta hlutabréfamarkaðinn. Í fjölmiðlum má lesa ýmsar útgáfur af því sem hefur gerst bakvið tjöldin. Í Heimildinni er því haldið fram að Arion banki hafi gengið erinda Stoða og Samherja, þegar bankinn tók hlutabréf Árna Odds upp í skuldir. Viðskiptamiðillinn Innherji heldur því hins vegar fram að persónuleg skuldastaða Árna Odds hafi...
Nov 21, 2023•15 min•Ep. 157
Nú rísa varnargarðar á Reykjanesskaganum sem eiga að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir fari undir hraun í eldgosi. Tíminn gæti verið naumur, þetta er risastór framkvæmd, kostar mikið og almenningur borgar. Garðarnir eru tveir og eiga að vernda Svartsengi, sem sér um tíu prósent þjóðarinnar fyrir hita og rafmagni. Bláa lónið verður líka varið. Fasteignaeigendur greiða brotabrotabrot af brunabótamati hússins í sjóðinn. Þar með taldir eru eigendur Bláa lónsins. Sunna Valgerðardóttir skoðar ló...
Nov 20, 2023•15 min•Ep. 156
Hingað til hefur Parkinson verið ólæknandi sjúkdómur. Heilaskurðlækninum Arnari Ástráðsyni og samstarfsfólki hans hefur hins vegar þegar tekist að lækna bæði rottur og apa af sjúkdómnum. Þessi einstaki árangur byggir á Nóbelsverðlaunaðri aðferð við að þróa stofnfrumur. Arnar hefur unnið að þessu í rannsóknarteymi við Harvard háskóla í 17 ár og nú er komið að því prófa aðferðina á fólki. Arnar átti fatlaða systur sem varð honum hvatning til að fara þessa leið. Þóra Tómasdóttir ræddi við Arnar Ást...
Nov 17, 2023•15 min•Ep. 155
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært til lögreglu mál fyrirtækis sem geymdi matvæli í ólöglegum kjallara við Sóltún. Frestur fyrirtækisins til að svara eftirlitinu rann út í vikunni. Í kjallaranum bjuggu rottur og mýs og að öllum líkindum fólk líka. Myndirnar eru martraðakenndar, sérstaklega í ljósi þess að eftirlitinu grunar að maturinn hafi verið ætlaður veitingastöðum og matvælafyrirtækjum. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Kolbein Tuma Daðason, fréttastjóra og fréttamann á Vísi, Stöð 2 o...
Nov 16, 2023•15 min•Ep. 154
- Það er óábyrgt að láta Sigríði Hagalín flytja fréttir af mögulegu gosi þar sem hún spáði fyrir hamförum í bókinni Eldarnir, ástin og aðrar hamfarir, þar sem eldsvirkni byrjar á Reykjanesi sem leiðir til alls konar hörmunga - skrifar áhyggjufullur samfélagsmiðlanotandi, en líklega í léttum tón. Sigríður Hagalín Björnsdóttir er ein reyndasti fréttamaður RÚV og það vill svo til að hún er líka rithöfundur sem hefur meðal annars skrifað skáldsögu um eldsumbrot á Reykjanesskaganum. En það vill líka ...
Nov 15, 2023•15 min•Ep. 153
Sólný Pálsdóttir og hennar stóra fjölskylda úr Grindavík er að reyna að venjast ósvissuástandinu sem nú ríkir vegna jarðhræringa á svæðinu. Þau elska bæinn af öllu hjarta og mega ekki til þess hugsa að þau geti ekki snúið aftur til þess lífs sem þau þekkja þar. Mest af öllu reynir ástandið á yngsta barnið, hann Hilmi Sveinsson. Hann er tólf ára gamall, með downsheilkenni og kann bara ekki að meta þessa skjálfta og læti. Fjölskyldan er þó ekki bara með hugann við framtíð heimabæjarins því á sama ...
