Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í nótt, með tiltölulega lágstemmdu pompi og prakt. Við hringjum til Los Angeles og förum yfir helstu verðlaunahafa með Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas. Við sökkvum okkur svo ofan í Anora sem hlaut verðlaun sem besta myndin, mynd sem fjallar um ástir kynlífsverkakonu og sonar rússnesks ólígarka. Það er bolludagur í dag. Anna Gyða fór á stúfana, kíkti í bakaríið Sandholt og forvitnaðist um hefðir tengdar deginum hjá Kristni Schram þjóðfræðingi.
Mar 03, 2025•55 min•Ep. 244
Óskarsverðlaunin fara fram í Hollywood á sunnudaginn, aðfaranótt mánudagsins á íslenskum tíma. Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndafræðingur og dagskrárgerðarkona, spáir með okkur í spilin. Verður það Timothée eða Adrien? Demi eða Mikey? Ein af betri myndunum sem tilnefnd er til Óskarsins (að faglegu mati Lestarinnar) er Conclave en hún fjallar um dauðsfall páfa eða öllu heldur ferlið sem fer af stað þegar páfi deyr: dramatískt og háleynilegt val kardinálanna á nýjum arftaka á bakvið luktar dyr Páfa...
Feb 27, 2025•55 min•Ep. 243
Una Gíslrún Schram fór á verkið Skeljar í Ásmundasal, sem fjallar um ungt par sem er að velta því fyrir sér hvort það eigi að ganga í það heilaga. Hvers vegna að gifta sig og hvers vegna ekki? Una spyr vini sína, gifta og ógifta. Eitt af höfuðskáldum Ítala, Giacomo Leopardi, skrifaði ritgerð á þriðja áratug 19. aldar sem fjallar um Íslending sem hefur fengið sig fullsaddan af samfélagi manna. „Fyrir honum var þetta land óbyggilegasta helvíti á jörð,“ segir Ólafur Gíslason listfræðingur okkur en ...
Feb 26, 2025•54 min•Ep. 242
Valur Gunnarsson fer yfir dagskránna á Þýskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís, og hjálpar okkur að velja hvaða myndir er mest áríðandi að sjá. Á dagskránni leynist besta mynd ársins í fyrra, Sterben, samkvæmt Ásgeiri H. Ingólfssyni, vini Vals og Lestarinnar. Anna Gyða gluggar í skrif Walter Benjamin um síma og veltir fyrir sér atviki í lyftunni. Sigríður Halldórsdóttir segir okkur frá umræðuefninu á Torginu í kvöld, sjálfsrækt.
Feb 25, 2025•55 min•Ep. 241
Frá því að Donald Trump tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, ...
Feb 24, 2025•53 min•Ep. 240
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem...
Feb 20, 2025•54 min•Ep. 239
Þessa dagana eru tvær ólíkar íslenskar bíómyndir í kvikmyndahúsum sem fjalla þó báðar um dauðann. Hrollvekjan The Damned eftir Þórð Pálsson og Fjallið eftir Ásthildi Kjartansdóttur. Við fáum kvikmyndagagnrýni um myndirnar frá Kolbeini Rastrick. Katrín Helga Ólafsdóttir er sérstök áhugakona um hvali og hvalahljóð. Í pistli segir hún frá þessum risum hafsins og það hvernig upptökur af söng hvalanna breytti afstöðu fólks til skepnanna. Við heyrum svo efndurflutt viðtal við Jón Helga Hólmgeirsson vö...
Feb 19, 2025•55 min•Ep. 238
Steinunn Knúts- Önnudóttir, doktor í sviðslistum, bauð á performatívt stefnumót við listrannsakanda í janúar í Norræna húsínu. Spurningin er: hversu lítið er nóg? Við förum á einhversskonar performatívt stefnumót með Steinunni og höldum áfram samtalinu um framtíð leikhússins, framtíð sviðslista. Og veltum fleiri stórum spurningum fyrir okkur, eins og: hvernig kemst maður inn í kvikuna á fólki? Hermann Stefánsson, rithöfundur, flytur pistil í pistlaröðinni Bíslagið. Að þessu sinni eru honum kynsl...
Feb 18, 2025•56 min•Ep. 237
Í þætti dagsins flytjum við aftur viðtal frá því í haust við Þorbjörgu Valdísi Kristjánsdóttur, einn helsta ummönnunaraðila Keikó á síðustu æviárum hans. Í nóvember komu út hlaðvarpsþættir sem rekja sögu Keikó, sem varð að alþjóðlegu tákni um illa meðferð á háhyrningum og hvölum almennt þegar hann lék í Hollywood myndinni Free Willy árið 1993. Þá bjó hann i skemmtigarði í Mexíkó þar sem hann naut mikilla vinsælda en bjó við þröngan kost og slæma heilsu. Sú brjálæðislega hugmynd kviknaði að láta ...
