Lestin - podcast cover

Lestin

RÚVwww.ruv.is
Popp og pólitík Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Last refreshed:
Follow this podcast in the Metacast mobile app to refresh it and see new episodes.
Download Metacast podcast app
Podcasts are better in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episodes

Hvað eiga konur að vera að gera? Phoenician Scheme, einsleikahugmyndin

Við heimsækjum Unu Þorleifsdóttur og Ebbu Katrínu Finnsdóttur í Gryfjuna í Ásmundarsal þar sem þær hafa verið að rannsaka með aðferðum sviðslistinna bókina Konur sem kjósa - aldarsaga. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýjustu mynd Wes Anderson, Pheonician Scheme. Snorri Páll Jónsson flytur pistil um ógnina í einsleikahugmyndinni.

Jun 26, 202556 minEp. 304

Mukka, að vera uppi og niðri, tónsmíðar á tímum gervigreindar

Einar Hugi Böðvarsson ræðir við Hjalta Nordal, tónskáld, um tónsmíðar á tímum gervigreindar. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir veltir því fyrir sér hvort það sé í sjálfu sér gott að vera uppi, og Lóa Björk ræðir við tvo meðlimi hljómsveitarinnar Mukka.

Jun 25, 202555 minEp. 303

Snæbjörn í Tjarnarbíó og sviðslistir, bréf til frænku

Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir binda endi á vikuleg bréfaskrif sín í Lestinni, enda er að koma sumar og komið að kveðjustund. Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, veltir fyrir sér framtíð sviðslista, styrkleika senunnar hér og hlutverk leikhússins.

Jun 24, 202554 minEp. 302

Kisutangó

Kattholt er fullt og á föstudaginn birtu þau færslu á Facebook og óskuðu eftir kattamat. Viðbrögðin leyndu sér ekki, enda elska margir ketti. Við heimsækjum Kattholt og fáum leiðsögn um húsið, sem hefur verið í starfseminni síðan 1991. Svo hlustum við á tónlist sem samin er fyrir kisur og förum á vorsýningu Kynjakatta í Officeraklúbbnum í Reykjanesbæ.

Jun 23, 202557 minEp. 301

Dyrnar með Birni, vald og tungumál, Blæja

Rapparinn Birnir ræðir Dyrnar, nýja plötu sem kom út í lok maí. Plötuna vinnur hann með pródúsentinum Marteini Hjartarsyni, Bngerboy. Anna Marsibil Clausen segir frá Blæju og Snorri Páll Jónsson fjallar um tengsl valds og tungumáls.

Jun 19, 202554 minEp. 300

Gróa droppar pé-inu, 120 dagar í Sódómu

Það hefur ótalmargt gerst frá stofnun hljómsveitarinnar Gróu, sem steig á svið í Músíktilraunum árið 2017. Fjórar plötur hafa komið út, smáskrífur, tónlistarmyndbönd, gigg spiluð innan landsteina og utan, skólastig kláruð og nýr meðlimur bæst við. Nýjasta platan Drop P, kom út 6. júní síðastliðin. Einar Hugi Böðvarsson talar um bókina og bíómyndina Saló, 120 dagar í Sódómu.

Jun 18, 202556 minEp. 299

Gervigreind vitnar í Lomma, New Lodge í Belfast, bréf til frænku

Í ræðu til útskriftarnema í tíunda bekki taldi skólastjóri í Grunnskóla Reyðafjarðar sig vera að vísa í ljóð eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð, eða Lomma eins og hann er kallaður og sagði: “Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.” Tilvitnunin reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar og raunar mjög ólíkur því sem Lommi er þekktur fyrir að skrifa. Þetta er þó viðeigandi á einhvern öfugsnúinn hátt því Lommi er frumkvöðull í að nota fo...

Jun 16, 202556 minEp. 298

Dyrnar, spilakassarekstur Háskóla Íslands, Mountainhead

Snorri Páll Jónsson flytur pistil um spilakassarekstur Háskóla Íslands. Davíð Roach rýnir í nýja plötu rapparans Birnis og André 3000. Við pælum í nýju verki úr smiðju Succession-höfundarins, Jesse Armstrong. Kvikmyndin Mountainhead kom út á dögunum og hefur fengið allskonar viðbrögð. Svo rifjum við upp samtal Gunnars Þórðarsonar og Eiríks Guðmundssonar frá árinu 2016 þegar Brian Wilson, heitinn, kom til landsins.