Nov 14, 2023•15 min•Ep. 152
Nokkur hluti þeirra tæplega fjögur þúsund Grindvíkinga sem þurftu að flýja heimili sín á föstudagskvöldinu búa núna í Kórnum í Kópavogi. Ég er smá hrædd um að húsið mitt springi og við komumst ekki heim aftur, segir tíu ára Grindvíkingur. Annar sveitungi hennar, sem hefur búið í Grindavík í 40 ár, hefur áhyggjur af húsinu sínu en ætlar ekki að nýta gluggann sem fékkst til að sækja eigur sínar. Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir fjalla um Grindvíkingana og ákvarðanir almannavarna sem eru b...
Nov 13, 2023•15 min•Ep. 151
Hvernig standa íslensk stjórnvöld sig í að þrýsta á að stríð Ísraels og Palestínu taki enda? Er Ísland málsvari friðar á alþjóðavettvangi? Hvaða máli skipta alþjóðalög í þessu grimmilega stríði og af hverju tala stjórnmálamenn um mikilvægi þess að farið sé eftir þeim? Hvaða úrræði eru til að hjálpa fólki í aðstæðum sem sagðar eru eitt versta mannúðarástand sögunnar? Breytir það einhverju að setja fjármagn í mannúðaraðstoð? Og hvaða mannúðarsamtök er þá gagnlegt að styrkja? Kári Hólmar Ragnarsson...
Nov 10, 2023•15 min•Ep. 150
Gerir Ísland nógu mikið til að þrýsta á stöðvun stríðsins milli Ísraels og Palestínu? Höfum við úrræði til að hjálpa til í aðstæðum sem sagðar eru eitt versta mannúðarástand sögunnar? Hvað geta íslensk stjórnvöld gert betur og hvað geta almennir borgarar gert? Breytir það einhverju að styrkja mannúðarsamtök? Er það kannski bara leið til að kaupa okkur friðþægingu svo okkur líði ögn betur yfir hryllilegum fréttum af morðum á þúsundum saklausra borgara? Við leitum svara við þessum spurningum hjá þ...
Nov 09, 2023•15 min•Ep. 149
Ármann Höskuldsson jarðfræðingur vill varnargarða strax vegna yfirvofandi eldgoss á Reykjanesi. Hann segir ákvarðanafælni og upplýsingaóreiðu ríkja í viðbrögðum stjórnvalda. Það sé of mikið í húfi. Milljónir, eða jafnvel milljarðar, í varnargarða skipti litlu máli þegar þúsund milljarðar gætu verið í hættu. Ef hann mundi ráða, væri hann búinn að lýsa yfir hættustigi vegna jarðhræringanna. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Ármann í þætti dagsins.
Nov 08, 2023•15 min•Ep. 148
Konur eru afar sjaldan skráðar eru fyrir býlum í íslenskum landbúnaði. Að mati Vigdísar Hasler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, skapar versnandi fjárhagsstaða bænda enn meiri hættu á að konur sinni ólaunuðum störfum í landbúnaði og safni hvorki réttindum né lífeyri. Reynir Þór Jónsson bóndi á Hurðabaki í Flóa segir nýleg dæmi sýni að nauðsynlegt sé að gera kerfisbreytingar til að tryggja réttindi allra sem standa að búrekstri.Fjallað er um hvernig ættliðaskiptum sé háttað á bæjum og hvað gæti b...
Nov 07, 2023•15 min•Ep. 147
Fjallað er um hvimleiðan bólfélaga í þætti dagsins. Bólfélaga sem athafnar sig að nóttu til þegar rekkjunautar hans eru í fastasvefni. Hann stingur á þá göt og sýgur sjöfalda þyngd sína, finnur sér svo góðan samastað í rifum rúmsins, fjölgar sér og heldur svo iðju sinni áfram. Og það er hægara sagt en gert að losna við hann. Og í París hefur geisað það sem fjölmiðlar kalla faraldur, þessa óboðna gests. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Matthías Alfreðsson skordýrafræðing og Steinar Smára Guðbergss...
