Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari er enn og aftur búinn að koma sér í klandur vegna hegðunar sinnar á samfélagsmiðlum. Nú síðast fullyrti hann að hælisleitendur ljúgi til um kynhneigð sína til að fá að vera á Íslandi. Hver lýgur sér ekki til bjargar? spurði vararíkissaksóknararinn. Hann spurði reyndar líka hvort það væri skortur á hommum á Íslandi. Uppi varð fótur og fit, eðlilega, og dómsmálaráðherra sagði meira að segja að ummælin hafi slegið sig illa. Samtökin 78 kærðu Helga Magnús ...
Jul 27, 2022•19 min•Ep. 49
Bretar halda Júróvisjon, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, á næsta ári, þrátt fyrir að hafa lent í öðru sæti í keppninni í ár. Sigurþjóðin, Úkraína, hefur því miður öðrum hnöppum að hneppa heldur en að halda keppnina, þó að forsetinn hafi gefið það út þegar úrslitin urðu ljós að það væri helst það sem hann vildi gera - halda júróvisjon í Maríopol - borg sem er í dag vart þekkjanleg sem slík. Hún er í rúst. En hvað þýddi það fyrir Úkraínu að sigra þessa keppni? Og hvernig var aðdragandinn a...
Jul 26, 2022•20 min•Ep. 48
16.000 manns hafa nú greinst með apabólu í heiminum, í 75 löndum og fimm hafa dáið af völdum sjúkdómsins. Níu hafa greinst á Íslandi samkvæmt nýjustu fréttum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lýsti um helgina yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna faraldursins. Vísindamenn segja veiruna mun flóknari heldur en margar aðrar sem heimsbyggðin er að fást við. Algengast er að bólur og sár komi fram á útlimum, hálsi og andliti en þau voru helst á kynfærasvæði. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áréttar hins vega...
Jul 25, 2022•21 min•Ep. 47
Hitabylgjurnar sem hafa geisað í Evrópu í sumar hafa kostað þúsundir lífið, brennt heimli fólks, garða, skóga, tún og hæðir. Heilu bæjarfélögin hafa verið rýmd af fólki og dýrum til að bjarga lífi þeirra. Hitinn fór upp í 40 til 43 gráður sumsstaðar í Evrópu í júní, mest þá í Frakklandi, þar sem fjöldi hitameta féllu. Önnur bylgja skall svo á Evrópu um miðjan júlí og hún er enn í gangi, sem teygði sig lengra til norðurs en sú fyrri, alla leið til Danmerkur og Bretlands, en hitinn í London fór yf...
Jul 22, 2022•20 min•Ep. 46
Það eru um það bil tvö þúsund milljarðar vetrarbrauta í okkar sýnilega alheimi. Hver og ein vetrarbraut er með marga milljarða stjarna. Við, jarðarbúar, búum á einni slíkri stjörnu. Í Þetta helst í dag ætlum við að líta út í geim, langt upp í himininn og út um allt, næstum því til upphafs tímans. James Webb sjónaukinn, nýjasta tryllitæki geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, var ekki búinn að vera lengi í vinnu þegar hann byrjaði að færa okkur myndir af heiminum eins og við höfum aldrei séð ...
Jul 21, 2022•20 min•Ep. 45
Við lítum aðeins aftur til Indlands í dag. Katrín Ásmundsdóttir kannaði svolítið sértakt mál þaðan. Mál sem fór eins og eldur í sinu um internetið, og vakti upp flóknar spurningar um samvist manna og dýra á 21. öldinni. Fíll réðst á og traðkaði niður sjötuga konu þar sem hún sótti vatn í brunn. Konan lést af sárum sínum, en fíllinn sneri aftur þegar bálför hennar fór fram, kastaði líkinu til og traðkaði á því aftur. Katrín settist niður með Jóni Má Halldórssyni líffræðingi og spurði hann hvað þe...
