Refsingar dómstóls götunnar - podcast episode cover

Refsingar dómstóls götunnar

Aug 27, 202520 minEp. 510
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson hefur skrifað grein um dómstól götunnar sem vakið hefur nokkra athygli. Lúkasarmálið, KSÍ-málið, Atla Rafns-málið, mál Ingós veðurguðs, Klausturmálið, Sigurðar Inga-málið og fleiri og fleiri eru meðal annars viðfangsefni Róberts í greininni sem birtist í tímaritinu Skírni nú í vor. Í greininni fjallar hann um útilokunar- og slaufunarmenningu út frá sjónarhóli heimspekinnar og tekur mörg dæmi úr íslenskum samtíma en einnig erlendis frá. Allt eru þetta mál sem fengu talsverða athygli í fréttum á liðnum árum og voru mikið rædd meðal fólks. Hver er Róbert að fara í þessari grein og af hverju skrifaði hann hana? Rætt er við hann um málið. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android