Tíu konur afplána dóma í fangelsinu á Hólmsheiði. Hlutfall kvenna í fangelsi hefur farið hækkandi undanfarinn áratug og hefur verið á bilinu átta prósent til rúmlega ellefu. Það var í kring um fimm prósent fyrir um tíu árum síðan. Samkvæmt nýjum tölum frá Fangelsismálastofnun eru konurnar sem nú afplána dóma á aldrinum 23 til 62 ára. Dómarnir sem konurnar hlutu eru misþungir, allt frá níu mánaða fangelsisvist og upp í 16 ár. Fjórar eru íslenskar og sex erlendar. Auk þeirra sátu í vikunni fjórar ...
Sep 08, 2022•21 min•Ep. 79
Lundúnastúlkan Shamima Begum var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún strauk að heiman og gekk til liðs við Íslamska ríkið í Sýrlandi ásamt tveimur skólasystrum sínum á svipuðu reki. Lífið í Íslamska ríkinu reyndist ekki vera sú útópía sem hún hafði búist við. Hún eignaðist þrjú börn með hollenskum vígamanni og missti þau öll ung og hefur hafist við í flóttamannabúðum í norðaustanverðu Sýrlandi undanfarin þrjú ár. Hún hefur lýst því yfir að hún vilji snúa heim til Bretlands en það er henni ómögule...
Sep 07, 2022•18 min•Ep. 78
Mary Elizabeth Truss verður forsætisráðherra Bretlands í dag. Truss er þingmaður fyrir Suðvestur Norfolk, hún er utanríkisráðherra, ráðherra kvenna og jafnréttis. Leiðtogi Íhaldsflokksins. Þetta er sumsé lýsingin á Twitterreikningnum hennar. Hún ætlar að leggja fram efnahagsáætlun sem á að taka á verðbólgu, yfirvofandi efnahagslægð og síversnanadi efnahag almennings. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sakar hana um að vera ekki í tengslum við raunveruleikann og ekki standa með hinum vinnandi stéttum....
Sep 06, 2022•18 min•Ep. 77
Fyrir 125 árum lögðu breskir nýlenduhermenn í rúst höfuðborg afrísks konungsríkis, Benín, þar sem nú er Nígería. Þeir myrtu fjölda manns og höfðu á brott með sér þúsundir listmuna úr bronsi sem síðan dreifðust um Evrópu. Æ síðan hafa afkomendur þeirra sem verkin sköpuðu á sínum tíma reynt að fá þau aftur heim. Að undanförnu hafa allnokkur söfn í Evrópu lýst því yfir að þau hyggist skila stolnum bronsmunum til Nígeríu, en safnið sem á stærst safn Benín-bronsmuna, British Museum, hefur lítið vilja...
Sep 05, 2022•18 min•Ep. 76
Tvær skýrslur komu út í liðinni viku. Önnur kemur út árlega og hefur gert undanfarna áratugi, en hin er byggð á stórri rannsókn. Báðar snúa þær að kynferðislegri áreitni eða kynferðisofbeldi. Sú árlega, skýrsla Stígamóta, sýnir ákveðið umfang kynferðisbrota á landinu, þau brot sem fólk verður fyrir og leitar sér aðstoðar vegna. Biðlistarnir á Stígamótum eru að lengjast, fólk getur þurft að bíða í 10 til 12 vikur eftir viðtölum. Stafrænt kynferðisofbeldi er að aukast og 16 prósent gerenda eru und...
Sep 02, 2022•18 min•Ep. 75
Mjaldrasysturnar Litla Grá og Litla Hvít flytja ekki í sjókvína í Klettsvík í Vestmannaeyjum í ár, eftir að bátur sökk við kvína um miðjan ágúst. Flutningur mjaldranna úr sérstakri hvalalaug yfir í sjókvína hefur ítrekað tafist, en þrjú ár voru í sumar síðan mjaldrarnir fluttu til Íslands frá Kína. Þetta helst rekur sögu og ferðalag mjaldrasystranna, sem og annars og dularfyllri mjaldurs sem komst í heimsfréttirnar um svipað leyti og Litla Grá og Litla Hvít.
