Það eru um það bil tvö þúsund milljarðar vetrarbrauta í okkar sýnilega alheimi. Hver og ein vetrarbraut er með marga milljarða stjarna. Við, jarðarbúar, búum á einni slíkri stjörnu. Í Þetta helst í dag ætlum við að líta út í geim, langt upp í himininn og út um allt, næstum því til upphafs tímans. James Webb sjónaukinn, nýjasta tryllitæki geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, var ekki búinn að vera lengi í vinnu þegar hann byrjaði að færa okkur myndir af heiminum eins og við höfum aldrei séð ...
Oct 20, 2022•20 min•Ep. 109
Bandaríkin gerðu tugi tilrauna með kjarnorkusprengjur á Marshall-eyjum, afskekktum eyjaklasa í Kyrrahafi, á árum kalda stríðsins, sem þá var á valdi Bandaríkjanna. Íbúar eyjanna sem sprengjum var varpað á voru fluttir burt, en geislavirknin barst víðar og á byggðar eyjar þar sem íbúar hafa glímt við alvarleg heilsufarsleg vandamál æ síðan. Marshalleyingar segja að Bandaríkin hafi aldrei greitt þeim nógsamlegar skaðabætur eða axlað ábyrgð á tjóni sem hlaust vegna prófananna á heilsu og eigur eyja...
Oct 19, 2022•15 min•Ep. 108
Það er einkaþotuskortur í heiminum. Reykjavíkuflugvöllur er fullur af þeim, enda lenda þar um tvö hundruð stykki á mánuði þegar mest er og gert er ráð fyrir að nærri því 900 einkaþotur lendi þar í ár. Ef eigendur, eða leigjendur, einkaþotnanna vilja staldra hér við á landinu í einhvern tíma þarf að greiða stæðisgjald - það er ókeypis fyrstu sex tímana, en svo byrjar mælirinn að tikka. En einkaþotustöðumælagjaldið á Íslandi er miklu, miklu lægra heldur en gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum. ...
Oct 18, 2022•18 min•Ep. 107
Aðdáendur ofurhetjumynda hafa beðið árum saman eftir The Flash, kvikmynd um samnefnda kempu sem hlaupið getur á ofurhraða. Myndin var svo gott sem tilbúin árið 2018 en frumsýningu hefur verið ítrekað frestað. Meðal annars vegna þess að leikarinn sem fer með aðalhlutverkið, Ezra Miller, hefur ítrekað komist í kast við lögin á síðustu misserum, og fjölmargar fréttir verið fluttar af furðulegu athæfi háns hingað og þangað um heiminn. Meðal annars á Íslandi. Þetta helst fjallar um feril Ezra Miller ...
Oct 17, 2022•18 min•Ep. 106
Pútín Rússlandsforseti hefur ekki verið feiminn við að hóta kjarnorkustríði undanfarnar vikur. Rússland býr yfir tvö eða þrjú þúsund slíkum vopnum, nánar tiltekið taktískum kjarnavopnum. Tactical nuclear weapons. Fyrirbæri sem hefur ekki verið mikið fjallað um undanfarin ár, en nú líður varla sá dagur þar sem ekki birtist frétt sem fjallar á einn eða annan hátt um þessar óhuganlegu sprengjur. En hvað eru eiginlega taktísk kjarnavopn og hver er munurinn á þessum sprengjum og öðrum sprengjum? Og h...
Oct 14, 2022•18 min•Ep. 105
Samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones er í vandræðum. Hann er einn sá alræmdasti sinnar tegundar í Bandaríkjunum og hefur þurft að súpa seyðið af því. Hann fullyrti trekk í trekk að skotárásin í Sandy Hook grunnskólanum í Conneticut, þar sem 26 voru skotin til bana, þar af 20 lítil börn, hafi raunverulega ekki gerst. Nánar tiltekið sagði hann í þættinum sínum Info Wars að þetta hafi allt saman verið sett á svið af bandarískum stjórvöldum. Með leikurum. Til að herða byssulöggjöfina. Hann var ákærð...
