Reykjavík 112, raftónlist um virkjanir, Elfar Logi segir sögur - podcast episode cover

Reykjavík 112, raftónlist um virkjanir, Elfar Logi segir sögur

May 14, 202556 minEp. 282
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Reykjavík 112 nefnist ný íslensk spennuþáttaröð á Sjónvarpi Símans. Þættirnir eru byggðir á bók Yrsu Sigurðardóttur. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Elfar Logi Hannesson leikari og leikhússtjóri Komedíuleikhússins í Haukadal í Dýrafirði er væntanlegur til borgarinnar til að setja upp einleikinn Ariasman í Tjarnabíói. Við hringjum vestur á Þingeyri og ræðum um leikhús, sögumennsku og einleiki. Á laugardag kemur út raftónlistarplatan Vatn og Raf og á sama tíma opnar sýning með ljósmyndum sem prýða umslag og bækling plötunnar. Ljósmyndirnar og tónlistin mynda eina heild, en innblásturinn kemur frá íslenskum vatsnaflsvirkjunum. Svarthvítar ljósmyndirnar eru teknar í og við þessi miklu mannvirki og tónlistin notast meðal annars við hljóðupptökur innan úr virkjunum. Að baki þessu verki eru ljósmyndarinn Björgvin Sigurðarson og tónlistarmennirnir Jóhannes Birgir Pálmason og Árni Grétar Jóhannesson, betur þekktur sem Futuregrapher - en Árni féll frá í byrjun árs.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android