Reynsla ættleiddra barna sem koma hingað til lands er sambærileg reynslu þeirra sem vistuð voru á vöggustofum í Reykjavík á árum áður. Þetta segir Selma Hafsteinsdóttir, móðir ættleidds barns. Hún segir ættleiddra barna bíði sömu örlög nema þau fái kerfisbudninn stuðning til að vinna úr sínum áföllum. Á meðan vöggustofubörn fá ríkan skilning og bætur fyrir illa meðferð, sé skorið niður í málefnum ættleiddra.
Oct 26, 2023•15 min•Ep. 139
Einungis sjö tilfelli hafa verið staðfest á Íslandi af heilahrörnunarsjúkdómnum banvæna sem kenndur er við þýsku taugalæknana Hans Creutzfeldt og Alfons Jakob. Nýjasta tilfellið greindist í fyrra, það var kona á miðjum aldri sem lést fljótlega eftir að fyrstu einkenni komu fram. Þetta er smitsjúkdómur, en samt ekki beint smitandi. Það eru til fleiri afbrigði, eitt lagði breskan landbúnað nærri að velli fyrir nokkrum áratugum. Í þætti dagsins ræðir Sunna Valgerðardóttir við Elías Ólafsson, sérfræ...
Oct 25, 2023•15 min•Ep. 138
Nú líður að lokum heimsmeistarakeppninnar í rúgbí karla í Frakklandi en um komandi helgi mætast Nýja Sjáland og Suður-Afríka í úrslitaleik mótsins. Í Þetta helst verður sagt undan og ofan af keppninni og íþróttinni sem nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Umsjón með Þetta helst í dag hefur Guðni Tómasson
Oct 24, 2023•15 min•Ep. 137
Í þætti dagsins fjöllum við um hvernig það er að verða opinberlega niðurlægður, að vera aðhlátursefni í fjölmiðlum eða bara lenda í hakkavélinni. Sá sem stendur einn í miðjum fjölmiðlastormi, gleymir því seint. Viðmælandi okkar heitir Auðun Georg Ólafsson, sem hefur ekki þorað að segja nafnið sitt upphátt í 18 ár. Slík var skömm hans yfir fárinu sem hann lenti í eftir að hafa sótt um starf fréttastjóra hjá ríkisútvarpinu. Þóra Tómasdóttir ræddi vð Auðun Georg.
Oct 23, 2023•15 min•Ep. 136
Landspítalinn sinnir hátt í 50 manns árlega sem þjást af alvarlegu þunglyndi, geðhvörfum og stundum öðrum sjúkdómum, með raflækningum. Þetta er besta úrræðið fyrir vissan hóp. Örlitlum rafstraumi er beint inn í heila sjúklinganna til að framkalla flog. sem umsjónarlæknirinn segir eins konar endurræsingu. Mörgum þykir tilhugsunin um að rafstraumur í heilann geti verið lítið annað en einhvers konar gamaldags-pyntingaraðferð á fólki með geðraskanir. En það er alls ekki svo. Meðferðin skilar góðum á...
Oct 20, 2023•15 min•Ep. 135
Nýr dómur í Noregi bannar áframhaldandi ræktun cavalierhunda þar í landi. Við ræðum hvernig best sé að bregðast við innræktun hér og hvort hægt sé að bjarga þessum vinsæla hundastofni. Við ræðum líka um sögu hunda og manna. Herdís Hallmarsdóttir fyrrum formaður HRFÍ, Þóra Jónasdóttir dýralæknir og Theódóra Róbertsdóttir dýrahjúkrunarfræðingur ræða hundarækt og siðferðisleg álitamál við Þóru Tómasdóttur.
Oct 19, 2023•15 min•Ep. 134
Við fjöllum um cavalier-hunda sem Hæstiréttur í Noregi telur vera svo innræktaða á heimsvísu að stöðva eigi ræktun þeirra. Cavalier eru meðal vinsælli fjölskylduhunda á Íslandi og eru ræktaðir her í stórum stíl. Herdís Hallmarsdóttir, Theódóra Róbertsdóttir, Anna Bachmann og Þóra Jónasdóttir ræða hvort forsvaranlegt sé að rækta hundana áfram þó alltof algengt sé að þeir glími við sársaukafulla erfðagalla. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Oct 18, 2023•15 min•Ep. 133
Ástralska þjóðin gekk til kosninga í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina. Niðurstöðurnar voru afgerandi: 60 prósent sögðu nei, tillagan var felld í öllum ríkjunum sex. Tillagan hefur verið kölluð Röddin, The Voice, sem átti að gefa frumbyggjum landsins meiri réttindi og viðurkenningu í stjórnarskránni. Og það sem vakti ekki síst athygli er að töluvert stór hópur frumbyggja sögðu líka nei. Sunna Valgerðardóttir fjallar um frumbyggja Ástralíu.
