Sögulegir samningar um skurðaðgerðir - podcast episode cover

Sögulegir samningar um skurðaðgerðir

Aug 15, 202516 minEp. 502
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Í vikunni var sagt frá því að Sjúkratryggingar Íslands hefðu gert samninga við þrjú einkarekin heilbrigðisfyrirtæki um að þau geri allt að 1000 skurðaðgerðir á ári með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins. Samningarnir eru til þriggja ára. Um er að ræða sögulega samninga að því leyti að ekki hafa áður verið gerðir langtímasamningar við einkaaðila um liðskiptaaðgerðir hér á landi. Tekist hefur verið á um slíka einkarekstrarvæðingu í íslenskum stjórnmálum um langt árabil en nú er umræðan um þetta takmörkuð. Hvaða augum líta forsvarsmenn Landspítalans þessa samninga? Hvað segir verkalýðshreyfingin sem talsvert hefur fjallað um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu? Hverjir eru kostir og gallar þessara samninga? Umsjón: Ingi F. Vilhjálmsson
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android