Jul 20, 2022•18 min•Ep. 44
Þriðjungi færri fimmtán ára stúlkur stunda kynlíf nú en í upphafi aldar hér á landi. Þetta leiða niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar á heilsu og lífskjörum skólabarna í ljós. Rannsóknin hefur verið gerð hér á landi á fjögurra ára fresti síðan 2006, með tilstyrk Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Rannsóknin nær til fjölda landa í Evrópu og Norður Ameríku. Spurt er út í alls konar þætti í lífum ungs fólks, eins og tengsl þeirra við foreldra og vini, mataræði, hreyfingu, tómstundarstarf og kynh...
Jul 19, 2022•18 min•Ep. 43
Í þætti dagsins ætlum við að líta aftur til Kína með Katrínu Ásmundsdóttur. Leiðir ríkja heims til að auka við völd sín og umsvif eru margar og fjölbreytilegar. Ein leið er að auka við yfirráðasvæði sitt - færa út kvíarnar. En það getur verið erfitt og dýrt, kostað stríð, alþjóðaátök, mannfall og eyðileggingu. Sum ríki hafa því leitað nýrra og frumlegri leiða. Eins og Kína, sem hefur - undanfarin átta ár eða svo - bara búið til landsvæði þar sem eru engin. Reist hverja manngerða floteyna í Suður...
Jul 18, 2022•18 min•Ep. 42
Við erum öll sítengd. Það er okkar nýi veruleiki, eða hann er jafnvel ekkert svo nýr lengur. Fræðimenn segja snjallgræjurnar vera orðnar framlengingu sjálfsins - símann hina nýju hægri hönd líkamans. Þau eru fá augnablikin sem við erum ótengd, erum ekki í símanum, spjaldtölvunni, fartölvunni, vinnutölvunni, með snjallúrið á okkur, fyrir framan snjallsjónvarpið eða nettengd í gegnum spinninghjólið. En hvernig er það hægt? Hvernig getum við öll, eða flest, verið tengd öllum stundum, öll í einu? Mö...
Jul 15, 2022•18 min•Ep. 41
Svikahrappar og loddarar leynast víða. Það mætti að minnsta kosti ætla miðað við allt afþreyingarefnið sem er í boði um þá: bíómyndir, hlaðvarpsseríur, Netflix-þáttaraðir, heimildamyndir og bækur - framboðið virðist endalaust. Vinsældir þessa fólks hafa sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt þessi misserin, fólk virðist njóta þess að fylgjast með þeim sem svíkja, ljúga og blekkja, villa á sér heimildir, nýta sér góðmennsku eða veika stöðu, eða bara mennsku annarra til að fá sínu framgengt, fá...
Jul 14, 2022•18 min•Ep. 40
Það er miður júlí. Þá er oft við hæfi að líta til náttúrunnar og kannski helst þeirra hliða hennar sem hafa áhrif á okkur mannskepnuna. Flest höfum við verið bitin af agnarsmáum flugum undanfarin ár, sérstaklega kannski síðustu tvö sumur þegar við komumst illa af landi brott út af svolitlu. Lúsmý fannst fyrst hér sumarið 2015 - í Kjósinni. Þessi litli vargur hefur ekki verið mikið rannsakaður. Það virðist ekki vera mikill áhugi til þess hjá skordýrafræðingum, segir prófessor. En nú í sumar, og s...
Jul 12, 2022•19 min•Ep. 39
Riðuþolinn sauðfjárstofn verður ræktaður, er fyrirsögn fréttaskýringar í nýjasta tölublaði Bændablaðsins. Nú hefur verið staðfest að nærri 130 íslenskar kindur bera ákveðnar arfgerðir, eru þannig byggðar í genunum, að þær eru verndaðar gegn riðu. Það á að rækta sauðfjárstofn sem er ónæmur gagnvart riðu og gera það hratt. Þetta helst skoðar hvað er fram undan í riðufrírri sauðfjárrækt á Íslandi og lítur á tengsl - eða ekki tengsl - riðu í sauðfé og svo riðu í mönnum. Sömuleiðis verður kafað ofan ...
