Soft shell, Jarðsetning, þjóðlagasafnari heimsækir Ísland - podcast episode cover

Soft shell, Jarðsetning, þjóðlagasafnari heimsækir Ísland

Apr 30, 202555 minEp. 275
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Derek Piotr er bandarískur tónlistarmaður og þjóðlagasafnari sem hefur eytt seinustu árum í að ferðast um heiminn og taka upp gömul þjóðlög til varðveislu fyrir vefsíðu sína Fieldwork Archive. Fyrir nokkrum árum spjölluðum við við Derek, sem biðlaði þá til hlustenda Rásar 1 að hafa samband við sig til að hann gæti tekið upp íslenskar rímur og söngva í munnlegri geymd en Derek er nú á leið til landsins í maí til að leita uppi þessar vísur, ásamt því að halda tvenna tónleika. Við spjöllum við Derek í Lest dagsins. Katrín Gunnarsdóttir dansari og danshöfundur segir Lóu Björk frá verkinu sínu Soft Shell, sem er meðal annars innblásið af ASMR-hljóðáreiti. Við heimsækjum svo Slökkvistöðina, sýningarými í áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Þar sýnir Anna María Bogadóttir arkitekt ljósmyndir af byggingu af niðurrifi Iðnaðarbankans við Lækjargötu. Sýningin er framhald af Jarðsetningar-verkefninu hennar sem hefur verið í gangi undanfarin ár með gjörningi, heimildarmynd og bók svo eitthvað sé nefnt.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android