Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Grænlandsórar Trump, bíslagið, Futuregrapher, Elvis

Í gær og í dag hafa fjölmiðlar fjallað mikið um hugmyndir Donalds Trump verðandi Bandaríkjaforseta um innlimun á Grænlandi inn í Bandaríki Norður Ameríku, annaðhvort með góðu eða illu. Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur kemur í Lestina og ræðir nýlenduhugmyndir, stóveldapólitík og framtíðina í alþjóðastjórnmálum. Hermann Stefánsson rithöfundur flytur okkur pistil í Lestinni í dag, þetta er fyrsti pistilllinn í röð sem hann hefur gefið yfirskriftina Bíslagið. Hvað hugsar maður um í bíslagi? Það...

Jan 08, 202557 minEp. 214

Raddþjálfari vampíru, gallabuxur Magnúsar Carlsen, Metta-sport

Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Þetta helst um hraðan vöxt tískumerkisins Metta-sport hér á Íslandi. Við veltum fyrir okkur tísku, kósígöllum og áhrifavöldum. Björn Þorfinnsson, skákáhugamaður og ritstjóri DV ræðir stöðu Magnúsar Carlsen í skákheiminum. Á dögunum var honum vísað af móti fyrir að vera í gallabuxum. Ásgerður Júníusdóttir, söngkona, hjálpaði Bill Skarsgård að verða Orlok-greifi í kvikmyndinni Nosferatu. Hún segir frá því hvernig þau þjálfuðu rödd Bill þannig að honum tókst a...

Jan 07, 202557 minEp. 213

Nosferatu, draugalistamennirnir snúa aftur, grænlenskur trommudans

Á jóladag var nýjasta kvikmynd leikstjórans Robert Eggers frumsýnd í Bandaríkjunum. Hryllingsmyndin Nosferatu með Lily Rose Depp í aðalhlutverki. Nú er hún líka komin í bíó á Íslandi og hægt að fara og láta sér líða illa og ónotalega. Myndin er endurgerð á samnefndri mynd þýska leikstjórans Murnau frá 1922 - sem var síðan endurgerð af samlanda hans Werner Herzog árið 1979 - og allt er þetta byggt á skáldsögu Bram Stoker um drakúla greifa. Eggers er þekktur fyrir að leggja mikla áherslu á söguleg...

Jan 06, 202557 minEp. 212

Jólaþáttur Lestarinnar

Kristján og Lóa Björk eru komin í jólaskapið og er Lestin í dag tileinkuð jólatónlist. Tónlistarmennirnir og plötusnúðarnir Ívar Pétur og Örvar úr FM Belfast eru miklir jólalagafíklar. Þeir mæta í hljóðverið með jólaplötusafnið sitt og þeyta skífum í þætti dagsins.

Dec 19, 202454 minEp. 209

Ekki vera Gólem

Steinar Bragi er í miklu uppáhaldi hjá stjórnendum Lestarinnar. Fyrir jólin hann frá sér nýja framtíðarskáldsögu, þá þriðju í röð. Bókin nefnist Gólem og fjallar um unga konu sem hefur það að atvinnu að deyja. Með dauða sínum bjargar hún ríkasta fólki heims frá slysum eða árásum, og lengir þannig ævi þess. Steinar Bragi sest niður með Lóu og Kristjáni og ræðir Gólem, gervigreind, fyrirtækjaræði, stöðu bókmennta og af hverju allar bækurnar hans eru sú síðasta.

Dec 18, 202455 minEp. 208

Leið 4

Í byrjun desember í fyrra vörðum við heilum degi um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í dag heyrum við sögur fólks sem ferðaðist með vagninum síðastliðin föstudag. Strákur á leið að fá sér drekatattú, stuðningsfulltrúi á leið heim úr vinnu, Venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings og danskur kökuskreytingameistari situr undir stýri. Í Lestinni í dag endurflytjum við einn af okkar uppáhaldslestarþáttum.