Jul 11, 2022•19 min•Ep. 38
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er búinn að segja af sér sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins. Hann hættir sem forsætisráðherra í haust, þó að í þessu tilviki sé haust að einhverju leiti teygjanlegt hugtak. Johnson hefur stýrt Bretlandi í þrjú ár og er líklega einn litríkasti og umdeildasti stjórnmálamaður sem Bretland hefur átt. Það er mögulega eitt af því fáa sem er óumdeilanlegt þegar kemur að þessum undarlega og að því er virðist spillta, pólitíkus. En hver var þessi ungi maður sem...
Jul 08, 2022•18 min•Ep. 37
Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega undanfarin ár. Stjórnvöld hafa lofað að skoða leiðir til að efla innlenda matvælaframleiðslu til að tryggja fæðuöryggi landsins sem verður brothættara með hverju árinu - hvort sem það er stríðsrekstri, smitsjúkdómafaröldrum eða hamfarahlýnun að kenna. Tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands segir í Þetta helst að íslenska landbúnaðarkerfið sé svo brotið þegar kemur að kornrækt, að það sé í rauninni hvorki hægt að selja íslenskt korn að ráði...
Jul 07, 2022•18 min•Ep. 36
Ísland getur nú státað sig af tveimur veitingastöðum sem bera Michelin-stjörnu og eru þar með í hópi tæplega þrjú þúsund veitingastaða um allan heim. Langflestir staðirnir eru, eðli málsins samkvæmt, í Frakklandi en stjörnunum hefur verið að fjölga á Norðurlöndunum undanfarinn áratug. Norðurlöndin eru sögð brautryðjendur í sjálfbærri matargerð og slík viðurkenning var veitt hérlendum veitingastað við hátíðlega athöfn í Noregi í vikunni. En hvaða kröfur þurfa veitingastaðir að uppfylla til að fá ...
Jul 06, 2022•19 min•Ep. 35
Það eru liðin 67 ár frá því að Emmett Till, þá 14 ára gömlum, var rænt, hann pyntaður og loks myrtur á hrottafenginn hátt af tveimur mönnum. Tilefnið voru ásakanir ungrar konu um að drengurinn hefði flautað á hana og hegðað sér á óviðeigandi hátt gagnvart henni, í verslun hennar og mannsins hennar. Atvikið átti sér stað í Suðurríkjunum. Á tímum sem einkenndust af kynþáttahatri, -ofbeldi og misskiptingu. Konan var hvít. Árásarmennirnir líka. Drengurinn svartur. Árásarmennirnir tveir voru sýknaðir...
Jul 05, 2022•19 min•Ep. 34
Þrjú eru látin og fjögur liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi eftir að ungur, danskur maður hóf skothríð með riffli í Fields-verslurnarmiðstöðinni frægu. Lögreglan telur manninn hafa verið einan að verki, en viðbúnaðarstig í borginni hefur verið hækkað, viðburðum aflýst og fólk er beðið um að hafa varann á. Tvö sem dóu voru einungis sautján ára gömul, sá þriðji var á sextugsaldri. Morðinginn birti óhugnanleg myndskeið á youtube daginn fyrir árásina og er sagður eiga sögu innan geðheilbrigðiskerfis...
Jul 04, 2022•18 min•Ep. 33
Bandaríski tónlistarmaðurinn og stórstjarnan R Kelly var nýverið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að stýra kynferðisglæpahring, misnota konur og börn kynferðislega, stunda mansal, fjárkúgun og mútur. Það má færa rök fyrir því að þessi þrjátíu ára dómur sé nánast ljóðrænn að því leytinu til að Kelly virðist hafa fengið að stunda níðingsskap sinn svo til óáreittur í einmitt þrjátíu ár, allan sinn farsæla tónlistarferil. Hann níddist á ungum, svörtum konum sem áttu fyrir undir högg að sækja og þrátt ...