Feb 17, 2025•56 min•Ep. 236
Eitt af verkefnum forseta Bandaríkjanna er að skipa manneskju í stjórn Kennedy Center, sem er ein helsta menningarstofnun þar í landi. Það kom á óvart að Trump tilnefndi ekki manneskju úr menningargeiranum heldur sjálfan sig. Við kynnum okkur nýja fatalínu söngkonunnar M.I.A. en hún er farin að selja álpappírshatta. Á morgun er Valentínusardagur og Una Gíslrún fór í Kringluna í leit að ástföngnu fólki.
Feb 13, 2025•57 min•Ep. 235
Bjarki Rúnar Sigurðarson er sá íslenski raftónlistarmaður sem hefur náð mestum vinsældum utan landsteinanna. Árið 2015 gaf hann út lagið I wanna go bang, hjá útgáfu rússnesku teknóstjörnunnar Ninu Kravitz, og sló það í gegn á klúbbum evrópu og víðar. Bjarki hefur verið mjög iðinn við kolann síðan þá, gefið út mikið magn af fjölbreyttri raftónlist, auk þess að gefa út tónlist annarra og skipuleggja viðburði undir merkjum bbbbbb. Í síðustu viku kom út ný plata, konsept listaverk, sem heitir A guid...
Feb 12, 2025•58 min•Ep. 234
Áhrifarík umhyggja eða Effective Altruism á sér marga fylgismenn í Kísildalnum. En um hvað snýst þessi heimspeki sem sprettur upp úr Oxford-háskóla fyrir rúmum áratug síðan? Georg Lúðvíksson er einn þeirra sem tekur þáttí íslensku hreyfingunni. Við hringjum til Þorlákshafnar og rifjum upp brot úr þætti okkar frá því í haust, þar sem hafist hefur veruð handa við gerð landfyllingar sem eyðileggja mun ölduna sem er ein sú mest sörfaðasta á Íslandi. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í seríu 2 af hinum geysi...
Feb 11, 2025•57 min•Ep. 233
Í gær tróð rapparinn Kendrick Lamar upp á einum stærsta sjónvarpsviðburði ársins, hálfleikssýningu Superbowl, úrslitaleiks ameríska fótboltans. Spenna ríkti fyrir sýningunni, hvort þetta yrði einhver pólitískur gjörningur eða hvort hann myndi dauðrota kanadíska kollega sinn Drake sem hann hefur átt í átökum við undanfarin ár. Þórdís Nadía Semichat rýnir í hálfleikssýningu Superbowl. Leikhús getur ekki keppt við Netflix, leikhúsið tapar því það er dýrara og leiðinlegra. Pétur Ármannsson, sviðslis...
Feb 10, 2025•56 min•Ep. 232
Undanfarna mánuði hafa farið fram einhver stærstu mótmæli í sögu Serbíu. Þau hófust eftir að 15 manns létust í slysi á lestarstöð í Novi Sad, næststærstu borg landsins, en hafa farið að snúast um spillingu og stjórn forsetans Aleksandar Vucic. Háskólastúdentar hafa drifið mótmælin áfram með setuverkföllum, götulokunum, flautum og risastórum samlokum. Við spjöllum við Zarko Urosevic, lífeindafræðing sem starfar við Landsspítalann, en mætti á mótmælin þegar hán var heima í Serbíu í janúar. Hermann...
Feb 06, 2025•57 min•Ep. 231
Pontus Järvstad, ný-doktor í sagnfræði, segir okkur frá erindi sem hann flytur á morgun í Háskóla Íslands. Erindið fjallar um hugmyndasögu og söguspeki andfasismans og áhrif hans í nútímanum. Kolfinna Nikulásdóttir flytur pistil um gjörning Biöncu Censori, sem hún framkvæmdi á rauða dreglinum á Grammy verðlaunahátíðinni. Ein allra besta plata sem kom út á Íslandi í fyrra var platan Í hennar heimi með tónlistarkonunni Iðunni Einars. Við röltum með Iðunni um plötubúðina Lucky Records og fáum hana ...
Feb 05, 2025•54 min•Ep. 230
Við kveðjum skáldið, gagnrýnandann og menningarblaðamanninn Ásgeir H. Ingólfsson sem lést eftir snörp veikindi 25. janúar síðastliðinn, aðeins 48 ára gamall. Ásgeir var reglulegur gestur í Lestinni með pistla um kvikmyndir og kvikmyndahátíðir. Við heyrum brot úr nokkrum pistlum og ljóðalestri Ásgeirs. Við veltum fyrir okkur stöðu leikhússins á Íslandi árið 2025. Á næstu vikum ætlar Lóa að ræða við viðmælendur sem koma sviðslistum við - um framtíð sviðslista - Hvernig lítur framtíð leikhússins út...
