Arftakaskiptin hjá Samherja - podcast episode cover

Arftakaskiptin hjá Samherja

Sep 30, 202514 minEp. 534
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Katla Þorsteinsdóttir, dóttir Þorsteins Más Baldvinssonar og Helgu S. Guðmundsdóttur, er orðin stór eigandi í félagi sem þau hjónin áttu saman áður. Félagið á eignir upp á rúmlega 30 milljarða króna og skuldar nær ekkert. Það heitir Eignarhaldsfélagið Steinn og hélt áður utan um hlutabréf þeirra Þorsteins Más og Helgu, sem er fyrrverandi eiginkona hans, í Samherja. Þetta kemur fram í ársreikningi Eignarhaldsfélagsins Steins ehf. fyrir árið 2024 sem samþykktur var af stjórn félagsins þann 18. september síðastliðinn. Katla er orðinn eigandi 41 prósent hlutafjárins í þessu félagi. Í upphafi síðasta árs átti hún ekkert í því. Þorsteinn Már er einn af stofnendum og fyrrverandi forstjóri útgerðarfélagsins Samherja á Akureyri. Samherji er stærsta og öflugasta útgerðarfyrirtæki Íslandssögunnar. Eigendabreytingarnar á þessum hlutabréfum í Steini eru hluti af stórfelldum eignatilfærslum Þorsteins Más Baldvinssonar og Helgu yfir til barna sinna tveggja, áðurnefndar Kötlu og Baldvins Þorsteinssonar, á síðustu árum. Fyrir sjö árum áttu þau Baldvin og Katla nær ekkert í Samherja og tengdum félögum. Í dag hafa þau tekið við stærstum hluta af hlutabréfum foreldra sinna í Samherja og tengdum fyrirtækjum. Umsjón: Ingi F. Vilhjálmsson
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android