Sep 01, 2022•18 min•Ep. 74
Þetta helst fjallar í dag um banvænar afleiðingar ofskömmtunar lyfja, löglegra og ólöglegra. 31. ágúst er viðeigandi, alþjóðlegi ofskömmtunardagurinn, International Overdose Awareness Day á ensku. Dagurinn er haldinn með það að markmiði að binda enda á dauðsföll vegna ofskömmtunar. 46 lyfjatengd andlát voru skráð hjá embætti Landlæknis í fyrra, allt árið 2021. Þau hafa aldrei verið fleiri, samkvæmt áður óbirtum niðurstöðum Landlæknisembættisins. Næstflest andlát vegna lyfjaeitrana voru árið 2018...
Aug 31, 2022•19 min•Ep. 73
Þetta helst fjallar um mann sem kallaður hefur verið ?holumaðurinn? og jafnframt einmanalegasti maður heims. Fyrir 26 árum réðust vígamenn á litla kofaþyrpingu, heimkynni ættbálks nokkurs í regnskóginum í vestanverðri Brasilíu. Vígamennirnir voru á höttunum eftir landsvæði ættbálksins, vildu leggja það undir skógarhögg eða landbúnað. Þeir jöfnuðu þorpið við jörðu og myrtu alla íbúa, nema einn. Æ síðan ráfaði sá sem komst lífs af einn um skóginn og hafnaði öllum tilraunum annars fólks til að eiga...
Aug 30, 2022•18 min•Ep. 72
Alheimurinn óttast að meiriháttar kjarnorkuslys kunni að vera yfirvofandi í stærsta kjarnorkuveri Evrópu, kjarnorkuverinu í úkraínsku iðnaðarborginni Zaporizhzhia. Rússneskt herlið hefur haft verið á valdi sínu síðan í mars, en skæðir bardagar hafa staðið yfir allt umhverfis það vikum saman. Leiðtogar um allan heim hafa hvatt bæði Rússa og Úkraínumenn að láta af bardögunum, en hver vísar þar á annan eins og gengur og gerist í stríði. En í dag dró til tíðinda þegar það var tilkynnt að vel valið t...
Aug 29, 2022•19 min•Ep. 71
Í næsta mánuði mætir fyrir stríðsglæpadómstól í Haag maður nokkur um nírætt, sem sagður er þjást af elliglöpum og fleiri kvillum. Maðurinn, Rúandamaðurinn Felicien Kabuga, var handtekinn í París fyrir tveimur árum eftir að hafa verið á flótta undan réttvísinni í 26 ár. Hann er sakaður um að hafa, árið 1994, leikið stórt hlutverk í þjóðarmorðinu í Rúanda, þegar rúandískir Hútúar slátruðu mörg hundruð þúsund löndum sínum af þjóð Tútsa. Kabuga var þá einn auðugasti maður Rúanda og notaði auð sinn t...
Aug 26, 2022•18 min•Ep. 70
Á laugardagskvöldið 20. ágúst sprakk sprengja um borð í bifreið á ferð um fjörutíu kílómetra frá Moskvu. Ökumaður bílsins lét lífið. Hún hét Darya Dugina og var kunn sjónvarpskona í Rússlandi. Margt er enn á huldu um tilræðið þó rússnesk stjórnvöld fullyrði að úkraínska leyniþjónustan hafi verið að verki. Dugina ók í bíl föður síns, sem margir telja að sé líklegra að hafi verið skotmark árásarmanna, hverjir sem þeir eru. Faðir hennar, Alexander Dugin, hefur verið kallaður ?heili Pútíns? þar sem ...