Jun 12, 202554 minEp. 297

Hvalreki, Playlistar, menningarauðmagn Höllu Tómasdóttur

Háhyrningur strandaði við Grafarvog í gærkvöldi og viðbragðsaðilar voru fljótlega komnir á staðinn. Þangað mætti líka Lóa Björk og fylgdist með björgunaraðgerðunum. Hún segir frá í Lest dagsins. Við veltum því líka fyrir okkur hvernig fólk uppgötvar nýja og ferska tónlist í dag, hvort að spilunarlistar á tónlistarveitum - bæði opinberir og heimagerðir - séu orðnir að helsta vettvangi uppgötvunar. Við ræðum við nokkra eldheita tónlistarunnendur um playlista. Af hverju var gert grín að listaverkas...

Jun 11, 202557 minEp. 296

Flókið feðginasamband á Skjaldborg, Sly Stone, íslenskt rokk í Berlín

Jóna Gréta Hilmarsdóttir ákvað að gera heimildarmynd um pabba sinn, en það reyndist vera flókið. Við spjöllum við Jónu um flókið feðginasamband og þráhyggjuna sem eru stef í myndinni Ósigraður sem var sýnd á Skjaldborg um helgina og hlaut dómnefndarverðlaun í flokki stuttmynda. Fönkfrumkvöðullinn og hipparokkstjarnarn Sly Stone er látinn 82 ára að aldri. Við ræðum við Samúel Jón Samúelsson, Samma, um kappann. Og við förum á tónleikaferð til Berlínar með tveimur íslenskum rokksveitum, Supersport ...

Jun 10, 202558 minEp. 295

Konungssinnar í Kísildal #10 - Sæðisgjafinn Elon Musk

Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14? Efni sem var notað við gerð þát...

Jun 05, 202553 minEp. 294

Besta bíómynd ársins, Sátan í Stykkishólmi, Audible, annað bréf til frænku

Útlendingar halda oft að þungarokkshátíðin Sátan í Stykkishólmi heiti eftir myrkrahöfðingjanum sjálfur. En Sátan er líka fjall í nágrenni bæjarins. Degi áður en hátíðin hefst í annað sinn hringjm við vestur og ræðum við Gísla Sigmundsson sem skipuleggur hátíðina ásamt konu sinni og dóttur og góðum vinahópi. Hann spilar á hátíðinni ásamt hljómsveit sinni Sororicide, en þetta eru allra síðustu tónleikar þeirrar goðsagnakenndu dauðarokksveitar. Við höldum áfram að fylgjast með bréfaskriftum frænkan...

Jun 04, 202553 minEp. 293

Reservatet, Space Odyssey, orð yfir ólýsanlegan hrylling, Páll Skúla

Við heimsækjum plötubúðin, fatabúðina og tónleikarýmið Space Odyssey í Bergstaðastræti. Þar hittum við Pan Thorarensen sem situr bakvið búðarborðið og ráðleggur fólki hvaða sveimtónlist það á að hlusta á hverju sinni. Hann er líka að skipuleggja fjórfalda útgáfutónleika sem fara fram í Iðnó á fimmtudag. Snorri Páll Jónsson flytur pistil um orðin sem eru notuð til að lýsa hinu ólýsanlega: stríð, mannúðarkrísa, þjóðarmorð eða helför. Dularfullt hvarf Au Pair-barnfóstru hjá ríkri fjölskyldu í Danmö...

Jun 03, 202555 minEp. 292

Fríd fer hærra

Við hittum tónlistarkonuna Fríd, sem er listamannsnafn Sigfríðar Rutar Gyrðisdóttur. Hún hefur alltaf sungið en í Lýðháskóla í Danmörku komst hún að því að hún elskaði líka að semja tónlist. Í maí gaf hún út stuttskífuna Hærra. Svo heyrum við viðtal frá því í desember, Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi.

Jun 02, 202555 minEp. 291

Grok vill tala um þjóðarmorð, skrímslamjólk SiGRÚNar, bréf til frænku

Undir lok síðasta árs kom út platan Monster Milk, sem er fyrsta breiðskífa tónlistarkonunnar Sigrúnar Jónsdóttur, sem á sviðinu kallar sig einfaldlega SiGRÚN. Sigrún er þó alls enginn nýliði heldur hefur gefið út fimm stuttskífur undir eigin nafni undanfarinn áratug, en hún hefur einnig unnið sem hljóðfæraleikari, söngvari og pródúser, og spilað undir með Sigur Rós, Björk og Florence and the machine svo einhverjir séu nefndir. Monster Milk fékk Grammy-verðlaun íslensku grasrótarinnar, Kraumsverð...