Jul 01, 2022•18 min•Ep. 32
Hvalveiðar Íslendinga eru hafnar á ný eftir fjögurra ára hlé. Hvalveiðimenn segja markaðina betri en áður og vísindamenn fullyrða að stofnarnir standi vel. Nýleg könnun Maskínu fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands sýndi að um tveir þriðju hlutar Íslendinga telja hvalveiðar skaða orðspor landsins og fleiri eru andsnúnir veiðum en fylgjandi. Ferðaþjónustan og náttúruverndarsamtök fordæma þennan fámenna atvinnuveg og segja hann skaða náttúruna og ímynd landsins. Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi...
Jun 30, 2022•18 min•Ep. 31
Leiðir ríkja heims til að auka við völd sín og umsvif eru margar og fjölbreytilegar. Ein leið er að auka við yfirráðasvæði sitt - færa út kvíarnar. En það getur verið erfitt og dýrt, kostað stríð, alþjóðaátök, mannfall og eyðileggingu. Sum ríki hafa því leitað nýrra og frumlegri leiða. Eins og Kína, sem hefur - undanfarin átta ár eða svo - bara búið til landsvæði þar sem eru engin. Reist hverja manngerða floteyna í Suður-Kínahafi á eftir annarri. Bætt um það bil þrettán ferkílómetrum við yfirráð...
Jun 29, 2022•17 min•Ep. 30
Rétturinn til þungunarrofs er ekki lengur varinn í stjórnarskrá Bandaríkjanna eftir að nýr Hæstiréttur ógilti rúmlega fimmtíu ára gamlan dóm á jónsmessunni - Roe gegn Wade. Þessi 350 milljóna þjóð fékk þarna enn einn fleyginn á milli sín - Fólk ýmist grætur af gleði eða sorg, yfir því að réttur kvenna til að hafa vald yfir eigin líkama vegur ekki lengur eins þungt og réttur fósturs til þroska. Ríkisstjóri Mississipi sagði þennan gleðidag gera það að verkum að fleiri barnavagnar myndu sjást á göt...
Jun 28, 2022•15 min•Ep. 29
Minnst 1.150 létust og 1.500 slösuðust þegar jarðskjálfti, um sex að stærð, reið yfir suðausturhluta Afganistans aðfaranótt miðvikudagsins. Jarðskjálftar eru ekki óalgengir í Afganistan en þessi er sá mannskæðasti í tvo áratugi. Þar með skall enn eitt stóráfallið á afganskan almenning, það síðasta af fjölmörgum sem dunið hafa yfir síðan stjórn Talíbana tók við völdum í landinu í fyrra. Katrín fer yfir stöðuna, skjálftann, afleiðingarnar og eftirmálin í Þetta helst í dag. Þetta helst er fréttaský...
Jun 27, 2022•17 min•Ep. 28
Tugir ferðamanna hafa lent í bráðri lífshættu við Reynisfjöru undanfarin ár og gráðugt Atlantshafsbrimið tekið þar fimm líf síðan 2013. Snúðu aldrei baki í öldurnar, segja heimamenn. Hætta - Danger Lífshættulegar öldur - stendur á stórum skiltum sem taka á móti fólki áður en það röltir af stað í átt að dáleiðandi og óútreiknanlegu brimrótinu. Leiðsögumenn og fjöldinn allur af vefsíðum vara við þessum stað, sem heldur samt sem áður áfram að taka líf forvitinna ferðamanna. Umræður um öryggismál í ...
Jun 24, 2022•19 min•Ep. 27
Fíll réðst á og traðkaði niður sjötuga konu, Mayu Murmu, þar sem hún stóð og sótti vatn í brunn í þorpi í austurhluta Indlands, fyrr í mánuðinum. Konan var flutt á spítala þar sem hún lést af sárum sínum. Fíllinn hafði þó ekki lokið sér af heldur sneri hann til baka þegar bálför hennar fór fram við sérstaka athöfn, kastaði líkinu til og traðkaði á því aftur. Hann lét þó ástvini Murmu, sem þó flúðu eins og fætur toguðu, að mestu í friði, að sögn fjölmiðla. Hvernig stendur á þessu? Eru fílar árása...
