David Lynch, Vígdís gagnrýnd, HM95 - podcast episode cover

David Lynch, Vígdís gagnrýnd, HM95

Jan 20, 202557 minEp. 220
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Við minnumst eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra samtímans David Lynch í þætti dagsins, en hannlést í lok síðustu viku, rétt fyrir 79 ára afmælisdaginn sinn - sem er í dag. Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi, sest um borð í Lestina og segir frá vini sínum og samstarfsmanni. Í gær fór í loftið síðasti þáttur af nýrri leikinni sjónvarpsþáttaröð frá Vesturporti sem byggir á ævi Vigdísar Finnbogadóttur. Eins og allir aðrir horfði Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, og flytur okkur pistil um Vigdísarþættina. Í dag leikur Ísland sinn þriðja leik á heimsmeistaramótinu í handbolta karla, við Slóveníu. Ísland vann tvo fyrstu leikina örugglega og ríkir því mikil bjartsýni um gengi liðsins á mótinu. Fyrir þrjátíu árum síðan ríkti líka mikil bjartsýni og stórhugur meðal íslenskra handboltaunnenda, en þá, árið 1995 hélt Ísland einmitt heimsmeistaramótið í handbolta - fyrsta og eina skiptið sem Ísland hefur haldið stórmót í boltaíþrótt. Að þessu tilefni ætlum við að endurflytja örseriuna “Þegar Ísland hélt stórmót” sem við Kristján og Anna Marsibil Clausen gerðum í Lestinni fyrir nokkrum árum um þetta sögulega mót - mót sem var mjög umdeilt á sínum tima, og er það kannski enn.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android