Oct 17, 2023•15 min•Ep. 132
Á rúmri viku hefur blóðugt stríð Hamas-samtakanna og Ísraelsmanna náð slíkri stigmögnun að útlit er fyrir að fleiri ríki dragist inn í átökin. Hagsmunaaðilar eru vítt og breitt um miðausturlönd en áhrifin ná einnig til Evrópu og gætu meðal annars haft áhrif á stuðning annarra landa við Úkraínu. Þessi þáttur er fyrir þau sem skilja ekki alveg hvað er að gerast í kringum Ísrael. Þóra Tómasdóttir bankaði uppá hjá Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðasamskiptumeldsnemma í morgun til að spyrja h...
Oct 16, 2023•15 min•Ep. 131
Tæplega tíu þúsund manns mótmæla framkvæmdunum við höfnina í Þorklákshöfn, eina staðnum á landinu þar sem brimbrettafólk gengur að góðum öldum vísum. Ástríðufullt samfélag brimbrettaelskenda hefur byggst upp í kringum þetta svæði, sem er nú í hættu. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þættinum við Ólaf Pálsson, stjórnarmann í Brimbrettafélagi Íslands.
Oct 13, 2023•15 min•Ep. 130
Umboðsmaður Alþingis hefur stóru hlutverki að gegna í samfélaginu. Álit hans skipta töluverðu máli. Embættisins hefur verið útskýrt annað slagið í fréttum undanfarna áratugi, á milli þess sem álitum hans á hinu og þessu er slegið upp. Þú getur verið nærfataþjófur af landsbyggðinni, ósáttur stöðumælasektargreiðandi, landeigandi með álver í bakgarðinum eða ráðherra - mál þitt á erindi til umboðsmanns Alþingis. Sunna Valgerðardóttir fer yfir hlutverk þessa mikilvæga embættismanns við Templarasund í...
Oct 12, 2023•16 min•Ep. 129
Hvaða aðferðir reynast árangursríkastar þegar lögregla leitar að týndu fólki. Við spyrjum um vinnubrögð til dæmis þegar leitað er að fólki í vímuefnavanda eða í sjálfsvígshugleiðingum.Bergþóra Halla Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir frá því hvernig unnið er þegar leitað er að horfnum einstaklingum. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana.
Oct 11, 2023•15 min•Ep. 128
Formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar, Bjarni Benediktsson, hefur sagt af sér. Stjórnmálafræðiprófessor segir afsögnina geta skýrst af erfiðu ríkisstjórnarsamstarfi og að kosningar gætu verið framundan. Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir fara yfir feril stjórnmálamannsins Bjarna Benediktssonar og ræða við prófessorinn Eirík Bergmann um hvað þetta þýðir nú allt saman.
Oct 10, 2023•15 min•Ep. 127
Blóðug átök standa nú yfir milli Ísraels og Hamas-samtakanna. Tveir stórir hópar Íslendinga hafa verið í Jerúsalem og hefur utanríkisþjónustan unnið að því undanfarna sólarhringa að koma þeim í var. Þórlindur Kjartansson er aðstoðarmaður utanríkisráðherra og hefur verið með það á sínu borði að koma fólkinu heim. Við ræðum um Ísrael, Palestínu og þá afstöðu Íslands að styðja tveggja ríkja leið til að stuðla að friði. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.
Oct 09, 2023•15 min•Ep. 126
Hvers vegna velja Íslendingar í auknum mæli að leita til Grikklands eftir hjálp við að eignast börn? Helga Halldórsdóttir og Sandra Árnadóttir voru nýskriðnar yfir tvítugt þegar þær eignuðust son eftir glasafrjóvgun í Aþenu. Við heimsækjum litlu fjölskylduna og heyrum þeirra upplifun af ferlinu. Ásthildur Sturludóttir reyndi í mörg ár að eignast barn. Það tókst loks þegar hún var orðin 42 ára gömul og þá með hjálp grískra lækna. Við heyrum einnig í Snorra Einarssyni lækni hjá Livio sem skilur ve...