Oct 13, 2022•18 min•Ep. 104
Fyrr á þessu ári fundu vísindamenn eitt frægasta skip í sögu landkönnunar á heimskautasvæðum á þriggja kílómetra dýpi í afskekktu og illfæru hafsvæði við Suðurskautslandið, skip sem leitað hafði verið lengi. Endurance, skip bresku heimskautahetjunnar Ernest Shackletons, sökk í Weddel-hafi 1915 þegar Shackleton gerði tilraun til að ganga fyrstur manna þvert yfir Suðurskautslandið, og það hefur hvílt á hafsbotni síðan. En ætti skipið að vera þar áfram, og ekkerthróflað við því, eða ætti að gera ti...
Oct 12, 2022•18 min•Ep. 103
Stríðið gegn vímuefnum er í raun stríð gegn fólki. Skylda yfirvalda er að verja fólkið í landinu en ekki fara í stríð gegn því. Þetta segir Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, og fyrsti flutningsmaður frumvarps um afglæpavæðingu vörslu neysluskammta - frumvarp sem er nú á kunnuglegri leið í gegn um Alþingi í fjórða sinn. Halldóra segir óhjákvæmilegt að löggjafinn taki þetta skref að lokum, í ljósi þess að núverandi refsistefna sé alls ekki að virka. Vímuefnanotkun er að aukast, andlátu...
Oct 11, 2022•17 min•Ep. 102
Smábær nokkur í Hollandi tapaði á dögunum dómsmáli gegn samfélagsmiðlinum Twitter. Bærinn Bodegraven krafðist þess að Twitter fjarlægði ummæli notenda um að í bænum væri starfræktur djöfladýrkunarbarnaníðshringur og bæjarbúar hefðu pyntað og myrt fjölda barna. Twitter féllst ekki á það. Þrír hollenskir menn hafa þegar verið dæmdir fyrir að dreifa sögusögnum á netinu um meint satanískt athæfi bæjarbúa, sem einn þeirra segist hafa sjálfur lent í. Ekkert er þó hæft í ásökununum.
Oct 10, 2022•17 min•Ep. 101
Metoo bylgjunar halda áfram að skella á heimsbyggðinni hver á fætur annarri, stórar og smáar. Í vikunni sem nú er að líða voru nákvæmlega fimm ár liðin frá því að bandaríska dagblaðið New York Times fletti ofan af ítrekuðum og grófum kynferðisbrotum Hollywoodstórstjörnuframleiðandans Harvey Weinstein, sem löngum þótti nánast ósnertanlegur risi í kvikmyndaheiminum. Það varð kveikjan að fyrstu bylgju #metoo-byltingarinnar þar sem milljónir kvenna um víða veröld vöktu athygli á langvarandi kynferði...
Oct 07, 2022•15 min•Ep. 100
Einn dyggasti bandamaður Vladimir Pútíns Rússlandsforseta heima fyrir er forseti rússneska sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu, Ramzan Kadyrov. Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur hann verið með herskáustu mönnum og hann hvatti meðal annars til þess á dögunum að Rússar beiti kjarnavopnum í stríðinu. Þá tilkynnti hann nýverið að hann ætli að senda syni sína á vígvöllinn, en þeir eru allir á táningsaldri. Kadyrov tók við forsetaembættinu af föður sínum, sem barðist fyrst gegn Rússum í sjálf...
Oct 06, 2022•18 min•Ep. 99
Íslenskir ofskynjunarsveppir, trjónupeðlur, eru farnir að skjóta reglulega upp kollinum, víðar en á umferðareyjum og öðru graslendi. Við sjáum nú hverja fréttina á fætur annari þar sem fjallað er um nýjar rannsóknir úti í heimi sem gefa sterklega til kynna að virka efnið í sveppunum, ofskynjunarefnið sílósíbin, sé til margra hluta nytsamlegt. Það hefur svo sem legið fyrir í áratugi, bara ekki farið hátt. Vísindamenn við virta háskóla um allan heim eru margir að staðfesta með rannsóknum að efnið,...
