Konungssinnar í Kísildal #3 - Borgarskipulagsfræðingurinn - podcast episode cover

Konungssinnar í Kísildal #3 - Borgarskipulagsfræðingurinn

Mar 06, 202555 minEp. 247
--:--
--:--
Download Metacast podcast app
Listen to this episode in Metacast mobile app
Don't just listen to podcasts. Learn from them with transcripts, summaries, and chapters for every episode. Skim, search, and bookmark insights. Learn more

Episode description

Konungurinn lengi lifi, skrifaði Donald Trump um sjálfan sig á samfélagsmiðlum nýlega. Frá því að hann tók við embætti forseta í Janúar hefur hann unnið að því að gjörbylta bandarísku stjórnkerfi og samfélagi með suðurafríska tæknimógúlinn Elon Musk sér við hlið. Hugmyndirnar sem þeir styðjast í niðurrifinu og uppbyggingu hins nýja samfélags hafa lengi verið að bruggast í tæknigeiranum - og þær eru róttækari en marga grunar. Lýðræðið er komið á endastöð, og Bandaríkin þurfa snjallan forstjóra sem stýrir samfélaginu eins og sprotafyrirtæki. Það þarf að byggja upp einveldi, nýtt konungsdæmi, segja jafnvel sumir. Næstu vikurnar ætlum við að sökkva okkur ofan í þessar byltingarhugmyndir og hugsuðina á bakvið þær, konungssinnana í Kisildal. Í þriðja þættinum fjöllum við um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að kaupa Grænland. Efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars: - The Network State: How to start a new country, bók eftir Balaji Srinivasan, aðgengileg á https://thenetworkstate.com/ Viðtöl, fyrirlestrar og blogg: - Silicon Valley's ultimate exit (Balaji Srinivasan)- https://www.youtube.com/watch?v=n1kfVAX7WGU - Competitive Government (Patri Friedman) - https://www.youtube.com/watch?v=MSO-ZAQiFAI&ab_channel=TheNetworkStatePodcast - The World's first charter city (Paul Romer) - https://www.youtube.com/watch?v=30kPKxGuHLA - Grænlandsþráður Dryden Brown á X - https://x.com/drydenwtbrown/status/1856424282823541099 - TradHumanism and building the future (Dryden Brown) - https://www.youtube.com/watch?v=9T5K2TGLfC8 - Gaza Inc. (Curtis Yarvin) - https://graymirror.substack.com/p/gaza-inc - Pronomos Capital - https://www.pronomos.vc/portfolio Umfjallanir um Network state hreyfinguna: - Who Would Give This Guy Millions to Build His Own Utopia? - https://www.nytimes.com/2023/12/12/style/praxis-city-dryden-brown.html - Crack-up capitalism, bók eftir Quinn Slobodian https://us.macmillan.com/books/9781250753892/crackupcapitalism/
For the best experience, listen in Metacast app for iOS or Android