Í verkinu Eden kafa Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir ofan í sköpunarsöguna og taka sér pláss í sjálfum aldingarðinum upprunalega. Eden er hinsegin fötlunarparadís sem afmiðjar norm samfélagsins og leyfir áhorfendum að finna fyrir hinu erótíska innra með sér. Lóa spjallar við sviðslistakonurnar. Við kynnum okkur The Settlers nýja heimildarmynd Louis Theroux um ísraelskar landtökubyggðir á Vesturbakkanum í Palestínu. Theroux fjallaði um samfélög landtökufólks í heimildaþætti fyri...
Apr 29, 2025•55 min•Ep. 274
Við gröfum í kistu Ríkisútvarpsins eftir efni sem fjallar um YouTube, sem fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Hugmynd sem kviknaði hjá þremur fyrrum starfsmönnum PayPal átti að gjörbylta stefnumótasíðum. En það gekk illa að fá stelpur til þess að hlaða upp myndböndum af sér, þó greiðslu væri lofað. Í staðinn fengum við YouTube. Og YouTube breytti heiminum. Rimmugýgur heldur utan um Víkingaþorp á Galdrafári, lista- menningar- og fræðahátíð á Hólmavík á Ströndum sem er haldin í annað sinn næstu...
Apr 28, 2025•56 min•Ep. 273
Björgúlfur Jes Einarsson úr hljómsveitinni Spacestation átti viðburðarríkan marsmánuð. Hljómsveitin vann lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, gáfu út plötuna RVK Syndrome og spiluðu á tónleikum erlendis. Og næsta skref hjá Björgúlfi eða Bjögga, er að gefa út fyrstu smáskífu nýs sólóverkefnis sem ber heitið Straff. Við frumflytjum svo lag sem kemur út á föstudaginn. Hver er Addison Rae? Og hvað er hún að gera í Iceland-versluninni í Vesturbergi í Breiðholti? Eitt sinn TikTok-stjarna en nú...
Apr 23, 2025•56 min•Ep. 272
Frans páfi, æðsti trúarleiðtogi kaþólsku kirkjunnar, er látinn 88 ára að aldri. Samkvæmt hefðinni verður nýr páfi valinn í leynilegu páfakjöri sem hefst 15 dögum eftir andlátið. Kristján og Lóa ræða tvær nýlegar bíómyndir sem fjalla um páfa og páfakjör, Two Popes og Conclave. Í byrjun árs fóru í loftið útvarpsþættirnir Hvar er Jón? sem er samstarfsverkefni RÚV og írska ríkisútvarpsins RTÉ. Þættirnir fjalla um sporlaust hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dublin árið 2019. Jón Þröstur var kominn til b...
Apr 22, 2025•55 min•Ep. 271
Anna María Tómasdóttir leikstjóri vill hafa húmor í leikhúsi. Það er ekki nauðsynlegt að vera í hláturskasti allan tímann, en það verður að vera eitthvað fyndið. Hún vill sjá fleiri íslensk leikrit, því þau eru það besta, og henni þætti einnig sniðugt ef Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið myndu stilla saman strengi sína. En fyrst og fremst vantar hér leiksvið. LucasJoshua er 17 ára gamall raftónlistarmaður. Hann hlaut verðlaunin Rafheili Músíktilrauna í ár. Þórður Ingi Jónsson sló á þráðinn til ha...
Apr 16, 2025•55 min•Ep. 270
Undanfarna mánuði hafa hrúgast í innhólfið mitt tilkynningar um þekkta erlenda tónlistarmenn sem ætla sér að leika á tónleikum á Íslandi í sumar. Þessar hljómsveitir eru þó flestar komnar af léttasta skeiði, og markhópurinn kannski líka. Við ætlum að kynna okkur hvaða stóru erlendu listamenn eru að spila á Íslandi í sumar og reikna út meðalaldur markhópsins. Við ætlum líka að kynna okkur drama í bresku tónlistarlífi, deilur rapparans Little Simz og samstarfsmanns hennar InFlo. Þau hafa unnið sam...
Apr 15, 2025•55 min•Ep. 269
Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again.