Jun 23, 2022•18 min•Ep. 26
Umsátursástand ríkti í norðurbænum í Hafnarfirði í allan morgun og fram yfir hádegi þegar maður á sjötugsaldri, vopnaður byssu, hóf skothríð af svölum íbúðar sinnar á kyrrstæðan bíl. Leikskóla var lokað af ótta við árásarmanninn og fjölmennt lið lögreglu, sérsveitar og sjúkraliðs kallað á staðinn. Maðurinn kom út úr íbúð sinni skömmu eftir hádegi, eftir að hafa rætt við lögreglu í síma í marga klukkutíma. Við förum yfir atburði morgunsins í Þetta helst. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar se...
Jun 22, 2022•16 min•Ep. 25
Íslenska óperan er eiginlega eini starfsvettvangurinn fyrir klassískt menntaða söngvara þessa lands. En óánægjan með stofnunina og hvernig henni hefur verið stjórnað er svo mikil að söngvararnir krefjast þess að stjórnendur víki, almennilegri þjóðaróperu verði komið á laggirnar og að fólk taki þar við taumunum sem hefur menntun og skilning á faginu. Söngvarar setja stórt spurningarmerki við það hvernig hátt í milljarði króna af ríkisfé hefur verið varið undanfarin þrjú ár, þar sem ekkert nýtt ve...
Jun 21, 2022•18 min•Ep. 24
Sænskir dómstólar sakfelldu ítalska skurðlækninn Paolo Macchiarini - plastbarkalækninn - á fimmtudaginn. Hann hlaut skilorðsbundinn dóm fyrir afar umdeildar plastbarkaígræðslur. Læknirinn boðaði nýja tækni í líffæraígræðslum sem hefði getað gjörbylt læknavísindunum - hefði hún bara virkað. Og á meðan sumir - eða kannski nokkuð margir - halda því fram að Macchiarini hafi af ásetningi gert aðgerðirnar víðsvegar um heiminn, vitandi að tæknin virkaði ekki, vilja einhverjir aðrir meina að hann hafi v...
Jun 20, 2022•18 min•Ep. 23
Dómsmál óperusöngkonu gegn Íslensku óperunni verða á dagskrá í Þetta helst í dag. Það hefur gustað hressilega um Íslensku óperuna undanfarin misseri vegna vangreiddra launa til söngvara og stjórnunarhátta. Tvö dómsmál hafa farið í gegn um kerfið, harðorðar yfirlýsingar sendar á víxl og óumdeilt er að orðspor þessarar rúmlega fertugu sjálfseignastofnunar beðið hnekki í látunum. Forsvarsmenn Óperunnar hafa ekki veitt viðtöl vegna dómsmálsins féll nýlega í Landsrétti, fyrr en nú. Sunna ræðir við Pé...
Jun 16, 2022•17 min•Ep. 22
Um þessar mundir fara fram opinberar vitnaleiðslur rannsóknarnefndar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra. Nefndin sakar Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að hafa skipulagt og undirbúið valdaránstilraun hins æsta múgs sem réðst inn í þinghúsið sjötta janúar 2021. Trump hafði þá verið með háværar kenningar um að Demókratar hefðu beitt kosningasvindli í nýafstöðnum forsetakosningunum - og því hefði Joe Biden sigrað þær. Þessar kenningar viðraði hann við hvern sem...
Jun 15, 2022•16 min•Ep. 21
Tæpt ár er liðið frá því að Gylfi Þór Sigurðsson, einn besti knattspyrnumaður íslenskrar fótboltasögu, var handtekinn á heimili sínu í Manchester, grunaður um kynferðisbrot. Á þessum 11 mánuðum hefur Gylfi ekki leikið fótbolta, hvorki með félagsliði sínu Everton né íslenska landsliðinu. Hann sætir farbanni í Bretlandi, sem hefur ítrekað verið framlengt, og er sagður fara huldu höfði í einhvers konar skjólshúsi í London. Gylfi hefur ekki verið nafngreindur í fjölmiðlum ytra, lögreglan í Mancheste...
Jun 14, 2022•18 min•Ep. 20