Dec 17, 202453 minEp. 207

Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, japanska nýbylgjan, sovéskar röntgenplötur

Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur, segir frá nýju útvarpsverki Þau sjá okkur ekki í myrkrinu, sem verður flutt á Rás 1 um jólin. Verkið er skáldverk byggt á viðtölum við tvo Palestínumenn, Fadia og Ahmed, sem eru bæði búsett hér á landi. Þórður Ingi Jónsson fjallar um japönsku nýbylgjuna í kvikmyndagerð út frá myndunum Pale Flower og Woman in the Dunes. Og svo fáum við sendingu frá raftónlistarmanninum Jónasi Þór Guðmundssyni. Hann segir frá sovésku fyrirbæri, því þegar fólk greip til þess að no...

Dec 16, 202453 minEp. 206

Svörtu Sandar gagnrýni, I Adapt snýr aftur

Í október hófst önnur sería af Svörtu Söndum, spennuþáttaráð úr smiðju Baldvins Z. Aldís Amah Hamilton fer aftur með hlutverk lögreglukonunnar Anítu en þættirnir gerast rúmu ári eftir atburði fyrri seríunnar. Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsrýnir Lestarinnar fer í saumana á Svörtu Söndum. Harðkjarnapönksveitin I Adapt er snúin aftur. Hljómsveitin var ein aðaldriffjöður pönksenunnar í Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar: reið, pólitísk og ógnarþétt á tónleikum. Birkir og Ingi Þór úr I Adapt setjast...

Dec 12, 202453 minEp. 205

Persepólis, Luigi Mangione, þjóð er bókaklúbbur

Hinn 26 ára Luigi Mangione var handtekinn í Pennsylvaniu í fyrradag og sakaður um kaldrifjað morð á forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna í síðustu viku. Allt frá því að morðið átti sér stað hefur honum verið hampað sem hálfgerðri alþýðuhetju á internetinu, og ekki minnkaði aðdáunin eftir að myndir af honum fóru í dreifingu. Kristján og Lóa ræða aftengingu á samfélagsmiðlum, meme, fallega glæpamenn og djúpstæða reiði bandarísku þjóðarinnar. Persepólis er einhver þekktast...

Dec 11, 202455 minEp. 204

Intermezzo eftir Sally Rooney, rýni í Wicked

Kolbeinn Rastrick fór á Wicked í bíó og kemur færandi hendi með kvikmyndarýni. Poppstjarnan Ariana Grande leikur góðu nornina Glindu og Cynthia Erivo fer með hlutverk Elphöbu. Leikstjórn er í höndum Jon M. Chu, sem er líklega þekktastur fyrir kvikmyndina Crazy Rich Asians. Í september kom út fjórða skáldsaga Sally Rooney, Intermezzo. Ingunn Snædal, sem hefur þýtt bókina Fagri heimur hvar ert þú, sem kom út þar á undan. Við skoðum nokkur þeirra þema sem koma fyrir í bókinni, sorgina, trúnna, skák...

Dec 10, 202454 minEp. 203

Íslensk útvarpskona í Ameríku, hjólabrettaskál í Kópavogi

Við ræðum við Andreu Kristinsdóttur sem er tónlistarkona, útvarpsgerðarkona, og tæknimaður í daglega fréttaþættinum Today, explained frá Vox Media. Hljóð hafa átt hug Andreu allan frá æsku, hún ólst upp á flakki, bjó um tíma í Japan, Pakistan, Zimbabwe og Bandaríkjunum svo eitthvað sé nefnt, en alls staðar hlustaði hún eftir nýrri tónlist og hljóðum. Það er loksins komin skál í Kópavog! Una Schram hittir skeiterinn Sigfinn Böðvarsson, eða Siffa. Tilefnið er ný skál, eða bowl, í Kópavogi sem stór...