Oct 05, 2022•21 min•Ep. 98
125 létu lífið og mörg hundruð slösuðust í troðningi að loknum fótboltaleik í Indónesíu um helgina. Lögregla á fótboltaleikvanginum beitti táragasi á áhorfendur sem ruddust niður á völlinn að leik Arema FC og Persebaya Surabaya loknum, og fólk á flótta undan gasinu tróðst undir við útganga leikvangsins. Þetta er eitt versta stórslys í sögu fótboltans. Táragas hefur átt þátt í flestum mannskæðustu slysunum á fótboltaleikjum undanfarna áratugi, þrátt fyrir að öryggisviðmið FIFA mæli alfarið gegn b...
Oct 04, 2022•18 min•Ep. 97
Lögreglan á Íslandi er að vígbúast enn frekar - tilraunaverkefni með rafbyssur er að fara af stað. Lögreglan hefur reyndar viljað fá rafbyssur í tæpa tvo áratugi, umræðan um það var mjög hávær hér í kring um hrunið. Alls kyns tilraunaverkefni voru gerð, skýrslur skrifaðar, en niðurstaðan var sú að rafbyssuvæðing væri ekki tímabær. Og nú, eftir fregnirnar af mögulegri hryðjuverkaárás á Íslandi bárust, eru rafbyssurnar aftur komnar á borðið. Það eru mjög skiptar skoðanir á því hvort byssurnar auki...
Oct 03, 2022•22 min•Ep. 96
Trúarsöfnuður sem stofnaður var í Kóreu á sjötta áratug síðustu aldar og var upp á sitt besta á árum kalda stríðsins er í sviðsljósinu að nýju eftir morðið á Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japans, sem var borinn til grafar í Tókýó í vikunni. Morðingi Abes var drifinn áfram af hatri á Sameiningarkirkjunni eins og söfnuðurinn hét lengst af, þó nú sé formlegt nafn hans Heimsfriðarsamtök fjölskyldna, og flestir þekki safnaðarbörnin helst sem Moonista eða Moonies, í höfuðið á stofnanda safn...
Sep 30, 2022•18 min•Ep. 95
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, skipaði Hörpu Þórsdóttur, safnstjóra Listasafns Íslands, í stöðu Þjóðminjavarðar í lok ágúst. Þetta var gert án auglýsingar og stuðst við lagaheimild sem gefur leyfi fyrir tilfærslum embættismanna í starfi. Tilfærslan hlaut ekki góðar viðtökur, ekki vegna Hörpu persónulega, heldur kannski aðallega vegna þess að það er mögulega slatti af fólki hér sem hafði áhuga á starfi þjóðminjavarðar, sem hafði ekki...
Sep 29, 2022•20 min•Ep. 94
Giorgia Meloni verður að öllum líkindum næsti forsætisráðherra Ítalíu, eftir að flokkur hennar Fratelli d?Italia eða Bræðralag Ítalíu, vann stórsigur í þingkosningum á sunnudag. Hún verður þá fyrst kvenna til að gegna þessu valdamesta embætti ítalska stjórnkerfisins. Það er ekki eina ástæða þess að velgengni hennar í kosningum hefur vakið heimsathygli, Meloni og flokkur hennar eru langt til hægri á hinum pólitíska ás, og hefur hún jafnvel verið kölluð fasisti, enda hóf hún stjórnmálaferill sinn ...
Sep 28, 2022•18 min•Ep. 93
Frumvarp um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu er tilbúið í dómsmálaráðuneytinu og mun líta dagsins ljós fljótlega. Þetta sagði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í viðtali í síðustu viku. Tilefnið var handtaka tveggja ungra íslenskra manna sem eru grunaðir um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverk á Íslandi. Vopnaframleiðsla, fjöldamorð, hryðjuverk, voðaverk, eru orðin sem lögreglan hefur notað í tengslum við þetta mikla mál. Fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Tengls við erlend öfgasamtök voru...