Nov 06, 2023•15 min•Ep. 146
Skelfiskrækt er stærsta tækifæri sem við Íslendingar höfum til nýsköpunar. Við strendur landsins eru einstakar aðstæður á heimsvísu til ræktunar á skelfiski. Ef fundnar verða leiðir til að yfirstíga helstu áskoranir sem þessi atvinnugrein glímir við nú, verður hægt að framleiða með vistvænum hætti, meiri verðmæti en allur íslenski sjávarútvegurinn gerir nú. Þetta segir Júlíus Birgir Kristinsson doktor í líffræði.
Nov 03, 2023•16 min•Ep. 145
Um milljón laxar í sjókvíum í Tálknafirði hafa drepist eða verið fargað. Á aðeins tveimur vikum sýktist laxinn í kvíunum svo illa af laxalús að fiskurinn allur er ónýtur til manneldis. Sláandi myndir af lúsétnum laxi hafa birst í fjölmiðlum að undanförnu. Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamaður Rúv á Vestfjörðum og Vesturlandi er nýkomin frá Tálknafirði og fjallar um úrræðin við þessu ástandi og hvers vegna atvinnugreinin er íbúum á svæðinu svo mikilvæg.
Nov 02, 2023•15 min•Ep. 144
Mörg þúsund manns, mikið til lítil börn, hafa verið drepin í stríðinu á milli Ísrael og Palestínu. Þetta er ógeðslegt ástand og voðalega flókið. Sunna Valgerðardóttir stiklar á ýmsu í þætti dagsins varðandi Ísrael og Palestínu, stríðið þar sem fólk deyr og þjáist, verkferla Sameinuðu þjóðanna og litla stríðið hér heima þar sem við rífumst um tölvupóstssendingar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er viðmælandi þáttarins.
Nov 01, 2023•15 min•Ep. 143
Einar Ágústsson var í síðustu viku dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik. Bróðir hans, Ágúst Arnar, er leiðtogi trúfélags á Íslandi, trúfélags sem er byggt á einni elstu trú mannkyns: Zuism. Saga íslensku Zúistanna er ekki dæmisaga, þó að hún sé á köflum hálf-lygileg. Hún er vissulega dæmisaga sem slík, um það hvernig á ekki að gera hlutina, eða hvernig á einmitt að gera þá, það fer allt eftir viðhorfinu. Í dag eru um 600 skráðir Zúistar á Íslandi, en þeir voru rúmlega 3000 á blómaskeiðin...
Oct 31, 2023•15 min•Ep. 142
Við höldum áfram að fjalla um nýja anga stóra málverkafölsunarmálsins. Ólafur Ingi Jónsson forvörður Listasafns Íslands fullyrðir nú að hann viti hver málaði umdeilda Kjarvalsverkið Rauðmagi á fati, sem nýlega hékk á veggjum listasafnsins. Hann hefur fundið ný gögn sem afhjúpa að höfundurinn er alls ekki Jóhannes Kjarval heldur lítt þekktur danskur málari.
Oct 30, 2023•17 min•Ep. 141
- Náðargáfum fylgja freistingar, því hættulegri sem þær eru duldari. Séra Friðrik hlaut náðargáfu persónulegra töfra í óvenjulega ríkum mæli. Hann vissi um það vald sem hann gat haft yfir öðrum. Það er freisting slíks manns, það er freisting leiðtogans að valdið yfir öðrum, aðdáun og þjónslund fylgismanna verði takmark, óaðgreinanlegt frá málstað. Hann þarf að ráða. Verða miðdepill. Stjaka til hliðar. Eiga sinn flokk. Séra Friðrik var hafinn yfir slíkt. Því hann var hafinn yfir sjálfan sig. Hann...
Oct 27, 2023•15 min•Ep. 140