Oct 06, 2023•15 min•Ep. 125
Íslendingar leita í auknum mæli til Grikklands til þess að fá aðstoð við að eignast börn. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Hanna Björk Halldórsdóttir íþróttafulltrúi í Mosfellsbæ segja sögur sínar en þær eignuðust báðar börn eftir ferðir til Grikklands. Þrá eftir að eignast barn, örvænting og siðferðislegar spurningar verða einnig til umfjöllunar.
Oct 05, 2023•15 min•Ep. 124
Rannsókn lögreglunnar í Norðymbralandi á niðurfellingu trés er enn í fullum gangi. Tréð var sagað niður í skjóli nætur og samkvæmt nýjustu fréttum er nú enginn í haldi, þó að nokkrir hafi verið handteknir, meðal annars skógarhöggsmaður á eftirlaunum og sextán ára drengur. Rannsóknin er á viðkvæmu stigi og lögreglan verst allra frétta. Lagt hefur verið hald á keðjusög í tengslum við glæpinn, sem hefur vakið mikinn óhug meðal íbúa. Sunna Valgerðardóttir fjallar um ráðgátuna í Sycamore Gap í þætti ...
Oct 04, 2023•15 min•Ep. 123
Rawa Maijd eða kúrdíski refurinn er maðurinn sem sagður er bera megin ábyrgð á því hrottalega ofbeldi sem framið hefur verið á götum Stokkhólms og nágrennis á undanförnum vikum. Við heyrum sögu refsins sem fer fyrir genginu Foxtrot og skoðum hvers vegna Svíum reynist svo erfitt að stöðva hann. Fjölmiðlamennirnir Atli Steinn Guðmundsson og Kári Gylfason lýsa ástandinu í Svíþjóð.
Oct 03, 2023•15 min•Ep. 122
Útlendingar verða á dagskrá í Þetta helst í dag. Eða reyndar þeir útlendingar sem voru sendir úr landi með leiguflugi til meginlandsins í síðustu viku. Þeir fimmtán útlendingar sem stjórnvöld handtóku, lyftu úr hjólastól, kipptu úr framhaldsskóla og settu suma í fangelsi, en eru nú á götunni í Grikklandi. Búið að kalla ríkislögreglustjóra fyrir allsherjar- og menntamálanefnd og embættið á að skila greinargerð til dómsmálaráðuneytisins um framkvæmdina. En það er alls ekkert víst að þetta væri svo...
Nov 07, 2022•20 min•Ep. 121
Maðurinn sem breski Íhaldsflokkurinn hefur falið það verkefni að sigla hagkefinu í örugga höfn þykir nákvæmismaður. Hann er ungur, forríkur, hefur áhuga á tölfræði, er bindindismaður á áfengi og neytir ekki nautakjöts. Hann heitir Rishi Sunak og Ragnhildur Thorlacius fjallar um hann í Þetta helst.
Nov 04, 2022•15 min•Ep. 120
Forysta Samfylkingarinnar var algjörlega endurnýjuð á landsfundi um síðustu helgi. Ný formaður, Kristrún Mjöll Frostadóttir, er tekinn við stjórnartaumunum. Flokkurinn heitir núna Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands og merki flokksins er ekki lengur rauða kúlan, heldur alþjóðlega jafnaðarmannamerkið rauða rósin. Nýrrar forystu bíður ærið verkefni. Nú er staðan sú að helmingur sex sitjandi þingmanna Samfylkingarinnar hefur á einhverjum tímapunkti verið formaður flokksins. Fyrir ekkert svo mörg...
Nov 03, 2022•18 min•Ep. 119
Fuglinn er frelsaður, skrifaði Elon Musk, ríkasti maður heims, á internetið síðastliðinn föstudag. Fuglinn í þessu samhengi er samfélagsmiðillinn Twitter, frelsaður af Musk sjálfum, en kaup hans á miðlinum fyrir heila 44 milljarða Bandaríkadala gengu loks í gegn. Lógó, eða kennimerki Twitter, er blár tístandi fugl og færslurnar sem fólk skrifar á miðilinn eru alla jafna kölluð tíst, eða Tweet. Musk tísti sumsé að hann hefði frelsað fuglinn, tístarann. Hann gerði óskiljanlega hátt kauptilboð í mi...
Nov 02, 2022•19 min•Ep. 118
Það fer að nálgast eitt og hálft ár síðan Gylfi Þór Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Everton, lykilmaður í íslenska landsliðinu og raunar einn besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið af sér, var handtekinn í Manchester í Bretlandi vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Gylfi var látinn laus gegn tryggingu en hefur verið í farbanni síðan, sem hefur verið framlengt nokkrum sinnum. Hann hefur dvalið í eins konar stofufangelsi bróðurpart þessa tíma, hann hefur ekki sp...
