Grænlenskt rapp með Erpi, orðabókaskilgreining á Woke - podcast episode cover

Grænlenskt rapp með Erpi, orðabókaskilgreining á Woke

Mar 12, 202556 minEp. 250
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Það er grænlensk vika á Rás 1 og að því tilefni ætlum við að ræða um grænlenskt hip hop við mann sem hefur fylgst lengi með rappsenunni í þessu næsta nágrannalandi okkar. Það er enginn annar en Erpur Eyvindarson sem spjallar við Lestina í dag um grænlenska rappsögu, allt frá frumkvöðlunum í Nuuk Posse til pólitísku rappstjörnunnar Tarrak. Una Gíslrún Schram kíkir í arabískt kaffi til Blazroca. Hvað þýðir þetta orð, woke? Vók? Er hægt að útskýra það á hátt sem allir eru sammála? Í upphafi vikunnar deildu Bjarni Snæbjörnsson, leikari, og Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona, um merkingu þessa orðs, í aðsendum pistlum á Vísi. Og þau virtust hafa mjög ólíkar skoðanir á þvi hvað orðið merkir. Við fáum innsendar skilgreiningar á orðinu og hugleiðingar um merkinguna og hvers vegna það gæti verið flókið að útskýra hana.
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android