Sep 27, 2022•20 min•Ep. 92
Frá því í byrjun árs hafa margir rússneskir auðkýfingar og kaupsýslumenn fallið fyrir eigin hendi, eða þá fallið út um glugga og fram af klettum. Sérstaklega margir sem á einhvern hátt tengjast rússneskum olíu- og orkufyrirtækjum - grunsamlega margir, telja sumir, og hafa velt upp þeim möguleika að allavega einhverjum þessara manna hafi kannski verið komið fyrir kattarnef. Enda er það svosem þekkt að þeir sem setja sig upp á móti rússneska ríkisvaldinu geta átt það til að deyja sviplega og á dul...
Sep 26, 2022•18 min•Ep. 91
Eins og sjónvarpsáhorfendur sem fylgdust með útför Elísabetar II. Bretadrottningar á mánudag tóku eftir hvíldu krúnudjásn bresku konungsfjölskyldunnar á kistu þegar hún var borin til grafar: valdasproti hennar, valdahnöttur og kórónan sem drottningin sáluga bar við hátíðleg tilefni. Kóróna þessi á sér áhugaverða sögu, þó hún sé ekki sérlega gömul sjálf er hún prýdd eðalsteinum og perlum sem rekja má aftur í aldir. Hún er svo auðvitað ekki eina kórónan í safni bresku konungsfjölskyldunnar. Önnur ...
Sep 23, 2022•18 min•Ep. 90
Það hefur ekki blásið byrlega fyrir Flokki fólksins undanfarið. Eftir það sem má kalla stórsigur í síðustu Alþingiskosningum og gott gengi í sveitarstjórnarkosningunum í vor, hefðu sumir sagt að nú væri aldeilis tækifæri fyrir flokkinn að láta til sín taka. En hneykslismálin hafa gert flokknum erfitt um vik, bæði á þinginu og svo núna er allt uppi í háaloft í bæjarpólitíkinni á Akureyri. Karlarnir í flokknum virðast sumir hafa átt í vandræðum með sig, þá sérstaklega hvað varðar samskipti sín við...
Sep 22, 2022•19 min•Ep. 89
Haustið er uppskera sumarsins og undirbúningur fyrir veturinn. Náttúran breytir um lit til að leggjast í dvala, plönturnar færa næringuna niður í ræturnar og fella fagurgul laufin til að geta tekist á við vorið eftir kuldann og myrkrið í vetur. Skógfræðingar segja að á Íslandi sé æskilegt æskilegt fyrir plönturnar að haustlitirnir verði komnir í kringum 1. október. Það þýðir að þær séu heilbrigðar, að þeim líði vel. Og svo er þetta líka alveg voðalega fallegt. Haustlitir plantna eru birtingarmyn...
Sep 21, 2022•19 min•Ep. 88
Skákheimurinn er í uppnámi eftir að grunur vaknaði um að ungur bandarískur stórmeistari, Hans Niemann, hafi svindlað í skák gegn norska meistaranum Magnusi Carlsen, á virtu skákmóti í Bandaríkjunum í byrjun mánaðar. Æsilegar kenningar ganga á netinu um það hvernig Niemann gæti mögulega hafa farið af því. Carlsen hefur ekki tjáð sig um málið fyrir utan eina dularfulla færslu á Twitter, en í gær áttu þeir Niemann að eigast við á öðru skákmóti og gaf Carlsen skákina í upphafi og gekk út. Þetta hels...
Sep 20, 2022•18 min•Ep. 87
Kvikmyndabransinn á Íslandi er helst í dag. Á nýafstaðinni Edduhátíð notaði kvikmyndagerðarfólk flest tækifærið til að hvetja stórnvöld til að falla frá ríflega þrjátíu prósenta niðurskurði til Kvikmyndasjóðs. Íslensk kvikmyndagerð þarf á peningunum að halda til að blómstra, til að lifa af. Og íslensk kvikmyndagerð er mikilvæg. En á sama tíma erum við að fá stærsta kvikmyndaverkefni sögunnar til Íslands. Fjórða serían af True Detective verður tekin upp hér. Sögusviðið er rannsóknarmiðstöð í Alas...
