Við höfum fjallað um skotárásir að undanförnu í Þetta helst: árásina í Uvalde í Texas, tíðni skotárása, deilur um vopnaeign, pólitík og tilefni og hvatir að baki slíkum voðaverkum. Í dag ljúkum við þeirri umfjöllun með því að ræða við Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við Háskóla Íslands, um hið illa. Illskunni hefur verið kennt um ófá voðaverk. Við spyrjum Sólveigu Önnu út í birtingarmyndir illskunnar, mótvægið við henni og hvort sé í raun sterkara - þegar allt kemur ...
Jun 13, 2022•17 min•Ep. 19
Íslenska ríkið hefur greitt skaðabætur til fólks sem var gert ófrjótt án vitundar sinnar eða samþykkis, á grundvelli úreltra laga. Ófrjósemisaðgerðir hafa verið gerðar á að minnsta kosti 50 íslenskum konum án þess að þær veittu fyrir því samþykki, er fram kom í skýrslu sem lögð var fyrir Alþingi og hefur verið rifjuð upp núna í tenglsum við ofbeldið sem Danir beittu grænlenskum stúlkum með getnaðarvarnarlykkjunni. Í seinni þætti Þetta helst um umdeildar ófrjósemisaðgerðir verður rætt við sagnfræ...
Jun 10, 2022•16 min•Ep. 18
Við höldum áfram umfjöllun okkar um skotárásir í Þetta helst. Í dag ræðum við við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, og spyrjum hana út í hvatanna og tilefnin að baki skotárásum. Sér í lagi fjöldaskotárásum, eins og þeirri sem átti sér stað í grunnskóla í Uvalde í Texas undir lok síðasta mánaðar. Þar sem maður myrti tuttugu og einn, þar af nítján börn undir tíu ára aldri. Skyttan sjálf var átján ára. Raunar einkennir lágur aldur l...
Jun 09, 2022•20 min•Ep. 17
Fyrsta löglega ófrjósemisaðgerðin á Íslandi var gerð árið 1938, sama ár og lög sem heimiluðu slíkar aðgerðir voru sett. Lögin voru í gildi í tæp 40 ár og voru skráðar 726 ófrjósemisaðgerðir á tímabilinu, nær allar flokkaðar sem vananir, en fjórar voru afkynjanir á körlum til að koma í veg fyrir að þeir brjóti af sér kynferðislega. 120 aðgerðir voru gerðar vegna andlegs vanþroska eða geðveiki þess sem lagðist undir hnífinn. 59 einstaklingar voru gerðir ófrjóir án þess að veita samþykki sitt fyrir...
Jun 08, 2022•18 min•Ep. 16
Við fjöllum áfram um skotárásir í Þetta helst. Í dag einblínum við á skotvopnalöggjöf og eld heitar umræður og deilur um skotvopnaeign í Bandaríkjunum. Hart hefur verið tekist á um málið í áraraðir. Löggjöfin er æði frjálslynd í samanburði við önnur ríki heims og rétturinn til að eiga og bera vopn er verndaður í annarri grein stjórnarskrárinnar, þótt einnig sé deilt um það. Von margra, sér í lagi Demókrata, er sú að árásirnar verði loks til þess að gripið verði til aðgerða; löggjöfinni breytt og...
Jun 07, 2022•16 min•Ep. 15
Við fjöllum um aðdragandann að meiðyrðamáli Ingólfs Þórarinssonar veðurguðs, sem hann tapaði í vikunni fyrir héraðsdómi. Dómurinn virtist koma mörgum að óvörum fyrst um sinn, en síðan hafa lögspekingar margir sammælst um að hann sé í samræmi við, og mögulega til marks um, breytta tíma. Lögmaður Ingólfs vill áfrýja dómnum, sem hún telur rangan. Sunna Valgerðardóttir, nýr liðsmaður Þetta helst, fer yfir málið. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, m...
Jun 03, 2022•17 min•Ep. 14
Um miðjan maí myrti átján ára maður tíu og særði þrjá í stórmarkaði í Buffalo í New York í Bandaríkjunum, í árás sem lögregluyfirvöld lýsa sem hreinum og klárum rasískum hatursglæp. Árásarmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Skotárásin var þá ein sú mannskæðasta í Bandaríkjunum það sem af er ári - jafnvel þótt hún væri númer 198 á þeim rúmlega nítján vikum sem þá voru liðnar af árinu. Það átti þó eftir að breytast viku síðar. Þann tuttugasta og fimmta maí myrti annar átján ára árásarmaður nítján...
Jun 02, 2022•16 min•Ep. 13
Við fjöllum í dag um réttarhöldin í meiðyrðar- og skaðabótamáli bandaríska leikarans Johnny Depp, gegn fyrrum eiginkonu sinni, leikkonunni Amber Heard. Réttarhöldunum er nýlokið, en þau vöktu athygli heimsbyggðarinnar enda var sýnt frá þeim í beinni útsendingu. Guðmundur Björn ræðir við Sonju Sif Þórólfsdóttur, blaðamann á Morgunblaðinu, um þetta flókna mál. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, ...