Dec 09, 202458 minEp. 202

Femínismi á tímum Valkyrjustjórnar

Þessa dagana funda formenn þriggja stjórnmálaflokka og freista þess að mynda nýja ríkisstjórn. Þessi sögulega stjórn hefur verið kölluð valkyrjustjórnin enda eru þetta allt konur, Kristrún Frostadóttir frá Samfylkingu, Þorgerður Katrín frá Viðreisn og Inga Sæland frá Flokki Fólksins, og munu þær líklega skipta með sér valdamestu embættum ríkisstjórnarinnar á næstu árum. En það verða ekki bara forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem verða að öllum líkindum konur næstu árin heldur er nú þegar kon...

Dec 05, 202457 minEp. 201

Uppruni O.K. og tónlist eftir veðri

Við hittum veðurfræðing úti í góða veðrinu, eða ágæta veðrinu. Hún heitir Katrín Agla og hún leikur sér að því að finna plötur sem passa við veðrið þegar hún er á vakt á Veðurstofunni. Ókei, okay, ok, O.K. ókídókí, allt í kei. Ókei hefur verið hluti af íslenskri tungu í einhver 90 ár. Þetta slangur úr ensku á sér dularfullan og óljósan uppruna. Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi. Við heyrum í S...

Dec 04, 202456 minEp. 200

Nýja platan frá Kendrick, Kneecap knésetja breska ríkið

Það er bara rapp í Lestinni í dag, Norður-Írskt og Norður-Amerískt rapp. Nýjasta plata Kendricks Lamar, GNX, mætti óvænt á streymisveitur 22. nóvember síðastliðinn. Lög af plötunni hafa raðað sér á topp vinsældalista en viðtökurnar eru þó blendnar. Pitchfork gaf plötunni meðal annars lægstu einkunn sem nokkur plata frá K.Dot hefur fengið frá miðlinum. Við kíkjum á Prikið og rýnum í gripinn með Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams. Við kynnumst írsku rappsveitinni Kneecap, sem unnu fyrir helgi mál geg...

Dec 03, 202455 minEp. 199

Tapaði vinstrið kosningunum?

Hvað þýða niðurstöður Alþingiskosninganna fyrir vinstrið? Samfylkingin fékk flest sæti á Alþingi en 9,2% atkvæða sem fóru til flokka sem teljast til vinstri urðu að engu vegna 5% reglunnar. Eiga vinstrimenn fulltrúa á Alþingi? Við veltum fyrir okkur spurningunni: vann vinstrið eða tapaði það? í þætti dagsins. Viðmælendur eru Elísabet Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata og tölvunafræðingur, og Ævar Kjartansson, útvarpsmaður og frambjóðandi Sósíalista.

Dec 02, 202454 minEp. 198

xTwitch, hvað sameinar þjóðina? Rýnt í Hygge og Eftirleiki

Íslenskir stjórnmálamenn eru mættir á Twitch, Kristrún Frostadóttir spilaði skotleikinn COD í beinni útsendingu hjá Gametíví og Bjarni Benediktsson mætti í tveggja tíma beint streymi hjá tengdasyni sínum, tónlistarmanninum og áhrifavaldinu Lil Binna. Lestin sökkvir sér ofan í twitch og pólitík. Hvað sameinar þjóðina? Snorri Páll Jónsson veltir því fyrir sér hvort það sé eitthvað sem sameini þjóð meira en sundrung og skautun. Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær kvikmyndir eftir íslenska leikstjóra sem...

Nov 28, 202454 minEp. 197

Allt er áróður, xTiktok, útvarpsskóli LungA

Hvernig birtast stjórnmálaflokkarnir á samfélagsmiðlum fyrir kosningarnar um helgina? Lóa Björk og Reynir Ólafsson, 17 ára framhaldsskólanemi, halda áfram að skrolla niður Tiktok og greina pólitískt efni. Haukur Már Helgason heldur áfram að velta fyrir sér hugtakinu upplýsingaóreiða, sem hann telur reyndar bara vera annað orð yfir áróður. Hann segir undanfarinn áratug hafi hlutskipti persóna í æ auknum mæli að flytja áróður á samfélagsmiðlum, ýmist fyrir tilteknum skoðunum eða einfaldlega fyrir ...

