Ráðuneytið ver gagnrýnina á Morgunblaðið - podcast episode cover

Ráðuneytið ver gagnrýnina á Morgunblaðið

Dec 05, 202515 minEp. 581
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Mennta-og barnamálaráðuneytið ver gagnrýni sem það setti fram á vinnubrögð Morgunblaðsins í tveimur fréttum í lok nóvember. Ráðuneytið bendir á fordæmi um sambærilegar fréttir þar sem einstaka fjölmiðlar hafa verið gagnrýndir af tilteknum ráðuneytum. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigurður Dögg Auðunsdóttir, gagnrýnir ráðuneytið harðlega fyrir fréttirnar um Morgunblaðið sem það birti á heimasíðu Stjórnarráðsins. Hún segir að fordæmin sem ráðuneytið bendir á í svari sínu séu annars eðlis en gagnrýnin á Morgunblaðið nú. Sigríður Dögg telur alvarlegt að ráðuneyti ráðist að nafngreindum fjölmiðli með þessum hætti. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Þetta er Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður blaðamannafélags Íslands, sem þú heyrir í þarna. Hún tjáir sig um birtingar mennta- og barnamálaráðuneytisins á tveimur fréttum í lok nóvember þar sem fréttaflutningur Morgunblaðsins var gagnrýndur. Fréttirnar voru birtar á heimasíðu Stjórnarráðsins sem er opinber heimasíða allra ráðuneyta ríkisstjórnarinnar. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, er mennta- og banamálaráðherra. Ráðuneytið birti tvær fréttir um fréttaflutning Morgunblaðsins 21. og 23. Nóvember. Fyrirsagnir ráðueneytisins voru ,,Rangfærslur um vímuefnaneyslu ungmenna” og ,,Um vinnubrögð Morgunblaðsins.” Sigríður Dögg telur að þessar birtingar ráðuneytisins eigi að leiða til umræðu um það hvernig staðið skuli að birtingum á heimasíðu stjórnarráðsins.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android