Aug 25, 2022•18 min•Ep. 69
Það er 24. ágúst, þjóðhátíðardagur Úkraínu, og nákvæmlega hálft ár liðið frá því að Vladimir Putin Rússlandsforseti skipaði herliði sínu að ráðast inn í Úkraínu og hertaka landið. Á þessu hálfa ári hafa milljónir Úkraínubúa þurft að flýja heimili sín og land, leita sér skjóls í öðrum löndum og um alla Evrópu hafa flugvellir og lestarstöðvar fyllst af Úkraínumönnum á flótta undan þessu óskiljanlega stríði. Heimsmyndin breyttist nánast yfir þessa einu nótt 24. febrúar 2022. Þetta helst rifjar í da...
Aug 24, 2022•19 min•Ep. 68
Það ríkir einhvers konar neyðarástand í loftslagsmálum, um það erum við flest sammála um. Loftslagsbreytingar eru farnar að bíta. Hitabylgjur, flóð, dauði heilu tegundanna, skógareldar, hungursneið og uppskerubrestir eru farin að verða nánast daglegur fréttamatur - út af loftslagsbreytingum. Við erum á góðri leið með að eyðileggja heimili okkar og við höfum líka vitað það í langan tíma. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið eru á þessari skoðun og allir eru að reyna að bregðast við. 39 lönd haf...
Aug 23, 2022•21 min•Ep. 67
Þetta helst fjallar um tvær manneskjur sem sitja í fangelsi, hvor í sínu landinu, sem orðið hafa að peðum í valdatafli stórveldanna. Bandarísk körfuboltastjarna hefur dúsað í fangelsi í Rússlandi fyrir að hafa flutt kannabisvökva til landsins í um hálft ár. Alræmdur rússneskur vopnasali - kallaður sölumaður dauðans - hefur setið inni í Bandaríkjunum í meira en áratug. Nú gæti svo farið að yfirvöld í Rússlandi og Bandaríkjunum skipti á þessum tveimur föngum - körfuboltastjarnan Brittney Griner ve...
Aug 22, 2022•19 min•Ep. 66
Kókaín, og stór og smá mál því tengdu, eru á dagskrá Þetta helst í dag. Íslensk lögðu hald á hundrað kíló af kókaíni í gámi sem var reynt að smygla hingað til lands í gegn um Sundahöfn og er þetta lang, lang mesta magn af þessu rándýra dópi sem hefur fundist hér á landi. Fyrsta málið sem var kallað stóra kókaínmálið snerist um eitt kíló. Svo kom annað stórt kókaínmál sem snerist um 16. Og nú í vikunni tilkynnti lögreglan nýjasta og langstærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Hundrað kíló af tiltölule...
Aug 19, 2022•19 min•Ep. 65
Við höfum af og til undanfarin ár heyrt af tilraunum vísindamanna til að vekja loðfílinn, sem dó út fyrir um fjögur þúsund árum, aftur til lífsins með erfðatækni. Á dögunum kynntu vísindamenn í Ástralíu og Bandaríkjunum áform um að vekja aðra útdauða skepnu til lífsins. Tasmaníutígurinn var eitt sinn stærsta pokarándýr Ástralíu en dó endanlega út árið 1936, og var útdauðinn af manna völdum. Fyrirtækið Colossal í Bandaríkjunum, sem hingað til hefur einbeint sér að loðfílnum, hefur tekið höndum sa...
Aug 18, 2022•19 min•Ep. 64
Fangelsi eru ekki gerð fyrir fólk sem er alvarlega veikt á geði, segir yfirlæknir geðheilbrigðisteymis fangelsanna. Margir þeir sem nú sitja inni eru þar vegna ofbeldisbrota og innan veggja fangelsanna ríkir ofbeldismenning. Sumir fangar, sem geðheilbrigðisteymið telur að eigi ekki erindi inn í fangelsi, beita ofbeldi þar en hefðu líklega ekki gert það áður. Fangelsin búa til ofbeldismenn. Og fangelsismálastjóri segir að hinn endalausi úrræðisskortur fyrir fanga sem eru geðveikir, en samt sakhæf...