Apr 14, 2025•52 min•Ep. 268
Nú um helgina fór í loftið síðasti þátturinn í þriðju þáttaröð White Lotus, hinna vinsælu þátta sem gerast á lúxusdvalarstöðum víða um heim sem eru þó allir hluti af hótelkeðju Hvíta Lótussins. Brynja Hjálmsdóttir gagnrýnandi Lestarinnar saknar Tanyu McQuoid úr seríunni. Við ætlum líka að heimsækja Gallerí Port þar sem nú stendur yfir sýningin Hagvextir og saga þjóðar. Fjórir einstaklingar sem vinna á mörkum hönnunar og listar koma þar saman og fást við töluleg gögn, gröf og hagfræðilegar stærði...
Apr 10, 2025•54 min•Ep. 267
Í febrúar kom út spennandi plata með tónlistarkonunni Alaska1867. Kolfreyja Sól byrjaði að gera tónlist undir teppi úti í bíl með vinkonum sínum þegar hún var 18 ára. Það er mikið að gera hjá Alaska, fleiri lög á leiðinni og senan hefur tekið vel á móti henni, enda kemur hún sem ferskur andblær inn í íslenskt rapp. Árið 2023 hætti Rauða serían að koma út eftir 38 ára langa sögu. Við heimsóttum konuna sem stendur að baki útgáfunni, sem hefur svo sannarlega sett sitt mark á íslenska bókaútgáfu, Ró...
Apr 09, 2025•56 min•Ep. 266
Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram um helgina en þá léku tíu hljómsveitir í Hörpu. Það var drungapönksveitin Geðbrigði sem bar sigur úr býtum. Við ræðum við Agnesi Ósk og Ásthildi Emmu úr hljómsveitinni. Við fáum seinni pistilinn um Hönnunarmars frá Unu Maríu Magnúsdóttur. Sjálfbærniþvaður, djúpblá þörungamálning, og persónulegur absúrdismi í gervigreindarmyndum er meðal þess sem kemur við sögu í pistlinum. Við hringjum svo niður í Bíó Paradís, sem var nýlega valið eitt svalasta kvikmyndahús he...
Apr 08, 2025•56 min•Ep. 265
Við fáum tvo menn sem hafa ólíkar skoðanir á rafmyntum og bitcoin í tilefni af nýs fyrirkomulags sem Trump lagði til í upphafi mars-mánaðar, U.S. crypto reserve, eða Rafmyntasjóður Bandaríkjanna. Við ræddum við Eirík Inga Magnússon og Gylfa Magnússon, prófessor, í 6. þætti af Konungssinnar í Kísildal, og nú flyjtjum við lengri brot úr þeim samtölum. Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, flakkar um HönnunarMars. Guðný Hrund Sigurðardóttir, búningahönnuður, kafaði djúpt ofan í heim Ladda, vi...
Apr 07, 2025•56 min•Ep. 264
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði frjálshyggjunnar. Hann hefur rætt við Thatcher og Hayek og Milton Friedman. Fáir þekkja hægristefnuna jafn vel og hafa barist jafn mikið fyrir sjónarmiðum frjálshyggjunnar hér á landi, í ræðu og riti. Við ræðum Trump-stjórnina, ólíkar stefnur innan bandaríska hægrisins, muninn á frjálshyggju og liberalis...
Apr 03, 2025•54 min•Ep. 263
Rokkhljómsveitin Kino var ein vinsælasta rokksveit heims árið 1990 þegar söngvari hennar lést í bílslysi aðeins 28 ára gamall. Sveitin var þó lítið þekkt á vesturlöndum en var dýrkuð og dáð í Sovétríkjunum. Við rifjum upp söguna af Kino og rómantísku hetjunni Viktor Tsoi í Lestinni í dag. Það hafa fáar heimildarmyndir vakið jafn sterk viðbrögð og palestínsk-ísraelska myndin No Other Land sem er sýnd þessa dagana í Bíó Paradís. Myndin er margverðlaunuð, meðal annars var hún valin besta heimildarm...