May 28, 202556 minEp. 290

Skjaldborg, vinur okkar Vematsu

Það styttist í Skjaldborgarhátíðina sem er haldin ár hvert á Patreksfirði. Góðvinur hátíðarinnar og Lestarinnar, Ásgeir H. Ingólfsson, sem féll frá í janúar, verður heiðraður á hátíðinni. Heimildamyndin Menningarsmygl sem fjallar um Ásgeir verður líka sýnd, en hún er í vinnslu. Ragnar Ísleifur Bragason og Kristín Andrea Þórðardóttir hita upp fyrir Skjaldborg. Við rifjum upp Vematsu, mann sem býr í Japan en á þó nokkuð marga vini á Íslandi sem hann kynntist á Twitter fyrir að verða áratug síðan.

May 27, 202555 minEp. 289

Konungssinnar í Kísildal #9 - Guðfræðingurinn J.D. Vance

Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hla...

May 26, 202557 minEp. 288

Metnaðarfull skólahljómsveit og forn-grísk heimspeki

Árið 2005 kom út fyrsta platan með hljómsveit Benna Hemm Hemm, 12 laga plata samnefnd tónlistarmanninum. Síðan þá eru liðin 20 ár og Benni kennir nú tónlist í Hagaskóla, og Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari í hljómsveitinni, stýrir þar skólahljómsveitinni, Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, SVoM. Á laugardag ætla SVoM og benni að leiða saman hesta sína og leika plötuna í heild sinni á tónleikum í Háskólabíó. Mér lék forvitni á að vita hvernig indí-fólk krútttónlist fyrsta áratugarins f...

May 22, 202556 minEp. 287

Odee og Samherji, útrýming eldhússins, A Different Man

Við ræðum við listamanninn Odee Friðriksson, um námið í Bergen og Samherja-gjörninginn. Mál Samherja gegn listamanninnum hefur nú staðið yfir í um tvö ár. Ástæða málsóknarinnar er lokaverkefni Odee úr Listaháskóla Íslands, þar sem hann þóttist vera Samherji og baðst afsökunar. Við hlýðum svo á pistla, Kolbeinn Rastrick færir okkur kvikmyndagagnrýni um myndina A Different Man og Guðrún Úlfarsdóttir syrgir eldhúsið.

May 21, 202554 minEp. 286

Menningarleg uppreisn Dogma 25, Millileikur Sally Rooney

Fimm skandinavískir kvikmyndagerðarmenn kváðu sér hljóðs á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum og kynntu nýtt manifesto sitt, Dogma 25. Þetta er nákvæmlega þremur áratugum eftir að Lars Von Trier og Thomas Vinterberg hristu upp í kvikmyndaheiminum með Dogma 95 stefnuyfirlýsingunni. Dogma 25 er björgunleiðangur og menningarleg uppreisn segja þau og setja sér 10 skýrar reglur um hvernig bíó þau ætla að búa til - meðal annars ætla þau ekki að nota internetið og handskrifa handritin sín. Í mars ko...

May 20, 202556 minEp. 285

Þjóðmál í Lestinni

Gísli Freyr Valdórsson er stjórnandi hlaðvarpsins Þjóðmál. Þar fer fram hispurlaus umræða um stjórnmál, efnahagsmál og menningu. Þátturinn hóf göngu sína í mars 2021, eftir ár af Covid, en áður en Þjóðmál varð hlapvarpsþáttur þá var það tímarit. Hvers vegna að breyta tímariti í hlaðvarp? Og hvers vegna eru engir viðmælendur af vinstri vængnum?

May 19, 202555 minEp. 284

Hugleikur spjallar um Leg, ritskoðun listafólks í Þýskalandi

Lestin lítur við á Borgarbókasafninu og hittir þar sýrlenska sýningarstjórann, listamanninn og aðgerðasinnan, Khaled Barakeh. Hann er að opna sýninguna Absenced þar sem hann sýnir verk eftir listafólk sem hefur verið þaggað niður í vegna stuðnings þess við Palestínu. Það eru komin 18 ár frá því að söngleikurinn Leg eftir Hugleik Dagsson var frumsýndur. Í næstu viku munu útskriftarnemar á leikarabraut sýna verkið. Við spjöllum við Hugleik um ádeilu og grín, hnakka og trefla.

May 15, 202555 minEp. 283

Reykjavík 112, raftónlist um virkjanir, Elfar Logi segir sögur

Reykjavík 112 nefnist ný íslensk spennuþáttaröð á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru byggðir á bók Yrsu Sigurðardóttur. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Elfar Logi Hannesson leikari og leikhússtjóri Komedíuleikhússins í Haukadal í Dýrafirði er væntanlegur til borgarinnar til að setja upp einleikinn Ariasman í Tjarnabíói. Við hringjum vestur á Þingeyri og ræðum um leikhús, sögumennsku og einleiki. Á laugardag kemur út raftónlistarplatan Vatn og Raf og á sama tíma opnar sýning með ljósmyndum sem ...