Aug 17, 2022•18 min•Ep. 63
Sjávarspendýr, stór og mikil, mörg hundruð kíló að þyngd með stórar skögultennur, eru til umfjöllunar í Þetta helst þætti dagsins. Vera Illugadóttir fjallar um rostunga sem hafa valdið usla í samfélagi okkar mannanna upp á síðkastið. Allnokkrir hafa ratað í fréttirnar að undanförnu, dýr sem komin voru langt frá heimkynnum sínum í Norður-Íshafi og vöktu bæði mikla athygli og þóttu valda talsverðum óskunda með uppátækjum sínum - og sögur þeirra enduðu sjaldnast vel. Við heyrum af rostungsurtunni f...
Aug 16, 2022•18 min•Ep. 62
Þetta helst fjallar um meira en þrjátíu ára gamlan dauðadóm, sem var næstum því uppfylltur fyrir stuttu. Bresk - indverski rithöfundurinn Salman Rushdie var stunginn margítrekað á hol síðastliðinn föstudag, þar sem hann stóð á sviði í New York ríki fyrir framan fullan sal af fólki. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús, gekkst þar undir aðgerð og losnaði úr öndunarvél eftir rúman sólahring. Hann lifði árásina sumsé af, en mun að öllum líkindum missa annað augað, taugarnar í handlegg hans skárus...
Aug 15, 2022•19 min•Ep. 61
Fréttablaðið birti í vikunni mynd af rússneskum fána sem var notaður sem dyramotta á úkraínsku heimili. Þetta helst fjallar um viðbrögð rússneska sendiráðsins hér í bæ á þeirri birtingu og atburðarrásina sem þá fór af stað. Netárás var gerð á vef Fréttablaðsins, Rússar kröfðu ritstjórnina um afsökunarbeiðni og hótað var öllu illu. Árásin var kærð til lögreglu, Blaðamannafélagið fordæmdi afskiptin og ráðherra fjölmiðla sagðist harma árásina, hún væri aðför að frelsi fjölmiðla á Íslandi. Stundin s...
Aug 12, 2022•18 min•Ep. 60
Serena Williams er óumdeilanlega ein besta og merkilegasta íþróttakona heims. Hún og systir hennar, Venus, eiga að baki frekar lygilega sögu og það er óhætt að segja að þetta heimsfræga tvíeyki hafi svo sannarlega unnið fyrir þeim gífurlega árangri sem þær geta státað af í dag. Þó að saga systranna sé á mjög margan hátt sameiginleg og samtvinnuð, verður Serena stjarna Þetta helst í dag. Serena Williams er ekki bara ein besta tenniskona heims, heldur hefur hún frá unga aldri verið ötul baráttukon...
Aug 11, 2022•19 min•Ep. 59
Við ætlum að líta til himins. Að meðaltali deyja um 60 manns á dag eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Þó eru bara til heimildir um níu banaslys af völdum eldinga hér á Íslandi, en það á sér svo sem nokkuð eðlilegar skýringar. Félagsfælni, persónuleikabreytingar og jafnvel sjálfsvígshugsanir geta hrjáð þau sem hafa orðið fyrir eldingu og lifað það af. Þórður Arason jarðeðlisfræðingur er einn helsti sérfræðingur landsins þegar kemur að eldingum og var hann til viðtals á Rás 1 á dögunum þegar heldu...
Aug 10, 2022•19 min•Ep. 58
Bandaríski samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones var nýverið dæmdur til að greiða foreldrum drengs sem var myrtur í skotárásinni í Sandy Hook bætur. Jones hafði fullyrt ítrekað í þáttum sinum, sem fjöldi manns fylgir, að árásin á skólann hefði ekki gerst, að foreldrar barnanna sem þar létust væru leikarar og að allt hefði þetta verið skáldað upp af djúpríkinu til að taka byssur af bandarískum almenningi. Þórhildur Ólafsdóttir fjallar í dag um málaferlin gegn Alex Jones.