Sep 19, 2022•21 min•Ep. 86
Yfirvöld í Belgrad, höfuðborg Serbíu, lögðu bann við samevrópskri gleðigöngu hinsegin fólks sem halda á í borginni á morgun, en gangan verður að líkindum gengin samt, samkvæmt síðustu fréttum. Gleðigangan er hápunkturinn á EuroPride, evrópskri hátíð hinsegin fólks, sem haldin er í Serbíu í ár. Það er í fyrsta sinn sem EuroPride er haldið í landi í Suðaustur-Evrópu og vonuðust aðstandendur til að viðburðurinn myndi marka þáttaskil í réttindabaráttu hinsegin fólks í Serbíu. Þetta helst fjallar um ...
Sep 16, 2022•18 min•Ep. 85
Bandaríski hip hop og r&b tónlistarmaðurinn Robert Kelly, R Kelly, var dæmdur í sumar í 30 ára fangelsi fyrir að stýra kynferðisglæpahring, misnota konur og börn kynferðislega, stunda mansal, fjárkúgun og mútur. Kelly hafði enn fleiri ákærur á bakinu sem átti eftir að greiða úr. Nýjasti dómurinn yfir honum féll í gær, þar sem hann var fundinn sekur fyrir barnaníð og kynferðisbrot. Fram kemur í frétt Guardian að alríkisdómstóll hafi dæmt R Kelly sekan í þremur barnaklámsákærum og þremur kynfe...
Sep 15, 2022•20 min•Ep. 84
Um árabil hefur breski samsæriskenningasmiðurinn David Icke reynt að vekja heimsbyggðina til vitundar um það sem hann álítur eitt mesta samsæri veraldarsögunnar, jú að heiminum sé stjórnað á bak við tjöldin af varasamri elítu eðlufólks, sem kom hingað til Jarðarinnar úr annarri vídd fyrir þúsundum ára. Allt valdamesta fólks heims sé í raun eðlur í mannsham sem hafi það markmið að kúga mannfólkið og stundi viðurstyggilegar athafnir í leyni. Þó kenningar Ickes hljómi fáránlega á hann sér tryggan h...
Sep 14, 2022•18 min•Ep. 83
Bretland hefur fengið nýjan konung eftir andlát Elísabetar annarar í síðustu viku. Karl Bretaprins, elsti sonur drottningarinnar, varð Karl þriðji Bretakonungur um leið og móðir hans dró síðasta andann. Og eiginkona Karls, Camilla Parker Bowles, varð á sama tíma eiginkona konungsins, konungskona eins konar. Eins og Filippus var drottningamaður Elísabetar. Heimspressan hefur verið undirlögð af fregnum af breska konungsveldinu, fortíð þess og framtíð, eftir andlát Elísabetar. Í Þetta helst fjölluð...
Sep 13, 2022•20 min•Ep. 82
Þetta helst fjallar um fjöldamorðin í Saskatchewan-fylki Kanada í síðustu viku. Tíu voru myrtir í hnífárásum á afskekktu verndarsvæði frumbyggja í Kanada, sunnudaginn 4. september síðastliðinn. Tveir bræður voru eftirlýstir og sagðir vera á flótta en annar bróðirinn fannst síðar látinn ekki langt frá vettvangi glæpanna. Hinn bróðirinn, Myles Sanderson, var loks handtekinn á miðvikudag eftir fjóra daga á flótta, og lést í svo haldi lögreglu. Myles átti sér langa sögu ofbeldisglæpa en var þó látin...
Sep 12, 2022•19 min•Ep. 81
Þetta helst er að þessu sinni tileinkaður Elísabetu 2. Bretadrottningar sem lést á fimmtudaginn 8. september, 96 ára að aldri. Birta Björnsdóttir fréttamaður reifar langa ævi og feril Elísabetar og spilað er viðtal við Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara RÚV í Lundúnum, um drottningu frá því í febrúar á þessu ári, þegar 70 ár voru liðin frá valdatöku hennar.
Sep 09, 2022•18 min•Ep. 80