May 14, 202556 minEp. 282

Snilld Nathan Fielder, tengslamyndun, Venusarstyttan á 1. maí

Una Schram ræðir við Sæunni Kjartansdóttur, sálgreini, um tengslamyndunarkenningar í rómantískum samböndum, en algórythmi Unu er stútfullur af efni því tengdu. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir veltir fyrir sér tilgangi þess að endurgera pólitíska gjörninga fortíðar. Venusarstyttan á 1. maí er til skoðunar. Hver er snilld Nathan Fielder? Pálmi Freyr Hauksson og Tumi Björnsson velta þvi fyrir sér hvað gerir sjónvarpsþætti Fielders sérstaka.

May 13, 202555 minEp. 281

Kanye á nasista-tímabili, líkvaka páfans, listamenn fjárfesta

Skiptir það sem Kanye West segir og gerir engu máli lengur? Nýjustu lögin hans virðast gerð til að stuða, en er eitthver stuðaður? Árni Már Þ. Viðarsson, myndlistamaður og stofnandi Gallery Port, hefur sett á fót nýtt verkefni sem heitir Afland og er listamannarekinn fjárfestingasjóður. Guðrún Úlfarsdóttir þekkir manneskjur sem fóru á líkvöku Páfans.

May 12, 202556 minEp. 280

Ein pæling í Lestinni

Við ræðum við stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, Þórarinn Hjartarson. Hlaðvörp skipta æ meira máli í þjóðfélagsumræðunni og við ætlum að ræða við stjórnendur hlaðvarpa í Lestinni næstu vikurnar.

May 08, 202556 minEp. 279

Notes to John, veðmálasíður, G-21 sena og Cornucopia

Veðmálasíður verða sífellt fyrirferðarmeiri. Áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur auglýsa þær og veðmál á íþróttaleiki virðast færast í aukana hjá ungu fólki. KSÍ stendur fyrir málþingi um veðmál og áhrif þeirra á íþróttir og samfélagið. Ásdís Sól Ágústsdóttir veltir því fyrir sér hvort það sé í lagi að lesa Notes to John, bók Joan Didion sem kom út eftir andlát hennar. Er mikilvægara að svala forvitni lesenda en að virða einkalíf látins fólks?

May 07, 202555 minEp. 278

Bernskuheimilið og Saumakallinn í Glæsibæ

Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum skrifaði grein í Eimreiðina árið 1906 þar sem hún lýsti bernskuheimili sínu, en hún ólst upp við mikla fátækt. Greinin vakti athygli á sínum tíma, því hún lýsti því sem ekki mátti lýsa: nöturlegum aðstæðum í íslenskum torfbæ. Greinin er talin vera fyrsti sjálfsævisögulegur þáttur íslenskrar konu. Til stendur að gefa greinina út í bók í sumar. Við heimsækjum verslunina Klístur og saumaverkstæðið Saumakallinn sem er starfrækt í Glæsibæ. Þar er hægt að fá límmiða, fat...

May 06, 202555 minEp. 277

Tollar og kvikmyndir, Minecraft bíómyndin, flökkusögur um flóttafólk

Við ræðum við framleiðandan Hilmar Sigurðsson um ákvörðun Trumps um að setja tolla á kvikmyndir framleiddar á erlendri grundu. Hvaða áhrif gæti það haft á Íslandi? Og afhverju hefur framleiðsla í Los Angeles dregist saman um 40% á undanförnum áratug? Kolbeinn Rastrick fór á Minecraft myndina frægu í bíó og segir frá, myndin hefur vakið athygli fyrir þær sakir að bíógestir henda poppi í ákveðnu atriði myndarinnar, bíóstarfsfólki til mikils ama. Og að lokum ræðir Kristján Guðjónsson við þjóðfræðin...

May 05, 202556 minEp. 276

Soft shell, Jarðsetning, þjóðlagasafnari heimsækir Ísland

Derek Piotr er bandarískur tónlistarmaður og þjóðlagasafnari sem hefur eytt seinustu árum í að ferðast um heiminn og taka upp gömul þjóðlög til varðveislu fyrir vefsíðu sína Fieldwork Archive. Fyrir nokkrum árum spjölluðum við við Derek, sem biðlaði þá til hlustenda Rásar 1 að hafa samband við sig til að hann gæti tekið upp íslenskar rímur og söngva í munnlegri geymd en Derek er nú á leið til landsins í maí til að leita uppi þessar vísur, ásamt því að halda tvenna tónleika. Við spjöllum við Dere...

Apr 30, 202555 minEp. 275
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android