Apr 02, 2025•53 min•Ep. 262
Við fáum leikstjórann Egil Heiðar Anton Pálsson í samtal um leikhúsið, í seríuna um framtíð sviðslista. Tilkynnt var um það á dögunum að Egill Heiðar hefði verið ráðinn Borgarleikhússtjóri. Hann tekur við starfinu í lok mánaðar. En hvers vegna gerir hann leikhús? Og hvað þarf að vera til staðar í samfélaginu til að listalífið blómstri? Katrín Helga Ólafsdóttir flytur okkur pistil um myndina Animality eftir listamanninn Ai Wei Wei, sem hún sá á CPH:DOX, alþjóðlegri heimildamyndahátíð í Kaupmannah...
Apr 01, 2025•53 min•Ep. 261
Heimurinn er á heljarþröm, fréttirnar uppfullar af stríðum, hnignandi lýðræði og þjóðarmorðum. En maður verður að rækta garðinn sinn, sagði Birtingur í samnefndri skáldsögu, um rétta viðbragðið við hryllingi heimsins. Við tökum orð hans bókstaflega og beinum sjónum okkar að garðrækt í Lestinni í dag. Við heimsækjum Auði Ingibjörgu Ottesen. Við kynnumst líka tónlistarverkefninu Zorza sem er ætlað að tengja saman pólska og íslenska tónlistarsenu. Fyrstu tónleikarnir fara fram í kvöld í Silfurbergi...
Mar 31, 2025•55 min•Ep. 260
Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt hann sinn nánasta félaga í Kísildalnum. Sacks eignaðist umtalsverða peninga eftir að hann tók þátt í að koma Paypal á kopp, og hefur æ síðan verið áhugasamur um rafmyntir. Í þessum þætti sökkvum við okkur ofan í heim rafmynta og þá hugmyndafræði sem liggur honum til grundvallar - trúna á að tími ríkisv...
Mar 27, 2025•52 min•Ep. 259
Sjónvarpsþættirnir Adolescence, eða ungdómur, sem sýndir eru á Netflix eru mikið í umræðunni þessa dagana. Þetta eru fjölskyldudrama um stöðu ungra karlmanna í dag, týnda karlmenn sem falla auðveldlega í faðm eitraðra áhrifavalda. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina. Við fáum líka sendingu frá Katrínu Helgu Ólafsdóttir, en hún er útsendari Lestarinnar á Heimildamyndahátíðinni Kaupmannahöfn, CPH DOX. Hún fór og sá nýja heimildarmynd um hinn magnaða japanska teiknimyndagerðarmann Hayao Miyazaki. K...
Mar 26, 2025•54 min•Ep. 258
Við hittum Rakel Mjöll Leifsdóttur, söngkonuna í hljómsveitinni Dream Wife. Hljómsveitin hefur aðsetur í London, og þó þau hafi spilað á tónleikum á Íslandi er loksins komið að því að þau haldi sína eigin. Á fimmtudaginn taka Dream Wife yfir sviðið í Iðnó og að því tilefni mælti Una Schram sér mót við Rakel Mjöll. Við flettum aftur í bókinni Þessir djöfulsins karlar, sænskri bók eftir Andrev Walden, sem Þórdís Gísladóttir þýddi og kom út síðasta haust.
Mar 25, 2025•56 min•Ep. 257
Nú um helgina fór í loftið síðasti þátturinn í annarri seríu af Severance, eins mótsagnakennt og það hljómar eru þættirnir vísindaskáldskapur sem gerist að mestu leyti á yfirmáta venjulegri skrifstofu. Dularfullt stórfyrirtæki, Lumon Industries, hefur þróað tækni sem klýfur huga fólks í tvennt en þannig getur fólk skilið fullkomlega milli vinnu og einkalífs . Skapari þáttanna er Dan Ericksen en það er grínleikarinn Ben Stiller sem er aðalframleiðandi og leikstýrir stórum hluta þáttanna. Við ræðu...
Mar 24, 2025•54 min•Ep. 256
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem...
Mar 20, 2025•55 min•Ep. 255
Við ræddum við Steinar Braga, rithöfund, fyrir jól um nýju bókina hans, Gólem.
Mar 19, 2025•55 min•Ep. 254
Samtalið um framtíð sviðslista heldur áfram, að þessu sinni ræðum við við tvo unga útskriftarnemendur af Sviðshöfundabraut Listaháskólans. Marta Ákadóttir og Grímur Smári Hallgrímsson eru fulltrúar ungu kynslóðarinnar, fulltrúar framtíðar sviðslista á Íslandi.