Feb 04, 2025•57 min•Ep. 229
Anna Marsibil Clausen ræðir við okkur um nýja útvarpsþætti, Hvar er Jón? sem fjalla um hvarfið á Jóni Þresti Jónssyni sem hvarf í Dublin árið 2019. Kolbeinn Rastrick rýnir í Babygirl, nýja kvikmynd Halina Reijn. Og svo hringjum við til Kanada og ræðum við Hlyn Snæ Andrason, stofnanda gervigreindarfyrirtækisins Scandinavian Algorthms eða Scandal. Hvernig lítur framtíðin út? Er hægt að laga netið?
Feb 03, 2025•55 min•Ep. 228
Nú á dögunum kom út leikin bíómynd um ævi Bob Dylan. Myndin A complete unknown er í leikstjórn James Mangold og byggir á blaðamennskubókinni Dylan Goes Electric! sem fjallar um það þegar Dylan stakk gítarnum sínum í samband við rafmagn á Newport folk festival, átökin í kringum þá umdeildu ákvörðun Timothée Chalamet fer með aðalhlutverkið og er ómótstæðilegur sem andhetjan Dylan. Snorri Helgason kemur og ræðir myndina við Lóu og Kristján. Á laugardaginn verður frumsýnd heimildarmyndin Hanna, She'...
Jan 30, 2025•58 min•Ep. 227
Kristinn R. Þórisson er viðmælandi Lestarinnar í dag. Hann er prófessor við Háskólann í Reykjavík og hefur fengist við rannsóknir á gervigreind í áratugi. Við ræðum við hann um DeepSeek, nýtt kínverskt gervigreindartól, spjallmenni sem gerir það sama og ChatGPT, sem hefur verið mikið í fréttum undanfarna daga. Þegar við gerðum heilan Lestarþátt með gervigreind fyrir tveimur árum tókum við viðtal við Kristinn. En hvað hefur gerst á þessum tveimur áðum síðan þá? Er allt breytt? Eða nokkurn veginn ...
Jan 29, 2025•54 min•Ep. 226
Við ræðum við Róbert Bjarnason, frumkvöðul og sérfræðing í gervigreind, um nýtt gervigreindartól sem kemur frá Kína, DeepSeek. Hver er munurinn á DeepSeek og OpenAi og ChatGPT? Er eitthvað merkilegt við DeepSeek? Hallveig Kristín Eiríksdóttir, sviðslistakona, er hugsi eftir HM í handbolta. Það hafa margir íslendingar spilað með Gummersbach. Hvar er Gummersbach og hvernig bær er það? Kornukópía nefnist tónleika kvikmynd Bjarkar Guðmundsdótttur sem frumsýnd verður 1. febrúar, fyrst á Íslandi, síða...
Jan 28, 2025•57 min•Ep. 225
Í janúar ræddum við í Lestinni við sr. Grétar Halldór Gunnarsson, prest við Kópavogskirkju. Í því samtali var eitt atriði sem vakti sérstaka athygli okkar, en það var að kirkjusókn er að aukast mest meðal ungra karlmanna. Við kynnum okkur málið nánar í þætti dagsins, skoðum Biblíuöpp og förum í messu.
Jan 27, 2025•55 min•Ep. 224
Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni höfum við verið að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Anna Marsibil Clausen gerðum hér í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn. Í þætti dagsins heyrum ...
Jan 23, 2025•56 min•Ep. 223
Við fjöllum um hinn magnaða stríðsljósmyndara Lee Miller en nýlega kom út leikin kvikmynd byggð á ævi hennar. Við ræðum Miller við þau Guðmund Ingólfsson og Lindu Ásdísardóttur. Tónlist frá austurríska stuðboltanum DJ Ötzi hljómar nánast stöðugt á handboltavöllum heimsins. Hallveig Kristín Eiríksdóttir flytur okkur pistil um líf og störf þessa hirðtónlistarmanns handboltaheimsins. Og meira um handbolta. Við höldum áfram að rifja um HM95 á Íslandi. Að þessu sinni rifjum við upp vonir og vonbrigði...