Nov 01, 2022•19 min•Ep. 117
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hefur skorað formanninn Bjarna Benediktsson á hólm. Guðlaugur vill verða taka við keflinu. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram um næstu helgi, hefst föstudaginn 4. nóvember, og kosningin verður á sunnudag. Þetta er fyrsti landsfundur flokksins síðan fyrir faraldurinn. Guðlaugur Þór smalaði húsfylli í Valhöll í gær þar sem stuðningsmenn hans hlýddu á framboðsræðuna og það er ljóst að það eru spennandi k...
Oct 31, 2022•17 min•Ep. 116
Fjórði og síðasti þáttur Katrínar Ásmundsdóttur um skotárásir. Fyrri þættir voru um árásina í Uvalde í Texas, tíðni skotárása, deilur um vopnaeign, pólitík og tilefni og hvatir að baki slíkum voðaverkum. Í dag lýkur umfjölluninni með viðtali við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, um hið illa. Illskunni hefur verið kennt um ófá voðaverk. Katrín spyr Sólveigu Önnu út í birtingarmyndir illskunnar, mótvægið við henni og hvort sé í raun sterkara - þegar ...
Oct 28, 2022•18 min•Ep. 115
Þriðji þáttur af fjórum í seríu Katrínar Ásmundsdóttur um skotárásir í Bandaríkjunum. Í þættinum er rætt við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, og spyrjum hana út í hvatanna og tilefnin að baki skotárásum. Sér í lagi fjöldaskotárásum, eins og þeirri sem átti sér stað í grunnskóla í Uvalde í Texas undir lok síðasta mánaðar. Þar sem maður myrti tuttugu og einn, þar af nítján börn undir tíu ára aldri. Skyttan sjálf var átján ára. Rau...
Oct 27, 2022•20 min•Ep. 114
Skotvopnalöggjöf og eldheitar umræður og deilur um skotvopnaeign í Bandaríkjunum eru á dagskrá í dag. Hart hefur verið tekist á um málið í áraraðir. Löggjöfin er æði frjálslynd í samanburði við önnur ríki heims og rétturinn til að eiga og bera vopn er verndaður í annarri grein stjórnarskrárinnar, þótt einnig sé deilt um það. Von margra, sér í lagi Demókrata, er sú að árásirnar verði loks til þess að gripið verði til aðgerða; löggjöfinni breytt og hún bætt. Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. júní 2...
Oct 26, 2022•16 min•Ep. 113
Um miðjan maí myrti átján ára maður tíu og særði þrjá í stórmarkaði í Buffalo í New York í Bandaríkjunum, í árás sem lögregluyfirvöld lýsa sem hreinum og klárum rasískum hatursglæp. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Skotárásin var þá ein sú mannskæðasta í Bandaríkjunum það sem af er ári - jafnvel þótt hún væri númer 198 á þeim rúmlega nítján vikum sem þá voru liðnar af árinu. Það átti þó eftir að breytast viku síðar. Þann tuttugasta og fimmta maí myrti annar átján ára árásarmaður nítján...
Oct 25, 2022•18 min•Ep. 112
Um árabil var maður að nafni Ramon Abbas einn allra vinsælasti áhrifavaldur Nígeríu. Hann var með meira en tvær milljónir fylgjenda á Instagram þar sem hann stærði sig af lúxuslífstíl sínum í Dúbaí, íklæddur dýrustu merkjavöru, með Rólexúr og dýra skartgripi, akandi sportbílum eða fljúgandi í einkaþotu. Abbas kallaði sig Hushpuppi á Instagram og einnig, með vísun í eitt uppáhalds fatamerki sitt, Billionaire Gucci Master. En hvaðan komu peningarnir fyrir öllum þessum lystisemdum? Þar reyndist ekk...
Oct 24, 2022•16 min•Ep. 111
Birgitte Tengs var sautján ára gömul þegar hún fannst látin í kjarrgróðri við vegkant, skammt frá heimili sínu á Karmøy í sunnanverðum Noregi, í maí 1995. Hún hafði verið myrt. Í hönd fór ein umfangsmesta lögreglurannsókn norskrar sögu. Frændi Birgitte var dæmdur fyrir morðið en síðar sýknaður, meðal annars þökk sé vitnisburði Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings. Morðið á Birgitte telst því óleyst í meira en aldarfjórðung og hefur orðið eitt af alræmdustu glæpamálum norskrar sögu, orðið innblás...
Oct 21, 2022•16 min•Ep. 110