Mar 18, 2025•53 min•Ep. 253
Ferðasagan er að minnsta kosti 2500 ára gömul bókmenntagrein sem hefur þróast umtalsvert í gegnum tíðina. En hver er staða ferðasögunnar á 21. öldinni, á tímum Tiktok og Tripadvisor, áhrifavalda og eftir-nýlendustefnunnar? Er ferðasagan kannski bara úrelt form? Huldar Breiðfjörð, rithöfundur og handritshöfundur, spjallar um ferðabækur í nútíð og fortíð. Á handritasýningunni Heimur í orðum, sem opnuð var í Eddu í nóvember á síðasta ári, gefst fólki kostur á að sjá íslensku handritin. Þarna eru he...
Mar 17, 2025•55 min•Ep. 252
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum í gær. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem...
Mar 13, 2025•53 min•Ep. 251
Það er grænlensk vika á Rás 1 og að því tilefni ætlum við að ræða um grænlenskt hip hop við mann sem hefur fylgst lengi með rappsenunni í þessu næsta nágrannalandi okkar. Það er enginn annar en Erpur Eyvindarson sem spjallar við Lestina í dag um grænlenska rappsögu, allt frá frumkvöðlunum í Nuuk Posse til pólitísku rappstjörnunnar Tarrak. Una Gíslrún Schram kíkir í arabískt kaffi til Blazroca. Hvað þýðir þetta orð, woke? Vók? Er hægt að útskýra það á hátt sem allir eru sammála? Í upphafi vikunna...
Mar 12, 2025•56 min•Ep. 250
Tónskáldið Gabríel Ólafsson sendi frá sér geimþemaplötuna Polar nú á dögunum en hljóðheimur plötunnar er ekki síður innblásinn af stærstu spendýrum jarðarinnar, hvölunum. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við Gabríel um plötuna og sameiginlegt áhugamál þeirra, hvali. Hermann Stefánsson rifjar upp ljóðrænan misskilning gervigreindarinnar varðandi sorg. Hann pælir í tíma sorgarinnar, sjúkdómsvæðingu hennar, og sorg sem kyndir hús. Og við rennum við í Fjölbrautaskólanum við Ármúla þar sem nú stendur y...
Mar 11, 2025•54 min•Ep. 249
Jóhann Kristófer Stefánsson lærði sviðslistir í Listaháskóla Íslands. Ásamt því að gera tónlist gerir hann meðal annars sjónvarpsþætti og sá nýjasti heitir Sviðið og fjallar hann um íslensku sviðslistasenuna. Við höldum áfram að velta fyrir okkur framtíð leikhússins og stöðuna í leikhúsunum í dag. Kolbeinn Rastrick segir frá The Brutalist úr smiðju Brady Corbet, sem Adrien Brody hlaut Óskarinn fyrir á dögunum. Katrín Helga Ólafsdóttir flytur pistil í pistlaröð sinni um hvali.
Mar 10, 2025•55 min•Ep. 248
Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum nýlega. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra se...
Mar 06, 2025•55 min•Ep. 247
Spennuþættirnir Day of the Jackal með Eddie Redmayne í aðalhlutverki njóta nokkurra vinsælda um þessar mundir. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina og hefur sterkar skoðanir. Við höldum áfram að velta fyrir okkur risum hafsins, hvölum. Að þessu sinni heyrum við í Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur, tónskáldi, sem hefur unnið tónverk innblásið af hljóðum hvölum. Íranska myndasagan Persepolis kom út í íslenskri þýðingu nú í haust. Lóa ræðir við Kjartan Orra Þórisson Íranssérfræðing um þessa mögnuðu my...
Mar 05, 2025•53 min•Ep. 246
Lóa Björk var alla helgina á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn var sögulegur fyrir tvennar sakir. Formannstíð Bjarna Benediktssonar lauk, en hann hefur gegnt embætti formanns Sjálfstæðisflokksins síðan 2009. Og í fyrsta sinn í sögu flokksins var kona kjörin formaður. Guðrún Hafsteinsdóttir vann Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur með naumindum um helgina. Spenna meðal fundargesta var áþreifanleg. Rætt er við fundargesti og atburðarrás helgarinnar þrædd.
Mar 04, 2025•55 min•Ep. 245