Jan 22, 2025•54 min•Ep. 222
Á dögunum kom út sjötta hljóðversplatan frá Bad Bunny, Debí Tirar Más Fotos. Hún nýtur ótrúlegra vinsælda um allan hinn spænskumælandi heim, sameinar kynslóðir og þjóðir. Benito Antonio Martínez Ocasio er rúmlega þrítugur rappari og tónlistarmaður frá Puertó Ríkó, sem hefur algjörlega slegið í gegn undanfarin ár upphaflega með latin-trap og karabískri reaggaton-tónlist en hefur svo bætt í blönduna æ fleiri tónlistarstílum frá rómönsku ameríku. Hann hefur rutt brautina fyrir spænskumælandi listaf...
Jan 21, 2025•55 min•Ep. 221
Við minnumst eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra samtímans David Lynch í þætti dagsins, en hannlést í lok síðustu viku, rétt fyrir 79 ára afmælisdaginn sinn - sem er í dag. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, sest um borð í Lestina og segir frá vini sínum og samstarfsmanni. Í gær fór í loftið síðasti þáttur af nýrri leikinni sjónvarpsþáttaröð frá Vesturporti sem byggir á ævi Vigdísar Finnbogadóttur. Eins og allir aðrir horfði Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, og fl...
Jan 20, 2025•57 min•Ep. 220
Þorkell Þorkelsson er eini íslendingurinn sem hefur markvisst ljósmyndað á stríðshrjáðum svæðum. Hann deilir með okkur sinni reynslu af stríðs- og heimildaljósmyndun. Við rýnum í breytta tíma innan fagsins enda hefur það að miklu leyti færst úr höndum fagmanna á vegum stórra miðla yfir til fólksins sem býr sjálft við hörmungar aðstæður. Aðgengi okkar sem heima sitja, að slíkum myndum hefur einnig breyst töluvert. Þjóðarmorðin í Palestínu eru náttúrulega nýlegt dæmi um ástand sem hefur verið mynd...
Jan 16, 2025•56 min•Ep. 219
Heimsmeistaramótið í handbolta karla er hafið! Hallveig Kristín Eiríksdóttir, sviðslistakona, verður með pistla næstu vikurnar þar sem hún skoðar handbolta og menninguna i kringum þessa stórkostlegu íþrótt. Í fyrsta pistlinum segir hún frá fyrstu reglubók handboltans og föður íþróttarinnar, hinum danska Holger Nielsen. Grétar Halldór Gunnarsson, prestur í Kópavogskirkju, heimsækir okkur og við spyrjum: Hvað er að frétta af kirkjunni, hlýðum á hugleiðingar Ágústínusar kirkjuföðurs og heyrum dæmis...
Jan 15, 2025•57 min•Ep. 218
Tæknibransinn í Bandaríkjunum hefur flykkt sér á bakvið við Donald Trump að undanförnu. Margir áhrifamenn í Kísildalnum lýstu yfir stuðningi við hann í aðdraganda kosninganna en þeir sem ekki þorðu að veðja á Trump hafa reynt að bæta honum það upp eftir að hann var kosinn með fjárframlögum og yfirlýsingum sem ættu að gleðja forsetann verðandi og vini hans. Forstjóri Meta, Mark Zuckerberg, hefur kannski gengið hvað lengst í slíku daðri. Hann ætlar að hætta ritstkoðun á Facebook og öðrum samfélags...
Jan 14, 2025•56 min•Ep. 217
Glans- og slúðurtímaritið Séð og heyrt var stofnað 1996 og kom út í 20 ár til ársins 2016. Blaðið sagði fréttir af frægðarmennum og skemmtanalífi og var frá upphafi umdeilt en gríðarlega vinsælt. Í gær fór í loftið á Stöð 2 fyrsti þátturinn af sex í sjónvarpsseríu eftir Þorstein J. um tímaritið: Séð og Heyrt, sagan öll. Við ræðum um blaðið við annan af tveimur ritstjórum blaðsins á fyrstu árum þess, Bjarna Brynjólfsson. Bertha Wegmann var dönsk listakona. Hún er fædd árið 1846, var hátt skrifuð ...
Jan 13, 2025•59 min•Ep. 216
Í lok síðasta árs kom út kvikmynd byggð á síðustu dögum óperusöngkonunnar Mariu Callas. Kvikmyndin er sú þriðja og síðasta í þríleik síleska leikstjórans Pablos Larrains um athyglisverðar og merkar konur á 20. öldinni. Sú fyrsta fjallaði um Jackie Kennedy, önnur um Díönu Prinsessu og sú þriðja fjallar um Callas. Við kynnum okkur myndina nánar í þætti dagsins. Fáum að auki til okkar sérlegan óperuunnanda; Unu Margréti Jónsdóttur, dagskrárgerðarkonu á tónlistarsviði Rásar 1. Una heillaðist sjálf s...
Jan 09, 2025•55 min•Ep. 215