Nov 27, 202452 minEp. 196

Flokkarnir á TikTok, stjórnmálamaðurinn fagri Alkibíades

Við förum yfir flokkana á TikTok og greinum hvað þeir eru að bjóða upp á rétt fyrir kosningar. Það hefur mikið breyst síðan að kosningabaráttan hófst, en hversu vel virkar það? Reynir Ólafsson, nemi við FB, rýnir í stöðuna. Alkibíades var einhver alræmdasti stjórnmálamaður Grikklands til forna, einstaklega fagur, hrífandi og vel að máli farinn. Hann leiddi Aþenu út í tilgangslaust stríð og endaði á því að gera út af við lýðræðið í borgríkinu. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á samræðunni Alkib...

Nov 26, 202453 minEp. 195

Á vettvangi, gamalreyndir graffarar, ríki og samfélag

Jóhannes Kr. blaðamaður er gestur þáttarins. Við ræðum nýja hlaðvarpsseríu, Á vettvangi, en í henni er Jóhannes á Bráðamóttökunni. Hlustunin er streituvaldandi, svo fátt eitt sé sagt. Blaðamanninum þótti mikilvægt að þættirnir kæmu út fyrir kosningar, enda heilbrigðismál stórt kosningamál. Þórður Ingi Jónsson ræðir við þrjá gamalreynda graffarar, tilefnið er nýútkomin heimildarmynd um graffítimenningu á Íslandi og undirgöngin við Klambratún, myndin Göngin. Hvað er ríki? Hvað er samfélag? Heimspe...

Nov 25, 202455 minEp. 194

Hvað er málið með Hygge? Picnic at Hanging Rock, Saso

Við ræðum við leikstjórann, Dag Kára Pétursson um nýjustu kvikmynd sína, Hygge. Hygge er dönsk endurgerð á ítölsku myndinni Perfetti sconosciuti, sem hefur verið endurgerð hvað oftast af öllum kvikmyndum, oftar en 28 sinnum. Í fyrra kom út íslenska endurgerðin, Villibráð. Þórdís Nadia Semichat fjallar um Dóminikanska tónlistarmanninn Saso. Tónlist Saso er meira en bara skemmtun; hún er menningarhreyfing sem ætlað er að kveikja samtöl um kynþátt og varanleg áhrif afrískrar tvístrunar, eða díaspor...

Nov 21, 202456 minEp. 193

Shrek-reif, leigumarkaður er menningarstefna, Kátt á línunni

Listamenn velta fyrir sér menningarstefnu stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. Lóa veltir fyrir sér nýjum íbúðum til sölu og fyrir hvernig líf sé pláss inn í þeim. Svo ímyndum við okkur persónu sem situr í hægindastól og les fréttir af spjaldtölvunni sinni um stöðuna á húsnæðismarkaðnum. Um helgina fór fram í Gamla bíó, þemapartý og danstónlistarviðburður helgaður teiknimyndapersónunni Shrek sem birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Árið 2020 var haldið fyrsta Shrek-reifið í Los Angeles, ...

Nov 20, 202455 minEp. 192

Hver er Vematsu? og Almar með næringu í æð

Varstu á Twitter árið 2015? Manstu eftir Vematsu? Ekki? Við ræðum við þrjá vini Vematsu og reynum að skilja hversvegna unglingar í MH fóru að spjalla við fullorðinn mann í Japan í frítíma sínum. Kristján byrjaði daginn á því að kíkja niður í Tjarnarbíó. Þar hófst útgáfupartý klukkan 6 í gærkvöldi. Og klukkan tæplega 10 í morgun var annar höfundurinn, Almar Atlason, ennþá að lesa upp úr sinni fyrstu skáldsögu, Mold er bara mold: litla systir mín fjöldamorðinginn, sem er hetjusaga í þremur hlutum ...