Jun 01, 2022•19 min•Ep. 12
Eins og ófá dæmi hafa sýnt að undanförnu er hatursorðræða og -tjáning útbreitt samfélagsmein. Meinsemd sem virðist heldur færast í aukana. Í síðustu viku könnuðum við orsakir hatursorðræðu - báðum Eyrúnu Eyþórsdóttur, lektor í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri og doktor í mannfræði, að varpa ljósi á hvers vegna fólk viðhefur hatursfull ummæli. Í dag ætlum við að beina sjónum okkar að öðrum þætti vandamálsins: Þeim samfélagslegu úrræðum sem hægt er að grípa til þegar hatursfull ummæli eða t...
May 31, 2022•18 min•Ep. 11
Þrír mánuðir eru frá því að Rússar gerðu innrás í Úkraínu. Við fjöllum um stríðið, afleiðingarnar og stöðuna í Úkraínu ásamt Jóni Ólafssyni, prófessor og sérfræðingi í málefnum Rússlands, í Þetta helst í dag. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
May 30, 2022•17 min•Ep. 10
Til stendur að vísa 300 flóttamönnum og hælisleitendum af landi brott. Sú ákvörðun stjórnvalda hefur verið harðlega gagnrýnd, sem og nýtt frumvarp dómsmálaráðherra til útlendingalaga. Við ræðum um málið við Albert Björn Lúðvígsson, lögfræðing, sem þekkir lögin út og inn, en hann telur að breytingatillögurnar séu til þess fallnar að skerða réttindi umsækjenda. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar,...
May 25, 2022•19 min•Ep. 8
Spennan á milli Kína og Taívan hefur ekki verið meiri í fjörutíu ár. Kínverjar hafa að undanförnu aukið vígbúnað sinn nærri Taívan og varnarmálaráðherra landsins telur líklegt að Kínverjar ráðist inn í landið á næstu árum. Í gær sagði svo Joe Biden Bandaríkjaforseti að Bandaríkin væru reiðubúin til að skerast í leikinn og koma Taívan til varnar - til dæmis með herstyrk sínum, gerði Kína innrás í landið. Yfirlýsingar forsetans hafa vakið fjölmargar spurningar og gert flókin mál flóknari ef eitthv...
May 24, 2022•16 min•Ep. 7
Magnús Geir Eyjólfsson fjallar um breytta heimsmynd eftir Covid-19 faraldurinn í Þetta helst í dag. Í upphafi árs glitti í endalokin á Covid-19 faraldrinum og sáu fjármálaráðherrar heimsins í hillingum að varpa fram háum hagvaxtartölum eftir botn síðustu ára. En svo hófst innrás Rússa í Úkraínu og má segja að Pútín hafi ekki eingöngu varpað sprengju á úkraínskar borgir heldur einnig sprengjum á heimshagkerfið. Í stað betri tíðar með blómum í haga róa fjármálaráðherrar heims nú lífróður í baráttu...
May 23, 2022•17 min•Ep. 6
Í dag er það helst að Valsmenn eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla, eftir sigur á Tindastólsmönnum í oddaleik úrslitaeinvígisins á Hlíðarenda í gær. Þetta er í fyrsta sinn í tæp fjörutíu ár sem Valsmenn hampa bikarnum eftirsótta. Já, Valsmenn hafa ekki riðið feitum hesti í körfuboltanum, undanfarna áratugi, en undanfarin ár hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsti Íslandsmeistaratitill kvenna í körfuknattleik vannst í apríl 2019 en liðið varð einnig bikarmeistari sama ár. Annar Íslandsmeis...
May 19, 2022•18 min•Ep. 4
Læknirinn og fræðimaðurinn Ahmadreza Djalali, sem hefur verið í haldi í Íran frá árinu 2016, getur á hverri stundu búist við því að vera tekinn af lífi fyrir sakir sem mannréttindasamtök telja að eigi ekki við rök að styðjast. Djalali, sem er með íranskt og sænskt ríkisfang, er einn af fjölmörgum í haldi íranskra stjórnvalda sem eru með tvöfalt ríkisfang, annað þeirra íranskt. Þessir fangar virðast flestir nýttir til að beita pólitískum þrýstingi á önnur lönd. Hallgrímur Indriðason fréttamaður, ...
May 18, 2022•19 min•Ep. 3
Innrás Rússa í Úkraínu hófst 24. febrúar og hefur því staðið yfir 82 daga, eða um tólf vikur. Strax á fyrsta degi innrásarinnar hófust sprengjuárásir rússneska hersins á hafnarborgina Mariupol í suðurhluta landsins, og daginn eftir hélt fótgöngulið í átt að borginni. Borgin var svo umkringd 1. mars og síðan þá hafa staðið yfir linnulaus átök í borginni. Rússneski herinn sprengdi meðal annars leikhús í borginni í loft upp um miðjan síðasta mánuð, þar sem almennir borgarar leituðu skjóls. Að minns...
May 17, 2022•18 min•Ep. 2
Í fyrsta þætti Þetta helst fjallar Guðmundur Björn Þorbjörnsson um sigur Úkraínu í Eurovision, hið pólitíska landslag keppninnar og hvaða þýðingu sigurinn hefur fyrir Úkraínumenn. Þetta helst er fréttaskýringaþáttur þar sem fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
May 16, 2022•20 min•Ep. 1