Aug 09, 2022•20 min•Ep. 57
Þessa stundina, mánudaginn 8. ágúst 2022, eru um það bil 25 eldfjöll að gjósa í heiminum. Eitt gýs á Íslandi en sex eru spúandi í Indónesíu. Það er meira að segja eldgos í gangi á Suðurskautslandinu. Í Þetta helst dagsins skoðum við gjósandi heimskortið, fræðumst um mengun af völdum eldfjalla og lítum aðeins aftur til hryllingsins í Bandaríkjunum 1980 þegar eldkeilan í Washingtonríki sprakk með hræðilegum afleiðingum. Svo skjótumst við aðeins til Hollywood í leiðinni.
Aug 08, 2022•20 min•Ep. 56
Nancy Pelosi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings fór til Taívan. Stutt heimsókn sem hefur reynst sérstaklega afdrifarík. Kínverjar eru sármóðgaðir og reiðir og Taívanir óttast um öryggi sitt. Var þetta með ráðum gert? Hvers vegna ættu Bandaríkjamenn að vilja rugga bátnum gagnvart Kína með þessum hætti? Hvaða skilaboðum er verið að koma á framfæri? Hver gæti fórnarkostnaðurinn verið?
Aug 05, 2022•20 min•Ep. 55
Það er einkaþotuskortur í heiminum. Reykjavíkuflugvöllur er fullur af þeim, enda lenda þar um tvö hundruð stykki á mánuði þegar mest er og gert er ráð fyrir að nærri því 900 einkaþotur lendi þar í ár. Ef eigendur, eða leigjendur, einkaþotnanna vilja staldra hér við á landinu í einhvern tíma þarf að greiða stæðisgjald - það er ókeypis fyrstu sex tímana, en svo byrjar mælirinn að tikka. En einkaþotustöðumælagjaldið á Íslandi er miklu, miklu lægra heldur en gengur og gerist á hinum Norðurlöndunum. ...
Aug 04, 2022•18 min•Ep. 54
65 tonnum af blautþurrkum er sturtað niður í klósett landsmanna á ári hverju. Þær eyðileggja fráveitukerfi, skapa ærin fjárútlát og menga umhverfið. Farið er yfir hvers vegna og hvernig í þætti dagsins.
Aug 03, 2022•20 min•Ep. 53
Jörð skelfur á Reykjanesskaganum. Þúsundir jarðskjálfta mælast nú á hverjum sólarhring, langflestir meinlausir þó, en nokkrir vel snarpir. Myndir hafa dottið af veggjum, dósir úr hillum, börn vakna af værum blundi og kaffivélasvæðin eru aftur farin að einkennast af nokkuð einhæfum spurningum eins og fannstu skjálftann, eða vaknaðirðu í nótt. Og er það vel. Fólk hefur lýst hrinunni í nótt sem þeirri verstu sem það hafi upplifað og heyra mátti að mörgum er brugðið - enda margir skjálftarnir harðir...
Aug 02, 2022•20 min•Ep. 52
Við þurfum að tala um njósnahagkerfið, stendur á heimasíðu Neytendasamtakanna. Netið hefur umbylt lífi okkar á undraskömmum tíma. Við erum nánast sítengd og höfum allar heimsins upplýsingar við höndina, eða réttara sagt við fingurgómana í gegnum allskyns snjallforrit og vefsíður sem við fyrstu sýn virðast flestar hverjar vera ókeypis notendum. Við leitum á Google, Google leitar á okkur. Við notum samfélagsmiðla, þeir nota okkur. Það koma allskonar tímamót í lífinu. Og samfélagsmiðlar og okkar st...
Jul 29, 2022•18 min•Ep. 51
Askja er vöknuð af værum blundi, segja vísindamenn. Hún náði ekki alveg hundrað árum Þyrnirósarinnar, en nokkuð nálægt því. Sextíu ár eru frá síðasta gosi í Öskju, en næstum því 150 ár eru frá því að hún var með svakaleg læti. Land hefur risið um 35 sentímetra við Öskju á síðasta ári, sem er alveg slatti, og vísindamenn segja að þessi þróun bendi til þess að kvika sé að safnast saman undir henni. Veðurstofa Íslands segir rishraðann vera óvenjumikinn miðað við sambærileg eldjöll í heiminum. Ef þa...
Jul 28, 2022•19 min•Ep. 50