Nov 19, 202455 minEp. 191

Í göngutúr með háhyrninginn Keikó

Nú um hegina kom út sex þátta röð frá einu þekktasta og virtasta hlaðvarpsfyrirtæki heims Serial, sem er hluti af New York Times fjölmiðlasamsteypunni. The Good whale sem fjallar um háhyrninginn Keikó. Hlaðvarpsþættirnir rekja sögu Keikós sem varð að alþjóðlegu tákni um illa meðferð á háhyrningum og hvölum almennt þegar hann lék í Hollywood-kvikmyndinni Free Willy árið 1993. Þá bjó hann i skemmtigarði í Mexíkó þar sem hann naut mikilla vinsælda en bjó við þröngan kost og slæma heilsu. Sú brjálæð...

Nov 18, 202455 minEp. 190

Witch Club Satan, Eftirleikir, Útilega

Nýja íslenska bíómyndin Eftirleikir var í 8 ár í bígerð. Við hittum leikstjóra myndarinnar, sem er lýst sem ógnartrylli, Ólaf Árheim. Sviðslista- og danshátíðin Reykjavík Dance Festival er hafin. Við kíkjum í Iðnó á norska svartmetalhljómsveit, sem er að fara að troða upp í kvöld, Witch Club Satan. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í nýja íslenska grínþætti, Útilega, sem sýndir eru á Sjónvarpi Símans.

Nov 14, 202457 minEp. 189

Heimatilbúið stjörnuhrap, vinsæl gervigreindartónlist, menningarstjórnun

Við höldum áfram að ræða tónlist sem er smíðuð með skapandi spunagreind. Nú lítum við út fyrir landssteinana og skoðum dæmi gervigreindartónlist sem hefur náð inn á vinsældalista í nokkrum löndum, t.d. í Þýskalandi, Noregi og Svíþjóð. Við pælum líka í því hvort tónlist geti orðið að samskiptaaðferð, ekki einstaklings við hóp hlustenda, heldur bara milli tveggja einstakling. Haukur Már Helgason fylgdist með heimatilbúnu stjörnuhrapi yfir suðvesturríkjum Bandaríkjanna síðustu helgi. Sjónarspilið v...

Nov 13, 202455 minEp. 188

Woke er búið, það besta á Airwaves, tíminn og netið

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fór fram í miðborg Reykjavíkur um helgina. Davíð Roach Gunnarsson var útsendari Lestarinnar á hátíðinni. Hann fer yfir allt það besta í þætti dagsins. Hefurðu einhvern tímann heyrt að allt sem þú setur á internetið muni verða þar að eilífu? Sigríður Þóra Flygenring veltir fyrir sér netinu og tímanum. Kristján og Lóa rífast svo um hvort woke-ismi sé mikilvægt mál í komandi þingkosningum. Er gullöld woke-ismans búin?

Nov 12, 202454 minEp. 187

The Apprentice, japönsk trésmíði, Polka bistro

Kvikmyndin The Apprentice sem fjallar um mótunarár verðandi bandaríkjaforseta Donalds Trump er sýnd í bíóhúsum þessa dagana. Trump sjálfur hefur fordæmt myndina og segir hana vera pólitíska árás á sig. Kolbeinn Rastrick rýnir í Lærlinginn. Í september hélt vöruhönnuðurinn Jón Helgi Hólmgeirsson til Kyoto til að fara á námskeið í hefðbundinni japanskri húsgagna og innréttingasmíði. Þetta er forn aðferð til að smíða úr tré án þess að nota nagla, lím eða aðra aukahluti til að halda viðnum saman. Kr...

Nov 11, 202455 minEp. 186

Íslendingar í Ameríku

Í þætti dagsins er aðeins eitt mál á dagskrá: Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum sem fóru fram í gær. Við fengum sendar dagbókarfærslur sjö íslendinga í Ameríku dagana 4-6. nóvember. Þau eru staðsett í Arizona, Kaliforníu, Minnesota, Maryland, Conneticut, Flórída og Vermont.

Nov 06, 202454 minEp. 184
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android